Morgunblaðið - 28.09.1978, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1978
17
nefnd lítillar og óvopnaðrar þjóðar
leyfi sér að gefa öðrum ráð um
tæknileg hernaðarmálefni, en ég
kemst ekki hjá því að láta í ljós
þungar áhyggjur okkar Islendinga
vegna lítilla framfara á afvopnun-
arsviðinu, sérstaklega varðandi hin
voðalegu gjöreyðingarvopn, sem
standa tilbúin og miðað er á
þéttbýlissvæði, þar sem þau geta
tortímt margfaldlega öllu lífi og
eignum. Við höfum líka orðið fyrir
vonbrigðum vegna lítils árangurs í
viðræðum um gagnkvæma fækkun
herliðs, sem búið er venjulegum
vopnum.
í þessu sambandi er einkum
tvennt, sem ég vil leggja áherslu á. I
fyrsta lagi er það raunalegt að vera
vitni að því, að þróunarlöndin noti
stórar fjárfúlgur af takmörkuðum
efnum til kaupa á vopnum, her-
gagnaframleiðendum til ánægju og
hagnaðar. Þetta er að taka mat frá
svöngum og lyf frá sjúkum —
sannarlega hörmulegasta hliðin á
vígbúnaðarkapphlaupinu.
Hitt atriðið, sem ég legg áherslu
á, varðar aftur höfin víðáttumiklu.
Nú stendur yfir mikið og vaxandi
vígbúnaðarkapphlaup á sviði sjó-
hers, kaupskipa, fiskveiða og rann-
sókna, allt í hernaðarþágu. Að sýna
fánann í hverri höfn í heiminum,
eins og risaveldin gera, er vottur
um nýja heimsveldisstefnu. Það er
hörmulegt að vita til þess, að
kafbátar hlaðnir kjarnorkueld-
flaugum sigla stöðugt um gamal-
kunnar fiskislóðir og sjómenn geta
átt von á þvi að fá alls konar
rafeindatæki í veiðarfæri sín. Það
er allt í beinni mótsögn við það, sem
gert hefur verið á hafréttarráð-
stefnunni, en þar hefur komið fram
mikill áhugi á að vernda hafið og
lífríki þess, svo að sem mestur afli
fáist án þess að gengið sé á
fiskistofna, til að efla verlsunarvið-
skipti og auka mannlega þekkingu í
friðsamlegum tilgangi.
Við stöndum enn frammi fyrir
stórhættulegri þróun mála í
Mið-Austurlöndum. Við höfum allt-
af stutt viðleitni Sameinuðu þjóð-
anna til að koma á sanngjarnri
lausn deilumála og friði á þessu
svæði. Síðustu atburðir, og þá
sérstaklega viðræðurnar í Camp
David, eru að mínu mati spor í rétta
átt. Ég vil koma á framfæri
þakkiæti til allra þéirra sem að
sáttum hafa staðið og láta í ljós
aðdáun á þeirri stjórnvisku og
hugrekki, sem aðilar hafa sýnt. Ég
vona að starfsemi Sameinuðu þjóð-
anna á þessu sviði eflist og heiti enn
á ný stuðningi sendinefndar Is-
lands.
Herra forseti.
Fjölmörg önnur vandamál eru á
dagskrá þessa allsherjarþings og
bíða úrlausnar á stjórnarskrifstof-
um um allan heim, en ég ætla ekki
að reyna að gera þeim skil. Ég hef
einkum fjallað um málefni, sem
varða íslensku þjóðina og þá helst
þau, þar sem við getum ef til vill
lagt eitthvað gagnlegt til mála. Við
munum hlusta af athygli á þá, sem
bera meirá skynbragð en við á
önnur mál, áður en við ákveðum á
hvern hátt við notum dýrmætan
atkvæðisrétt okkar á þessu virðu-
lega þingi þjóðanna.
Við skulum minnast þess, að flest
vandamálin eru af mánna völdum,
og menn geta leyst þau ef viljinn er
fyrir hendi.
Við skulum á þessum vettvangi
leitast við að koma auga á og leysa
aðsteðjandi deilumál, áður en í odda
skerst.
Við skulum þess vegna skiptast
hreinskilmslega á skoðunum án
illdeilna.
Við skulum vera minnugir þess,
að við erum ekki aðeins að leysa
vandamál samtíðar okkar, heldur
einnig að móta framtíðina.
íslenska þjóðin trúir á frið og
frelsi, réttlæti og jafnrétti fyrir
þjóðir og einstaklinga.
För Sameinuðu þjóðanna inn í
óravegu framtíðarinnar hófst á
einu fyrsta skrefi, en við erum
komin af stað, þótt leiðarlok sýnist
liggía langt undan.
