Morgunblaðið - 05.09.1978, Page 14
14
MORGUNBLAÐia ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1978
Bragi Sigurjónsson alþm.:
Aðeins flikk-
að upp á
kj(')linn en inni-
haldið undar-
lega líkt
BRAGI Sigurjónsson var einn
þrÍKKÍa þingmanna Alþýðu-
flokksins sem greiddi atkvæði
gegn stjórnarsamstarfinu á
flokksstjórnarfundi Alþýðu-
flokksins. „Mér sýnist að með
þessu stjórnarsamstarfi sé aðeins
verið að flokka upp á kjólinn
hennar Geirnýjar Ólafíu en að
innihaldið kunni að vera undar-
lega líkt“, sagði Bragi í samtali
við Mbl.
„Ég kom ekki auga á að tök verði
á því að berjast gegn verðbólgunni
eins og mínar skoðanir vilja og því
varð það ofan á hjá mér, þótt
vissulega hefði ég um það efa-
semdir, að greiða atkvæði gegn
stjórnarsamvinnunni. Síðan hef ég
ekki gert annað en að styrkjast í
trúnni á það að ég hafi breytt
rétt“.
Mbl. spurði Braga hver yrði
afstaða hans til ríkisstjórnarinnar
á Alþingi. „Ég styð auðvitað þau
mál hennar sem ég tel horfa til
bóta, en ég mun skoða öll mál
mjög gaumgæfilega áður en ég-fft
afstöðu til þeirra. Ég tel mig
engan veginn þurfa að greiða
málum hennar atkvæði vegna þess
eins og það eru stjórnarmál".
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
„ Við erum nefnilega
alls ekki laglausir”
Markvörður Islandsmeistara Vals, Sigurður
Haraldsson, vann það afrek á knattspyrnusvið-
inu nú í sumar að halda knettinum frá marki
sínu í 11 leiki í röð. Enginn veit hvort slíkt
hefur átt sér stað áður í sögu knattspyrnunnar
hér en hvað um það, afrek var það eigi að síður.
Sigurður er ekki aðeins þekktur sem knatt-
spyrnumaður, hann hefur líka markað sín spor
á badmintonvellinum og oft hefur hann unnið
Islandsmeistaratitil í þeirri grein. Blaðamaður
sótti Sigurð heim dag einn, þar sem hann býr
í Breiðholti ásamt konu sinni Jórunni
Skúladóttur og þriggja ára gömlum syni þeirra
hjóna, Skúla.
Þar sem flestir vita hvað Sigurður gerir í
frítímum sínum var fyrsta spurningin sem
vaknaði hvað Sigurður gerði þegar hann er
ekki að stunda íþróttir?
Sigurður Haraldsson ásamt konu sinni Jórunni og syninum
Skúla.
„Ég vinn á auglýsingadeild
Þjóðviljans núna en á veturna er
ég við nám í efnafræði í
Háskólanum. Ég ætla að
minnsta kosti að taka tvö ár í
viðbót hér heima en það er alveg
óvíst hvert framhaldið verður.
Ætlunin er að fara út í mat-
vælaverkfræði. Það fer því alveg
eftir því hvort matvælaverk-
fræðideild verður stofnuð hér
við skólann hvort ég fer erlendis
eða held áfram hér heima."
Hvenær fórst þú út í knatt-
spyrnuna?
„Ég er eiginlega uppalinn í
Val. Ég er fæddur og uppalinn
í Reykjavík og átti heima við
hliðina á Valsvellinum frá því
að ég var sjö ára og var þar
mestan hlutann af deginum.
Pabbi sagði líka alltaf að ef
uppeldið á mér mistækist þá
væri hægt að kenna Vali um
það. Þar komst ég líka í kynni
við badmintoníþróttina. Tennis
og badmintjnfélag Reykjavíkur
var með aðstöðu í Valsheimilinu
um tíma og þá byrjaði maður að
prófa þetta."
Hvernig gengur að samræma
knattspyrnu og badminton?
„Það gengur engan veginn.
Þegar maður er í badminton þá
getur maður ekki verið í knatt-
spyrnunni. Það er auðveldara að
taka badminton alvarlega og
spila fótbolta með en hitt
gengur ekki. Badminton krefst
mikillar þjálfunar, 2—3 tíma á
dag, svo að lítill tíma verður
fyrir annað. Knattspyrnan
krefst líka mikillar þjálfunar.
Þetta er ekki eins og það var í
gamla daga að skipting var á
milli sumars og vetrar. Nú er
æft allt árið í kring og það er
í mesta lagi að maður getur
tekið sér frí í einn mánuð. Eins
og knattspyrnan hefur þróast
hér er hún orðin algjör atvinnu-
mennska en ólaunuð. Við í Val
æfum til dæmis ekkert minna
en launaðir atvinnumenn. Ég
var í vikutíma hjá Dundee Utd.
Skotlandi, en það er atvinnu-
mannalið, og þeir æfðu ýafnvel
minna en við hér heima."
Hvernig kemur knattspyrn-
an niður á heimilislífinu?
