Morgunblaðið - 28.09.1978, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 28.09.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1978 3 Ef ekki er farið út í Krossá á réttum stað, geta stórslys hlotizt af, eins og gerðist fyrir skömmu. Þessi langferðabíll festist þá í ánni, er reynt var að koma hinum nauðstöddu til hjálpar. „Endar með stórslysi ef þessu heldur áfram” „ÉG OG fleira fólk sem var í skálanum heyrðum vélarhljóð og kfktum út. Sáum við þá hvar jeppi var fastúr í Krossá, en bflstjórinn hafði farið á vonlausum stað út í ána. Við fórum strax niður á aurana og komum kaðli út í bflinn. Þá var einn farþeginn kominn upp á vélarhlífina, en fjórir voru inni f bflnum. Við gátum síðan dregið fólkið, alls 5 manns í land á kaðlinum og festum síðan f bflnum og náðum honum með naumindum á land, en engu munaði að honum hvolfdi,“ sagði Birgir Olsen skálavörður f skála Ferðafélags íslands í Þórsmörk, en um kl. 21 í fyrrakvöld bjargaði Birgir ásamt aðstoðarfólki sínu fimm Þjóðverjum úr jeppa f ánni. Birgir sagði þegar Morgun- blaðið ræddi við hann í gær, að vatnið hefði náð upp á vélarhlíf jeppans, sem var af Land Rover-gerð, þegar þau komu niður að ánni. „Ég tel víst að þarna hefði illa farið, hefðum við ekki heyrt vélarhljóðið og það heyrðum við fyrst og fremst vegna þess að þetta var dísilbíll. Þegar fólkið var allt komið í land, mátti engu muna að við næðum ekki jeppanum upp, en það tókst á nýja Bronco-jeppan- um mínum." Sagði Birgir að Land Rover-jeppinn hefði farið illa í ánni, en engu að síður hefði tekizt að koma honum í gang þegar hann var kominn á þurrt. „En þá tók ekki betra við. Einn Þjóðverjanna settist undir stýri og það skipti engum togum, að hann ók beint á jeppann minn- og eru nú báðir jepparnir mikið skemmdir." Það kom fram hjá Birgi, að það er að verða daglegur viðburður, að bjarga þurfi bílum og fólki upp úr Krossá. „Fólk virðist halda að mitt hlutverk sé björgunarstarf, en það er misskilningur, ég er skáiavörður, og því er maður ekki alltaf nógu vel undir það búinn að koma öðrum til að- stoðar. Hins vegar er sjálfsagt að leiðbeina fólki yfir ána á réttu vaði, en það verður þá að bíða þar til maður er kominn niður á árbakkann. Ef þessu heldur áfram verður ekki langt í, að stórslys verður á ný í Krossá," sagði Birgir að lokum. Þess má geta að aðeins er liðinn um einn og hálfur mánuð- ur, síðan þrennt drukknaði í Krossá, þegar jeppi festist í ánni, en fólkið hafði farið út í ána á vitlausum stað. Eitt þúsund króna frí- merki kem- ur út í nóv. PÓST- og símamálastofnunin hefur ákveðið að gefa út 1000 kr. frímerki í nóvember n.k. Verður frímerkið með mynd af málverki eftir Jón Stefánsson „Hraunteigur við Heklu". Það var málað með olíulit- um á léreft og er nú í eigu Reykjavíkurborgar. Eins og fyrr segir verður frímerkið 1000 kr. og verða 20 stykki í hverri örk. Hæsta frímerkjaverðgildi í umferð nú er 250 kr. og var það gefið ÍSLAND 1000 JÖN STífÁNSSON’HRAÍJNTF.IGXlS VIÐ HtKU! út i marz 1972. Þá var almennt burðargjald bréfa af fyrsta þyngdar- flokki innanlands kr. 7.00, en nú er samsvarandi burðargjald kr. 70.00. Þegar 50 kr. frímerki kom fyrst út, en það var árið 