Morgunblaðið - 05.09.1978, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1978
Nýja húsið í Kópavogi.
(Ljósm. Mbi. RAX)
Rannsóknarlög-
regla ríkisins hef-
ur vistaskipti
gær en menn voru þá í
óöa önn að koma sér
fyrir.
Að sögn Hallvarðs er enn eftir
að ljúka ýmsum minniháttar
frágangi innan dyra, sem hann
kvaðst vænta að lyki á næstu
dögum, en einnig á eftir að
ganga frá bílastæðum utan
húss, sem Hallvarður kvaðst
reikna með að lokið yrði við á
næstu mánuðum.
Alls starfa um 45 manns hjá
Rannsóknarlögreglunni. Auk
Hailvarðs starfa með honum
þrír lögfræðingar og ásamt
Nirði eru þeir Gísli Guðmunds-
son, Kristmundur J. Sigurðsson
óg Ragnar Vignir aðstoðaryfir-
lögregluþjónar en rannsóknar-
lögreglumenn eru alls um 35. -
Arkitektarnir Geirharður
Þorsteinsson og Hróbjartur
Hróbjartsson hönnuðu húsnæð-
ið að innan og fór Hallvarður
lofsamlegum orðum um þeirra
verk. Hann kvað þá hafa haft
náið samstarf og samráð við
stárfsmenn stofnunarinnar en
síðan hefði Jón M. Gunnarsson
rannsóknarlögreglumaður verið
sérstakur tengiliður stofnunar-
innar gagnvart arkitektunum og
verktökum í húsinu.
Hallvarður Einvarðsson rann-
sóknarlögreglustjóri og Njörð-
ur Snæhólm yfirlögregluþjónn.
Rannsóknarlögregla
ríkisins flutti um helgina
í ný húsakynni í Auð-
brekkunni, en þar hefur
stofnunin fengið til um-
ráða fyrir starfsemi sína
stórt hús á þremur hæð-
um. Hallvarður Ein-
varðsson rannsóknarlög-
reglustjóri og Njörður
Snæhólm yrirlögreglu-
þjónn létu vel af vista-
skiptunum, þegar Mbl.
leit inn hjá stofnuninni í
Tæknideildarmenn rannsóknariögreglunnar voru í sjöunda
himni með aðstöðuna, enda húsrými þeirra um þrisvar sinnum
stærra en herbergið sem þeir höfðu til umráða í Borgartúninu.
Bílafríðindi
embættismanna
Ráðherrar, bankastjórar og yfir-
menn Þjóðhagsstofnunar, Fram-
kvæmdastofnunar o.fl.
BANKASTJÓRAR ríkisbankanna
yfirmenn Þjóðhagsstofnunar og
Framkvæmdastofnunar og starfs-
menn utanríkisráðuneytis í
ákveðnum tilvikum njóta allir
sérstakra fríðinda í sambandi við
hílakaup, en þó er um mismunandi
reglur að ræða.
Bankastjórar ríkisbankanna
njóta sömu fríðinda og ráðherrar og
sama er að segja um Þjóðhagsstofn-
un, en kommissarar Framkvæmda-
stofnunar þurfa ekki að greiða
nema 'Æ af tolli á þeim bílum sem
þeir kaupa. Bankarnir, Þjóðhags-
stofnun og Framkvæmdastofnun
greiða umræddan toll - á bíium
yfirmannanna, en bílarnir eru í eigu
þeirra. Þá greiða viðkomandi stofn-
anir rekstrarkostnað bifreiðanna og
gildir sama hlutfall í þeim efnum
hjá Framkvæmdastofnun, þ.e. tveir
þriðju eru greiddir af stofnuninni.
Hjá starfsmönnum utanríkisráðu-
neytisins gilda þau fríðindi að ef
starfsmaður kemur heim úr starfi
erlendis eftir minnst þriggja ára
dvöl erlendis þá getur hann fengið
fellda níður tolla á bifreið sinni.
Samþykkt háskólaráðs:
Ekki gripið til nem-
endatakmarkana
— bedid eftir skýrslu sérstakrar nefndar
„HÁSKÓLARÁÐ sam-
þykkti á fimmtudag að ekki
skyldi gripið til nemenda-
takmarkana nú meðan beð-
ið er eftir skýrslu nefndar,
sem kannar aðstæður í
læknadeild, og á að skila
áliti um áramótin", sagði
Guðlaugur Þorvaldsson há-
skólarektor í samtali við
Mbl. í gær, en 29. ágúst setti
Vilhjálmur Hjálmarsson
menntamálaráðherra
breytingu á reglugerð fyrir
Háskóla íslands þar sem
læknadeild var veitt heim-
ild til að takmarka fjölda
stúdenta, sem halda áfram
námi eftir 1. árs próf, en
slík ákvörðun kemur ekki til
framkvæmda nema að
fengnu samþykki háskóla-
ráðs.