„Maður er auðvitað minna
heima en annars. Maður vill líka
eiga sína vini aðra en maður
kynnist í gegnum fótboltann en
það er alltaf tími til þess að eiga
vini og félaga. Mesti gallinn við
knattspymuna er kannski að
æfingatímar rekast á við matar-
tíma. Þegar ég kem heim af
æfingum á kvöldin þá er Jórunn
búin að borða. og búin að gefa
stráknum að borða svo að maður
getur aldrei átt matartíma með
fjölskyldunni."
Ilvað segir konan um íþrótta-
iðkanir þínar? Hefur hún
kannski iíka áhuga á þeim?
„Hún hefur verið með mér í
badminton en ég veit ekki hvort
hún hefur áhuga á fótboltan-
um,“ segir Sigurður og kallar á
konu sína til þess að spyrja
hana að því.
„Mér er alveg sama um
fótboltann," segir Jórunn, „ég
fer á völlinn og fylgist með en
ég fæ enga magapínu eða neitt
því um líkt. Mér fannst það
alveg voðalegt fyrst hvað mikill
tími fór í æfingar hjá Sigurði en
núna finn ég ekki fyrir því,
maður venst því eins og hverju
öðru,“ sagði hún.
Það þckkja flestir þig scm
íþróttamann, en hvernig ertu
hér heima?
„Ég læt nú konuna ráða öllu
hér,“ en þessu var Jórunn ekki
sammála. „Ég læt hann hjálpa
mér,“ sagði hún. „Hún er bara
yfirleitt búin að öllu þegar ég
kem heim á kvöldin," sagði
Sigurður og vildi ekki viður-
kenna það að það kæmi fyrir að
hann „skutlaði" sér á mark-
stangirnar til þess að losna við
uppvaskið. »
Attu einhver önnur áhuga-
mál en íþróttir?
„Ég er uppfullur af áhugamál-
um en það er lítill tími aflögu
fyrir þau. Ég hef til dæmis
mikinn áhuga á pólitík og
fylgist vel með öllu — les blöðin
daglega. Það er kannski það
áhugamál sem maður hefur lítið
verið að trana sér fram í en
hefur alveg ákveðnar skoðanir
á. Það er mjög gaman að
fylgjast með pólitíkinni þegar
eitthvað er að gerast eins og
núna. Það er líka gaman að geta
talað við þá sem eru, eins og
maður segir, innstu koppar í
búri, og vita hvað er að gerast
og af hverju. Ég hef gott
tækifæri til þess núna þar sem
ég vinn á Þjóðviljanum. Það er
svo oft sem blöðin gefa ekki
rétta mynd af því sem er að
gerast. Eins og t.d. nú í sam-
bandi við stjórnarmyndunartil-
raunirnar vilja síðdegisblöðin
leggja meira upp úr því að segja
frá gangi mála á þann hátt að
blöðin seljist í stað þess að
leggja áherslu á fréttaflutning
sem etji ekki viðræðuhópunum
saman.
Það eru fáir sem kunna að
haga sér í pólitík og það er mín
skoðun að hér á landi sé reyndar
aðeins einn maður sem kann það
af stakri list.“
Talið berst aftur að knatt-
spyrnunni og þá að afreki
Sigurðar á því sviði.
„Það er búið að vera allt of
mikið af alls kyns metatali í
kringum Valsliðið í sumar.
Þetta skapaði ósjálfrátt vissa
pressu á liðið. Það var því
nokkurs konar léttir eftir að við
höfðum tapað stigi að vita til
þess að eitt stig var farið.
Þannig var það einnig er við
fengum markiö á okkur eftir að
hafa ekki fengið á okkur mark
í 11 leiki i röð. Það var mjög
mikill léttir því það var pressa
að vita til þess að allir fylgdust
með því hvort ég fengi á mig
mark eða ekki. Það var lika eins
og að það hefði aldrei verið
skorað mark fyrr. Fyrst óskuðu
liðsmennirnir mér til hamingju
og síðan er við hjónin ætluðum
út að skemmta okkur um
kvöldið var það ekki hægt þvi að
það var enginn friður, allir voru
að óska mér til hamingju með
þetta mark. Þetta er í fyrsta
skiptið sem mér hefur verið
óskað til hamingju með það að
fá á mig mark.“
Nú hefur Valur tekið upp á
ýmsu nýstárlegu eins og t.d.
því, að leikmennirnir er í eins
fötum er þcir mæta til leiks. Má
kannski búast við því að þið
fetið í fótspor ýmissa erlendra
liða og syngið inn á plötu?
„Ekki ef það tekst eins illa og
hjá skoska landsliðinu. Það gæti
annars vel verið að við gerðum
það ef við fengjum Gunnar
Þórðarson til þess að spila undir
hjá okkur, við erum nefnilega
alls ekki laglausir. Eftir að við
urðum íslandsmeistarar norður
á Akureyri þá tókum við lagið
fyrir ljósmyndarana og sungum
fyrir þá Valssönginn. Þess
vegna voru myndirnar af okkur
svona góðar.“
RMN.
ÚTSALA HJÁ VERKSM.SÖLU
20% AFSLÁTTUR AF VERKSMIÐJUVERÐI.
BARNA- DÖMU- & HERRABUXUR Verksm.salan
PILS — TOPPAR — EFNI. GERIÐ GÓÐ KAUP SKEIFAN 13 — SUÐURDYR