Morgunblaðið - 05.09.1978, Síða 47
Camp David fundurinn
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1978
47
Lokatílraun
á friðarleit
Washington 4. sept.
Reuter — AP
MENACHEM Begin forsætisráð-
herra Israels sagði við komuna til
New York á leið sinni til fundar-
ins í Camp David að hann væri í
friðarferð og að engin þjóð væri
eins friðelskandi og þjóð hans.
Hann sagðist og ætla að sýna alla
þá viðleitni sem möguleg væri til
að árangur næðist af fundinum,
en hann sagði þó við brottför sína
frá ísrael að fundurinn í Camp
David gæti aldrei markað endan-
leg örlög Gyðinga. Begin sagðist
eiga von á því að friðarviðræður
við Egypta tækju langan tíma að
loknum fundinum í Camp David.
Anwar Sadat ávarpaði þjóð sína
einnig þegar hann lagði af stað
áleiðis til fundarins í Camp David
og kom fmm í ræðu hans að
djúpstæður ágreiningur er enn
milli leiðtoganna tveggja sem
næstu daga funda með Jimmy
Carter Bandaríkjaforseta, en
Carter reynir nú að koma
leiðtogunum tveimur að
samningaborðinu á ný.
Gagnstætt því sem Begin sagði
við brottförina frá ísrael sagði
Sadat að fundurinn í Camp David
væri úrslitatilraunin til að koma á
friði milli Egypta og ísraels-
manna. „Fundurinn mun ákvarða
örlög umdeildu svæðanna. Næstu
kynslóðir munu annað hvort lifa í
friði eða endalausum ófríði," sagði
víöa um heim
Akureyrj 11 skýjaó
Barcelona 24 skruggur í
grennd
Chicago 25 heióskírl
Frankfurt 18 rígníng
Genf 19 sótskin
Jerúsalem 25 sólskín
Jóhannesarb. 15 sólskin
Kaupmannahöfn 16 rígning
Lisaabon 24 skýjað
London 21 sólskin
Los Angeies 31 heióskírt
Madríd 28 rigning
Malaga 26 léttskýjaó
Mallorca 24 skúrir
Miami 32 rigning
Moskva 16 heióskírt
New York 27 heióskirt
Ósló París 12 20 rigníng sólskin
Rio De Janeiro 30 skýjaó
Rómaborg 26 heióskírt
Stokkhólmur 14 skýjaó
Tel Aviv 28 sólskin
Tókýó 30 skýjað
Vancouver 15 skýjaó
Vínarborg 19 skýjaó
Sadat. Hann bætti því við að hann
mundi leggja sig fram af alefli til
að friðarhugsjónir Egypta næðu
fram að ganga, og að Palestínu-
mönnum yrði tryggður réttur til
eigin landa.
Að vonum hefur ekkert verið
látið uppi af neinum aðilanna
þriggja hvað þeir hyggist leggja
fyrir fundinn svo að skriður megi
komast á ný á friðarviðræður
ísraelsmanna og Egypta. Ýjað
hefur verið að því að Carter leggi
til að bandarískir hermenn verði á
Gaza svæðinu og á vesturbakka
Jórdan til að tryggja varnir
ísraels gegn því að herlið Israels-
manna hverfi af svæðunum svo að
aðilar geti ræðzt við á ný. Þessu
hefur Begin vísað á bug og segir
slíkt aldrei koma til tals af hálfu
ísraels.
Ennfremur gætir efablandins
ótta meðal bandarískra embættis-
manna um árangur af fundinum í
Camp David. „Það er vonlaust að
segja fyrir um árangurinn," sagði
einn þeirra og bætti við að í mesta
lagi væri kannski að reikna með
auknum skilningi aðila á vanda-
málinu. Hussein Jórdaníukonung-
ur, sem ekki var boðið til fundar-
ins, hefur látið svo um mælt að
árangurinn verði lítill en í staðinn
kunni hann að koma af stað óróa
innan arabaríkjanna sjálfra.
Sovétríkin hafa gagnrýnt þessa
tilraun Carters og sagt hana
beinast gegn Aröbum. Sjálfur bað
Carter fyrir góðum árangri af
fundinum þegar hann flutti ávarp
í sunnudagaskóla í kirkju einni í
Washington í gær.
