Morgunblaðið - 28.09.1978, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 1978
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 69., 72. og 74. tölublaöi
Lögbirtingablaðsins 1977 á Nýbýlavegi 80, hluta,
þinglýstri eign Jóhannesar Gunnarssonar, fer
fram á eigninni sjálfri þriöjudaginn 3. október
1978 kl. 14.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
Samkvæmt kröfu bæjarsjóös Kópavogs, skattheimtu ríkissjóös í
Kópavogi, Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Verslunarbanka íslands,
Benedikts Sigurössonar hrl., Guðjóns Steingrímssonar hrl.,
Hafsteins Sigurðssonar hrl. og Siguröar Sigurjónssonar hdl., verða
eftirgreindar bifreiöar seldar á nauöungaruppboöi, sem haldiö
veröur við bæjarfógetaskrifstofuna í Kópavogi, aö Auöbrekku 57,
föstudaginn 6. október 1978 kl. 16.00:
Y-554
Y-3481
Y-5010
Y-6364
R-24016
Y-793
Y-3728
Y-5031
Y-6623
R-37287
Y-2417
Y-4446
Y-5032
Y-6742
R-56509
Y-2976
Y-4809
Y-6118
R-8166
G-2477 og birgðatankar
X-4538 og Galion valtari
Uppboðsskilmálar liggja frammi á skrifstofu uppboðshaldara.
Greiösla fari fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
25. september 1978.
Nauðungaruppboð
Samkvæmt kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, skattheimtu
ríkissjóös í Kópavogi, innheimtu ríkissjóös í Hafnarfiröi, Landsbanka
íslands, Theódórs Georgssonar hdl., Þorvaröar Sæmundssonar
hdl., Baldvins Jónssonar hrl., veröa eftirgreindir lausafjármunir
seldir á nauöungaruppboöi, sem sett verður á skrifstofu minni aö
Auöbrekku 57 föstudaginn 6. október 1978 kl. 14:
Verður uppboöi síðan fram haldiö á öörum stööum, þar sem munir
eru:
1. Húsgögn og heimilistæki:
Sófasett, hægindastóll, bekkur, 2 stólar, 2 borö, hillusamstæða,
sjónvarpstæki, hljómflutningstæki, radíófónn, plötuspilari og
hátalarar, frystikista og ísskápur.
2. Rafsuðutæki (kolsýru) teg: Migatronic, hjólsög Eisler.
3. Afréttari (Prima A.D. Elve), hjólsög (Elle feld) Hjólsög Delta
Kæliborð ICO Seria 70 rennibekkur, tegund Meuser, 2 rennibekkir
TOZ og rennibekkur tegund FAB nmerktur nr. 3 beinskeri Tempo
Fræsari og afréttari. Fræsari og afréttari. Rennibekkur, Stankoim-
port, rennibekkur Nodo.
4. Plygraph saumavél.
5. Leiktjöld.
6. Einangraöir birgöatankar í landi Fífuhvamms.
Uppboðsskilmálar liggja frammi á skrifstofu uppboöshaldara.
Greiösla fari fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Kópavogi,
25. sept. 1978.
orgunblaðið
óskar
blaðburðarfólki
Austurbær:
Laugavegur 1-33,
Skólavöröustígur
Sóleyjargata
Laugarásvegur 38 - 77
Vesturbær:
Níif. Kvisthagi,
Miöbær,
Hjaröarhagi I og II.
Brávallagata.
Skerjafjöröur
/sunnan flugvallar
________Uppl- < síma 35408.
Guðrún Jóhannesdóttir frá
Stóra-Kálfalœk — Minning
Þann 23. sept. 1978 fór fram
útför Guðrúnar Jóhannsdóttur
áður húsfreyju að Stóra-Kálfalæk
í Hraunhreppi, frá Akrakirkju á
vestur-Mýrum. Halldór Gröndal
sóknarprestur í Grensáspresta-
kalli í Reykjavík jarðsöng. Mikið
fjölmenni víðsvegar að fylgdi
Guðrúnu til grafar og vildi með
því votta þessari sómakonu
virðingu sína og þökk.
Guðrún Jóhannsdóttir var fædd
í Öxney á Breiðafirði 23. sept. 1888
og hefði því orðið níræð þennan
dag, en hún andaðist á Landspítal-
anum í Reykjavík 9. sept. s.l.
