Morgunblaðið - 02.11.1978, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 02.11.1978, Blaðsíða 46
46 M.ORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1978 ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ▲ Svend Pri vann uppgjörið Frá Herrti Rasnarssyni í Valhyi Fyrir skömmu fór fram opið mút í badminton í Valhy. sem er skammt frá Kaupmannahöfn. Þaö var „gamli góði“ Svend Pri sem vann fyrsta uppgjör ársins milli allra bestu badmintonmanna Danmerkur. Það hafa verið nokkur opin mót að undanförnu en þetta er fyrsta mótið þar sem Morten Frost Hansen, Flemming Delfs og Svend Pri eru allir meðal þátttakenda. I undanúrslitum vann Morten Frost Hansen Flemming Delfs með 15—7 og 15—4 og lék Delfs fremur illa í þessum leik, og Svend Pri vann Steen I^ladberg með 15—6 og 15-10. í úrslitunum gekk á ýmsu, Morten Frost byrjaði vel og vann fyrstu lotuna 15—5 en Svend Pri vann þá næstu með 15—4. í þriðju lotu kom maðal annars upp stööurnar 4—4, 8—4, 8—10 og þá tók Pri af skarið og vann 15—10. Það var beðið með töluverðri eftirvæntingu eftir þessu móti því ungu mennirnir Morten Frost Hansen og Steen Fladberg höfðu verið í austurlöndum til að æfa, Flemming Delfs hafði æft fremur lítið vegna mikilla anna við vinnu og Svend Pri hafði verið í Indónesíu og Malasíu í viðskiptaerindum eftir því sem sagt var. En þegar Pri kom heim kom hann með þær yfirlýsing- ar að hann hefði verið að æfa með Hartono og King í Indónesíu og væri í toppformi. I einliðaleik kvenna vann Lena Köppen Joke van Beusekom í úrslitúm með 11—5 og 11—2 og virðist Lena vera í góðri æfingu. Eins og kunnugt er þá hefur Lena Köppen ákveðið að leika tvíliðaleik með Joke van Beusekom í næsta heimsmeistaramóti sem haldið verður í Indónesíu. Joke van Beusekom er Hollendingur en leikur fyrir danskt félag. Nú þegar er ljóst að mikið verður um að vera hjá íslenzkum frjálsiþróttamönnum á næsta ári. bæði hér heima og crlendis. Kom þetta fram í spjalli sem Mbl. átti við Örn Eiðsson formann Frjáls- fþróttasamhands íslands. en hann sat fyrir skömmu þing A Iþjóða f r jálsíþróttasam hands- ins. sem haldið var i' Puerto Rico. ásamt Sigurði Björnssyni vara- formanni FRÍ. Örn sagði, að haft hefði verið samband við fulltrúa ítalska og kanadíska frjálsíþróttasambands- ins á þinginu og þess farið á leit að löndin mættu íslenzkum frjáls- íþróttamönnum í kastlandskeppni á Islandi í lok maí eða byrjun júní 1979. Málaleitaninni var tekið vel, að sögn Arnar, en þó ekki gengið frá samningum á þinginu. í síðustu viku sendu svo Italir skeyti þar sem þeir lýstu sig fúsa til þátttöku, en lögðu til að keppnin færi fram á öðrum tíma og er nú unnið að því að samræma sjónar- mið sambandanna. Sagðist Örn vonast til, að jafnvel yrði hægt aö ganga frá samningum um keppn- ina á þingi frjálsíþróttasambands Evrópu, en það verður háð á eynni Rhodos í næsta mánuði. Unglingalandskeppni 1979 Samhliða þingi Alþjóðasam- bandsins héldu norrænir frjáls- íþróttaleiðtogar fund sinn í Puerto Rico, í sparnaðarsk.vni. „Það, sem skiptir okkur mestu, er að sam- þykkt var að við fengjum að senda lið í unglingalandskeppni Finna, Norðmanna og Svía. Við bárum upp tillögu þess efnis og var hún samþ.vkkt. Að vísu virðist lítill áhugi vera hjá hinum Norðurlönd- unum á norrænu samstarfi nema í orði, og má segja að við höfum þröngvað fulltrúunum til að sam- þykkja þátttöku okkar í keppninni. En nú hafa okkar fremstu ung- lingar fengið tækifæri til að glíma við jáfnaldra sína frá öðrum Norðurlöndum og er vonandi að þeir búi sig vel undir keppnina. Mótið fer fram 4. og 5. ágúst og verður að líkindum á Bislet-leik- vanginum, þeim fræga velli, í Ósló.