Morgunblaðið - 05.09.1978, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1978
35
Island á furðu marga fágæta staði.
Blettir í afskekktum hamrakróki eða
fjalldrapahvammi geta verið fágæt-
ar perlur frá hendi skaparans.
Laxá til veiða leynist í sjálfri
höfuðborginni. Foss í gljúfri langt
inni á öræfum á orku, sem flutt
getur varma, ljós og líf til bæja og
borga. Lindir, sem hafa aðeins verið
skuggsjár himinsólar um aldaraðir,
verða skyndilega fyrir skarpskyggni
sjáenda, að heilsubrunnum heilla
kynslóða. Uppsprettur, sem flytja
umhverfi sínu vor og yndi um vetrar
miðja nótt. Svo þar má rækta
ódáinsakra, breyta auðn í aldin-
garða, svo alls konar jurtir, blómstur
og tré vaxa svo sem í sjálfri Eden.
Paradís dramsins um dýrð, frið og
sælu.
Ein slíkra gimsteina íslands er
Hveragerði. Lítill fjallakrókur í
leyni við alfaraveg.
Líklega fundinn fyrst sem lífs-
þáttur fólksins, í leit fórnarlamba
hvítadauðans eftir líkn og lífi frá
heilsulindum við hjartastað lands
síns.
. Síðar athvarf athafnamanna,
skálda, listamanna og leitenda,
vormanna Islands frá upphafi
þessarar aldar.
Nú eru flestir þessara frumherja
og landnema horfnir. En þeir hafa
samt skilið eftir heillaspor sín við
veginn sem'þeir gengu, hjartaslátt
sinn í nið árinnar, andvarpi hver-
anna og bergmáli hamrabrúnanna.
Hús þeirra og handaverk, óskir
þeirra, hugsjónir og þrár hafa mótað
þarna margt sem mun lifa og blessa
ókomnar kynslóðir íslands.
Garðyrkjuskóli, gróðurhús,
lækningahæli, blómagarðar, með
Eden og Ás sem táknræn nöfn allra
framkvæmda í Hveragerði, vitna um
stórhug og dáðir og munu stækka og
þróast til farsældarstofnana framtíð
lands og þjóðar og heims til heilla.
Utlendir vísindamenn í garðrækt
og jarðrækt, heilsurækt og heil-
brigðisfræðum eru jafnvel ennþá
hrifnari en við heimamenn af
þessari perlu íslands.
Hér má rækta allt sem annars vex
á jörðu, segja þeir. Árstíðirnar
hverfa í yl frá hjarta landsins.
Hér má reisa hið fullkomnasta
heilsuhæli í heimi, segja þeir, við
handtök sjálfrar móður náttúru. Það
þarf ekki annað en hugsa, hanna,
skipuleggja, teikna og byggja, reisa,
rækta. Og heilsulindir lífsins- vatna
veita hvíld, kraft, frið og nýjan þrótt.
Og þessar lindir þrjóta ekki, þurfa
ekki aðkeypta orku. Það eru ekki
gervilindir. Tvö nöfn eru þarna, sem
tákn þeirra hluta sem gera skal:
Eden og Ás.
Eden er tákn hins æðsta og
fegursta draums mannssálar við
upphaf og endi. Sælustaður bernsku
og æsku. Ljósivangur ódáinslanda að
lokum, paradís frá höndum Alföður.
Ás er sá staður, sem Aifaðir
signir, hvort sem hann var í hópi ása
í Ásgarði eða hugsaður sem hinn
góði faðir elskunnar og anda Jesú
Krists.
Og það er um Ás — nýjustu
framkvæmdir í Hveragerði, sem hér
átti að segja nokkur orð, meðan
horft er á þennan stað gegnum
„gluggann".
Við vorum þar á ferð einn
ágústdag í sumar. Það var svonefnd
„sumarferð eldra fólks", sem árlega
er farin til eflingar s fnaðarvitund
og vináttu í Langholtssókn.
Bifreiðastöðin Bæjarleiðir sér um
fararskjóta af frábærri rausn og
fórnarlund. Safnaðarfélögin um
nesti og framkvæmdir. Farið var um
Hveragerði og Þingvöll að þessu
sinni.
