Morgunblaðið - 05.09.1978, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1978
Bretland:
Utlit fyrir auk-
ið atvinmileysi
Brighton, Englandi
4. september. Reuter.
BRETLAND á yíir höíði sér
mikið atvinnuleysi, að því er
brezkum verkalýðsíoringjum var
sagt í dag, en þá hófst ársþing
þeirra í Brighton á suðurströnd
Englands. Tala atvinnulausra er
nú 1.608.316 eða 6,7% al vinnu-
færum mönnum í Bretlandi.
David Basnett, forseti verka-
lýðsþingsins og leiðtogi stærsta
verkalýðsfélags Bretlands, spáði
því að atvinnuástandið ætti eftir
að versna. Að mati hans verða um
9 milljónir manna í viðbót
atvinnulausir árið 1985 og þá
verða þeir að leita sér að atvinnu
innan efnahagsbandalaganna níu.
Hin öra tækniþróun myndi auka
atvinnuleysi, frekar en að minnka
það.
Basnett krafðist þess að vinnu-
vikan yrði stytt úr 40 stundum í
35 og að brezka stjórnin eyddi
meira fé í almenningsþjónustu.
Jarðskjálftar
valda tjóni í
V-Þýzkalandi
StuttKart. 4. september. Reuter.
INNANRÍKIS-ráðuneytið í
Baden-Wiirttemberg skýrði frá
því í dag, að tjónið sem varð í
jarðskjálftunum í Suðvest-
ur-Þýzkalandi í gær, væri metið á
21 milljón marka eða jafnviröi
um 3.2 milljarða króna.
Jarðskjálftarnir voru þeir mestu
í Vestur-Þýzkalandi í 35 ár, en
stærstu kippirnir mældust sjö stig
á Richter. Að minnsta kosti 25
slösuðust í skjálftunum og um 100
misstu heimili sín.
Varnarmálaráðuneytið skýrði í
dag frá því, að öllum orrustuþot-
um hefði verið bannað að fljúga í
minna en 1.600 metra hæð yfir
jarðskjálftasvæðunum, af ótta við
að þær vaidi meiri skemmdum á
byggingum.
Þá laskaðist einnig nokkuð hið
sögufræga virki Burg Hohen-
zollern i Bade-Wúrttemberg og er
gert ráð fyrir að viðgerðin á því
taki nokkra mánuði. A meðan
verður það lokað fyrir almenningi.
Upptök skjálftanna voru í
Zollern, en þeir fundust víða í
Mið-Evrópu.
Njósnamálið í Vestur-Þýzkalandi:
NÝ TÍZKA. — Þessar buxur ryðja sér nú til rúms í
Bandaríkjunum og hefur þessi nýja tízka mælzt mjög vel
fyrir. Það er fyrirsætan Marlena Amey sem skartar þeim
hér á götu Los Angeles. Hönnuðurinn heitir Agi Berliner
og fataverzlunin „La Parisienne“ í Los Angeles selur flíkina
á 34 Bandaríkjadali.
Pacepa sagði Bahr ráðgera
úrsögn úr NATO gegn samein-
ingu Austur- og V-Þýzkalands
Bonn 4%sept. Reuter — AP.
SENDIRÁÐ Bandaríkjanna í
Vestur-Þýzkalandi tilkynnti vest-
urþýzkum yfirvöldum á sunnu-
dag að Bandarikjastjórn hefði
ekki fengið neinar upplýsingar í
hendur sem greindu frá því að
þýzki Jafnaöarmannaflokkurinn
BREZKUR skipstjóri tilkynnti í
dag að hann hefði hjargað 54
vietnömskum flóttamönnum sem
hröktust á bátskel á Suður-Kína-
hafi um 200 mílur undan Manila
á Filippseyjum. Voru flótta-
mennirnir flestir holdlausir af
sulti eftir mikla hrakninga á
hafinu, en 20 félagar þeirra hvíla
nú á sjávarbotni þar sem þeir
létust úr hungri og sjúkdómum
áður en flutningaskipið kom
flóttamönnunum til bjargar.