Við óskum Sameinuðu þjóðunum
meira og vaxandi gengis undir
öflugri forystu þeirra. Við óskum
þess, að sem mestur árangur náist
af störfum þessa allsherjarþings
undir traustri og ágætri stjórn
yðar, herra forseti.
Þökk.“
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 24., 26. og 29. tölublaöi
Lögbirtingablaösins 1977 á Ásbraut 5, hluta,
þinglýstri eign Gauts Stefánssonar, fer fram á
eigninni sjálfri þriöjudaginn 3. október 1978 kl.
15.30.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 102., og 106. og 107. tölublaði
Lögbirtingablaösins 1977 á Kársnesbraut 79,
hluta, þinglýstri eign Indriöa Indriöasonar, fer
fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 3. október
1978 kl. 15.15.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 32., 33. og 34. tölublaöi
Lögbirtingablaðsins 1978 á Smiöjuvegi 18,
þinglýstri eign Magnúsar Þóröarsonar, fer fram á
eigninni sjálfri þriöjudaginn 3. október 1978 kl.
15.45.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Snyrtivörukynning
Sérstakt
kynningarverö.
Make-up á staön-
um.
Snyrtivöruverzlunin
Clara,
Bankastræti 8.
Harðviöur - Plötur
Fyrirliggjandi: EIK — HNOTA — RAMIN — BEYKI
— ABACHI — MAHOGNI. RÁSAÐUR KROSSVIÐUR
(oregon pine og mersawa). — SLÉTTUR KROSS-
VIÐUR (red meranti og birki).
PLASTHÚÐ. SPÓNAPLÖTUR — PLASTHÚD.
HARÐTEX — VENJUL. HARDTEX HARÐPLAST
(PRINTPLAST).
PÁLL ÞORGEIRSSON & CO.
Ármúla 27 — Símar 34-000 og 86-100.
HEILSURÆKTIN HEBA
Dömur athugiö
Nýtt 4ra vikna námskeið hefst 2. okt.
Leikfimi 2 og 4 sinnum í viku.
Sturtur, sauna, Ijós, sápa, shampoo, olíur og
kaffi innifaliö í verðinu.
Strangir megrunarkúrar og vigtað í hverjum
tíma, nudd eftir leikfimina.
10 tíma nuddkúrar
slökunar- og megrunarnudd
Karlmenn athugið
leikfimi á föstudögum fyrir karlmenn
íþróttakennari Haraldur Erlendsson.
Opið í sauna og nuddi fyrir karlmenn eftir
kl 4 alla föstudaga.
' /»!
■ &
r
4-
Innritun í síma 42360 og 86178.
Heilsuræktin Heba,
Auðbrekku 53, Kópavogi.
rr
ípr^staö
Leikfimibolir
í öllum stæröum.
Leikfimibuxur
Skinn leikfimiskór
Fimleikaskór
Oplö föstudaga til kl. 7
Laugardaga til kl. 12.
o \rw
llinqiéltff/ @/tair//@ini<9ir
KLAPPAHSTIG 44 SIMI 11783,
Lærið
vélritun
Ný námskeið hefjast fimmtudaginn 5. október.
Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar, engin heima-
vinna. Innritun og upplýsingar í síma 41311 eftir kl. 13.
VélritunarskQlinn
Suðurlandsbraut 20
skáldsásau^g^
Maðunnn
.sem
nvar
Blaðamaðurinn Alf Matsson
virðist hafa horfið á ferðalagi í
Búdapest, og Martin Beck
rannsóknarlögreglumanni' er
falið það vandasama og við-
kvæma verk að leita hans þar.
Alf Matsson bjó eina nótt á
farfuglaheimili, flutti síðan á
hótel, fór eftir hálftíma út í
borgina — og hvarf. Hótellyk-
illinn fannst daginn eftir.
Vegabréf hans, föt og farangur
eru enn á hótelinu. Enginn veit
hvað af honum hefur orðið.
Martin Beck ferðast hingað
og þangað um borgina, en öll
spor virðast enda í blindgötu,
hann er engu nær.
Glæpasaga
hinna
vandlátu
Samt er hann aldrei einn.
Honum virðist veitt eftirför,
einhverjum er ekki sama um
eftirgrennslanir hans.
Þetta er önnur bókin úr
sagnaflokknum „Skáldsaga um
glæp“ eftir hina heimsþekktu
sænsku rithöfunda Maj Sjö-
wall og Per Wahlöö í þýðingu
Þráins Bertelssonar.
SKALDSóGA. IM/IQÆP
Maðurinn
.sem
nvar