Morgunblaðið - 05.09.1978, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1978
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
anmanna og stytt honum aldur
með áðursögðum hætti. Þetta
þykir mér nokkuð nýstárleg sögu-
skoðun og dettur í hug það, sem
Njálssaga segir um frásögn Gunn-
ars Lambasonar af Skarphéðni í
brennunni:
„Um allar sagnir hallaði hann
mjög til, en 16 frá víða“.
Þessi orð eru ekki skrifuð til
þess að halla á Skálholt f einu eða
neinu, sem þrátt fyrir allt er
dýrðlegur staður í vitund þjóðar-
innar, verðugur alls þess sóma,
sem honum er sýndur og honum er
hægt að sýna. En mér finnst varla
sé hægt að ræða um annað
biskupssetranna án þess að hitt
komi í hug og sé nefnt á nafn. Svo
nátengd er saga þeirra. Menning-
ararfleifðin frá Skálholti er mikil,
en arfurinn frá Hólum þó í engu
óverðugri þess, að honum sé fullur
sómi sýndur.
Bjartmar Kristjánsson.
• Tillögur um
sjónvarpsefni
„Vegna greinar í Morgunblað-
inu sunnudaginn 20. þ.m. um
sjónvarpsefni fyrir börn og full-
orðna þá leyfum við okkur að
koma með nokkrar tillögur. Það
skal tekið fram að við höfum séð
þessa þætti áður í Bandaríkjunum.
Þættirnir eru:
1. „The Little House on the
Prairie". (Þáttur fyrir alla fjöl-
skylduna).
2. „60 Minutes". (Mjög góður
fræðsluþáttur).
3. “Happy Days“. (Mjög skemmti-
legur þáttur fyrir unglinga).
4. „Carol Burnett". (Alvinsælasti
skemmtiþáttur Bandaríkjanna).
Ingibjörn Stefánsdóttir,
Lynn Pálsdóttir,
Stefanía Haraldsdóttir,
Lilja Enoksdóttir,
Haraldur Stefánsson,
Kristín Rögnvaldsdóttir.“
Á forsíðu Þjóðviljans laugar-
daginn 2. sept. lýsir hinn nýi
viðskiptamálaráðherra því yfir að
frá og með gærdeginum þ.e. 1.
september eigi fólk rétt á kaupi
samkv. samningunum í gildi, fólk
þurfti aðeins að hafa biðlund á
fáeina daga til að fá mismuninn
greiddan.
Neðar á forsíðu Þjóðviljans
þennan sama dag áréttar blaðið
svo þessa ákvörðun ráðherrans og
upplýsir að eftir helgina komi röð
efnahagsráðstafana í formi ýmis
konar bráðabirgðalaga. Orðrétt
segir: „í fyrsta lagi verður sett
ákvæði um kjarasamningana í
gildi, þannig að farið verði með
kaup frá 1. september í samræmi
við þá kjarasamninga sem gerðir
voru á síðasta ári.
Það er vissulega tímabært að nú
loks verði staðið við stóru orðin frá
í vor um „Samningana í gildi“ það
er ekki seinna vænna að því
grundvallaratriði, því princippi,
eins og kommar, kratar og BSRB
forustan hafa sýknt og heilagt
klifað á verði fullnægt, og gerðir
samningar skuli í heiðri hafðir.
Hver sá sem brýtur það princip
skal brennimerktur orðinu kaup-
rán um alla framtíð.
Hinum nýja galvaska viðskipta-
málaráðherra og blaði hans Þjóð-
viljanum er því her með gefinn
kostur á að standa við þessa
ákvörðun.
Þær þúsundir opinberra starfs-
manna sem taka laun fyrir ofan
15. launaflokk munu án efa sýna
nýju ríkisstjórninni „biðlund í
fáeina daga“ til þess að greiða
þeim laun samkvæmt ákvæðum
kjarasamninga gerðum á s.l. ári.
Verði hinsvegar ekki staðið við
þessa ákvörðun skal hinn nýi
viðskiptamálaráðherra stimplaður
ómerkingur og málgagn hans
Þjóðviljinn kaupráns málgagn,
sem launafólk ætti að forðast að
taka alvarlega.
