Morgunblaðið - 24.10.1978, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 1978
39
flauiarhófn
Þórshöfn
Húsavfk •
' Dalvík
Hjalteyri 1
Akureyri w
_ • Þingeyn
• étjjmdudalur
• *
Patreksfiprður
:rókur
Hvammstangi
Seyðisfjorður #
Norðfjorður é
Reyðarfjörður • • -
Fáskrúðsfjörður
Stoðvarfjörður #
Breiðdalsvik, #
Djúpivogur
ihólmur
Grundarfjörour
orgarnes
Hornafjörður
SgAkranes
#Gufunes
éTC* © Revkiavík
Hafnarfjörður
Straumsvik
Btew—..^JLÞorlákshófn
Vestmm
Flutninganet Eimskips.
Varhugaver ður
málflutningur..
Alþýðubandalagsmaður einn hefur flutt á Alþingi þingsályktunartillögu þar sem segir að
stofna skuli sérstaka rannsóknarnefnd er kanna eigi einokunaraðstöðu Eimskips og
Flugleiða og fleira í svipuðum dúr. Rétt er að vara við málflutningi sem þessum og vekja
jafnframt athygli á því í hvaða samhengi hann er settur fram. Þessa dagana er verið að herða
ólina að hinum frjálsa atvinnurekstri með auknum sköttum og takmörkunum á tekjuöflun og
sífellt er unnið að þvi að viðhalda og auka hina miklu andúð á hinu frjálsa atvinnulífi.
Forskrift Alþýðubandalagsins er síðan sú að eftir að búið er að koma fyrirtækjunum á
hausinn þá er þeim komið „til bjargar“ af fjármálaráðherra og öðrum fulltrúum hins
opinbera. En lítum nú nánar á einokunaraðstöðuna.
Erlend skipafélög hafa
stundað siglingar hingað til
lands og geta tekið upp
siglingar hingað þegar þau
vilja, en þau hafa hætt slíkum
rekstri! Astæðan? Reksturinn
var ekki talinn arðbær. Skip
Eimskipafélagsins eru minna
en helmingur af flutninga-
skipastól landsmanna og gjöld
félagsins ekki hærri en þekk-
ist meðal annarra skipafélaga
íslenskra sem stunda áætl-
anaferðir. Fyrirtækið siglir á
allflestar hafnir landsins og
tekur sama gjald fyrir flutn-
ing til helztu aðalhafna úti á
landi og til Reykjavíkur. Auk
þess sem fulltrúi ríkisvaldsins
situr í stjórn félagsins og
félagið er háð ákvörðunum
verðlagsyfirvalda.
Hvað Flugleiðir varðar þá
má benda á að fyrst var, fyrir
forgöngu ríkisvaldsins, félagið
stofnað með samruna Flug-
félagsins og Loftleiða til að
nýta mætti fjármagnið betur
en áður og síðan eftir samein-
inguna er talað um einokun.
Rétt eins og með Eimskip
þá geta erlend flugfélög haldið
uppi áætlanaferðum hingað,
og það sem meira er að sum
þessara félaga hafa reynt að
notfæra sér þennan rétt en
fljótlega gefist upp. Ástæðan?
Reksturinn var ekki talinn
borga sig. Ætla hefði mátt
eftir öll þau blaðaskrif sem
orðið hafa vegna sölu Arnar-
flugs væri það orðið vel ljóst
fyrir mönnum að frumkvæði
þeirra viðskipta kom frá
Arnarflugi en ekki Flugleið-
um. Ein af röksemdafærslum
fyrir flutningi þingsályktun-
artillögu þingmannsins er sú
að Flugleiðir taki ekki tillit til
byggðastefnusjónarmiða. Til
undirstrikunar ofstækinu
kemur hins vegar fram í
tillögunni að eitt af verkefn-
um nefndarinnar eigi að vera
að kanna aðild Flugleiða að
Flugfélagi Norðurlands, Flug-
félagi Austurlands og Hótel
Húsavík. Ef slík eignaraðild
bendir ekki til þess að tekið
hafi verið tillit til þessara
sjónarmiða þá hvað? Sjálfsagt
fagna forráðamenn þessara
fyrirtækja þessari tillögu, þó
fáránleg sé, því að hún gefur
þeim gott tækifæri til að
skýra sjónarmið sín fyrir
almenningi og þingheimi.
fGrimsey
.Raufarhoto
Bolungarvik
Suöureyryy
eiioiidwui 1
Tálknafjórðufííl^ r
»»lf.fcsl|Or$Ure
Kópaskert
Siglufjóröuu
8afchaf)or6ur
Blonóuós^
Wrðfjórður
||tjörður
ílrúðafjörður
■&toÖvarf}Ördur
reiðóaHívik
Stykkisflblmur
’Heihssanöur
Öiupivoflur
AV r ,inc\l
Beyk/avJ
Kó^pvoflur
Keflavík;
Gnndavík Þorlákshofn
sFagufhólamýri
Vestmannaeyiar
Samgönnrukeríi Flugleiða.
