Morgunblaðið - 05.09.1978, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1978
41
fclk í
fréttum
+ Sem kunnugt er úr írétt-
um höfðu þúsundir af aðdá-
endum rokkstjörnunnar
Elvis heitins Presleys farið
til heimaborgar hans til
þess að minnast þess er ár
var liðið frá dauða hans. —
Þessi mynd er tekin er
frændi hins látna, Vester
Presley, hafði gefið hundr-
uðum ef ekki þúsundum
„pflagríma“ eiginhandar-
rithönd sína. Var ákafinn
svo mikill að fólkið beið í
margfaldri biðröð til að
komast að. Hér hefur
frændinn tekið sér augna-
bliks hvfld frá skriftum.
+ Ákveðið hefur verið að
þeir mætist aftur í box-
hringnum Leon Spinks (til
v.), heimsmeistarinn sem tók
titilinn af ofurmenninu
Muhammed Ali í febrúar-
mánuði (til h.) og Ali. Ali
hefur látið þau orð falla um
Spinks að hann sé með
eindæmum ljótur maður. —
Og að hann muni í bardagan-
um 15. september, sem fram
á að fara í New Orleans, ná
heimsmeistaratitlinum aft-
ur. — Myndin hér að ofan
var tekin, eftir bardagann
sem Ali tapaði. Föðurlegur
lagði Spinks handlegginn
yfir axlir hins sigraða.
Skipakóngur-
inn í Moskvu
+ Þessi kona er „síklassískt viðfangsefni“
blaðaljósmyndara, líka í „Járntjaldslönd-
unum.“ — Konan er „skipakóngurinn“
Kristína Onassis. Hún er hér stödd á
flugvellinum í Moskvu ásamt lögreglu-
manni. Eiginmaðurinn var þar ekki
mættur er hún kom.
+ Suður í Vínarborg er nú byrjað að gera
kvikmyndina „Fanginn í Zenda.“ Þessi mynd
var tekin í Schonbrunn hallargarðinum þar
í borg, er verið var að taka atriði úr
myndinni. Þessi hjón leika aðalhlutverkin,
en þau eru engin önnur en sjálfur Peter
Sellers og kona hans Lynn Fredrick. Þau
hafa ekki leikið saman áður í kvikmyndum.
Þau giftu sig í fyrra.
Músikleikfimin
hefst mánudaginn 18. september.
Styrkjandi og liökandi æfingar fyrir
konur á öllum aldri.
Byrjenda- og framhaldstímar.
Tímar í húsi Jóns Þorsteinssonar,
Lindargötu 7.
Kennari Gígja Hermannsdóttir.
Upplýsingar og innritun í síma 13022.
Einkaritaraskólinn
★ veitir nýliðum starfsþjálfun og öryggi
★ endurhæfir húsmæöur til starfa á skrifstofum
★ stuðlar að betri afköstum, hraðari afgreiöslu
A sparar yfirmönnum vinnu við aö kenna nýliðum
★ tryggir vinnuveitendum hæfari starfskrafta
★ tryggir nemendum hærri laun, betri starfsskilyrði
★ sparar námskostnað og erlendan gjaldeyri
Mímir,
Brautarholti 4
sími 10004
(kl. 1—7 e.h.)
Skóli Emils
KENNSLUGREINAR:
Harmonika,
munnharpa,
gítar, píanó,
melódíka og
rafmagnsorgel.
Hóptímar
einkatímar.
og
Innritun daglega.
Sími 16239.
Emil Adólfsson,
Nýlendugötu 41.
álnavöru
markaóur
í Glæsibæ
og Hafnarfiröi
fullum gangi
V