Morgunblaðið - 28.09.1978, Side 13

Morgunblaðið - 28.09.1978, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1978 13 djúpum rótum í frjóum jarðvegi þingeyskar menningar á blómaskeiði. Eldmóður aldamótakynslóðar, þessara vormanna íslands, logar enn glatt í brjósti hans. Hann gekk á skóla hjá Jónasi frá Hriflu, gáfaðasta stjórnmálamanni Islendinga á þessari öld, og hafði þar að kennurum menn, sem síðar urðu forsætisráðherrar og forsetar lýðveldisins. Hann er nú svipmestur andans höfðingi þeirra fjölmörgu afburðamanna, sem vaxnir eru af þessum meiði. Rúmlega tvítugur að aldri gerðist Ragnar útlagi og landnemi í nýjum heimi á sléttum Ameríku. Þar var hann um aldarfjórðungs skeið í fararbroddi merkilegs menningarlífs, sem þar var lifað. Enginn maður, búsettur á íslaridi, er eins gjörkunnugur örlögum íslenzka þjóðarbrotsins í Vesturheimi og Ragnar H. Frásagnar hans af þeirri sögu eru efni í margar bækur. Á heimsstyrjaldarárunum síðari gerðist þessi hirðmaður tónlistargyðjunnar sjálfboðaliði í Banda- ríkjaher. Hann kann enn að heilsa að hermanna sið. Þannig tók hann á örlagatímum virkan þátt í baráttu frjálsborinna manna gegn martröð og villimennsku alræðisaflanna. Og fetaði í fótspor Byrons, enda báðir ákafir unnendur þeirrar heiðríkju hugans, sem berst til okkar gegnum aldirnar í snilldarverkum hellenskrar hámenningar, þangað sem vestræn menning sækir lífsmagn sitt. Þá er ótalið ævistarf Ragnars í þjónustu drottningar listarinnar, tónlistarinnar. Henni hefur hann helgað líf sitt allt. Um það verða aðrir menn, mér dómbærari að fjalla. En það hefur sagt mér vinur minn, kunnur tónlistarmaður, sem naut handleiðslu Ragnars í þrjú ár, að kerfisbundnari vinnubrögðum og strangari kröfum hafi hann ekki kynnzt fyrr en í konservatoríinu í Moskvu. Enda sýnilegur árangur eftir því. Fimmtugur að aldri, þegar venjulega er farið að halla undan fæti hjá flestum dauðlegum mönnum, hóf Ragnar sitt annað ævistarf heima á Fróni. Áttræður stendur hann enn í miðjum önnum þess skapandi starfs. Heimili hans og Sigríðar Jónsdóttur frá Gautlöndurn, er mesta menningarheimili sinnar samtíðar á Islandi. I þrjá áratugu hafa hundruð æskumanna hvaðanæva af landinu gengið þar um garða og notið handleiðslu meistarans. Löngu eftir að þau hjón eru öll, mun áhrifa þessa menningarheimilis gæta í lífi og verkum þeirra snillinga, sem þau hjón hafa fóstrað og komið til nokkurs þroska. Það leikur ljómi um líf þessa manns. Samstarf þessara samhentu hjóna bregður birtu yfir samtíð þeirra og umhverfi — birtu, sem seint mun fölskvast. ísafirði 26. september, 1978 Jón Baldvin Hannibalsson Ragnar H. Ragnar er hér ásamt einum af fyrrverandi nemendum sínum. Þóri Þórissyni, en myndin er tekin á þingi skólastjóra tónlistarskóla fyrir skömmu. Víkingabyggð hlíft um sinn Dyflinni. 