Hofn i Hornaftrði
Erlendir punktar . . .
Bílart Ford-sérfræðingar telja að heildareftirspurnin á 1979—ár-
gerðinni, fólksbílum og vörubílum, verði um 15.3 milljónir stk. í stað
15.2 millj. m.v. 1978. Þessir sömu menn áætla að sala Ford verði um
4.2 millj. stk. eða um 28%.
General Motors hefur tilkynnt að salan á tímabilinu 20.—30.
september s.l. hafi aukist um 20.7% miðað við sama tímabil 1977. I
heild er salan hjá GM um 7% meiri en í fyrra.
Metsala varð á bílum í Bretlandi í september eða 132.761 stk. Er
þetta um 28% meiri sala á bílum þar en var í september 1977.
Viðskiptamálaráðherra Japans hefur óskað eftir því við þarlenda
framleiðendur að þeir takmarki útflutning sinn til Bretlands í ár en
það virðist ekki hafa haft nein áhrif. Salan á japönskum bílum í
Bretlandi jókst um tæp 15% á fyrstu átta mánuðum þessa árs.
Svíþjóði Samkvæmt upplýsingum frá Konjukturinstituttet í
Stokkhólmi munu bjartari tímar vera framundan fyrir sænsk
iðnfyrirtæki. Birgðirnar minnka nú óðfluga og pantanir hafa aukist
mikið þannig að fyrri hluti næsta árs ætti að verða góður.
Noregun Rannsóknarhópur við Telemarks Distriktshöjskole hefur
komist að þeirri niðurstöðu að millistóru fyrirtækin, þ.e. þau er hafa
um 70 starfsmenn, séu þau arðsömustu þegar á heildina er litið því
miður er langmestur fjöldi fyrirtækja mun minni segja sömu aðilar.
Bann við áfengisauglýsingum sem sett var í Noregi 1973 hefur
reynst árangurslaust. Síðan 1973 hefur stöðug aukning verið í neyzlu
áfengis mælt sem hreint alkóhól pr. íbúa.
Austurríki — skattalækkun. Austurríska ríkisstjórnin hefur
tilkynnt skattalækkun bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Áætlað
er að lækkun þessi muni nema 4.5 milijörðum schillinga á næsta ári.
Bandaríkin skattalækkun. Bandaríska þingið hefur ákveðið að
lækka skatta einstaklinga um 142 milljarða dollara á næstu fjórum
árum.
- • -
Bretlandi Verkalýðsforingjar 100.000 starfsmanna British Leyland
eru sammála um það að krefjast 19% launahækkunar og að
vinnuvikan verði 35 klukkustundir á viku. Er þetta 3—4 sinnum
meira en ríkisstjórn verkamannaflokksins hefur stefnt að með því að
setja 5% launahækkun sem hámark. Ef það tekst ekki mun okkur
ekki takast að ná neinum tökum á verðbólgunni segja þeir.
Höfum kaupendur að eftirtöldum verðbréfum: VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI
RIKISSJOÐS Yfirgengi miöaö
Kaupgengi viö innlausnarverö pr. kr. 100.- Seölabankans
1967 2. flokkur 3046.38 1.6% i
1968 1. flokkur 2652.45 45.9% í
1968 2. flokkur 2484.85 45.1%
1969 1. flokkur 1857.37 44.9%
1970 1. flokkur 1704.83 12.9% t
1970 2. flokkur 1240.02 44.3%
1971 1. flokkur 1164.84 12.8% í
1972 1. flokkur 1015.62 44.1% 1
1972 2. flokkur 868.92 12.8% |
1973 1. flokkur A 661.78 12.8% |
1973 2. flokkur 611.54
1974 1. flokkur 424.75
1975 1. flokkur 347.30
1975 2. flokkur 265.05
1976 1. flokkur 251.46
1976 2. flokkur 204.20
1977 1. flokkur 189.66
1977 2. flokkur 158.84
1978 1. flokkur 129.47
VEÐSKULDABRÉF: x Kaupgengi : pr. kr. 100.-
1 ár Nafnvextir: 26% 77—79 1
2 ár Nafnvextir: 26% 66—70 |
3 ár Nafnvextir: 26% x) Miðað er viö auðseljanlega fasteign 62—64
Höfum seljendur að eftirtöldum veröbréfum: HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF.
Sölugengi pr. kr. 100.-
1972 — A 666.12 (10% afföll) i
1973 — B 571.47 (10% afföll) í
Hlutabréf: Máning h.f. Kauptilboð óskast.
pjÁRPEmncflRpéiAG fjun» hp.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
Lækjatgötu 12 — R (Iðnaöarbankahúsinu)
Sími 2 05 80.
OpiS frá kl. 13.00 til 16.00 alla virka daga.