Guðlaugur Þorvaldsson háskóla-
rektor sagði að á vegum háskóla-
ráðs starfaði nú nefnd til að kanna
aðstæður í læknadeild. „Við lítum
svo á,“ sagði háskólarektor, „að
gera eigi grenarmun á orsökum
takmarkananna.
Ef þær eiga að koma til af
markaðsástæðum þá er ákvörðun
um fjöldatakmarkanir stórpóli-
tískt mál sem rétt er að ákvörðun
verði tekin um annars staðar en í
háskólanum. Ef hins vegar að-
stæður eru svo slæmar að ekki er
unnt að halda uppi viðhlítandi
kennslu án slíkra takmarkana þá
er eðlilegt að háskólaráð tjái sig
um málið.
Þessi samþykkt háskólaráðs á
fimmtudaginn þýðir einfaldlega
það að menn vilji bíða og sjá
niðurstöður fyrrnefndrar nefndar
áður en málið er útrætt."
Samþykkt háskólaráðs á
fimmtudag hlaut 11 atkvæði, eitt
-mótatkvæði og tveir sátu hjá.
Reglugerðarbreytingin er svo-
hljóðandi:
„Sé fjöldi stúdenta, sem stenst 1.
árs próf, meiri en svo að veita
megi þeim öllum viðunandi fram-
haldskennslu við aðstæður á
hverjum tíma, getur deildin tak-
markað fjölda þeirra, sem halda
áfram námi. Jafnan skal þó a.m.k.
24 stúdentum veittur kostur á að
halda áfram námi. Skal ákvörðun-
in hverju sinni tilkynnt fyrir
upphaf þess misseris, er prófið er
haldið. Réttur stúdenta til fram-
haldsnáms skal miðaður við
árangur 1. árs prófs eftir nánari
ákvörðun deildarinnar. Ákvörðun
um fjöldatakmörkun samkvæmt
þessari málsgrein kemur ekki til
framkvæmda nema að fengnu
samþykki háskólaráðs."
Tónlistarskólastjórar ræða málin. Á efri myndinni eru Helga Gunnarsdóttir frá Hellissandi, Sigríður
Sigurðardóttir frá Steinmóðabæ í Rangárvallasýslu, Hólmfríður Benediktsdóttir frá Húsavík og Jón
Illöðver Áskelsson frá Akureyri. Á neðri myndinni eru Hannes Flosason frá Seltjarnarnesi, Þórir Þórisson
frá Akranesi og Ragnar H. Ragnars frá ísafirði.
Samtök tónlistarskólastjóra:
Stefnumörkun í námsskrárgerð
og úttekt á stöðu tónlistarskóla
SAMTÖK tónlistarskóla-
stjóra héldu fund í Reykja-
vík um helgina og sóttu
fundinn 32 og 45 félögum
víðs vegar að af landinu.
Fyrr hafa samtökin ekki
boðað til svo viðamikils
fundar, en aðalumræðuefni
fundarins var um sam-
ræmda námsskrá yfir allt
landið, en eins og sagt
hefur verið frá í fréttum
skipaði menntamálaráð-
herra s.l. vetur nefnd til að
vinna það mál.
Á fundinum flutti framsöguer-
indi Njáll Sigurðsson fulltrúi
skólarannsókna um tengsl tón-
mennta í grunnskóla og náms í
'tónlistarskólum. Þá flutti Krist-
inn Hallsson erindi um ný
viðhorf varðandi útgáfu náms-
skrár fyrir tónlistarskóla, Þórir
Þórisson skólastjóri Tónlistar-
skóla Akraness flutti erindi um
útvegun námsefnis og Jón
Hlöðver Áskelsson skólastjóri
Tónlistarskóla Akureyrar flutti
erindi um tónlist sem kjörgrein
og valgrein.
Ráðstefnunni var skipt upp í 4
starfshópa sem fjölluðu um efni
framsöguerinda og unnu
nefndarálit sem síðan voru sam-
þykkt samhljóða.
Fundurinn samþykkti m.a.
ákveðna stefnumörkun í sam-
bandi við hvernig unnið skuli að
námsskrárgerð og sömuleiðis
kom fram fundarályktun um
nauðsyn þess að gera heildarút-
tekt á stöðu tónlistarskólanna í
dag, sagði Páll Gröndal formaður
samtakanna.