Morgunblaðið - 28.09.1978, Page 1

Morgunblaðið - 28.09.1978, Page 1
44 SÍÐUR 220. tbl. 65. árg. FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Soares býst ekki við að mynda stjóm Lissabon. 27. sept. Reuter. FYRRVERANDI forsætisráð- herra Portúgals. Mario Soares. lýsti því yfir í dag að sér þaetti ósennilegt að jafnaðarmönnum yrði falin stjórnarmyndun í landinu. eftir að hafa verið leystir frá völdum. Soares iét þessi orð falla eftir fyrsta fund sinn með Eanes forseta eftir að flokkur hans ákvað að fella stjórn Nobre da Costas nýlega. Bam fætt lifandi úr kviðarholi ChicaRo. 27. september — AP. LÆKNAR töldu líkurnar á því að Angelina Donatello kæmi lifandi í heiminn einn á móti fjörtíu og fimmþúsund. En spriklandi leit hún dagsins ljós og komst þannig í hóp þeirra hverfandi fáu barna. sem fóstruð hafa verið í kviðarholi í stað móðurlífs og lifað af. Angelina var við góða heilsu þegar síðast spurðist. Það var í miðjum septembermánuði að læknar uppgötvuðu hvað á seyði var, er móðurinni tók að blæða. „Þetta heyrir til fáheyrðra undantekninga,“ sagði læknir frú Donatello, Warren Pearce. Hann lýsti tilvikinu svo að egg hefði frjóvgast áður en það kom í legið og síðan hefði það borist til kviðarhols. Þar hefði það síðan myndað fylgju og fest sig við garnaveggi eða önnur líffæri. Þegar egg frjóvgast áður en það kemur í leg getur það, að sögn lækna, orsakað dauða móður og fósturs eða beggja. HINSTA AUGNABLIKIÐ — Farþegaþota Pacific Southwest-flugfélagsins hrapar til jarðar með logandi væng eftir einn voveiflegasta loftárekstur flugsögunnar. Hundrað þrjátíu og sex voru innanborðs og fórust allir. Yfirvíjld í San Diego reyna nú enn að hafa upp á þriðju smáflugvélinni, sem talið er að hafi sett flugstjóra þotunnar út af laginu, er hann undirbjó lendingu. Samkvæmt segulbandsupptökum, sem fundist hafa úr stjórnklefa rétt aður en áreksturinn varð, á flugstjórinn að hafa sagt: „Hún er farin“, og þykir það benda til að hann hafi séð aðra vél fjær. Sjá nærmynd bls. 21. Orrahríð á ísraelsþingi um friðarsamkomulagið Jerúsalem. Kairó. 27. september AP — Reuter IIELDUR hitnaði í kolunum á Israelsþingi er dró að atkvæða- greiðslu um Camp-David-samninganna við Egypta undir kvöld. brátt fyrir heiftúðugar árásir andstæðinga samkomulagsins. var öruggt talið Samgöngur í ólestri vestra New York. 27. sept. AP. VERKALÝÐSSAMTÖK starfs- manna járnbrauta f meira en fjörutíu ríkjum Bandan'kjanna hundsuðu f dag skipun dómsstóla um að hverfa aftur til vinnu og er áhrifa verkfallsins, sem staðið hefur í röska tvo daga, tekið að gæta víða. Þúsundir járnbrautarfarþega urðu að leita sér flutnings eftir öðrum leiðum og tvær bifreiðaverk- smiðjur, Generel Motors og Ford, sögðu upp starfsliði í svip sökum hlutaskorts. Talið hefur verið að helmingur allra matvælabirgða, sem daglega eru fluttar með lestum í landinu, hafi nú verið kyrrsettar. Um þriðjungur allra járnbrauta í Bandaríkjunum hefur verið í lama- sessi síðan á þriðjudag að verkfall meira en fjögur þúsund starfs- manna, sem deila við járnbrautaeig- endur Virginíuríkis, breiddist út til fjörutíu og þriggja annarra járn- brauta. Sáu viðkomandi verkalýðs- samtök sér ekki annan leik á borði en færa út kvíarnar eftir að aðrar járnbrautir tóku að styðja íúð bakið á Virginíufyrirtækinu í verkfalli, sem staðið hefur yfir hjá því í áttatiu daga. Stjórn Carters Bandaríkjaforseta gaf deiluaðilum sólarhrings frest í dag til að leysa úr ágreiningi sínum og hótar að skerast í leikinn. „Verkfall þetta ógnar efnahagslegri velferð þjóðarinnar," sagði vinnu- málaráðherrann, Ray Marshall. að Begin forsætisráðherra myndi fara með sigur af