Flóttamennirnir lögðu upp frá
nágrenni Ho Chi Minh borgar
(Saigon) 4. ágúst síðastliðinn, en
urðu fyrir vélarbilun eftir tvo daga
á sjónum og matarbirgðir þeirra
þraut eftir fimm daga. Skipstjór-
inn sagði að flóttamennirnir hefðu
verið svo veikburða að það hefði
þurft að hífa þá um borð þrjá og
þrjá í einu í körfu. Komið verður
með þá til Singapore á morgun.
hefði uppi hugmyndir um að
Vestur-Þýzkaland segi sig úr
NATO gegn því að Sovétríkin
lofuðu að ráðast ekki á landið.
Ýmis hægri sinnuð blöð í Bonn
skýrðu frá því að Ion Pacepa,
Rúmeninn sem hvarf í Þýzka-
landi í júlí og kom si'ðan fram á
í hrakningunum fækkaði
meðlimum einnar fjölskyldunnar
um borð úr 22 í 11. Þá missti ein
konan eiginmann sinn og þrjú af
fjórum börnum sínum. Ein kona ól
barn en það lézt. Önnur kona var
komin sjö mánuði á leið þegar
flóttamönnunum var bjargað.
París 4. septembcr — Reuter
FRANSKIR flugumferðar-
stjórar létu í dag af þeim
„seinagangi", sem þeir hafa
verið með undanfarna 11 daga,
sólarlandaferðalöndum til
mestu hrellingar. Talið er það
muni taka um tvo daga að
koma flugumferð í Evrópu í
samt lag og var fyrir „seina-
ganginn".
sjónarsviðið í Bandaríkjunum,
hefði skýrt bandari'sku leyniþjón-
ustunni CIA, frá því að Egon
Bahr leiðtogi jafnaðarmanna
hefði dregið upp áætlanir að
úrsögn Vestur-Þjóðverja úr
NATO gegn því að Alþýðulýð-
veldið og Sambandslýðveldið
Búizt er við að Kínverjar og
Víetnamar hefji viðræður á ný í
vikunni um málefni fólks ‘af
kínversku þjóðerni búsettu í Víet-
nam. Kínverjar héldu þó enn í dag
uppi árásum á Víetnama og
sökuðu þá um ofsóknir á hendur
Kínverjunum.
í dag funduðu flugumferðar-
stjórarnir um mál sín og
kröfur, en að öllum líkindum
hefjast samningaviðræður við
frönsku stjórnina að nýju
seinna í vikunni.
Flugumferð-
arstjórarnir hafa ekki útilokað
þann möguleika að þeir grípi
aftur til þess ráðs að „fara sér
hægt.“
Þýzkalands yrðu sameinuð og að
Sovétríkin réðust ekki á landið.
Talsmaður stjórnarinnar í Bonn
skýrði frá þessari yfirlýsingu
sendiráðsins og sagði jafnframt
að yfirlýsing Bandaríkjastjórnar
hefði verið birt að kröfu Willy
Brandts formanns Jafnaðar-
mannaflokksins.
Vestur-þýzka tímaritið Quick
birtir og í dag nýjar upplýsingar
í njósnamáli því sem nú er í gangi
í landinu, og segir m.a. að
háttsettur embættismaður hafi
komið upplýsingum til Búkarest
fyrir tilstilli sendiráðunautar í
sendiráði Rúmeníu í Bonn. Hafin
er opinber rannsókn á því hvernig
fjölmiðlar í Vestur-Þýzkalandi
hafi að undanförnu komizt yfir
upplýsingar í málinu frá leyni-
þjónustu landsins.
Tímaritið segir að Ion Pacepa
hafi skýrt CIA frá því að sendi-
ráðunauturinn væri viðriðinn mál-
ið og að hann væri njósnafulltrúi
sendinefndarinnar í Bonn.
