Morgunblaðið - 28.09.1978, Page 19

Morgunblaðið - 28.09.1978, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1978 19 '■"V' Ein af Phantom-þotum 57. flugsveitarinnar. Myndin er tekin yfir Skeiðarárjökli. Ljósmynd. Major Douglas H. Jenkins. skömmu millibili þegar vélin er á hre.vfingu má reikna út staðsetn- ingu slíkra truflunarstöðva á tiltölulega skömmum tíma. Tvær E-3A vélar, sem vinna saman, geta gert slíkar staðarákvarðanir mjög fljótt. Tölvu- búnaöurinn Tölvubúnaður E-3A vélanna gerir þeim kleift að fylgjast með mjög mörgum flugvélum í einu. Tölur hafa verið nefndar um svo sem 300 skotmörk í einu. Það er hins vegar ljóst að það fer eftir því hversu mikla athygli þarf að veita hverju skotmarki, hve mörgum slíkum er hægt að fylgjast með í einu. Tölvan raðar skotmörkunum í forgangsröð og er hún vitaskuld margfalt fljótari að slíku en nokkur maður gæti hugsanlega verið. Sá fjöldi skotmarka sem E-3A vélin getur fylgst með á sama augnabliki hefur ekki verið gefinn upp. Upplýsingar þær sem ratsjáin gefur fara í gegnum tölvu vélar- innar og kbma fram á sérstökum tölvuskermum en ekki sams konar ratsjárskermum og á eldri rat- sjám. Þar með er hægt að láta margfalt fleiri upplýsingar koma fram á skerminum í einu. M.a. má fá upplýsingar í töfluformi eða á landakorti. Algjörlega er hægt að ráða mælikvarða landakortsins og er hægt að stækka hvaða hluta þess sem er. Á kortinu koma síðan fram hjá hverju skotmarki og hverri varnarflugvél þær upplýs- ingar sem máli skipta. Gera má við bilanir á flugi Ratsjárkerfi E-3A vélanna er þannig úr garði gert að hægt er að gera við allar algengustu hugsan- legar bilanir meðan vélin er á flugi. Hér er vitaskuld ekki átt við bilanir sem kynnu að verða uppi í ratsjárdiskinum nema að því leyti sem hægt er að fjarstýra viðgerð. I kerfinu er fyrir hendi tæki sem leitar að og gerir grein fyrir eðli bilana. Tölvukerfið gefur einnig upplýsingar um hvað gera þurfi til að lagfæra bilunina. Þess má geta að kerfið verður ekki óvirkt þótt einhverjir hlutar þess bili. I hönnun þess er gert ráð fyrir hugsanlegum bilunum og því eru byggðar inn í kerfið varaleiðir ef svp mætti nefna það. í ratsjárdisknum er auk ratsjár- loftnetsins sérhannað tæki til að greina milli vinveittra flugvéla og annarra. Nefnist þetta kerfi IFF (Identification Friend or Foe). Er hér um að ræða sjálfvirkt dul- málskerfi sem hefur áhrif á sérstök tæki í vinveittum flugvél- um þannig að þau senda til baka upplvsingar um flughæð, fjarlægð o.fl. ' Fjar- skipta- stöðvar Ekki skal sleppt að geta þess að E-3A vélarnar eru í sjálfu sér fljúgandi fjarskiptastöðvar. Fjar- skiptatæki vélanna eru mjög vel úr garði gerð og með því fullkomn- asta sem þekkist. í þessum fjar- skiptabúnaði og í beinum tengsl- um við tölvubúnaðinn er tæki, sem sent getur allar upplýsingar, sem fyrir hendi eru í minni tölvurnar, til annarrar E-3A vélar eða til stjórnstöðvar, hvort heldur er í lofti eða á jörðu. Geta þessar vélar t.d. auðveldlega séð um flugum- ferðarstjórn þar sem til þyrfti að grípa og séð t.d. um að stjórna aðgerðum á svæðum sem hafa orðið illa úti í náttúruhamförum. Hreyflar E-3A vélanna eru mun aflmeiri en hreyflar hinna venju- legu Boeing 707-320 véla. Er Sentry-vélin búin fjórum Pratt og Whitne.v TF-33 þotuhre.vflum eins og Lockheed C-141 Starlifter. Siglingatæki vélanna eru vita- skuld af fullkomnustu gerð og þannig mætti lengi telja. Á það má svo minnast að lokum að búkur vélarinnar rúmar mjög vel þau tæki sem þar er komið fyrir og plássið er nægilegt. Því má telja víst að auðvelt verði að koma þar fyrir þeim /íýjum tækjum sem fullvíst er að koma fram á sjónarsviðið á næstu árum. Baldur Sveinsson Aukabúnaöur ratsjárlottnets Ratsiárloftnct Stöð fyrir flugleiðsögumann og þann sem sér um aö greina milli vina- og óvinaf lugvéla Ratsjármóttakari og merk jaþýöari sjárloftnets „mband við orru.tu 552TÍTÍ- 4 miHi vin*'00 Viöhalds- og stjórnstöö ratsjár Tðlvuskermar Fjarskiptaborö Flugleiösögutaki Fallhllfarstökksrenna (til björgunar áhafnar) Fjarskiptabunaöur Skemmdir í saltfiski af völdum ,,rauða” NOKKUÐ hefur borið á „rauða“ í saltfiskframleiðslunni hér á landi og er talið að nokkur hundruð tonn hafi skemmzt að einhverju leyti. „Rauði“ kemur fram ef saltfiskur er geymdur of lengi við of hátt hitastig. Að því er Tómas Þorvaldsson, stjórnarformaður Sölusambands ísl. fiskframleiðenda, og