Foreldrar Guðrúnar voru Arn-
björg Hermannsdóttir og Jóhann
Jónasson bóndi í Öxney og haf-
sögumaður á Breiðafirði.
Guðrún ólst upp á mannmörgu
heimili í Öxney til ársins 1904 en
þá flutti hún til systur sinnar
Sigríðar og manns hennar Eiríks
Kúlds Jónssonar að Ökrum í
Mýrasýslu, en þau voru foreldrar
mínir.
Ég man eftir Guðrúnu frænku
minni frá fyrstu bernsku á heimili
foreldra minna. Hún var hægri
hönd móður minnar í öllu, sem
gera þurfti á þessu mannmarga
heimili, þar sem oft voru 18—20
manns. Það var alltaf kært með
þeim systrum og féll þar aldrei
skuggi á. Hjá okkur á Ökrum
dvaldist Guðrún til ársins 1917,
ásamt móður sinni Arnbjörgu, en
þá um vorið brá móðir mín búi, því
faðir minn hafði andast í desem-
ber 1916. Þetta sama vor flytur
Guðrún að Stóra-Kálfalæk, næsta
bæ við Akra, ásamt móður sinni og
ungri frænku Helgu Guðmunds-
dóttur. Guðrun ræður sig sem
ráðskona til Sigurðar Marísar
Þorsteinssonar, sem nýlega var
orðinn ekkjumaður og átti þriggja
ára son, Óskar Elínbert, og gekk
Guðrún honum í móðurstað. Síðan
verður Guðrún eiginkona Sigurð-
ar og eignuðust þau þrjú börn,
Arnbjörgu Súsönnu, konu Hjartar
Magnússonar bifreiðastjóra hjá
Strætisvögnum Reykjavíkur,
Steinunni Þorsteins sem dó um
tvítugsaldur á Vífilsstaðahæli
1944, og Jóhann Óskar fyrrverandi
bónda að Stóra-Kálfalæk, nú
búsettur í Borgarnesi, kvæntur
Unni Andrésdóttur frá Saurum.
Þá ól Guðrún upp bróðurdóttur
sína, Helgu Guðmundsdóttur ljós-
móður, en hún kom ung að Ökrum
eftir að hafa misst foreldra sína.
Helga er gift Ólafi Magnússyni
trésmíðameistara í Kópavogi.
Auk þess dvöldu á heimili
Guðrúnar og Sigurðar um lengri
og skemmri tíma ýmis börn skyld
Guðrúnu, þar á meðal Óskar Jens
systursonur hennar, sem Guðrún
+
Elskuleg elginkona mfn, móöir, tengdamóöir og amma,
SIGRÍDUR OLGEIRSDÓTTIR,
Kóngsbakka 1,
andaöist aö morgni hins 27. september.
Jaröarför auglýst síðar.
F.h. aöstandenda,
Trauati Árnaaon.
Eiginkona mín og móöir,
HULDA BRYNJÓLFSDÓTTIR,
Faxabraut 39 A, Kaflavík,
lézt í Sjúkrahúsi Keflavíkur, þriöjudaginn 26. september.
Sigurður Valdimaraaon,
Jón B. Siguröaaon.
+
Konan mín, móöir og fósturmóöir okkar,
GUÐRÚN EYJÓLFSDÓTTIR,
Braaóraparti, Vogum,
veröur jarösungin í Kálfatjarnarkirkju, föstudaginn 29. september kl. 2.
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á Kálfatjarnarkirkju.
Guðmundur Ólafaaon,
Eyjólfur Guömundaaon, Guöbjörn Guómundaaon,
Steinar Gunnbjörnaaon.Gunnbjörn Stainaraaon
og aðrir aöatandondur.
Dóttir okkar, systir og barnabarn,
GÍGJA MAGNÚSDÓTTIR,
Kvíholti 10, Hatnarfirói,
er lézt af slysförum 22. september veröur jarösungin frá Hafnarfjaröarkirkju,
föstudaginn 29. september kl. 13.30.
Auódís Karlsdóttir, Magnús Sigfússon,
Sigfúa Magnúsaon,
Áata Ásbjörnadóttir, Sigfús Magnússon,
Kristín Hjörleifsdóttir,
+
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR,
fró Önundarholti,
veröur jarösungln frá Selfosskirkju laugardaginn 30. september n.k. kl. 13:30.
Jarösett veröur að Villingaholti sama dag.