1958, var framan- greint burðargjald kr. 2.25 og þegar 100 kr. frímerki kom fyrst út 1965 var burðargjaldið kr. 4.50. Miðað við hlutfallið milli almenna bréfburðar- gjaldsins 1972 og 250 kr. frímerkis- ins ætti hæsta verðgildið nú að vera 2.450 kr. Miðað við sama hlutfall á árunum 1958 og 1965 hefði hæsta verðgildi átt að vera 1.555 kr. að því er segir í fréttatilkynningu Pósts og síma. Sovézk gervi- hnattstöd fínnst á Svalbarda SAMKVÆMT heimildum, sem Morgunblaðið hefur aflað sér í Noregi, starfrækja Sovétmenn eftirlitsstöð með gervihnöttum á Svalbarða, á svipuðum sióðum og radarstöð þeirra er, sú sem að undanförnu hefur vakið miklar umræður og deilur í Noregi. Norska dómsmálaráðuneyt- ið hefur nú staðfest að vitneskja um gervihnattastöðina hafi legið fyrir um nokkurn tíma, og virðist starfræksla hennar standa f sambandi við rannsóknarstörf á vegum námafélags þess, sem Sovétmenn reka á Svalbarða. / Norskir vísindamenn vilja ekki að svo komnu máli kveða upp úr um það að gervihnattastöðin brjóti í bága við ákvæði Sval- barðasáttmálans um að eyjaklas- ann og nágrenni hans megi ekki nota í hernaðarlegum tilgangi, og benda á í því sambandi að erfitt sé að greina á milli hernaðarlegrar og friðsamlegrar notkunar gervihnatta. Stöð sú, sem hér um ræðir, er á Cap Heer, og hafa norsk stjórn- völd ekki heimilað byggingu henn- ar, enda hefur ekki verið leitað samþykkis frekar en endranær þegar um er að ræða mannvirkja- gerð Sovétmanna á Svalbarða. Fullyrt er þó að stöðvarinnar hafi verið getið í skjölum, sem Sovét- menn hafa látið norskum stjórn- völdum í té, en um er að ræða alls fjórar byggingar, eitt stórt hús og þrjú lítil. Talið er að í stöðinni sé meðal annars fullkominn tölvu- búnaður. Gróska í starfsemi Jassvakningar: Tónleikar með Dexter Gordon JASSKVÖLD verður haldið í Átt- hagasal Hótels Sögu hinn 2. október næstkomandi, og þar með hpfur Jassvakning vetrarstarf sitt þriðja árið í röð. A þessu fyrsta jasskvöldi vetrarins koma fram tvær hljóm- sveitir, báðar með nýæft efni. Er það annars vegar Kvartett Reynis Sigurðssonar, og hins vegar hljómsveitin Jassmenn. Með Reyni eru í kvartettinum þeir Guðmundur Ingólfsson, Helgi Kristjánsson og Alfreð Alfreðsson. Hljómsveitina Jassmenn skipa þeir Viðar Alfreðs- son, Gunnar Ormslev, Karl Möller, Guðmundur Steingrímsson og Scott Gleckler. Af annarri starfsemi vetrarins, sem þegar hefur verið ákveðin, má nefna hljómleika kvartetts tenór- saxafónleikarans Dexters Gordons, sem haldnir verða hinn 18. október næstkomandi í Háskólabíói, og í nóvember er svo von á tríói píanist- ans Duke Jordans. Enn má nefna að Jassvakning hefur ákveðið að gefa út á hljómplötu verk Gunnars Reynis Sveinssonar, Samstæður. Flytjendur verksins á htjómplötunni eru Gunn- ar Ormslev, Jósef Magnússon, Örn Ármannsson, Reynir Sigurðsson, Jón Sigurðsson og Guðmundur Stein- grímsson. Höfundur stjórnar sjálfur flutningi. Verkið Samstæður var fyrst flutt á listahátíð árið 1970. Rétt spor í rétta átt, sporiníTorgið! Rally skórnir kjörnir ■ skólann Lodfóðraðir. Stasróir 35-46. Litur — brúnn Vorð 9.150,- Póstsendum um allt land.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.