Opinber starfsmaður.
hinn ungi og
fur látið sér áminningar-
|isters Björns sér að
i verða, veit ég ekki. Hitt
að unglingum á þessu
prstigi fer nú ört fjölg-
siðulstu kosningabaráttu
beyrði ég ei’nhverja gárunga syðra
jalla fiskvinhsluþorpin vestra, þar
Vn Karveí Pálmason fyrrv. al-
|gismaður átti mestu fylgi að
a, „Karvelín," íbúana „Karvel-
gn fylgismenn Karvels
ga,“ (sbr. Sturlungak
ritaður er ouiuii ao vera í suma
leyfum við Djúp síðan 1943. Fyrs
sumarið dvaldi ég í Reykjarnes
fékk þar inni í heimavist hérað/
skólans hjá öðlingsmanninuf
Aðalsteini Eiríkssyni og han
ágætu konu. Aðalsteinn var, sei|
kunnugt er, brautryðjandi í skólj
málum Djúpsmanna. Með honjr
fór ég í ferðir, bæði á sjó og laií
um nálægar sveitir. Þá má|
segja, að höfðingjar byggju
hverjum bæ. Bændur voru ge^
risnir, rausnarlegir, hressilegir
Þessir hringdu . . .
• Sóðagrein
Laugardaginn 26. ágúst skrif-
ar einhver Jón Gíslason grein sem
hann nefnir „Aðvörun". Ekki þekki
ég manninn en að líkindum er
hann háskólagenginn og hefur
meira að segja gist Chicago,
reyndar minnist ég ekki að hafa
heyrt þá borg nefnda sem sérstaka
menningaruppsprettu.
Þessum Jóni er eitthvað sérstak-
lega í nöp við Karvel Pálmason
vegna þess að hann hafi sagt að
það væri reginhneyksli að greiða
prófessorum við háskólann há
laun fyrir að kenna 6 til 8
klukkustundir á viku hverri, um
þetta vil ég segja að ljótt er ef satt
væri.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pótursson
Á skákþingi Úkraínu í ár kom
þessi staða upp í skák þeirra
Kosikovs, sem hafði hvítt og átti
leik, og Zajds
32. cxb6! (Miklu sterkara en 32.
Dxb6 — Dxa4, eða 32. Dxa6 —
bxc5) axb5, 33. bxc7 — Da8 og
svartur gafst upp um leið. Það var
engin furða, því að eftir 34. Bb6
verður hvítur í öllum tilfellum
manni yfir.
Karvel þekki ég lítið en þeim
mun betur það fólk sumt sem hann
er af kominn, mér virðist Karvel
mjög geðþekkur maður og svo
virðist þeim sem hann hefur haft
náin kynni við hér í Reykjavík.
Væri ekki rétt fyrir Jón Gíslason,
þann sjálfskipaða menningar-
frömuð, að snúa sér til sóma-
mannsins Einars Guðfinnssonar í
Bolungarvík og spyrjast fyrir um
Karvel Pálmason, því að hann
þekkir hann frá fyrstu tíð, áður en
farið er að kenna við hann alla
lesti uppvaxandi kynslóðar á
Vestfjörðum og alla óþokka og
kalla þá Karvelinga. í því er álíka
mikið vit og ef ég færi að kalla alla
skemmdarvarga og Hallærisplans
gesti Jóngísla.
Eg er gamall Djúpverji og var
einu sinni kunnugur í Bolungarvík
og á Isafirði var ég yfir 20 ár og
varð aldrei var við slíkan óþverra-
skap og þessi Jón lýsir, ég held það
sé meira en lítið bogið við hans
sálarástand.
„Maður líttu þér nær, það liggur
í götunni steinn."
Jón M. Pétursson
frá Hafnardal“.
HÖGNI HREKKVÍSI
„Kærar þakkir!... Hvar fékkstu peningana?“
Fréttabréf úr Breiðavíkurhreppi
Um útgerö, tíðar-
far og jarðarsölu
Tíðarfar
Ágúst 1978. Vorið var kalt og
hélzt kuldatíð allt fram undir
júnílok. Apríl var þurrviðrasamur
og hæglátur, úrkomur litlar,
aðeins í 7 daga, í maí voru 17
úrkomudagar og fremur vinda-
samt. Einnig var vindasamt í júní.
