Morgunblaðið - 12.08.1978, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 12.08.1978, Qupperneq 48
AU<;lYSIN<;ASÍM!NN ER: 22480 JítorijunbTfiliiti LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 1978 LANDBÚNAÐARSÝNINGIN 1978 var opnuð á Selfossi í gær. Hún er í Gagnfræðaskólanum þar á staðnum og útisvæði í næsta nágrenni. A sýningunni gefur að líta afurðir landbúnaðarins, vélar og tæki til búvöruframleiðslu, búfé og margt annað, sem tengist landbúnaði og landbúnaðarstörfum. Sýningin verður opin til 20. ágúst n.k. Ljósm. Mbl. RAX. V erkamanna- sambandid: Nú kemur Kekkonen til laxveiða KEKKONEN Finnlandsforseti kemur hingað til lands árdegis á morgun, sunnudag, en for- setinn hefur nú um skeið komið á hverju sumri til að stunda hér laxveiðar og þann- ig stendur á ferðum hans nú. Kekkonen mun fyrst snæða hádegisverð með dr. Kristjáni Eldjárn forseta íslands, en fer síðan strax til laxveiða og verður í vikutíma. Það verður því óvenju margt fyrirmanna hér á landi um þessa helgi. Auk Kekkonens er Karl Bretaprins við veiðar í Vopnafirði, eins og áður hefur komið fram, og bróðir hans Andrew er væntanlegur til landsins í stutta heimsókn á sunnudagskvöld. Vill sætt- ir Alþýðu- flokksins og Alþýðu- bandalags / gista Island: TVÍSÝNT er nú þegar orðið um framhald tilrauna forsvarsmanna Sjálfstæðisflokksins til að mynda samsteypustjórn Sjálfstæðis- flokks, Alþýðuflokks og_ Framsóknarflokks og er orsökin ályktun Verkamannasambands ísiands þess efnis, að Alþýðuflokki og Alþýðubandalagi beri að taka að nýju upp viðræður. Tillaga að þessari áiyktun var borin fram af þeim Guðmundi J. Guðmundssyni og Karli Steinari Guðnasyni, helztu verkaiýðsforkólfum hvors flokks. Innan beggja flokka er litið á þetta frumkvæði Verkamannasambandsins sem ábendingu af hálfu verkalýðsleiðtoga innan beggja flokka til forsvarsmanna þeirra um að siíðra sverðin eftir deilurnar, sem risu upp þegar slitnaði upp úr vinstri viðræðunum á dögunum, og flokkarnir reyni á nýjan leik að ná samkomulagi. Forsvarsmenn beggja flokkanna hafa tekið vel í ályktun Verkamannasambandsins. Tvísýnt um framhald Stefamú-viðræðnanna Forsvarsmenn bæði Alþýðuflokks og Alþýðubandalags fengu vitneskju um það þegar í fyrradag að vænta mætti ályktunar frá Verkamanna- sambandinu í þessa veru, og enda þótt forsvarsmenn Alþýðuflokksins létu ályktunarinnar ekki getið í stjórnarmyndunarviðræðunum í gærmorgun, vakti það engu að síður athygli viðmælenda þeirra, að al- þýðuflokksmennirnir höfðu ekkert til málanna að leggja og virtist svo sem þeir hefðu ekki umboð til annars en að mæta á fundinum að því er Mbl. hefur fregnað. Viðræðufundurinn í gærmorgun var annars mjög almenns eðlis, að sögn forsvarsmanna flokkanna, en næsti fundur hefur verið boðaður á mánudaginn kemur og þá gert ráð fyrir að flokkarnir leggi fram hugmyndir sínar. Geir Hallgrímsson formaður Sjálfstæðisflokksins vildi ekki tjá sig um horfurnar eftir þennan fyrsta viðræðufund. Bene- dikt Gröndal formaður Alþýðu- fiokksins kvað viðhorfin hafa verið rædd almennt, en síðan hefði verið haldinn þingflokksfundur hjá þeim alþýðuflokksmönnum um þessar viðræður og fleiri atriði. Steingrím- ur Hermannsson ritari Framsóknar- flokksins sagði að þeir fulltrúar flokksins í þessum viðræðum myndu á næsta fundi leggja fram mótaðar tillögur varðandi efnahagsmál, þar sem m.a. er gert ráð fyrir grund- vallarbreytingu á efnahagsstefnunni i þá veru að ríkisstjórnin setji sér ákveðin markmið til að draga úr verðbólgunni í vissum áföngum, en standi fast gegn öllum hækkunum er rjúfi hið tiltekna þak og séu þetta svipaðar hugmyndir og Bretar hafi verið með uppi og reyndar fram- kvæmt. Einnig kvað Steingrímur stefnt að algjörri uppstokkun vísi- tölukerfisins. Kekkonen Fyrirmenn Tugir tonna af togara- þorski beint í gúanó í AFLAHROTU togaranna að undanförnu hefur það borið við á ýmsum stöðum þar sem ekki er um