Morgunblaðið - 05.09.1978, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1978
15
Bankamenn uggandi
vegna vaxandi sjálfvirkni
MBL. HEFUR borist eftirfarandi
fréttatilkynning frá þingi nor-
rænna bankamanna, sem haldið
var í Reykjavík dagana 28.8—1.9.
sl.
Þróun, sem stefnir að aukinni
sjálfvirkni bankakerfisins, á sér
nú stað um allan heim. Samkvæmt
bandarískum könnunum, þá er
hægt að gera um 80% eða meira,
af allri bankastarfsemi, sjálfvirka,
Einar Júlíusson:
Vandamál
landbún-
aðarins
Vandamál landbúnaðarins
þekkja allir, offramleiðslan, of-
beitin, vinnuþrælkunin, niður-
greiðslurnar, umbæturnar, styrk-
irnir, skattarnir o.s.frv., o.s.frv.
Þarf ekki að gera þau vandamál að
umræðu hér heldur má snúa sér
beint að lausninni, þ.e. lausninni
sem enginn vill.
Því ekki að borga hverjum
bónda sömu fjárupphæð, segjum
krónur X, fyrir að vera bóndi og
ákveðna fjárupphæð, segjum krón-
ur Y fyrir hverja framleiðsluein-
ingu, sem þeir selja og neytendur
verða fyrir að greiða.
Þá er bara eftir að finna X og
Y, en það geta vísindamenn á
rannsóknarstofnun landbúnaðar-
ins auðveldlega gert. Þeir eru
þaulvanir að reikna út X og Y.
En verður nú nokkur ánægður
með slíka lausn? Að sjálfsögðu
ekki. Landbúnaðarráðherra kemur
vafalaust til með að sleppa sér
alveg, ef hann fær ekki að ráða
hvað er X og hvað er Y. Hann þarf
jú að taka tillit til annarra en
vísindamannanna, nefnilega kjós-
endanna. Gamli vinnulúni, ókröfu-
harði bóndinn sem treystir sér
ekki lengur til að hafa nein húsdýr
verður óánægður því að hann
getur ef til vill rétt dregið fram
lífið á X einu saman og ígrundar
jafnvel að bregða búi og fara
heldur á elliheimilið í Reykjavík.
Ungi harðduglegi verksmiðjubónd-
inn sem meðhöndlar skepnur eins
og skepnur og gerir ekki kröfur
nema til sín og sinna verður
hundóánægður því að hann getur
kannski ekki framleitt hverja
einingu fyrir krónur Y og neyðist
jafnvel til að fækka skepnum
sínum eða fara á sjóinn. Bændur
verða óánægðir með kaup annarra
í landinu og hinir verða óánægðir
með kjör bændanna.
Já, vísindamönnunum verður
ekki skotaskuld úr því að reikna út
X og Y svo að öllum mislíki.
Kannski er betra að láta pólitíkus-
ana ráða og leysa vandamál
landbúnaðarins svo að öllum líki,
sérstaklega kjósendunum.
Kannski er bara best að leggja
niður Rannsóknarstofnun land-
búnaðarins? Þetta hlýtur að vera
vitlausa lausnin.
AUGLÝSIIMGATEIKIMISTOFA
MYIMDAMÓTA
Adalstræti 6 simi 25810
Þetta kom fram á þingi norrænna
bankamanna (NBU), sem haldið
var í Reykjavík dagana 28.8—1.9.
Um 80 fulltrúar frá norrænu
bankasamböndunum, með um
120.000 félagsmenn á bak við sig,
ræddu þróun tæknimála og vinnu-
umhverfi bankastarfsmanna á
þessu þingi.
Kosinn var nýr forseti, eftir
Carl Platou frá norska samban-
dinu, sem hafnaði endurkjöri, og
fyrir valinu varð Birte Roll Holm,
en hún er formaður danska
bankamannasambandsins í Kaup-
mannahöfn. Hún er 36 ára gömul
og hún hefur unnið í banka síðan
árið 1959, en hún varð formaður
danska bankamannasambandsins
árið 1975.
— Tækniþróunin á sviði banka-
mála hefur hingað til átt sér stað
í samræmi við óskir atvinnurek-
enda og tölvuframleiðenda, segir
Birte Roll Holm. Samtök launþeg-
anna hafa haft mjög takmörkuð
áhrif á þessa þróun, ef nokkra. Til
þess að ráða bót á þessum
vandamálum, sem eru þessari
þróun samfara, þá verða að nást
samningar, sem tryggja starfs-
fólkinu rétt til þátttöku í stjórn
bankanna, meðákvörðunarréttur
launþegum til handa.
Þingið veitti stjórn norræna
bankamannasambandsins umboð
til þess að semja sér stefnuskrá,
sem á að grundvallast á þeim
umræðum, sem fóru fram á
þinginu í Reykjavík.
Birte Roll Holm. nýkjörinn for-
seti Norræna bankamannasam
bandsins.
Annað aðalmál þingsins var
vinnuumhverfi og öryggismál.
Sambandið lýsti yfir stuðningi
sínum við kröfur finnskra og
islenskra bankamanna um vinnu-
umhverfislöggjöf, sem þegar er til
á hinum Norðurlöndunum. Þessi
stuðningsyfirlýsing sambandsins
byggir á þeirri staðreynd, að
norræna ráðherranefndin hefur
samþykkt drög að samnorrænni
vinnuumhverfislöggjöf árið 1977.
Eitt af mikilvægustu öryggis-
málum bankamanna er vernd gegn
bankaræningjum. Fjöldi banka-
rána fer stöðugt vaxandi í Svíþjóð
og Danmörku. Árið 1977 voru
framin meira en 150 banka- og
póstrán í Svíþjóð.
Þingið áleit það mikilvægt að
koma á betri samvinnu á milli
bankanna, lögreglunnar og laun-
þegasamtaka bankamanna, bæði
hvað varðar staðbundna samvinnu
og einnig milli landa. Bankastarfs-
menn verða að fá afgerandi
ákvörðunarrétt varðandi skipu-
lagningu öryggismála innan bank-
anna.
I ályktun þingsins er einnig
talað um aukningu rannsóknar-
starfa á sviði félagssálfræðilegs
atvinnuumhverfis (psykosociala
arbetsmiljöomradet).
Þingið samþykkti einnig stefnu-
skrá varðandi meðákvörðunarrétt,
vinnutíma og öryggismál banka-
manna.
áhánlmm
íeinutaki
Á hverjum þriðjudegi
lyftir Boeing 727 sér af heimavelli, lendir
í Kaupmannahöfn, losar og lestar frakt
og er aftur hér heima fáeinum klukku-
stundum síðar.
Þannig flytjum við stórar fraktsendingar
yfir hafið á nútímavísu. Allt að 18 tonn-
um í einu.
Frá 1. október fara vélarnar tvær slíkar
ferðir í viku, til Kaupmannahafnar.
Er þetta ekki þjónusta sem hentar þér?
LOFTLEIDIR
/slajvds
GDMgfrakt