Það var Ás og Eden, sem við
ætluðum að heimsækja, eftir að hafa
átt stund saman í nýju, sérkennilegu
kirkjunni sem gnæfir yfir þorpið.
Prestur staðarins var ekki heima,
en sóknarnefnd hafði leyft aðgang að
kirkjunni, sem er sviphreinn helgi-
dómur í nýtízkulegum stíl. Ber þó
svip af skipsstafni. En bátur var
einmitt fyrsta kirkja og predikunar-
stóll kristins dóms, og fiskur og skip
fyrstu tákn kristinnar kirkju.
Það var Gísli Sigurbjörnsson í Ási
og á Grund í Reykjavík, sem opnaði
kirkjuna í Hveragerði þessu sinni, og
bauð okkur inn.
En kirkjan stendur rétt við það
hverfi staðarins, sem nefnist Ás og
stundum í fleirtölu Ásarnir. Fer vel
á þeim félagsskap og nágrenni. Hann
flutti okkur stutt ávarp, sem var
innrammað í söng og bænum allra
viðstaddra. Varla þarf að kynna
Gísla Sigurbjörnsson fyrir Reyk-
víkingum og íslendingum, en hann
er ásamt foreldrum sínum, sr.
Sigurbirni Gíslasyni og Guðrúnu
Lárusdóttur alþingismanni, einn
helzti frumherji og framherji í
málefnum og framkvæmdum til
hags og heilla öldruðum á íslandi.
Hér verður reynt að endursegja
efni ræðu hans í örfáum orðum.
„Það eru nú 26 ár síðan einn af
helztu höfðingjum og framkvæmda-
mönnum Hveragerðis, Guðjón í
Gufudal, sagði mér, að Elliheimilis-
nefnd Árnessýslu hygðist kaupa hús,
sem orðið gæti elliheimili byggðar-
innar. Hann leitaði ráða hjá mér, og
það varð úr að ég vildi styðja
málefnið. Og gerður var örstuttur
samningur. En aðalatriði hans gaf
mér að mestu frjálsar hendur til
framkvæmda eða réttara sagt okkur
á Grund.
Eg trúði bókstaflega á blessun
þessa starfs. Fékk fljótlega útlenda
sérfræðinga í málefnum aldraðra og
frá Ævikvöldshreyfingunni erlendis
til að líta á staðinn.
Það var sama hverjir komu. Hvort
sem það voru jarðfræðingar, heilsu-
fræðingar, umhverfisfræðingar,
garðræktarmenn eða jafnvel heim-
spekingar. Öllum kom saman um að
Hveragerði væri sérstök perla og
hornsteinn til að byggja á hina
fullkomnustu stofnun fyrir aldraða
og um leið frábært heilsuhæli öllum
til handa. — Erlendir menn meta
Hveragerði miklu meira en hérlend-
ir.
Loftslagið, umhverfið, jarðhitinn,
allt lagt upp í hendur af landi og
forsjón. Trú mín efldist og fram-
kvæmdir hófust og fóru ört vaxandi.
Hús voru byggð. Hús voru keypt og
nú eru hér í Ási 40 hús ætluð öldruðu
fólki. Hvert með tveim íbúðum,
aðstöðu fyrir 200 manns.
Aðalreglan er sú, að öllum er
ætlað að hjálpa sér sjálfir eftir
heilsu og starfsgetu. En annars
tiltæk aðstoð og félagsleg aðstaða
með mötuneyti, þvotta og húshjálp,
ef með þarf og óskað er.
Mikil áherzla er lögð á ræktun og
fagurt umhverfi, samkvæmt þeirri
vísindalegu ályktun sálfræðinga, að
umhverfið skapi 40% af hamingju
hvers einstaklings.
Eg trúi því að svo sé. Meginstarfs-
reglan til allra framkvæmda hér er
grein, sem móðir mín skrifaði upp úr
helgri bók og lét á skrifborð föður
míns, saumað inn í ramma: „Ef
Drottinn byggir ekki húsið, þá erfiða
smiðirnir til einskis."