mjög afkastamikil frystihús að ræða, að vorulegur þorskafli hefur farið beint í fiskimjölsverksmiðjur og hefur vetta numið allt að 50 tonnum úr einu skipi. Hefur þetta gerzt bæði vegna ■rfiðleika við að koma fiski í vinnslu og vegna óvenju mikils afla. Við höfðum samhand við nokkra staði Norðanlands í gær og inntum frétta af gangi þessara mála, og bar mönnum á Dalvík, Hríscy og Ólafsfirði saman um. að hér væri um tímahundið ástand að ræða. „í þessum mánuði hafa 45 tonn af þorski farið í mjölvinnslu og þar af 35 tonn beint úr togurunum Björgvin og Björgúlfi," sagði Aðalsteinn Gottskálksson verkstjóri í frystihús- inu á Dalvík, „en þar að auki var 66% af kassafiski dæmt frá vinnslu í frost og varð því að vinna þann afla i salt, eða um 89 tonn af 220 tonnum úr þeirri veiðiferð. Þetta var sem sagt afli fyrstu þriggja veiðidag- anna. Ástæðan? Það leggst allt, á .*♦♦ stór höl í flottrollið, heitasta t®)..á’oilið, lélegur fiskþvottur um borð, ísskort- ur og sumarfrí í frystihúsum þannig að öll vinnsla tekur l.engri tíma. Margir togaranna framleiða sjálfir ísinn um borð og það virðist ýmsum erfiðleikum háð á þessum árstíma. Þá ererillinneinnig verulegameiri en áður og t.d. höfum við tekið á móti 898 tonnum nú miðað við 813 tonnum á sama tima í fyrra, en þetta er 13% aukning og metmánuður hjá okkur. Það hefst hreinlega ekki undan þótt við vinnum til kl. 11 á hverju kvöldi og fólk hefur verið kallað heim úr sumarfríum. í þessum afla að undanförnu hefur einnig verið talsvert af lausafiski og það veldur þvi að bæði nýting og afköst hjá okkur falla úr 88 og 89% í 83 og 84%. Kassafiskurinn er það miklu betra hráefni. Það má því segja að það vanti samstillingu í vinnslu og afla, en einnig spilar það inn í að efnisleg gæði fisksins úr stóru hölunum eru verri og þessi fiskur er jafnframt með átu í sér og því mun viðkvæmaritilvinslu.Stóra málið er það að ekki er nóg að byggja upp flotann, það þarf einnig að byggja upp fiskvinnsluna og hafn- irnar. Enginn keðja er sterkari en veikasti hlekkurinn og það verða menn að taka með í reikninginn." Sjá „Fyrst og fremst vegna lélegrar ísunar,“ á bls. 2. „VIÐ IIÖFUM það opið með hvaða hætti samstarí þessara tveggja verkalýðsflokka. Alþýðuflokks og Alþýðuhandalags verður, cn leggj- um áherzlu á að viðræður þar að lútandi verði í fullu samráði við verkalýðshreyfinguna," sagði Karl Steinar Guðnason, alþingismaður Alþýðuflokks og varaformaður Vcrkamannasambandsins, þegar Mbl. spurði hann hvað vekti fyrir honum og Guðmundi J. Guðmunds- syni, formanni Verkamannasam- bandsins, með þeirri ályktun sem samþykkt var samhljóða innan sambandsins um að flokkarnir tveir hefji viðra*ður að nýju. í ályktun Verkamannasambands- ins segir orðrétt: „Framkvæmda- stjórn Verkamannasambands Is- lands harmar, að þessir tveir flokkar skuli ekki hafa náð sam- eiginlegri afstöðu í stjórnarmynd- unarviðræðunum. Stjórnin telur sig mæla fyrir munn þúsunda verka- fólks um land allt, þegar hún skorar á báða þessa flokka að taka upp beinar viðræður sín á milli, sem hefðu það að takmarki að ná sameiginlegri afstöðu til að tryggja kaupmátt tekna verkafólks, at- vinnuöryggi og félagslegar úrbætur til handa þeim er minnst mega sín.“ Einnig segir í ályktuninni; „Fram- kvæmdastjórnin telur að ekki skipti öllu máli hvaða leiðir eru farnar að því marki, ef þær leiða til þess að takmarkið náist." Benedikt Gröndal formaður Al- þýðuflokksins sagði í samtali við Mbl. að frumkvæði Verkamanna- sambandsins væri athyglisvert en óvenjulegt en kvaðst ekki á þessu stigi geta sagt til hvers ályktunin leiddi og Ólafur Ragnar Grímsson formaður framkvæmdanefndar Al- þýðubandalagsins kvað ályktunina vera bendingu til beggja flokkanna að reyna að jafna ágreiningsmál sín og talast við að nýju. Sjá nánar um ályktun Verka- mannasamhandsins og við- brögð við henni bls. 32.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.