Morgunblaðið - 24.10.1978, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1978
13
Óttarr Möller
forstjóri 60 ára
Óttarr Möller, forstjóri Eim-
skipafélags Islands, er 60 ára í
dag, 24. október.
Öttarr réðst til Eimskipafélags-
ins ungur að árum, og hefir unnið
félaginu af miklum áhuga, kost-
gæfni og atorku þau 40 ár, sem
hann hefir starfað við félagið.
Ævistarf Óttars hefir verið
helgað Eimskipafélaginu óskipt
frá því, að hann réðst til starfa þar
árið 1938 í október. Var það rúmu
ári eftir að hann brautskráðist úr
Verzlunarskóla íslands, en um
eins árs skeið stundaði hann
framhaldsnám í verzlunarfræðum
í Bretlandi.
Á árunum 1942—1946 var Ótt-
arr fulltrúi á skrifstofu Eimskipa-
félagsins í New York, en á þeim
árum beindust skipaferðir og
flutningar til Bandaríkjanna,
vegna síðari heimsstyrjaldarinn-
ar.
Þegar Óttarr dvaldi í New York
notaði hann tækifærið til að
mennta sig frekar og var við nám í
New York University, auk þess
sem hann vann fullt starf á
skrifstofu Eimskipafélagsins.
Á New York árunum var Óttarr
formaður íslendingafélagsins þar
um tveggja ára skeið og kynntist
þar mörgum góðum mönnum, því
að talið er, að á þeim tíma, hafi í
íslendinganýlendunni í New York
verið úrval manna.
Að lokinni veru sinni í Banda-
ríkjunum varð Óttarr Möller
fulltrúi á skrifstofu félagsins í
Reykjavík til ársins 1962, er hann
var ráðinn forstjóri Eimskipa-
félagsins, þá aðeins 44 ára að aldri.
Eftir að Óttarr tók við starfi
forstjóra tók hann strax til
óspilltra mátanna við hagræðingu
í rekstri félagsins, og hefir sú
hagræðing haldið áfram hröðum
skrefum og valdið byltingu í allri
starfsemi þess.
Á árinu 1962 voru skip félagsins
10, en á 16 árum hefir þeim fjölgað
í 24, eða því sem næst um eitt skip
á ári. Vörogeymslur hafa risið upp
hver af annarri, meðferð vöru
hefir tekið stakkaskiptum, og allri
hagræðingu verið beitt til hins
ítrasta.
Það var mikið happ fyrir Eim-
skipafélagið að mega njóta starfs-
krafta Óttars óskiptra frá þeim
degi, sem hann réðst til félagsins,
enda hefir hann tekið miklu
ástfóstri við félagið og verið
vakinn og sofinn yfir velgengni
þess.
Þegar ég var árið 1952 að leita
að hæfum manni til að vera
viðskiptalegur framkvæmdastjóri
Sameinaðra verktaka, sem þá var
mjög umfangsmikið fyrirtæki með
fjölmennu starfsliði, var það
samróma álit þeirra, sem ég leitaði
ráða hjá, að Öttarr Möller myndi
leysa það starf af hendi með
ágætum, ef hann fengist til þess.
Varð það úr, að hann réðst til
Sameinaðra verktaka í eitt ár, og
fékk leyfi frá störfum hjá Eim-
skipafélaginu sama tíma. Þetta ár
hélt Óttarr fjármálum Samein-
aðra verktaka í öruggum höndum
og varð því félagi ómetanlegur við
skipulagningu hratt vaxandi
reksturs þess.
Óttarr Möller er fæddur í
Stykkishólmi 24. október 1918.
Foreldrar hans voru William
Thomas Möller póstafgreiðslu- og
símstjóri þar og kona hans Kristín
Elísabet Sveinsdóttir.
Stykkishólmur var virðulegur
bær með miklum menningarbrag,
og hefir Óttarr notið þess góða
skóla í uppvexti sínum.
Óttarr er mikill náttúruunn-
andi, og útilífsmaður. Hann notar
hverja stund, sem hann má, til að
sinna því hugðarefni. Hann hefir
frá æsku haft mikið yndi af
hestum og hefir enn. Ófáar eru
þær ferðir, sem hann hefir farið
um hálendi Islands og notið þar
hinnar sérstæðu fegurðar og
hrikaleiks okkar fagra lands.
Óttarr er mjög listhneigður og
hefir ánægju af aö velja sér falleg
og góð málverk, sem prýða heimili
hans. Hann getur spilað á mörg
hljóðfæri og gerir það af mikilli
leikni og innlifun.
Léttur í lund er Óttarr, þótt
stundum hvessi, ef hlutirnir ganga
ekki nógu fljótt og vel. Stormurinn
líður hjá innan stundar, og aldrei
hefi ég orðið var við neinn brodd
að honum loknum. Óttarr hefir að
Olga Stefánsdóttir, Sigursæll Magnússon og Stefán Sigursælsson í sai
hins nýja veitingastaðar, Ártúns, að Vagnhöfða 11.
Nýtt veitingahús
opnað í Reykjavik
NÝTT veitingahús, Ártún, var
opnað síðastliðinn föstudag í kjail-
ara hússins að Vagnhöfða 11. Er
það almennur veitingastaður og
kaffiterfa. Hægt er að fá þar alls
kyns mat, svo og grillrétti. Sajur
inn er um 250 fermetrar, og tekur
liðlega 100 manns f sæti í einu.