Friðrik Pálsson, framkvæmdastjóri SIF, 'tjáðu Mbl. í gær, eru þó skemmdir á framleiðslunni vegna „rauða" minni en óttast hafði verið, en eru þó enn að koma í ljós. Ástæðurnar fyrir „rauðanum" eru þær, að framleiðendur hafa þurft að liggja lengur með fiskinn en þeir hugðu, fyrst vegna útflutningsbannsins hér á landi og síðan vegna aðgerða Portúgalsstjórnar, þannig að hjá nokkrum framleiðendum varð saltfiskurinn innlyksa í ófullnægj- andi kælingu einmitt yfir heitustu mánuðina. Þegar kom fram í septembermánuð hefði á nokkrum stöðum komið í ljós „rauði“ í framleiðslunni. Hins vegar bætti hér nokkuð úr skák að æ fleiri saltfiskframleiðendur hefðu kom- ið sér upp kæliaðstöðu fyrir saltfiskinn, og þess vegna væri tjónið ekki eins tilfinnanlegt og ætla hefði mátt. Saltfiskur sem „rauði" kemst í verður aldrei fyrsta flokks vara og í sumum tilfellum algjörlega ósöluhæf. Grunnskólakennarar: Bíða úrlausnar meimtamálaráðherra SAMBAND grunnskóla- kennara hélt fulltrúaráðs- fund í gær og í fyrradag og var á fundinum samþykkt harðorð mótmæli gegn van- efndum á þvf fyrirheiti stjórnvalda, sem grunn- skólakennarar telja að hafi verið gefið í síðustu kjara- samningum um jafngildi kennaraprófs til launa án tillits til þess á hvaða tíma það var tekið. í samþykkt- inni segir síðan orðrétt. „Fundurinn væntir þess að tillögur menntamálaráðherra, sem hann hyggst leggja fyrir fjármála- ráðherra næstu daga, leiði til lausnar málsins. Með tilliti til þess ákveður fulltrúaráðið að vega og meta hvort viðunandi lausn hefur fengizt. Verði þá enn um vanefndir að ræða að mati Sambands grunn- skólakennara munu kennarasam- tökin grípa til harðari aðgerða til þess að knýja á um efndir kjarasamninga. Fundurinn skorar á alla kenn- ara í hvaða kennarasamtökum, sem þeir eru, að standa fast saman i baráttunni fyrir þessu réttlætis- máli og í þeim aðgerðum sem valdar verða til að knýja á um lausn þess. Fundurinn lýsir ánægju sinni með framtak kennaranema til að efla og treysta kennaramenntun í landinu og harmar það og átelur að ríkisvaldið skuli leyfa sér að koma í veg fyrir æfingakennslu kennaranema með því að standa í vegi fyrir að þetta réttlætismál nái fram að ganga. Að lokum þakkar fulltrúaráðið forystumönnum samtakanna það mikla starf sem þeir hafa á sig lagt til þess að reyna að fá stjórnvöld til að efna það fyrirheit í síðustu kjarasamningum að meta kennarapróf jafngild til launa." Brlúge Umsjón ARNÓR RAGNARSSON Þing Bridgesam- bandsins í Borgarfirði Þing Bridgcsambands ís- lands 1978 verður haldið í Munaðarnesi í Borgarfirði dag- ana 21. og 22. október næstkomandi. Dagskrá þingsins verður á þessa leiö: Laugardagur 21. okt. kl. 13.30. 1. Setning þingsins og skipun starfsmanna. 2. Kjörbréf þingfulltrúa úr- skurðuð. 3. Skýrsla forseta B.S.Í. 4. Lagðir fram reikningar B.S.Í. 5. Lagabreytingar og skipulags- mál. 6. Keppnir og keppnisreglur. 7. Kosning þingnefnda. 8. Kennslu- og útbreiðslumál. 9. Þinghlé kl. 18.00. Sunnudagur 22. okt. kl. 10.00 1. Skýrslur og álit þingnefnda, umræður. 2. Lagabreytingar afgreiddar. 3. Kosning sambandsstjórnar, endursk. og dómnefndar. 4. Önnur mál. 5. Þingslit. Hjónaklúbburinn Barometerkeppni hófst hjá félaginu sl. þriðjudag og taka 24 pör þátt f keppninni. Staðan eftir fyrsta kvöldið: Þóra — Guðjón 60 Sigríður — Gísli 58 Friðgerður — Jón 40 Guðbjörg — Guðmundur 38 Guðrún — Ragnar 38 Ólöf — Hilmar 20 Erla — Gunnar 19 Gróa — Júlíus 19 Næst verður spilað þriðjudag- inn 10. október. Spilað er í félagsheimili Rafveitunnar v/ Elliðaár. Bridgefélag Hafnarfjarðar 33. aðalfundur Bridgefélags Hafnarfjarðar var nýlega hald- inn. Stjórn félagsins skipa nú: Björn Eysteinsson, Guðni Þorsteinsson, Hörður Þórarins- son, Stefán Pálsson, Sævar Magnússon og Ægir Magnússon. Stjórnin hefir enn ekki skipað með sér verkum. Vetrarstarf félagsins hefst 2. október kl. 20 með eins kvölds tvímenningskeppni. Spilað verður í nýja húsi Slysavarna- félagsins í Hafnarfirði að Hjallahrauni 9. Nýja stjórnin væntir þess að félagar, gamlir og nýir, fjöl- menni til keþpni í nýjum, rúmgóðum og glæsilegum húsa- kynnum. Bridgedeild Barðstrendinga Tvímenningskeppnin hefst mánudaginn 2. október klukkan 19.45 stundvíslega í Domus Medica. Þeir sem vilja láta skrá sig fyrirfram tilkynni þátttöku í símum 41806 (Ragnar) og 81904 (Sigurður) sem fyrst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.