hólmi í atkvæðagreiðslunni með sjötíu og fimm til nítíu atkvæði af hundrað og tuttugu. ísraelsk sendinefnd bjó sig er síðast spurðist. undir að halda af stað til Kairó. þar sem ráðgert er að friðarsamningnum verði haldið áfram í næstu viku. Öfgafullir þjóðernissinnar veitt- ust i dag mjög harkalega að Begin og báru á hann að selja þjóðina fyrir friðarsamninga. I hópi þeirra, sem á hinn bóginn lögðu samningunum lið, var fyrrverandi utanríkisráðherra landsins, Abba Eban. Hann sagði meðal annars: „Láti þingið þetta tækifæri úr greipum sér ganga, sem guð forði okkur frá, þarf það að svara til saka frammi fyrir gervallri þjóð Gyðinga." Hafez al Assad Sýrlandsforseti, sem hvatt hefur til þess að Egyptum verði úthýst í samtökum Arabaþjóða, hélt í dag áfram áróðursherferð sinm i Mið-Austurlöndum. Átti hann þriggja stunda langar viðræður við leiðtoga Saudi-Arabíu áður en hann flaug áfram til Kuwait. Engar yfirlýsingar hafa verið gefnar um niðurstöður þessara funda, en áðurnefnd lönd hafa bæði lýst óánægju sinni með Camp-David-samningana. Sendiherra Bandaríkjanna í Kairó, Hermann Eilts, skýrði frá þvi í kvöld að von væri þar á ísraelsku sendinefndinni að morgni. Þetta verður fyrsta sendi- nefnd ísraelsmanna, sem heldur til Kairó eftir að Sadat Egypta- landsforseti rak ráðamenn úr röðum Israelshers frá Alexanderíu fyrir tveimur mánuðum. SALT-fundir hefjast aftur New York. 27. sept. AP. Reuter. BANDARÍKIN og Sovétríkin tóku í dag upp þráðinn í viðræð- um um hömlur við vígbúnaðar kapphlaupinu. Talið er að hér Barst líf til jarðar med loftsteinum? þondon, 27. september. AP LÍF Á jörðu kviknaði ekki f einhvers konar frumstæðri Iffefnasúpu heldur rigndi fyrstu lífverunum utan úr geimnum með halastjörnum og loftsteinum fyrir um fjórum milljörðum ára. Það voru tveir af fremstu stjarnfræðingum Breta, sem settu þessa kenningu fram á fimmtudag. Sir Fred Hoyle og prófessor Chandra Wickramasinghe telja næsta öruggt að líf sé að finna víðar í stjörnukerfi okkar. Sérfræðingartiir byggja hugmyndir sínar á nýlegri uppgötvun lífrænna mólekúla í geimnum. í bók sinni „Lífský" segja Hoyle og Wickramasinghe að uppgötvun þessi þýði að lífrænar efnasamstæður séu mjög útbreiddar í geimnum og þurfi aðeins að fullnægja vissum ytri skilyrðum til að þróun liftegunda geti hafizt. „Þar sem vart verður komið tölu á allan þann fjölda stjarna, sem í himingeimnum er að finna — sennilega meira en tíu milljarða. í okkar stjörnukerfi einu saman — virðast líkur á kviknun lífs annars staðar all verulegar," segja höfundar. Þeir leiða getur að því að höf jarðar og andrúmsloft hafi myndazt fyrir tilverknað halastjarna og hafi þannig orðið til lífvænleg skilyrði fyrir forvera líftegundanna, sem barst með loftsteini eða leifum halastjörnu. geti verið um úrslitafund að ræða enda þótt enn ríki mikil óvissa um hvort samningar nást fyrir lok ársins. Fyrsti fundurinn fór fram í híbýlum Sovétmanna hjá Samein- uðu þjóðunum í New York og hafa þeir C.vrus Vance, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, og sovéski starfsbróðir hans, Andrei Grom- yko, forystu um viðræðurnar. Sennilegt er að samninganefndirn- ar muni á laugardag flytja sig til Washington, þar sem Jimmy Carter Bandaríkjaforseti mun leiða fundina af hálfu Bandaríkja- manna. Er þeir Vance og Gromyko tókust í hendur í dag virtist Gromyko við góða heilsu, þrátt fyrir aðsvif á þriðjudag. Eitt helzta ágreiningsefni við- ræðnanna mun vera svonefnd „endurnýjun"; hve mörg ný eld- flaugakerfi skal leyfa hvorri þjóð- inni um sig að búa úr garði og endurbæta á samningstímabilinu til 1985.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.