Morgunblaðið - 28.09.1978, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1978
5
huðio
S\e<ór»sson
.ötus Pó's40*'
Pött UóHssoó
ÍSLANDSKIUKKAN
Eftit HalldóT lowess
GULLNA
Eftir Oovlö
uM6* u
TönHst tX
-M
Verðlag á íslandi
svipað og á hinum
N orðurlöndunum
Heildamiðurstöður könnunar sem Verzlun-
arráð og stórkaupmenn hafa látið gera
Frá blaðamannafundinum með fulltrúum Verzlunarráðs íslands og
Félags íslenzkra stórkaupmanna.
VERZLUNARRÁÐ íslands og Fé-
lag íslenzkra stórkaupmanna hafa
látið gera könnun á útsöluverði
nokkurra innfluttra neyzluvara í
Reykjavík, Ósló, Malmö og Kaup-
mannahöfn ásamt hlutdeild ríkis-
ins í útsöluverði þeirra. Könnun
þessi, sem gerð er i framhaldi af
könnun verðlagsstjóra, fór fram
dagana 4.-8. september.
Á blaðamannafundi sem ofan-
greind félög héldu í gær kynntu þau
þessa könnun. Heildarniðurstöður
sýna að útsöluverð er svipað hér og
á hinum Norðurlöndunum og er það
lægra hér en í Noregi. í Svíþjóð er
vöruverðið lægst.
Til þess að könnunin yrði sem
hlutlausust kváðu fulltrúar Verzl-
unarráðs og stórkaupmanna að
samþykkt hefði verið að fá fyrir-
tækið Hagvang til þess að annast
gerð þessarar könnunar og lögðu
þeir fram síðastliðinn þriðjudag
skýrslu sína sem síðan var kynnt í
gær.
Könnun þessi sem um ræðir er
tvíþætt. Annars vegar er um að
ræða könnun á útsöluverði nokk-
urra vörutegunda og hins vegar á
álögum ríkisins. Könnunin nær til
30 vörutegunda en Hagvangsmenn
töldu það magn í minna lagi en
kváðust ekki hafa getað haft það
stærra vegna tímaþrengdar. í
skýrslunni sem Hagvangur kynnti í
gær er undirstrikað að líta beri á
könnunina sem vísbendingu um
verðlag og varast beri að draga of
víðtækar ályktanir af henni. Vöru-
merkin sem könnuð voru eru ekki
gefin upp opinberlega þar Sem
Verzlunarráðið og Félag íslenzkra
stórkaupmanna töldu það ekki rétt
en hins vegar kom það fram á
fundinum að fagmenn geta fengið
upplýsingar um merkin.
Ef litið er á skýrsluna kemur í
ljós að er um hreinlætis- og
snyrtivörur, salerni og hjólbarða er
að ræða er vöruverð lægst á
Islandi. Hins vegar er vöruverð
hæst hér á landi er um er að ræða
rafmagnsáhöld, leirtau, penna og
bifreiðar. Matvæli eru áberandi
hæst í Noregi.
Hvað val á vöruflokkum snerti
var það í höndum Hagvangs og
kváðust forsvársmenn fyrirtækis-
ins hafa valið af handahófi úr
verzlunarskýrslum en þó þannig að
sem breiðast yfirlit fengist.
Er unnið var úr þessari könnun á
útsöluverðinu var í fyrsta lagi
reiknað út meðalverð á viðkomandi
vörutegund í hverju landi væri verð
kannað í fleiri en einni verzlun.
Niðurstöður voru síðan reiknaðar
yfir í íslenzkar krónur á genginu
frá 24. ágúst s.l. Þar næst var
fundin vísitala fyrir hverja tegund.
Lægsta vöruverð hverrar vöruteg-
undar fékk töluna 100 og var
reiknað út frá því. Síðan var
meðalvísitalan reiknuð fyrir hvern
vöruflokk í hverju landi. Verðlags-
hlutfallið var fundið með því að
setja töluna 100 á Svíþjóð og reikna
síðan út frá því.
Sem skýringu á verðsveiflunni á
milli landanna er bent á í skýrsl-
unni að bak við þær kunni að liggja
mismunandi álagning, mismunur á
flutningskostnaði og ólík tolla-
stefna og verðlagsstefna vegna
aðildar ríkjanna að mismunandi
tollabandalögum. Einnig er bent á
að hafa í huga að einstakir
vöruflokkar vegi mismunandi
þungt í útreikningi verðlagsvísitölu
og líta beri með varúð á niðurstöð-
ur könnunarinnar hvað varðar
vöruflokkinn „föt“ vegna þess að
fáar vörutegundir reyndust sam-
bærilegar. Að lokum benda Hag-
vangsmenn á að í sambandi við
rafmagnstækin er yfirleitt gefið
upp hærra vöruverð í búðarglugg-
um hér á landi en varan í raun
KÖNNUN Á ÁLÖGUM RÍKISINS Á EINSTAKA VÖRU-
FLOKKA í PRÓSENTUM AF ÚTSÖLUVERÐI VÖRUTEG-
UNDA HVERS VÖRUFLOKKS.