í þessari trú er hér allt unnið. Og
þrátt fyrir margs konar misskilning,
amstur og erfiðleika hef ég enn þá
óbilandi trú, að framtíðin blessi Ás
og Hveragerði sem helztu stofnun í
heilbrigðismálum íslendinga.
Hér getur orðið heimsfrægt
heilsuhæli við heilsu- og heilla-
brunna hvenær sem augu þjóðarinn-
ar opnast fyrir beztu gjöfum Guðs og
síns lands."
Að lokinni þessari prédikun Gísla
og söng gestanna, var haldið af stað
frá kirkjunni með opnum hug út í
hverfið undir leiðsögn hans.
Segja mætti, að þar væri sjón sögu
ríkari. En svo mikill er trjá- og
blómagróður við götur og stéttir að
segja má allt umvafið gróðri, svo
unnt væri að hugsa sig staddan í
Aþenu eða einhverri suðlægri borg
við angan þúsund blóma.
Við mættum mörgum sem allir
virtust ánægðir og luku lofsorði á
staðinn, ef á þá var yrt. Að lokum
komum við i einn frægasta blóma-
garð íslands — garð skáldsins
Kristmanns Guðmundssonar, og svo
í hús sr. Gunnars Benediktssonar
rithöfundar og Jóhannesar úr Kötl-
um.
En þessi hús og garðar og nöfn
setja sögulegan lista- og helgiblæ á
Ás í Hveragerði. Og mun þó enn
meira síðar.
Við kvöddum svo Ás og Gísla, sem
„hinn ókrýnda konung" Hveragerðis.
Settumst inn í Bæjarleiðabifreiðarn-
ar góðu, og héldum beint til Eden og
Valhallar.
Árelíus Níelsson
Mikil aðsókn
að Hótel
Húsavík
— ÞAÐ hefur verið mjög góð
herbergjanýting hjá okkur í
sumar og í júlí og ágúst var
nýtingin yfir 80%. sagði Einar
Olgeirsson hótelstjóri á Hótel
Húsavík. þegar Morgunblaðið
ræddi við hann í gær. Að sögn
Einars. þá hefur verið mjög mikið
um allskyns ráðstefnur á hótelinu
í sumar og verður einnig eitthvað
um þær í haust.
Stór hópur fólks frá BBC dvaldi
um tíma á Hótel Húsavík vegna
töku myndarinnar „Út í óvissuna“
eftir Desmond Bagley og mikill
hluti innimyndatöku fór fram á
Hótel Húsavík. Fjölmargar
Norðurlandaráðstefnur hafa verið
haldnar á Húsavík i sumar og má
þar nefna, fund póst- og síma-
málastjóra, vinnuveitenda, seðla-
bankastjóra, ríkisskattstjóra og
nú stendur yfir ráðstefna um
öryggismál í byggingariðnaði á
Norðurlöndum. Þá funduðu
öryggismálastjórar Norðurlanda á
Laugum í sumar, en upphaflega
ætluðu þeir að halda fundinn á
Húsavík en urðu frá að hverfa
sökum mikillar aðsóknar að hótel-
inu á þeim tíma.
Einar sagði að á næstunni yrðu
Bílgreinasambandið með fund á
Hótel Húsavík, ennfremur Sam-
bandsfiskframleiðendur og hópur
ritstjóra á Norðurlöndum myndi
halda þar fund á næstunni.
Að sögn Einars þá hefur það
færzt nokkuð í vöxt, að hópar
starfsmanna fyrirtækja kæmu á
einskonar upprifjunarnámskeið;
sem haldin væru á hótelinu. I
þessum tilgangi m.a. væri hótelið
með sérstakt tilboð og kostaði
uppihald í þrjá daga, gisting í
þrjár nætur og flugmiði frá
Reykjavík til Húsavík og til baka
kr. 30 þús., sem yrði að teljast
mjög aðgengilegt verð.
FILBOl)!
SEM ÞÚ GETUR EKKI HAFNAÐ
NÚ BJÓÐUM VIÐ FLAUELSBUXUR
VEttl) Ktt. 0.000.-
Undralandid —
Ás í Hveragerði