27. sopt. Reuter. ÍRSKA stjórnin hefur frestað um óávkeðinn tíma byggingu skrifstofuhúsnæðis á bakka árinnar Liffey þar sem byggð víkinganna er stofnuðu Dyfl- inni stóð. Fyrirhugaðar byggingar- framkvæmdir hafa sætt miklum deilum um árabil og barátta fyrir varðveizlu minj- anna náði hámarki með mót- mælagöngu í marz. í framhaldi af þessu hefur Jack Lynch forsætisráðherra ákveðið að fresta framkvæmdunum, en ekki er tiltekið hvenær þær skuli hefjast. Leiðtogar mótmælabarátt- unnar segja þó að þeir geri sér góðar vonir um að uppgröftur sá sem hefur farið fram á staðnum muni bera svo mikinn árangur á næstu tveimur árum að ríkisstjórnin neyðist til að varðveita staðinn, sem er einn og hálfur hektari, sem þjóðar- minnisreit. En leiðtogar 1800 borgar- starfsmenn sem nýju bygging- una á að reisa fyrir og vinna nú á víð og dreif í 19 borgarskrif- stofum vara við því að þeir muni leggja niður vinnu ef þeim verður ekki fljótlega útvegað húsnæði. Athugasemd frá verðlagsstjóra Morgunblaðinu hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Georgi Ólafssyni verðlagsstjóra. Vegna þeirra blaðaskrifa, sem orðið hafa í framhaldi af sjón- varpsþætti um samnorrænu verð- könnunina vil ég enn ítreka eftirfarandi: 1. Verðlagsyfirvöld á Norðurlönd- um bundu fastmælum að birta ekki útkomu einstakra vöruteg- unda úr könnuninni. Ef ég bryti það samkomulag væri ég að stefna framtíðarsamstarfi okkar við hin Norðurlöndin á þessu sviði í hættu, en Viðskiptaráðuneytið leggur mikla áherzlu á, að það samstarf geti haldið áfram. Er ég gerði grein fyrir verð- könnuninni í London árið 1976, var ég ásakaður fyrir að birta einstök vörumerki, þar sem með því væri ég aðeins að vega að ákveðnum fáum innflytjendum, en nú er ég hins vegar ásakaður fyrir hið gagnstæða, þ.e. að birta hvorki vörumerki né nöfn innflytjenda. Rétt er einnig að taka fram, að þegar verðupptakan í samnorrænu verðkönnuninni var gerð, var viðkomandi innflytjendum heitið því, að fariö yrði með allar upplýsingar um einstakar vöruteg- undir sem algjört trúnaðarmál. Við frekari athugun á málinu mun að sjálfsögðu verða haft samband við hlutaðeigandi aðila um niður- stöður könnunarinnar. 2. Ég hef verið gagnrýndur fyrir að birta meðaltalsniðurstöður könnunarinnar. Vissulega var það ákvörðunaratriði, hvað gert skyldi með niðurstöðurnar. Þar sem innkaupsverð til íslands reyndist hins vegar, í þessari könnun, afgerandi hærra en til hinna landanna, og gaf þar með ákveðna vísbendingu, taldi ég það em- bættisskyldu mína að skýra frá niðurstöðunum opinberlega, enda er ég þeirrar skoðunar, að útilokað sé að lagfæra þessi mál nema að undangenginni opinni umræðu um þau. Ég ætla mér ekki að fara að standa í frekari blaðaskrifum um þessi mál að sinni. Viðskiptaráð- herra hefur ákveðið að taka þau til ítarlegrar meðferðar og munu málin því skýrast á næstunni og verður þá væntanlega hægt að ræða þau frekar. Georg Ólafsson. Völundar útihurðir Fallegar útihurðir setja ekki hvað síst svip á húsiö og Völundar útihurð getur gjörbreytt útliti hvaða húss sem er. Timburverslunin Völundur hefur 70 ára reynslu í smíði hurða og hefur jafnan fylgt þeim sveiflum, sem orðió hafa í hurðasmíði undanfarin ár. Massifar Völundar útihurðir úr teak og furu eru framleiddar úr bestu efnum, sem völ er á og mikil áhersla lögð á vandaða vinnu, góða þjónustu og eingöngu fullkomnustu vélar notaðar til framleiðsl- unnar. Hinar viðurkenndu Assa skrár og lamir eru í öllum hurðum frá Völundi. Vandaðu val útihurðar á hús þitt, það er mikilvægt vegna heildarútlits. „Valin efni, vönduð smíð“ hafa verið einkunnarorð Völundar í mörg ár og gildir það um alla fram- leiðslu. áTá Timhurverzlunin Vólundur hf. KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.