Morgunblaðið - 02.11.1978, Page 1
48 SÍÐUR
250. tbl. 65. árg.
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1978
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Herir Amins taka
sneið af Tanzaníu
Nairobi. Dar Es Salaam,
1. nóvember, Reuter — AP
UGANDASTJÓRN tilkynnti í
kviild að herir landsins hefðu náð
á sitt vald landskika í Tanzaníu
við vestanvert Viktoríuvatn.
Ilerma fregnir að landsvæðið
Kajíera sé um 1.850 ferkílómetr-
ar að stærð. en Ugandamenn
hafa lenjíi gert tilkall til Kagera.
Utvarpið í Uganda sagði að allir
Tanzaníumenn á svæðinu „ættu
nú að vita að þeir lúta stjórn Idi
Amins sigurvegara hins brezka
heimsveldis“. Útvarpið sagði
einnig, að árás Ugandahers á
Idi Amin
Friðarsamningur
að mestu tilbúinn
Ncw York. Wa.shington. l cl Aviv,
1. nóvomber — AP-Reuter.
MOSHE Dayan utanríkisráðherra
fsraels sagði í kvöld, að friðarsamn-
ingur ísraelsmanna og Egypta væri
að mestu tilbúinn og að hægt yrði
að leiða til lvkta þau atriði. sem
óafgreidd væru. á fundi Menahems
Begins forsætisráðherra Israels og
Cyrus Vance utanríkisráðherra
Bandaríkjanna í New York á
fimmtudag.
Begin kom til New York í kvöld.
Sagðist hann eiga fund um friðar-
samningana með Vance á fimmtu-
dagsmorgun, en frá New York heldur
Begin til Kaliforníu áður en hann
heldur í einnar viku heimsókn til
Kanada.
Ummæli Dayans hafa að vonum
vakið með mönnum bjartsýni á að
friðarsamningur verði brátt í höfn.
Þó ríkir enn ágreiningur milli
Bandaríkjamanna og Israela um
byggðastefnu Israels á hernumdu
svæðunum og ennfremur eru Israels-
. menn óánægðir með að Bandaríkja-
menn hafa frestað för nefndar sem
kanna skal þörf Israelsmanna fyrir
hernaðaraðstoð Bandaríkjamanna.
ísraelskar heimildir hermdu að
Begin
Begin muni hugsanlega krefjast
loforða Bandaríkjamanna um
hernaðaraðstoð sem skilyrði fyrir
áframhaldandi friðarviðræðum.
Kunnugir töldu það óliklegt þar sem
forsetinn hefur gefið í skyn að
Pentagon-leiðangurinn verði sendur
til ísraels þegar skriður komist á
friðarviðræðurnar.
Sjá „Ekki linnir látum ...“
hls. 22.
Kagera hefði aðeins staðið í um 25
mínútur. Hefðu hermenn
Tanzaníu sem hreiðrað höfðu um
sig á um 1.000 ferkílómetrum
lands Uganda einnig verið hraktir
á brott í aðgerðinni. Sagði
aðstoðarmaður Amins í kvöld að
nú'væru aðeins dauðir Tanzaníu-
menn í Uganda.
Pólitískar heimildir í Nairobi
sögðu, að um 3.000 hermenn
Uganda, búnir skriðdrekum og
stórskotavopnum, hefðu tekið þátt
í landnámi Kagera. Sagði herráð
Uganda, að frá og með deginum í
dag verði landamæri Uganda og
Tanzaníu við Kagera-ána, en áin
er um 32 kílómetrum sunnan við
landamæri landanna.
Ugandastjórn hefur undanfarið
sagt að Tanzaníumenn hefðu gert
innrásir í landið, en því hefur
jafnan verið neitað í Dar Es
Salaam. Pólitískar heimildir
hermdu í dag, að upplýsingar þær,
sem þeim hefðu borist, styddu
málstað Tanzaníu og að Amin
hefði einungis verið að villa um
fyrir mönnum.
Julius Nyerere Tanzaníuforseti
kom í kvöld til Mozambique til
viðræðna við Somora Machel
forseta.
Karl Bretaprins heilsar Elísabetu móður sinni og
Bretadrottningu þegar hún gengur inn í þinghúsið til að
setja þing í gær. Bak við drottninguna grillir í Filipus
drottningarmann.
Sjá nánar „Callaghan aðvarar..bls. 22. Símamynd AP.
Carter sker upp herör
til styrktar dollarnum
Washington, 1. nóvember — Reuter—AP.
JIMMY Carter Bandaríkjaforseti tilkynnti í dag áhrifamiklar
aðgerðir sem stjórn hans hyggst grfpa til á næstunni til að styrkja
stöðu dollarans, en dalurinn hefur beðið afhroð á erlendum
gjaldeyrismörkuðum að undanförnu og verðfall hefur verið á
yerðbréfum í bandarisku kauphöllinni.
