Morgunblaðið - 05.09.1978, Síða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
200. tbl. 65. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Nýkjörinn páíi, Jóhannes Páll I, ræðir við Josef Luns, framkvæmda-
stjóra Atlantshafsbandalagsins í Páfagarði. Jean Villot kardináli er
til hægri. Sjá bls. 47.
Diplómatar segja Sadat vænta þess
að Frakkar beiti áhrifum sínum í
Efnahagsbandalaginu til þess að styðja
friðartilraunir sínar. Frakkar vilja
heildarlausn með þátttöku allra deilu-
aðila en ekki aðeins lausn á deilu
Egypta og Israelsmanna. Þeir hafa oft
lýst sig fúsa til að ábyrgjast með
öðrum þjóðum lausn sem geri ísraels-
mönnum kleift að búa á bak við traust
landamæri og bindi enda á vandamál
palestínskra flóttamanna.
í New York fékk Begin sér gönguferð
á Park Avenue og keypti nokkur
Begin forsætisráðherra á gangi á
Hernaðarráðunautur hans, Boran
utanbæjarblöð þar sem blöð koma ekki
út í New York vegna verkfalls. „Ég les
alltaf The New York Times. Ég sakna
þess í verkfallinu,“ sagði hann. Hann
neitaði að ræða stjórnmál.
í Jerúsalem var skýrt frá því að
samtök sem kalla sig „Japanska
verkamanna- og bændaflokkinn" hefðu
hótað að ráðast á ísraelskan flugvöll til
að spilla fyrir fundinum í Camp David
ef Kozo Okamoto, sem einn komst lífs
Park Avenue í New York í gær.
hershöfðingi, er til vinstri.
af þegar hryðjuverkamenn japanska
rauða hersins réðust á Lod-flugvöll,
yrði ekki Iátinn laus.
Fréttir frá Líbanon herma að
Sýrlendingar hafi eflt loftvarnir sínar
í austurhluta landsins af ótta við árás
af hálfu ísraelsmanna meðan á fundin-
um stendur. Sjá bls. 46.
Fjarlægðir af
Rauða torginu
Moskvu, 4. september. Reuter.
SJÖ Bandarikjantenn efndu til
afvopnunarmótmæla á Rauða
torginu i dag og lögreglan tók
fjóra þeirra í sína vörzlu ásamt
þremur vestrænum fréttamönn-
um og nokkrum erlendum
skemmtiferðamönnum en sleppti
þeim eftir stutta stund.
Mótmælin skipulögðu samtök
sem hafa bækistöð í New York og
kallast Bandalag andstæðinga
styrjalda (WRL). Þau áttu að fara
fram á sama tíma og svipuð
mótmæli við Hvíta húsið í
Washington þar sem 11 voru
handteknir.
Mótmælafólkið í Moskvu hafði
skýrt fréttamönnum fyrirfram frá
fyrirætlunum sínum og breiddi út
borða sem á stóð: „Sovétríkin og
Bandaríkin — afvopnizt" á rúss-
nesku á slaginu kl. 5.
En lögreglan virtist eiga von á
fólkinu. Nokkrir óeinkennisklædd-
ir menn þrifu borðann af fólkinu
en tveimur mótmælamönnum, sem
voru sitt hvoru megin við torgið,
tókst að fleygja flugmiðum þar
sem skorað var á risaveldin að
semja um meiriháttar af-
vopnunarráðstafanir.
Lögreglan veittist einnig að
vestrænum fréttariturum og leiddi
burtu bandarískan útvarpsfrétta-
mann, vestur-þýzkan myndatöku-
mann og annan bandarískan
fréttamann. Lögreglan handtók
einnig hóp brezkra og franskra
ferðamanna sem áttu leið um
torgið og hafði hirt nokkra flug-
miða. Þremur mótmælamönnum
var leyft að fara frá torginu eftir
mótmælaaðgerðina.
Leiðtogi mótmælafólksins, út-
varpsmaðurinn Jerry Coffin,
hringdi seinna í fréttamenn til að
tilkynna að fólkið hefði verið látið
laust og sagði að það hefði aðeins
verið yfirheyrt á rússnesku sem
það kynni ekki. Coffin hefur mikla
reynslu af mótmælum og var
undrandi á skjótum viðbrögðum
lögreglunnar.
Valery Giscard d’Estaing forseti tekur á mótUAnwar Sadat forseta
í Elysee-höll. Sadat kom við í París á leið sinni til viðræðnanna í Camp
David við Carter forseta og Begin forsætisráðherra.
Glistrup
fyrir rétti
Kaupmannahöfn. 4. septembor. Reuter.
SKATTSVIKAMÁL Mogens
Glistrups leiðtoga Framfara-
flokksins var tekið fyrir að
nýju í dag og lögfræðingur
hans sagði að Glistrup hygðist
vísa málinu til Alþjóðamann-
réttindanefndarinnar í New
York og Strassborg.
Borgardómstóllinn í Kaup-
mannahöfn dæmdi Glistrup til
að greiða sekt að upphæð 1.5
milljónir danskra króna fyrr í
ár en ríkissaksóknarinn áfrýj-
aði dómnum þar sem honum
fannst hann of vægur.