Grasspretta var mjög hæg
vegna kulda og talsvert bar á kali
í túnum. Sláttur byrjaði ekki hér
fyrr en um miðjan júlí, en gras var
þá víða svo lítið, að ekki gat heitið
að það væri slægt. Hinn 18. júlí
kom góður þurrkur og slógu
bændur þá almennt og hélzt
þurrkur þá í 4 daga, svo víða var
talsvert mikið slegið. En 22. júlí
hvessti af norðri og hélzt stormur
til 27. júlí. Þessa stormdaga var
mikill þurrkur, en víða var ekki
hægt að hreyfa hey vegna storms
og sumir bændur misstu talsvert
af heyi, sumir mikið, bæði hér og
í nærfiggjandi sveitum. Þegar
storminn lægði þykknaði í lofti og
gerði skúri. Það kom sér illa fyrir
bændur hversu fljótt vætti eftir
storminn og er því heyskapur víða
skammt á veg kominn, en góð eru
þau hey sem náðst hafa inn.
Útgerð
Frá Arnarstapa og Hellnum
hafa verið gerðir út 10 bátar af og
til í vor og sumar. Ný trilla kom
að Hellnum í júní, það er plast-
bátur smíðaður í Hafnarfirði,
stærð tvö og hálft tonn, eigandi
Matthías Björnsson, Gíslabæ.
Báturinn r fallegur og hefur
reynzt vel.
Afli hefur verið mjög tregur
síðan róðrar hófust snemma í
apríl, en þó komið dagar, sem vel
hefur aflazt. Mjög vel viðraði til
sjósóknar í apríl, sem vel hefur
aflazt. Mjög vel viðraði til sjósókn-
ar í apríl en stirðar gæftir í maí
og júní. Síðast þegar róið var fyrir
fiskveiðibannið var mjög tregur
afli.
Jörðin Skjaldartröð hefur verið
til sölu síðan í vetur og vill nú LÍÚ
kaupa jörðina og byggja þar
sumarbústaði. Söluverð jarðar-
innar er að því er ég bezt veit 20
milljónir kr. Breiðuvíkurhreppi
var boðinn forkaupsréttur, en
hreppsnefnd hafnaði því á þeim
forsendum að hreppurinn hefði
ekki efni á að kaupa jörðina.
Vonir standa til, að jörðinni
verði haldið í ábúð, enda má ekki
lögum samkvæmt leggja jarðir í
eyði á þennan hátt.
Það ætti að vera áhugámál
hverrar sveitar að sporna við því
á allan hátt að byggilegar jarðir
fari í eyði og einnig að láta vernda
fögur og viðkvæm svæði fyrir
spjöllum, en hvað það snertir
hefur Náttúruverndarráð stigið
mikilvægt og þarft spor. — F.G.L.
fréttaritari.
Mál og menning gefur
út „Samfélagsfræði”
Út er komin bókin „Samfélags-
fræði, samhengi félagslegra fyrir
bæra“ eftir Gísla Pálsson, en Mál
og menning gefur bókina út.
Höfundur bókarinnar hefur
stundað kennslu um nokkurra
ára skeið við Menntaskólann í
Hamrahlíð, en á bókarkápu segir
að bókinni sé ætlað að bæta úr
hinni brýnu þörf fyrir námsefni
í samfélagsfræði í fyrstu bekkj-
um eða áföngum framhaldsskóla-
stigsins.
Bókin skiptist í fjóra kafla og
nefnast þeir Hvað er samfélags-
fræði?, Túlkun atburða, Skilning-
ur samfélagsfræðinnar og Félags-
legar breytingar á íslandi. Hver
kafli skiptist síðan í nokkrar
greinar. Þá fylgja hverjum kafla
leiðbeiningar um aðgengilegt ís-
lenzkt ítarefni, auk þess, sem
felldar eru inn í textann allmargar
spurningar, sem snerta viðfangs-
efnið hverju sinni.
G/sfiPáisson
Samfélagsfræð/
Samhengi féiagsíegra fyrirbæra
Aftast í bókinni er heimilda-
skrá, en bókina prýða fjölmargar
ljósmyndir og teikningar.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AÚGLYSINGA-
SÍMINN ER:
22480
Utsala — Utsala
Mikil verðlækkun.
Glugginn,
Laugavegi 49.