Morgunblaðið - 24.10.1978, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1978
31
• Mikil litgæöi
• Spólukostnaður lítill
• Tækiö tekur lítiö rúm
Einka sjónvarpið pitt — gerii
pig nú óháðan útsendingar
tíma sjónvarpsins
Stillið það sem þér viljiö sjá.
Sjáið þegar yður hentar.
Spólur Verð
C- 60 mín. 13.575-
C-120 mín. 19.980.- I
C-180 mín. 24.980.-
Beriö saman verö
BUÐIN
Hjá okkur kr
Skipholti 19, sími 29800
27 ár í fararbroddi
Fyrstir til íslands með: Sjónvörp, transistora, in-line myndlampa, system-kalt 2 og nú VHS Nordmende
myndsegulbandstæki á viöráöanlegu veröi
Umboðsmenn um alltland
nord(TIende
Fjármálaráðherra um samráðsviðræður:
Ekki við hæfi að ræða
éinstök atriði fiárlagafrv.”
8
MORGUNBLAÐIÐ og
fréttaflutningur þess af
viðræðufundi ráðherra-
nefndar og þeirra aðila,
sem ríkisstjórnin hefur
kallað til samráðs um
stefnumótun í efnahags-
málum, urðu umræðuefni
utan dagskrár í Sameinuðu
ingi í gær, að frumkvæði
lafs Ragnars Grímssonar
(Abl). Urðu umræður hinar
eftirtektarverðustu og
lauk ekki. Hét Gils
Guðmundsson, forseti S.þ.,
framhaldi þeirra í dag.
Tilefnið til
umræðna utan
dagskrár
Ólaíur Ragnar Gímsson (Abl)
gerði að umtalsefni, utan dagskrár
á Alþingi í gaer, frétt í Mbl. sl.
laugardag. Las hann hluta fréttar-
innar þar sem segir m.a.:
„Allmargir aðilar sem boðaðir
voru á fundinn höfðu vænst þess,
að ráðherrar gerðu grein fyrir
fjárlagafrv. ríkisstjórnarinnar,
sem enn hefur ekki verið lagt fyrir
Alþingi. Tómas Árnason sagði á
fundinum að svo væri ekki, slíkt
væri ekki við hæfi þar sem frv.
yrði fyrst að leggja fyrir Alþingi.
Kristján Thorlacius, formaður
BSRB, lýsti á fundinum furðu
sinni á ummælum Tómasar, að
ekki væri við hæfi að ræða
fjárlagafrv., þeir væru einmitt
komnir á fundinn til þess að ræða
það þar.“
Vegna þess að frétt þessi gefur
mjög villandi mynd af því formi,
sagði Ól. R. Gr., og þeim anda
samráðs, sem fram kemur í
stjórnarsáttmála og stefnuræðu
forsætisráðherra, og þar sem
önnur frásögn hefur ekki komið
fram af fundinum, heldur en frétt
Mbl., fannst mér nauðsynlegt að
gefa hæstvirtum fjármálaráð-
herra tækifæri til að gefa skýringu
hér á og leiðrétta þá villandi
frásögn sem kom fram í áður tilv.
frétt Mbl. Tugþúsundir launOega
líta á þetta loforð um samráð sem
hornstein stjórnarsamstarfsins,
og Oeir þurfa að fá að vita hið
sanna í málinu. Frásögn Mbl. gaf
hins vegar mjög „villandi lýsingu á
því, sem þarna hefur væntarilega
gerst“, sagði ræðumaður.