“ Örn sagði að Islendingar og Danir gætu sent einn keppanda í hverja grein, en aftur á móti væru tveir keppendur í hverri grein frá hinum Norðurlöndunum. Hann sagði að ennfremur hefði verið fjallað um Norðurlandabikar kvenna, en það er keppni kvenna- landsliða frá Norðurlöndunum sem fer fram annað hvert ár. Sagði Örn, að hann hefði lýst því á þinginu að íslendingar treystu sér ekki til að taka þátt í þessari keppni nema hún færi fram á tveimur dögum. Voru skiptar skoðanir um hvort breyta ætti fyrirkomulaginu og halda keppn- ina á tveimur dögum. Töldu aðrir fulltrúar hins vegar lítinn grund- völl fyrir keppninni ef Norður- löndin öll væru ekki með, og var málinu frestað til frekari af- greiðslu til næsta fundar þar sem keppnin fer ekki næst fram fyrr en 1980. „Loks var á þessum fundi rætt mikið um mál sem Svíar brydduðu upp á. Þeir lögðu til að skylt yrði að hafa rafmagnstímatöku á öllum stærri mótum og landskeppnum á Norðurlöndunum. Var tillögunni breytt á þann veg, að æskilegt yrði að rafmagnstímataka væri á meiri háttar mótum og samþykktu fundarmenn að ýta á viðkomandi aðila um að tæki til rafmagns- tímatöku yrðu sett upp. Enn sem komið er eru aðeins Finnar og Svíar vel útbúnir þessum tækjum, lítið eitt er af þeim í Danmörku, en við og Norðmenn höfum ekki þessi tæki,“ sagði Örn. Stjórnmálaþras á íþróttaþingi Aðspurður um gang mála á þingi Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins sagði Örn: „Það var ósköp leiðin- legt hvað pólitík setti þar mikið strik í reikninginn. Lengi vel var fjallað um hluti sem koma frjáls- íþróttum sama og ekkert við. Aðild Kína að samtökunum var stærsta vandamálið, en málefni Rhódesíu, ísraels og Palestínu tóku einnig sinn tíma. Kína var tekið inn í Alþjóðafrjálsíþróttasambandið, og að því búnu gengu fulltrúar Formósu af þingi. Aðild Kína var samþykkt með 210 atkvæðum gegn 147. Þá var samþykkt að Gaza færi með málefni Palestínumanna, en frjálsíþróttasamband þess er sér- stakur aðili að sambandinu. Enn- fremur fengu sjö ný lönd aðild að sambandinu og eru aðildarlönd sambandsins þá 161, en fjölmenn- ari alþjóðasamtök iþróttamanna eru ekki til. Dagpeningar auknir Það sem markverðast er af þinginu er ef til vill að samþykkt var að dagpeningar íþróttamanna skvldu hækkaðir úr fimm dollur- um í tíu. Ennfremur mega íþrótta- menn nú dvelja í allt að 60 daga við keppni erlendis, en áður máttu þeir aðeins dvelja í 45 daga utan heimalandsins við keppni. Þá var samþykkt að haldið skyldi heims- meistaramót í frjálsíþróttum árið 1983. Ennfremur höfðum við Sig- urður samband við æðstu menn innan sambandsins og var vel tekið í þá málaleitan okkar að hér verði háð þjálfaranámskeið á vegum Alþjóðafrjálsíþróttasam- bandsins." Að lokum var Örn Eiðsson spurður aö því hver yrðu helztu verkefni íslenzkra frjálsíþrótta- manna á næsta ári. Örn sagði: „Innanhússmeistaramótin fara fram í janúar og febrúar og Víðavangshlaup Islands fer fram í byrjun marz. Evrópumeistarámót- ið innanhúss verður í Austurríki í marz og Víðavangshlaup heimsins verður í Irlandi einnig í marz. Það er von okkar að við getum sent keppendur á bæði þessi mót. Snemma sumars verður svo vænt- anlega kastlandskeppni íslend- inga, Itala og Kanadamanna, sem áður er getið. Við verðum að sjálfsögðu með í Kalott-keppninni sem fram fer í Bodö í Noregi á næsta ári og skömmu eftir þá keppni verður unglingalands- keppnin í Noregi. Kemst ísland áfram í Evrópubikarkeppninni? Þá tökum við þátt í einum riðli Evrópubikarsins, en hann fer fram í Luxemborg um miðjan júní. Það er skoðun mín og fleiri að landsliðið eigi möguleika á því að komast áfram í þeirri keppni, þ.e. í undanúrslitin, og er vonandi að