Rannsókn á
flugslysinu á
Hopez hætt
Osló 3. september.
Frá fréttaritara Morgunblaðsins
NORSKA slysanefndin hætti á
sunnudag rannsókninni á flugslys-
inu á eynni Hopez suður af
Svalbarða, en þar hrapaði sovézk
herflugvél á mánudag. Sjö manns
fórust með vélinni.
Þegar eftir slysið hélt 20 manna
sveit sovézkra manna til Hopez,
þeirra erinda að ná í brakið og
fara með það burt frá eynni.
Sovétmönnum var veitt leyfi til
þess, eftir fund í utanríkisráðu-
neytinu norska á laugardag.
Frá krýningu Jóhannesar Páls páfa fyrsta. Vígslualtarið var sett upp fyrir utan kirkju heilags Péturs.
í forgrunni og fyrir miðju eru prélátar og kardinálar, en í bakgrunni eru erlendir fulltrúar og gestir.
Jóhannes Páll er fyrir altarinu. AP-símamynd.
Mótmæli
spilltu
krýning-
arathöfn
Vatikanínu, 5. september,
Rcuter - AP.
JÓHANNES Páll páfi fyrsti
hélt í dag fund með erlendum
gestum við krýningarathöfn
sína og þakkaði gestunum þá
virðingu sem þeir og lönd
þeirra hefðu sýnt honum. Páf-
inn brýndi fyrir fulltrúunum
að leggja sig fram um að þjóðir
heims fái lifað í sátt og
samlyndi í framtíðinni. Meðal
erlendu gestanna sem voru frá
nær eitt hundrað löndum, voru
tólf þjóðhöfðingjar og sex
forsætisráðherrar.
Gífurlegur mannfjöldi kom
saman á torgum Vatikansins til
að fylgjast með látlausri en
virðulegri krýningarathöfn
Jóhannesar Páls fyrsta. Mann-
fjöldinn fagnaði páfa innilega
þegar hann birtist á tröppum
kirkjunnar með silfurbagal.
Hann var síðan krýndur á þann
hátt að Pericle Felici kardináli
lagði ullarband með bróderuð-
um svörtum krossum á herðar
hans.
Ekki var að sjá nein áhyggju-
merki á Jóhannesi Páli þegar
hann hafði móttekið for-
mennsku kaþólsku kirkjunnar
formlega og hann faðmaði
Jóhannes Páll fyrsti fer með bænir fyrir framan grafhvelfingu þá
í kirkju heiiags Péturs sem talin er vera grafhvelfing heilags
Péturs. Skömmu eftir að myndin var tekin var páfi formlega
krýndur með viðhöfn við anddyri kirkjunnar.
AP-símamynd.
kardinálana að sér. Sumir
þeirra tárfelldu, en það gerðu
einnig fjölmargir áhorfendur
sem báðu fyrir hinum nýja páfa.
Krýningarathöfnin stóð í um
tvær klukkustundir og ávarpaði
hinn nýi páfi þá mannfjöldann
á torginu, en einnig var
sjónvarpað beint um víða veröld
frá athöfninni. Jóhannes Páll
fyrsti bað fyrir réttlæti,
bræðralagi og samlyndi meðal
manna, og komst einnig svo að
orði í prédikun sinni að Guð
almáttugur hefði nú beðið sig
um að taka miklar byrðar á
sínar „brothættu herðar".
En því andrúmslofti góðvild-
ar, sem ríkti við krýningar-
athöfnina, var að nokkru leyti
spillt þegar vinstri sinnar
mótmæltu nærveru Jorge Videla
þjóðhöfðingja Argentínu við
athöfnina. Benzínsprengjum var
kastað, eldur borinn að bifreið-
um og á Péturstorginu veifuðu
mótmælendur borðum sem á
stóð „Videla — slátrari". Um
280 manns þar á meðal fjöl-
margir Argentínumenn voru
teknir til fanga og hafðir í haldi
í nokkrar klukkustundir.
Keypti lista-
verk, en hyggst
skila því aftur
Kaupmannahöfn. 2. sept. Reuter.