Ennfremur segir Quick að
Pacepa hafi hitt þrjá erindreka
CIA undir veggjum Kölnardóms-
ins síðdegis 28. júlí og eftir stutt
samtal hafi CIA-mennirnir ekið
Pacepa sem leið liggur til flugvall-
arins í Frankfurt. Þar var hann
settur um borð í flugvél í herstöð
Bandaríkjanna á vellinum og
flogið til Bandaríkjanna. Segir
Quick að menn þýzku leyniþjón-
ustunnar hafi fylgzt með viðræð-
um Pacepa og CIA-mannanna úr
fjarlægð en þeim var falið að koma
í veg fyrir að Pacepa yrði rænt.
Hirtí 54 holdlausa
flóttamenn úr hafi
Singapore, 4. september, Reuter.
„Seinaganginum” hætt
Æfðu sig á
sovézku
herskipi
Muskva. 4. scptpmlM*r, Rcuter.
SOVÉZKA stjórnin hefur mót-
mælt atviki því er varð í siðasta
mánuði, en þá skaut brezk
freigáta nokkrum skotum að
sovézku herskipi og féllu skotin
skammt framan við stefni þess
sovézka. Brezka stjórnin hefur
skýrt frá því að freigátan hafi
tekið þátt í heræfingum út af
Portsmouth hinn 15. ágúst.
Að sögn hafa Sovétmenn
fullan hug á að láta rannsaka
mál þetta til hiítar, en brezka
stjórnin hefur lítið látið hafa
eftir sér um það, aðeins stað-
fest að henni hafi borizt
mótmæli Sovétmanna.
Air Canada
flýgur á ný
Ottawa. Kanada 4. xeptember.
Atvinnumálaráðherra
Kanada, Mohn Munro, sagði á
1 sunnudagskvöld að samningar
i hefðu tekizt í vinnudeilu hjá
Air-Canada, en vinnudeila
þessi hefur stöðvað allt flug
flugfélagsins í viku.
Barrie Shaw, aðalsamninga-
maður starfsmannanna, sagði
að líklega myndi vinna hefjast
hjá hinum 7.500 starfsmönnum
í dag. Hvorki Munro né Shaw
vildu skýra frá því í hverju
| samkomulagið væri fólgið, en
Shaw sagðist telja líklegt að
starfsmenn samþykktu það.
Kína frarn-
leiðir regn
Tukyo 4. septemhor. AP.
KÍNA skýrði frá því mánudag
að tekizt hefði að koma af stað
regni og koma í veg fyrir haglél
í Szechwan-héraðinu í sumar,
en það hérað varð illa úti í
þurrkum. Þetta var gert með
því að nota flugvélar og loft-
varnabyssur.
Að því er Hsinhua fréttastof-
an skýrði frá tókst að fram-
kaila regn með því að skjóta
efnasamböndum úr loftvarna-
byssum og varpa þeim úr
flugvélum. „Gert er ráð fyrir að
úrkoma í Szechwan-héraðinu
hafi aukizt um 300 milljón
rúmmetra, við notkun þessara
efnasambanda," sagði Hsinhua.
Tveir snúa
heim utan
úr geimnum
Moskva 3. september. Reuter.
i FYRSTI austur-þýzki geimfar-
inn sneri aftur til jarðar í dag,
eftir að hafa dvalið í viku um
borð í sovésku geim-
rannsóknarstöðinni, Salyut-6.
Austur-Þjóðverjinn Sigmund
Jaehn lenti ásamt öðrum
sovéskum geimfara, Valery
Bykovsky, um 140 kílómetra
suðaustur af borginn Dzhez-
kazgan, sem er í Kazakh-
stan-sovétrlýðveldinu.
„Mér líður ágætlega, þetta
var mjög spennandi," sagði
Jaehn eftir lendinguna. Um
1 borð í Salyut-6 eru nú tveir
sovéskir geimfarar, sem þar
hafa verið í 11 vikur.