Stjórnmálaleiðtogar og banka-
menn tóku aðgerðum forsetans
mjög vel í dag. Dollarinn bætti
stöðu sína á stærstu gjaldeyris-
mörkuðunum og verðbréfamark-
aðurinn hresstist við á ný.
I aðgerðum Bandaríkjastjórnar
er gert ráð fyrir þvi að tekið verði
allt að 30 milljarða dollara lán í
erlendum gjaldmiðlum til að
kaupa dollara. Einnig ætlar
stjórnin að auka sölu á gulli og á
næsta uppboði stjórnarinnar á
gulli verður framboðið aukið um
50 af hundraði. Verða 1.5 milljónir
únsa boðnar upp á mánuði frá og
með desember.
Ennfremur verða vextir á lánum
bandaríska seðlabankans hækkað-
ir um einn af hundraði í 9.5 af
hundraði og hafa þessir vextir
aldrei verið hærri. Jafnframt
Skaut tyrkneskt varð-
skip grískan bát í kaf?
Ankara, 1. nóvember. Reuter, AP.
IIASAN Esat Isik varnarmála-
ráðherra Tyrklands staðfesti í
dag að komið hefði til áreksturs
tyrknesks varðskips og grísks
fiskibáts á Jónahafi í gærkvöldi.
en embættismenn í Aþenu sögðu
að varðskipið hefði skotið bátinn
í kaf í grískri lögsögu og að einn
af fjórum úr áhöfn hans hefðu
farist.
Isik sagði að gríski báturinn
hefði verið að veiðum í tyrkneskri
fiskveiðilögsögu þegar varðskipið
kom að honum. Hann sagöi að
varöskipsmenn hefðu gefið bátn-
um aðvaranir um að koma sér á
brott en bátsverjar hefðu ekki
sinnt því. Isik sagði að varðskipið
hefði svo rekist á bátinn þegar það
sigldi þétt við hann þegar það
reyndi að knýja bátinn til að
breyta um stefnu.
Varnarmálaráðherrann sagði að
áreksturinn væri slys og hefði
fiskibáturinn siglt af vettvangi af
eigin rammleik og lítt laskaður.
Ráðherrann bætti því við að
tyrknesk stjórnvöld hefðu í dag
lagt fyrirspurn fyrir grísk stjórn-
völd um afdrif fiskibátsins og
áhafnar hans. Hann sagði að ef í
ljós kæmi að báturinn hefði sokkið
og að einn maður hefði farist þá
þætti tyrkneskum stjórnvöldum
það miður.
verður bönkum gert að auka
gjaldeyrisforða sinn og er það gert
til þess að hvetja bankana til að fá
dollara að láni erlendis og til að
letja útlánastarfsemi í Bandaríkj-
unum.
Augljóst þykir að þessar aðgerð-
ir útheimti hækkun innláns- og
útlánsvaxta á öllum sviðum. Talið
er að vaxtahækkanir og aukning
fjárforða bankanna muni hamla
hagvexti, þar sem útlán til neyt-
enda og fyrirtækja verða dýrari.
Sérfræðingar stjórnarinnar
töldu þó ólíklegt að hagvaxtar-
kreppa skylli á og að auðvelt ætti
að vera að koma í veg fyrir hana.
Sjá „Aðgerðum til styrktar
dollaranum...“ bls. 23.
Jimmy Carter
Hollenzk-
ur tollvörð-
ur skotinn
Diisseldorf. Kerkrade.
1. nóvember — Reuter.
MAÐUR og kona skutu hol-
lenzkan tollvörð til bana í dag
og særðu tvo til viðbótar. þar
af einn alvarlega. á landamær-
um Ilollands og Vestur Þýzka-
lands. Talsmaður stjórnarinn-
ar í Bonn sagði. að líklega
hefðu hjúin verið borgar-
skæruliöar eða eiturlyfja-
smyglarar. en þau komust
undan til Ilollands.
Skothríð hjúanna og toll-
gæzlumannanna hófst þegar
þeir síðarnefndu urðu þess
varir að maður um þrítugt var
að reyna að klifra yfir stein-
vegg á landamærunum. Þegar
maðurinn varð tollgæzlumann-
anna var skaut hann á þá og
samstundis hóf vinkona hans
að skjóta á tollverðina úr
annarri átt.
Hófst mikil leit að tvímenn-
ingunum beggja vegna landa-
mæranna, en sendibifreið sem
þau stálu og komust á undan
fannst í nærliggjandi bæ í
Hollandi.