VESTUR-ÞÝZKI útgefandinn
Axel Springer sagði í viðtali við
danska blaðið Berlingske Tidende
á laugardag, að hann hygðist gefa
dönsku listasafni málverkið
„Sumarkvöld á Skagenströnd",
sem Kröyer málaði, en verk þetta
er eitt hið frægasta í danskri
listasögu. Springer keypti verkið á
uppboði í Kaupmannahöfn fyrir
jafnvirði 29 milljóna íslenzkra
króna, og yfirbauð þar með
útsendara frá listasafninu í
Skagen. Hann hyggst gefa lista-
verkið aftur til Danmerkur að 20
árum liðnum.
Þetta gerðist
1977 — Hanns-Martin
Schleyer rænt og fjórir lífverðir
hans myrtir.
1972 — 11 israelskir íþrótta-
menn myrtir á Ólympíuleikun-
um í Munchen.
1960 — Lumumba leystur frá
störfum.
1939 — Bandaríkin lýsa yfir
hlutleysi — Smuts forsætisráð-
herra í Suður-Afríku.
1905 — Roosevelt bindur
enda á strið Rússa og Japana
með samningnum í Portsmouth.
1902 — Bretar semja við
Japana.
1774 — Fyrsta þing amerísku
nýlendnanna í Fíladelfíu.
1698 — Pétur mikli útrýmir
Streltzy -lífverðinum.
1658 - Yfirráðum Portúgala
á Ceylon lýkur: Hollendingar
taka Jaffnapatam.
1590 — Hertoginn af Parma
ræðst á Hinrik IV.
1566 — Selim II soldán við lát
Suleimans I.
1514 — Tyrkir ráðast inn í
Persíu.
Afmæli dagsinsi Giacomo
Meyerbeer, þýzkt tónskáld
100 „æsingamenn
teknir 1 Nicaragua
(1791-1867) - Arthur
Koestler, ungverskur rit-
höfundur (1905---)
Innienti Fyrsta skipbrots-
mannaskýlið fuligert á Skeiðar-
ársandi 1904 — F. Ormur
Jónsson Svínfellingur 1241 —
Heilsuhælið á Vífilsstöðum
tekur til starfa 1910 — Þýzk
flugvél gerir loftárás á Seyðis-
fjörð 1942 — Togarinn „Sur-
prise" strandar á Landeyjasandi
1968 — 13 drukkna í Patreks-
fjarðarhöfn 1904 — Gífurlegt
tjón í nýjum landskjálfta á
Suðurlandsundirlendi 1896 —
Jón Sigurðsson fer frá íslandi í
hinzta sinn 1877 — kvænist
Ingibjörgu Einarsdóttur 1845 —
Jón Guðmundsson boðar til
Þingvaliafundar 1848 — „Lands-
tíðindi" hefja göngu sína 1849 —
F. Bessi Bjarnason 1930.
Orð dagsinsi ímyndunarafl er
meira virði en þekking — Albert
Einstein þýzkur eðlisfræðingur
(1879 - 1955).
Managua, Nicaragua
4. september. AP. Reuter.
ÞJÓÐVARÐLIÐIÐ í Nicara-
gua tilkynnti á sunnudag,
að um 100 „æsingamenn“
hefðu verið handteknir í
höfuðborginni, Managua. Þá
hvatti þjóðvarðliðið
verzlunareigendur til að
opna aftur verzlanir sínar
og binda þannig enda á
verkfall það, sem staðið
hefur að undanförnu, en því
er beint gegn forseta
landsins, Somoza.
Að sögn þjóðvarðliðsins áttu
handtökurnar sér stað síðla
sunnudags og þeim, sem hand-
teknir voru, var gefið að sök að
„hafa kastað benzínsprengjum og
hindrað umferð, með því að reisa
götuvígi." Þá sagði að um 500
þjóðvarðliðar ækju um götur
Managua og að verzlunareigendur
vildu ólmir opna verzlanir sínar á
mánudag.
Verkfallsmenn skýrðu frá því á
laugardag að um 79% af öllum
viðskiptafyrirtækjum væru á
þeirra bandi í höfuðborginni, en
það hlutfall væri hærra í öðrum
borgum landsins.
Kaþólskur prestur að nafni
Pedro Maria verður rekinn úr
landi fyrir að hafa blandað sér í
málefni stjórnarinnar og fyrir að
„hafa mikið" af benzínsprengjum í
fórum sínum.
ERLENT