„Ekki við hæfi
að ræða ein-
stök atriði
fjárlaga-
frumvarps“
Ég vissi ekki af því fyrr en nú
eftir hádegið, sagði Tómas Árna-
son fjármálaráðherra, að ég
þyrfti að svara fsp. hér utan
dagskrár. Ég vil fyrst geta þess að
í 42. gr. stjórnarskrárinnar er gert
ráð fyrir því, að þegar þing kemur
saman skuli leggja fyrir fram
frumvarp til fjárlaga. Ég mun
síðar gefa skýringu á því, hvers
vegna dráttur hefur orðið á
framlagningunni, en ég vænti þess
að fjáríagafrv. „verði lagt fyrir
þing helzt í þessum mánuði“. Éins
og kom fram hjá Ól. R. Gr, var ráð
fyrir því gert að Oessi ríkisstjórn
myndi hafa margvísleg samráð við
fulltrúa launamanna um stefnuna
í efnahagsmálum. I samstarfsyfir-
lýsingu ríkisstjórnarflokkanna eru
nokkur ákvæði, sem varða sérstak-
lega ríkisbúskapinn, og að sjálf-
sögðu verður _ byggt á þeim í
fjárlagafrv. „Ég veit það, að
háttvirtum þingmanni er það
ljóst, að það er ekki við hæfi að
*
Gils Guðmundsson, forseti S.þ. ólafur Ragnar Grímsson (Ab).
ræða einstök atriði fjárlagafrum-
varps, fyrr en það er lagt fram á
Alþingi. Það er sú samkoma, sem
fyrst fær að sjá fjl.frv., næst á
eftir ríkisstjórninni, og þess
vegna ekki ástæða til þess að gera
það við neina aðra aðila.“ Ráð-
herra gat þess hins vegar að öðru
máli gegndi um stefnumarkandi
mál, sem varðað gætu fjárlagafrv.
Hann hefði gert grein fyrir helztu
þáttum þeirra í nýlegum útvarps-
umræðum.
Varðandi það, sem spurt er um,
sagði ráðherra efnislega, að um-
ræddur viðræðufundur hefði fyrst
og fremst verið til að ræða þessi
samráð nánar, hvern veg hagað
skyldi. Hann hefði og rætt „stefn-
una í fjárlagafrumvarpinu, sem
ætti að nota sem alveg sérstakt
hagstjórnartæki í baráttunni gegn
verðbólgunni. Það hafa nú þegar
verið teknar upp í fjárlagafrv.
nótur um þennan fund. Síðan las
ráðherra það, „sem skrifað hefði
verið niður af þessum fundi", eins
og hann orðaði það. Síðan las hann
ummæli sín þar um verðbólgu,
helztu vandamál efnahagslífsins
og erfiðleika útflutningsatvinnu-
vega. Ennfremur að hann hefði
sagt að fjárlagafrv. væri eitt af
tækjum þeim, sem nota mætti í
baráttu gegn verðbólgu. Ríkis-
búskapinn þyrfti að reka þann veg
að í jafnvægi væri næstu 16
mánuði. Skuldasöfnun yrði að
stöðva. Draga yrði úr framkvæmd-
um. Beinir skattar væru nærtæk-
ast skattaform og tekjuöflun
vegna þess að önnur sköttun væri
inni í vísitölu. Hann hefði kynnt
þennan veg stefnuna í fjárlaga-
frumvarpinu „en út í einstök atriði
Tómas Árnason (jármálaráð-
herra.
Matthías Bjarnason.
var ekki hægt að fara af ástæðum
sem ég hefi þegar greint frá.“
Síðan sagði ráðherra að samráð
myndi fara fram með viðræðum
við einstök félög eða samtök
vinnumarkaðar. Fundur hefði ver-
ið haldinn með fulltrúum BSRB.
Agreiningur
stjórnar-
f lokka kominn upp
á yfirborðið
Matthías Bjarnason (S) sagði
framkomna spurningu nokkurs
konar innanstjórnarmál. En fyrst
henni væri varpað hér fram utan
dagskrár, til að opinbera skoðana-
ágreining stjórnarflokkanna, væri
eðlilegt að nýta tækifærið og
leggja orð í belg. M. B.j. kvaðst
sammála fjármálaráðherra að
fjárlagafrumvarp bæri að leggja
fyrir Alþingi áður en það yrði rætt
Sverrir Hermannsson.
við þrýstihópa í þjóðfélaginu,
hverjir svo sem þeir væru. Hins
vegar væri ljóst að þessi mál ætti
ekki að falla í samráðsfarveg við
öll launþegasamtök. Til að mynda
væri víst ekki meiningin að ræða
þessi mál við Sjómannasamtökin.