Ferö veröur frá B.S.Í. kl. 12.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Sjúkrahús Suöurlands á Selfossi.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Útför fööur okkar, tengdafööur og afa,
BJÖRNS KNÚTSSONAR,
löggilts endurskoóanda,
verður gerð frá Bústaöakirkju föstudaginn 29. september kl. 1.30. Þeim er
vilja minnast hins látna er bent á Styrktarfélag lamaðra og fatlaöra.
Karl Ómar Björnsson,
Victor Knútur Björnsson, Kristín H. Kristinsdóttir
og sonarsynir.
hafði tekið miklu ástfóstri við á
Ökrum. Óskar Jens dó á Vífils-
staðahæli 1924. Árið 1926 veikist
svo Guðrún Jóhannsdóttir af
berklum og er á annað ár sjúkling-
ur á Vífilssöðum, en kemst heim
þaðan aftur og heldur áfram
störfum sínum, en er alltaf
heilsuveil eftir það. Þau Guðrún og
Sigurður halda svo áfram búskap
á Stóra-Kálfalæk þar til Sigurður
lést árið 1962, þá 78 ára að aldri,
en þá tók við búi Jóhann sonur
þeirra, en nú býr þar sonur hans
Sigurður.
Síðustu ár sín dvaldi Guðrún
mest hjá Arnbjörgu dóttur sinni
og manni hennar að Ásgarði 73 í
Reykjavík. En hugur hennar var
bundinn Stóra-Kálfalæk og Ökr-
um órjúfandi böndum því þar
hafði hún dvalið og upplifað sín
æsku- og manndómsár. Gleði
hennar og sorgir voru tengdar
þessum tveimur stöðum sérstak-
lega. Þar hafði hún séð drauma
sína rætast, en líka orðið fyrir
vonbrigðum. í kirkjugarðinum á
Ökrum valdi hún sér síðasta
hvílurúmið. Að Ökrum hafði hún
komið ung stúlka í blóma lífsins og
dvalist þar í þrettán ár, einmitt
þau árin þegar draumar æskufólks
eru bjartastir, henni var því
staðurinn kær.
Þó að Guðrún dveldi mest hér í
Reykjavík síðustu árin, þá átti hún
líka heima á Stóra-Kálfalæk hjá
syni sínum þar, og við þann bæ var
nafn hennar tengt allt frá þeirri
stundu að hún kom þangað fyrst,
til endadægurs. Miklir kærleikar
voru alla tíð á milli Guðrúnar og
frænku hennar Helgu Guðmunds-
dóttur, enda hafði Guðrún reynst
henni sem besta móðir.
Þegar Guðrún dvaldi hér í
Re.vkjavík þá héit hún lifandi
sambandi við fólkið í heimasveit
sinni og þangað fór hún eins oft og
hún gat, til að heimsækja af-
komendur sína og vini, enda var
hún allsstaðar kærkominn gestur.
Guðrún Jóhannsdóttir var óum-
deilanlega mikilhæf kona, gædd
mjög mikilli fórnarlund sem vildi
rétta hjálpandi hönd þar sem með
þurfti.
Hún kvartaði aldrei fyrir sjálfa
sig, þó lífið legði henni stundum
þunga bagga á herðar, en bar þá á
æðru bein í baki. Hún hefur án efa
hlotið í vöggugjöf mikið andlegt
þrek komið frá sterkum ættar-
stofnum, um það vitnaði lif hennar
allt.
Guðrún á Stóra-Kálfalæk var
bókelsk kona, unnandi ljóðs og
sögu, Jiún var minnisgóð og fróð
um marga hluti. Þessu mikla
andlega atgjörvi sínu hélt hún til
hinstu stundar. Guðrún var fríð
kona, svipur hennar heiður og
bjartur og það duldist engum sem
henni kvnntust að þar fór mikill
persónuleiki. Allt líf var henni
heilagt, og á langri lífsgöngu
reyndi hún jafnan að þoka málum
til betri vetar. Þegar nú þessi kona
er kvödd af samferðafólkinu, eftir
langa lífsgöngu og mikið ævistarf
þá fylgja henni bestu óskir og
þakkir yfir landamærin, frá þeim
er urðu henni samferða á
göngunni.
Að síðustu vil ég svo persónu-
lega þakka Guðrúnu frænku minni
fyrir öll hennar elskulegheit í
minn garð. Öllum aðstandendum
hennar votta ég samúð mína og
konu minnar.
Jóhann J. E. Kúld.