Innréttingar eru allar hannaðar af
íslenzkum fyrirtækjum.
Veitingahúsið verður opið alla
virka daga frá 7.30—20.00 og laugar-
daga frá 8.00—16.00, en lokað
sunnudaga.
Einnig stendur til að leigja salinn
út til fundahalda, einkasamkvæma
og annars konar skemmtana, en
staðurinn sjálfur hefur ekki vínveit-
ingaleyfi.
Eigendur hins nýja veitingastaðar
eru Sigursæll Magnússon og sonur
hans, Stefán Sigursælsson.
Seinna stendur til að taka efri hæð
hússins að Vagnhöfða 11 í notkun
undir skemmtanir og dans í tengsl-
um við veitingahúsið. Er sá salur 500
fermetrar og rúmar um 350 manns.
Vínveitingaleyfi mun ætlað þar.
mínu mati það skapferli og þá
hæfni, sem forstjóra stórfyrir-
tækis má best prýða.
Óttarr hefir hlotið viður-
kenningu fyrir sitt gifturíka starf.
Hann var sæmdur riddarakrossi
hinnar íslenzku fálkaorðu. árið
1964 og stórriddarakrossi 1971.
Hann hefir og verið sæmdur
kommandörskrossi Dannebrogs-
orðunnar og kommandörskrossi
finnsku Ljónsorðunnar.
Þótt Óttarr hafi helgað Eim-
skipafélaginu krafta sína óskipta,
hefir hann setið í stjórnum ýmissa
félaga, svo sem Flugfélags íslands
h.f., en hann er stjórnarformaður
þess, í stjórn Flugleiða h.f.,
Tollvörugeymslunnar h.f., og Is-
lenzkrar endurtryggingar. Hann
var skipaður í Orðunefnd Hinnar
íslenzku fálkaorðu og hefir setið í
henni um árabil. Óttarr hefir verið
stjórnarformaður Landakots-
spítala frá því að hann var gerður
að sjálfseignarstofnun. Öttarr
hefir verið í stjórn og fram-
Afvæmdastjórn Vinnuveitendasam-
bands íslands frá 1966 til 1973 og
varaformaður þess árin 1971 —
1973. Hann hefir tekið þátt í
fjölmörgum samningum um kaup
og kjör, og lagt sig þar fram, eins
og í öðru, til að ná samningum,
sem báðir aðilar gætu við unað.
Fjölmargar nefndir hefir Óttarr
verið skipaður í, svo sem nefnd til
að semja drög að nýrri löggjöf um
eftirlit með einokun, hringamynd-
un og verðlagi, var það árið 1967. í
atvinnumálanefnd starfaði hann
árin 1967 og 1968 og svo mætti
lengi telja. Óttarr hefir verið
félagi í Rotaryklúbb Reykjavíkur
og forseti hans síðastliðið starfsár.
Þau miklu og góðu tengsl, sem
verið hafa milli Eimskipafélagsins
og hluthafa þess í Vesturheimi eru
sérstæð. Óttarr hefir haldið þeim
tengslum við og jafnan stuðlað að
því, að fulltrúar hluthafa þar ættu
þess kost og hefðu áhuga á að
mæta á aðalfundi Eimskipafélags-
ins ár hvert. Vestur-íslendingar
hafa metið áhuga Óttars á að
halda þessum tengslum og hafa
sýnt það með því að gera Óttarr að
heiðursfélaga Þjóðræknisfélags
ísíendinga í Vesturheimi árið
1978. ' -
Óttarr er kvæntur Á'rnþrúði
Kristinsdóttur Júlíusar kaup-
manns Markússonar og hefir hún
verið manni sínum traustur föru-
nautur og hægri hönd í hans
viðamikla ábyrgðarstarfi. Þau eiga
fjórar dætur: Emilíu, gifta Óskari
Kristjánssyni, Kristínu, gifta
Helga Sigfússyni, Erlu, gifta
Sigurði Kr. Sigurðssyni, og Auði,
sem enn er í foreldrahúsum.
Við Margrét óskum þeim hjón-
um, dætrum þeirra og tengdason-
um til hamingju með þetta
merkisafmæli. Við óskum þeim
gæfu og gengis, farsælla og langra
lífdaga.
Fyrir hönd stjórnar Eimskipa-
félags íslands þakka ég Óttari
fyrir hans vel unnu störf í þágu
félagsins, fyrir hans ósérhlífni og
mikla kjark, sem orðið hefir
Eimskipafélaginu sú l.vftistöng og
gefið þann árangur, sem félagið
mun lengi njóta.
Halldór H. Jónsson.
Komið og skoðið ITT Schaub-Lorens
litsjónvarpstcekin hjá Gelli, Brceðraborgarstíg 1.
ITT litsjónvarpstcekin sýna raunverulega liti,
hafa fallegt útlit og eru vestur-þýsk
tcekniframleiðsla sem vert er að veita athygli.
Forsenda góðrar þjónustu er tceknikunnátta sem
tceknimenn okkar scekja beint til framleiðanda.
Vestur-þýsku ITT litsjónvarpstcekin eru vönduð
og vegleg eign. Þau eru gerð til að endast lengur
Veljið varanlegt.
Brceðraborgarstíg 1 Sími 20080
(Getigið inn frá Vesturgötu)