Hinn nýi sjávarútvegsráðherra
hefði víst ekki haft samráð við þau
um ákvörðun fiskverðs, þrátt fyrir
öll viðræðuheit stjórnarinnar.
Ekki hefði verið rætt við fisk-
vinnsluaðila um skattlagningu
fyrirtækja í þeirri grein. Ekki
heldur við Bandalag háskóla-
manna. Og ekki við verzlunar-
menn.
Ný ríkisstjórn hefði tekið við um
mánaðamót ágúst-september 1974
en þó lagt fram fjárlagafrumvarp í
þingbyrjun. í samræmi við það
hefði fjárlagafrv. átt að koma
fram 13. október sl. Rétt væri að
spyrja fjármálaráðherra, hvort
hann ætlaðist til að fjárlög yrðu
afgreidd fyrir jól, þó svo frv. kæmi
ekki fram fyrr en um nk. mánaða-
mót, og hvort slíkt samræmdist
eðlilegum og nauðsynlegum vinnu-
brögðum fjárveitinganefndar.
Fleira kom fram í ræðu M.Bj. m.a.
rakti hann loforð Alþýðuflokks um
afnám tekjuskatts og hvern veg
flokkurinn hefði kokgleypt þau öll
í einum afturvirkum og vafasöm-
um tekjuskattsauka.
Þakka leið-
réttingu f jár-
málaráðherra
Ólafur Ragnar Grímsson (bl)
þakkaði fjármálaráðherra fyrir þá
lýsingu, sem fram hefði komið í
orðum hans, og nauðsynleg hefði
verið vegna villandi fréttafrásagn-
ar Mbl. Lagði hann áherzlu á
nauðsyn samráðs við launþega-
félög um þetta atriði í samræmi
við stjórnarsáttmála. Fagnaði
hanrl fundinum með BSRB. Sagði
að auki að M.Bj. hefði ekki
jarðsamband í þjóðfélaginu, enda
væri Björn Þórhallsson í sam-
starfsnefnd af hálfu ASÍ.
Forseti
grípur inn í
Þegar hér var komið sögu voru
þrír þingmenn á mælendaskrá.
Forseti S.þ. Gils Guðmundsson,
leitaði samkomulags um þá máls-
meðferð, vegna fyrirhugaðra
funda í þingdeildum, að-einn þm.
stjórnarandstöðu talaði enn í
þessu máli, en síðan yrði umræðu
frestað til morguns. Varð svo sem
forseti óskaði eftir.
Krefst skýrra
svara af
fjármálaráðherra
Svcrrir Hermannsson (S) sagði
það varhugavert fordæmi varð-
’ andi fundasköp, að leyfa umræður
utan dagskrár vegna meintra
villandi upplýsinga í fréttum
dagblaða. Hann gæti með samá
rétti fengið orðið utan dagskrár í
Sameinuðu þingi vegna fjölmargra
villandi frétta í Þjóðviljanum.
Erindi Ól. R. Gr. hafi virst það eitt
að fá það staðfest, að Mbl. hefði
sagt villandi frá tilteknum fundi í
frétt. Hann hafi ekki fengið
staðfestingu þar á hjá hv. fjár-
málaráðherra. Ég skil Mbl. með
umræddri frétt eftir hér í ræðustól
þingsins, háttv. fjármálaráðherra
til glöggvunar. Ég krefst þess að
hann svari því undanbragðalaus,
hvort Mbl. fer með rétt mál eða
ekki. Ef frásögnin er ekki rétt,
hvað er þá rangt í fréttinni, spurði
Sv.H.
Fjármálaráðherra kvaddi sér
ekki hljóðs til svara.
Aðspurður af þingfréttamanni
Mbl. sagðist hann ekki vilja bæta
neinu við orð sín í S.þ. Mepn yrðu
að ráða í þau, hvað satt væri í
málinu.