íþróttamennirnir búi sig vel undir keppnina. Auk okkar verða Portúgalir, írar, Danir og Lúxem- borgarar í riðlinum, þ.e. sömu þjóðir og við kepptum við í Kaupmannahöfn í fyrra. Við erum mjög svipaðir Irum og Dönum að styrkleika og þurfum við að sigra aðra hvora þjóðina, helzt Dani, til að komast áfram. Reykjavíkurleikarnir verða að vonum stærsta mótið hér heima, en ennþá er lítið hægt að segja um hvaða erlendir íþróttamenii verða þar með. Að vísu ræddum við við fulltrúa Kúbu á þinginu í Puerto Rico um að Kúbumenn sendu íþróttafólk til Reykjavíkurleikj- anna og er málið í athugun á Kúbu. Vonandi verður einhverra frétta að vænta í því sambandi að loknu þingi Evrópusambandsins í næsta mánuði. En auk Reykja- víkurleikanna verða öll hin hefð- bundnu mót haldin, og má í því sambandi nefna að Meistaramót íslands fer fram um miðjan júlí. Loks má geta þess að fyrir skömmu barst Frjálsíþróttasam- bandinu boð frá Hollandi þar sem Islendingi er boðið að vera með í þekktu maraþonhlaupi sem háð er í lok ágúst. Bjóða Hollendingar fríar ferðir til og frá Islandi og uppihald. Þetta þykir okkur óvenjulegt boð þegar keppnis- greinin er höfð í huga.“ — ágás • íslensku keppendurnir á EM í frjálsum íþróttum í Prag síðastliðið sumar ganga inn á leikvanginn. Örn Eiðsson og Sigurður Björnsson fara fyrir hópnum. Fánaberi er Óskar Jakobsson. Ljósmynd ÞR Mikið um að vera hjá frjáls- íþróttamönnum á næsta ári Rabbað við Örn Eiðsson formann FRÍ *-í£í* ♦.»tt . ' ■'" 'v m Landsliö kvenna lagt niður! LANDSLIÐ kvenna í hand- knattleik hefur nú verið lagt niður. Mhl. fékk þær upplýs- ingar hjá Ólafi Aðalsteini Jónssyni, að rcynsla síðustu ára benti til þess að takmark- aður áhugi væri hjá stúlkun- um fyrir landsleikjum og va-ru því engin verkefni fyrir lands- lið í vetur og enginn þjálfari hefur verið ráðinn. 2 Norðmenn til Hibs? SKOSKA liðið Ilibernian. sem herst um titilinn í Skotlandi. hefur hug að á fá til liðs við sig tvo norska landsliðsmcnn. sem voru í sviðsljósinu. þegar Skotar léku gegn Norðmönn- um fyrir skömmu. Það eru þeir Mathiesen og Refvik sem Hihs hafa áhuga á. Mathicsen var maðurinn að baki beggja marka Norðmanna gegn Skot- um. Refvik lék með norska liðinu skipuðu lcikmönnum 21 árs og yngri. Holland gegn Argentínu ÁKVEÐIÐ hefur verið. að Argentínumenn og Ilollend- ingar leiki landslcik í knatt- spyrnu í Bern í Sviss 22. maí na'stkomandi. Eins og kunn- ugt er. léku þessar þjóðir til úrslita um heimsbikarinn í Argentínu á sl. sumri. Tilvon- andi leikur þjóðanna er f tilefni af 75 ára afmadi FIFA og fer hann fram á Þjóðarleik- vanginum. sem rúmar 65.000 áhorfendur. Handknattleiks- deild Hauka fær myndsegul- bandstæki NÚ IIEFUR handknattleiks- deild Hauka tekið af skarið og pantað sér myndsegulhands- taki til notkunar við upptöku á kapplcikjum og einnig við þjálfun. Þessi tækni hefur mjiig rutt sér til rúms á undanfiirnum árum erlendis, og undantekn- ingarlaust eiga lið sín eigin upptiiku- og afspilunartæki. sem notuð eru við kapplciki til að hagt sé að sjá. hvað aflaga fer í leikskipulagi og ýmsa aðra vankanta á ieiknum. svo að ekki sé nú minnst á hversu vel er hagt að grandskoða mótherjana. Upptökuta'ki og afspiiunar- tæki sem er tengt beint við venjulegt sjónvarpsta'ki munu kosta tæpiega þrjár milljónir króna. Þá mun hver mynd spóla kosta t' kringum 25.000. Sigurjón Gunnarsson for- maðttr handknattleiksdeildar Ilattka staðfesti í samtali við Mbl. að Ilaukar va*ru búnir að panta sér upptökuta>ki og ta'kju það í notkun á na'st- unni. Haukar hafa unnið fyrir tækinu með því að sclja styrktarmiða og hefur þeim verið vel tekið. Þ.R.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.