Morgunblaðið - 24.10.1978, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1978
11
Frá bændafundi á Jökuldal um riðuveiki:
Áríðandi að tekið sé strax eft-
ir óvenjulegri hegðun fjárins
hana og því væri lagt til að lógað
yrði fé á bæ þeim sem hún hefði
komið upp á.
Haukur Jörundsson, fulltrúi í
landbúnaðarráðuneytinu, sat
einnig fund þennan og greindi
hann frá því, að landbúnaðarráð-
herra hefði þegar athugað tillögur
Sauðfjársjúkdómanefndar og
ásamt fjármálaráðherra myndi
hann athuga með útvegun fjár til
þess að greiða bætur og kvað hann
gagnlegt að heyra álit manna á
fundinum um öll þessi mál.
Jón Pétúrsson héraðsdýralæknir
sagði einnig frá reynslu sinni og
þekkingu af riðu og urðu síðan
almennar umræður þar sem bænd-
ur spurðu ýmissa atriða um
sjúkdóminn og varnir gegn honum
sem þeir Jón Pétursson og Sigurð-
ur Sigurðsson svöruðu.
I þeim umræðum kom m.a.
fram, að niðurskurðarleiðin hefði
gefizt illa þegar hún hefði verið
reynd, en þá hefði þess e.t.v. ekki
verið gætt að hafa félaust nema í
eitt ár, en þyrfti að vera tvö og t.d.
hefði verið skorið niður fé á öðrum
bæ þar sem um tvíbýli hefði verið
að ræða, en hinu hlíft og því hefði
henni e.t.v. skotið upp aftur.
Jón Pétursson sagði það áríð-
andi að bændur létu strax vita ef
vart yrði afbrigðilegrar hegðunar
fjár síns, því annars væri niður-
skurður á Brú unnin fyrir gýg og
til lítils að skera niður fé á einum
bæ ef hún væri e.t.v. á þeim næsta.
Kvað Jón það vera sitt álit að
koma ætti til niðurskurðarins og
ganga á þann hátt til verksins að
sem minnst væri hætta á að
veikinni skyti upp að nýju.
Sigurður Sigurðsson sagði að
nauðsynlegt væri fyrir menn að
vera með opinn huga og ganga
fúsir til samstarfs. Kvað hann
einnig nauðsynlegt að koma á
skoðun og gæti hún verið fram-
kvæmd í samstarfi dýralæknis og
sveitarstjórna.
Spurt var hvort menn gætu
borið smit milli bæja og kvað
Sigurður ekki mikið vitað um það,
ennþá mætti telja hugsanlegt að
þeir sem mikið handlékju sjúkt fé
gætu borið veikina á milli og kvað
nauðsynlegt að sýna varkárni
einkum t.d. hvað varðaði fóta-
búnað.
Eftir þessar umræður, sem
stóðu yfir fram eftir kvöldi, var
gert fundarhlé og síðan borin upp
eftirfarandi tillaga og rædd og
samþykkt:
1) Fundur bænda að Skjöldólfs-
stöðum á Jökuldal lýsir sig hlynnt-
an niðurskurði fjár á bænum Brú
strax í haust enda komi ekki í ljós
riðuveiki á öðrum bæjum á
svæðinu.
2) Settar verði varnarlínur við
Jökulsá á Dal og Lagarfljót og
varnarlínan við Jökulsá á Fjöllum
gerð örugg.
3) Þar sem niðurskurður á fé á
einum bænum er mjög viðkvæm
aðgerð og mjög óvíst um árangur
er það ótvíræð krafa fundarins að
þessari aðgerð verði fylgt vel eftir
með nákvæmu eftirliti og stöðugri
skoðun á fé í öllum hreppum í
varnarhólfinu milli Jökulsár á
Fjöllum og Jökulsár á Dal. Einnig
verði fylgst náið með fé í Hrafn-
kelsdal.
Á bændafundinum töluðu þeir (f.h.) Jón Pétursson héraðsdýralæknir, Sigurður Sigurðsson dýralæknir og Kjartan Blöndal framkvæmdastjóri
Sauðfjársjúkdónianefndar og við borðsendann situr fundarritari. Ljósm. Kristján.
4) Fundurinn væntir þess að
þessar aðgerðir verði framkvæmd-
ar nú þegar því með því eru mestar
líkur á að árangur náist.
GEkki er rkö nema í tíma sé tekið
Fyrirhyggjuleysi getur leitt til þess, að sumum verði nauðugur einn kostur að halda útiskemmtanir í vetur.
Látið ekki til þess koma.
Við höfum 10—180 manna sali fyrir hvers konar mannfundi:
Árshátíðir, veizlur, spilakvöld, jólatrésskemmtanir, þorrablót, ráðstefnur, félags-og stjórnarfundi o. fl.
Sjáum um hvers konar veitingar, mat og drykk. Dansgólf og bar.
DRAGIÐ EKKI AÐ PANTA. SÍMI 82200.