Carter er vantrúaður á
árangur í Camp David
Washington 4. september.
Reuter AP
CARTER forseti sagði í dag að það
væri fjarlægur möguleiki að alger
árangur næðist í viðræðum hans við
Menachem Begin forsætisráðherra
ísraeis og Anwar Sadat forseta
Egyptalands er hefjast í Camp David
en kvað enga ástæðu til að örvænta.
Hann skoraði á Sadat og Begin að
sýna samkomulagsvilja og sagði að
sveigjanleiki væri undirstaða tilraun-
anna til að finna friðsamlega lausn á
deilumálunum í Miðausturlöndum.
Hann kvað mikla uppörvun fólgna í
„þeirri öruggu vissu að bæði Begin
forsætisráðherra og Sadat forseti vildu
raunverulega frið.“ „Þeir eru staðráðn-
ir í að ná árangri og ég er það líka,“
sagði forsetinn.
í París reyndi Sadat forseti í dag að
tryggja sér stuðning Frakka fyrir
fundinn í Camp David. Hann kom við
í París á leið sinni til Bandaríkjanna
og ræddi í nokkra klukkutíma við
Valery Giscard d'Estaing forseta.
Skæruliðar myrða tíu
sem lifðu af flugslys
Salisbury 4. sept.
Rcuter. AP.
SKÆRULIÐAR blökkumanna
myrtu 10 manns sem komust
lífs af þegar rhódesísk farþega-
flugvél steyptist til jarðar á
bardagasvaéði nálægt landa-
mærum Zambíu f gær að því er
tilkynnt var í Salisbury í dag.
Skæruliðarnir skutu fólkið
af örstuttu færi með rifflum af
gerðinni Kalashnikov. Þrír
lifðu af skothríðina og fimm
aðrir sem komust lífs af í
flugslysinu, voru farnir frá
flakinu til að ná í hjálp.
Flugvélin var af gerðinni
Viscount frá flugfélagi Rhódesíu
og fórst skömmu eftir flugtak.
Flugvélin var að fara frá
ferðamannabænum Kariba til
Salisbury með 52 farþega, þar af
11 börn, og fjögurra manna
áhöfn. Vélarbilun olli slysinu og
að minnsta kost 18 komust lífs
af. ,
Að minnsta kosti sex hinna
myrtu voru konur. Yfirvöld
segja að flugvélin hafi hrapað á
svæði þar sem állt sé morandi af
ljónum, hlébörðum og hryðju-
verkamönnum. Skæruliðarnir
rændu úr flugvélinni eftir
morðin.
Þau þrjú sem lifðu af skot-
árásina eru karlmaður og hjón.
Fjögurra ára gömul telpa var
ein þeirra fimm sem fóru frá
flakinu og björguðust.
Þetta eru mestu fjöldamorð í
skærustríði því sem hefur geis-
að í Rhódesíu í sex ár síðan 13
brezkir trúboðar og börn þeirra
voru myrt í trúboðsskóla í
Austur-Rhódesíu 23. júní.
Viscount- flugvélin hrapaði í
Whamira-hæðum um 20 km
suður af Karibavatni á landa-
mærunum að Zambíu. Far-
þegarnir voru að koma úr
sumarleyfi og ætluðu til Salis-
bury. Flestir þeirra voru frá
Rhódesíu og Suður-Afríku en
ein skozk hjón voru í flugvél-
inni.
Flugstjórinn sendi frá sér
neyðarkall fimm mínútum eftir
flugtak. „Hjálp ... við höfum
misst báða vinstri hreyflana.
Við hröpum." Flakið fannst ekki
fyrr en 16 timum eftir slysið.
Um 150 hermenn og hjálpar-
sveitir fóru á vettvang. „Ég er
hissa á því að það var ekki
skotið á okkur i dag,“ sagði einn
flugmannanna.
Flóð ógna
Nýju Delhi
Kalkútta. 4. september. Reuter.
ÓTTAZT er að mörg hundruð manns
hafi farizt f miklum flóðum í Vest-
urBengai og um 200.000 manns hafa
verið flutt frá heimilum sinum
umhverfis indversku höfuöborgina
Nýju Delhi sem er í mikilli hættu.
Tugir þorpa sópuðust burtu í flóðum
um helgina og yfirráðherrann í Vest-
ur-Bengal, Jyoti Basu segir að þetta séu
einhverjar mestu náttúruhamfarir sem
um geti í fylkinu og þó eru náttúru-
hamfarir algengar þar. Hann kvað of
snemmt að nefna tölu látinna en sagði
að blaðafréttir um að 15.000 hafi farizt
væru ekki réttar.
Rúmlega tvær milljónir manna
! hrökkluðust frá heimilum sínum er
vatn flæddi yfir 1.000 ferkílómetra
svæði suður og vestur af fylkishöfuð-
borginni Kalkútta og hundruð þúsunda
eru ennþá einangraðir. Vatnið mældist
i allt að þrír og hálfur metri. Tugum
\ manna var bjargað í þyrlur af
húsaþökum og trjákrónum og flugvélar
! vörpuðu vistum til þorpa sem
i einangruðust.