VERÐKÖNNUN NOKKURRA NEYSLUVARA 4.-8.
SEPT.
SVfÞJÓÐ=100.
Vöruflokkur ísland M Danmörk M Noreinir M Svíþjóð M
Matvæli 27.4 8 19.8 8 17.7 8 17.1 8
Hreinlætis-
ok snyrtivörur 25.7 5 16.8 4 16.6 5 17.1 4
Föt 25.5 3 16.8 1 18.3 3 17.1 2
RafmaKnstæki
i>K áhöld 34.6 5 20.1 5 16.8 5 17.1 5
LeikfönK 23.0 1 16.8 1 16.6 1 17.1 1
Leirtau 49.6 1 16.8 ] 16.6 1 17.1 1
Harnavaycnar 42.4 1 16.8 1 20.1 1 17.1 1
Pennar 38.1 1 16.8 1 16.6 1 18.6 1
Salerni 50.8 1 16.8 1 17.1 1
Hjólbarðar 44.9 1 16.8 1 18.3 1 20.8 1
Bifreiðar 58.9 1 58.9 1 42.5 1 25.8 1
M=Fjöldi viirumerkja.
Vöruflokkur ísland M Danmörk M NoreKur M Svíþjóð M
Matvæli 109.6 8 109.7 8 122.8 8 100.0 8
Hreinlætis-
ok snyrtivörur 82.2 6 110.6 5 117.2 6 100.0 5
Föt 100.5 4 99.8 2 98.6 4 100.0 3
RafmaKnstæki
ok áhöld 121.3 5 99.3 5 96.3 5 100.0 5
LeikfönK 113.2 1 80.8 1 108.6 i 100.0 1
Leirtau 245.6 1 164.7 1 168.5 1 100.0 1
BarnavaKnar 155.6 1 166.9 1 115.8 1 100.0 1
Pennar 122.8 1 121.1 1 106.5 1 100.0 1
Salerni 60.5 1 72.2 1 100.0 1
Hjólbarðar 85.3 1 97.5 1 116.0 1 100.0 1
Bifreiðar 151.4 1 116.3 1 128.5 1 100.0 1
Meðaltali 108.6 107.8 27 112.0 29 100.0 28
M=Fjöldi vörumerkja.
kostar og getur munað 10—15% en
það fer eftir greiðslugetu neytand-
ans og samkeppnisaðstæðum á
markaðnum.
Í þeim hluta skýrslunnar er
fjallar um könnun á álögum
ríkisins er hæsta prósentutalan á
Islandi. Á einum stað standa Danir
jafnfætis' okkur og er það í
sambandi við bifreiðar.
Hlutfall álagðra gjalda var
fundið af útsöluverði og er hlut-
deild ríkisins, þ.e. tollur, vörugjald,
og söluskattur reiknuð sem hlutfall
af útsöluverði hverrar vörutegund-
ar. Þar sem Hagvangsmönnum
tókst ekki að afla sér upplýsinga til
þessar útreikninga frá Noregi,
Danmörku og Svíþjóð varð að
nokkru leyti að áætla álögur
ríkisins á nokkrum vörutegundum
þeirra landa.
Bent er á í skýrslunni í sambandi
við báða liði könnunarinnar að ekki
tókst að fá uppgefið vörugjald í
Noregi og Svíþjóð og enn fremur er
verðlag á rafmagnstækjum í Dan-
mörku birt án vörugjalds.
2af öndvegisverkum
íslenskrar leikritunar
— eru nú aftur fáaiileg á hljómplötum
Gullna hliðið
eftir Davíö Stefánsson
Leikstjóri: Lárus Pálsson
Tónlist: Páll ísólfsson
Islandsklukkan
eftir Halldór Kiljan Laxness
Leikstjóri: Lárus Pálsson
Á þessum upptökum af verkum tveggja af höfuöskáldum íslenskrar tungu
koma fram margir af vinsælustu leikurum þjóöarinnar fyrr og síöar.
Meö þessum hljómplötum fylgja vandaöir bæklingar meö upplýsingum um
verkin, leikstjóra, leikara og höfundana. Einnig eru upplýsingar á ensku.
AlKílÁSINfiASÍMINN ER:
22480
JHoveimblntiib
Heildsölubirgðir fyrirliggjandi.
Verk pessi eru fáanleg í hljómplötuverzlunum
um land allt.
FALKINN
Suöuriandsbraut 8, Laugavegi 24, Vesturveri,
sínni 84670, sími 18670, sími 12110.