Morgunblaðið - 02.11.1978, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.11.1978, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1978 Ríkisstjórnin staöfestir: Hækkun á heitu vatni, nuddi, happdrættis- miðum, auglýsingum og taxta dýralækna RÍKISSTJÓRNIN hefur nýleíta staðíest tilliÍKur >{jaldskrárnefnd- ar um hækkanir á gjaldskrám nokkurra opinberra aðila. Er hér um að ræða eftirfarandi máh Hitaveitu Akureyrar heimiluð 14% hækkun á vatnsgjöldum og 11% hækkun á heimæðagjöldum. Hitaveitu Mosfellshrepps heim- iluð 30% hækkun á vatnsgjöldum. Hitaveitu Suðureyrarhrepps heimiluð 20% hækkun á vatns- gjöldum. Hitaveitu Blönduóss heimiluð 29% hækkun á vatnsgjöldum. Félagsmálastjóra Selfoss heim- iluð 50% hækkun vegna heilsu- ræktartíma, þ.e. nudd og fleira, enda sé miðað við 10 tíma og 10 manna hóp í hverjum tíma. Gjaldið verður 4500 krónur í stað 3000 króna. Heimiluð 11.4% hækkun á taxta dýralækna. SÍBS heimiiað að hækka verð Sjávarútvegs rádherra ætl- ar ad ráða sér aðstoðarmann „EG hof gert ráð fyrir því að ég réði mér aðstoðarmann og þcss vegna er gert ráð fyrir slíku í fjárlagafrumvarpinu. En lengra er nú málið ckki komið og ég hef ekki leitað eftir neinum til starfans ennþá.“ sagði Kjartan Jóhannsson sjávarútvegsráð- herra í samtali við Mbl. í gærkvöldi. Þrír ráðherranna hafa ráðið sér aðstoðarmenn; Steingrímur Hermannsson dóms- og kirkju- málaráðherra, Magnús H. Magnússon heilbrigðis- og trygg- ingaráðherra og Hjörleifur Gutt- ormsson iðnaðar- og orkumálaráð- herra. Aðstoðarmaður Steingríms er Eiríkur Tómasson, sem einnig var aðstoðarmaður Ólafs Jóhannes- sonar í embætti dóms- og kirkju- málaráðherra síðustu ríkisstjórn- ar, aðstoðarmaður Magnúsar er Georg Tryggvason og aðstoðar- maður Hjörleifs er Þorsteinn Ólafsson. happdrættismiða úr 600 í 800 krónur frá og með áramótum en Happdrætti Háskólans hefur áður verið veitt sams konar heimild. Ríkisútvarpinu heimilað að hækka auglýsingataxta um 20% . (Sjá nánar í annarri frétt í blaðinu). Ljósm. Emilía. Vöruflutningabíll þessi valt út af veginum við Laugarvatn um hádegisbilið í gær er hann rann til f hálkunni. Ökumað- ur græna Skódans fundinn ÖKUMAÐUR græna Skódans, sem Rannsóknarlögreglan lýsti eftir í gær vegna rannsóknar á meintu alvarlegu afbrotamáli, kom fram í gærkvöldi. Var hann í yfirheyrslum í gærkvöldi og nokkur önnur vitni í málinu. Rannsóknarlögreglan varðist allra frétta er Mbl. ræddi við hana um miðnættið. Viðurkenndur eignaréttur ríkisins á Landmannaafrétti — í dómi aukaréttar Rangárvallasýslu KRAFA ríkisins um eignarrétt á Landmannaaf- rétti var viðurkennd í dómi, sem kveðinn var upp í aukarétti Rangárvalla- sýslu á föstudaginn. Dóm- endur voru Guðmundur Jónsson borgardómari, Steingrímur Gautur Kristjánsson héraðsdómari og Þórhallur Vilmundar- son prófessor. Þórhallur skilaði sératkvæði og vildi sýkna stefndu af kröfum ríkisins. Dóminum verður áfrýjað til Hæstaréttar, a.m.k. af hálfu Land- mannahrepps, að því er lögmaður hreppsins, Páll S. Pálsson, tjáði Mbl. í gær. Ríkið höfðaði mál þetta árið 1975 og krafðist viðurkenningar á eignarrétti sínum á Landmannaaf- rétti. Þetta eignadómsmál var ekki höfðað gegn ákveðnum aðila held- ur höfðað sem opinbert mál með opinberri stefnu samkvæmt tiltek- inni heimild í einkamálalögunum. Til andmæla risu Landmanna- hreppur, Holtahreppur, Skaftár- tunguhreppur o.fl. Sem fyrr segir er eignarréttur ríkisins viður- kenndur i dómsorðunum en í dóminum eru einnig viðurkenndar ýmsar heimildir upprekstrarhafa á þessu landsvæði. Þeim Páli S. Pálssyni hrl., lögmanni Landmannahrepps, og Sveinbirni Jónssyni hrl., lögmanni Holtahrepps og fl., voru dæmdar 3,5 milljónir hvorum í málsvarnar- laun en Skúla Pálmasyni hrl., lögmanni Skaftártunguhrepps, var dæmd ein milljón í málsvarnar- laun. Veit ekki hvernig á þessu stendur — segir vidskiptarádherra um f járveit- ingu vegna aðstoðarmanns hans „MÉR komið hefur aldrei að ráða mér til hugar aðstoðar- Landbúnaðarvörur: Verðmæti birgða 22 milljarðar um miðjan desember UM MIÐJAN desemhermánuð er gert ráð fyrir að til verði í landinu birgðir landbúnaðarvara að verðmæti 22 milljarðar króna. þ.e. mjólkur- og kjötvörur að undanteknu nautakjöti. Kom þetta fram í ræðu Arna Gunnars- sonar á kvöldfundi neðri dcildar Alþingis í gær þegar rætt var um verðjöfnunargjald. Arni Gunnarsson sagði, að um þessar mundir væru smjörbirgð- irnar 1.460 tonn, sem samsvaraði ársneyzlu, og 1.440 tonn væru til af osti, eða um 3.900 tonn af mjólkur- vörum að verðmæti 6—8 milljarð- ar króna og væri það 66% verðmætisaukning frá sama tíma í fyrra. Þá sagði Árni Gunnarsson, að hinn 1. des. n.k. væri gert ráð fyrir að til yrðu 11.252 t kindakjöts eða 8,4% magnaukning frá sama tíma í fyrra, en verðmætisaukning 45% og væri verðmæti birgðanna 15 milljarðar og 354 milljónir króna. mann. hvað þá lagt fram beiðni þar um. þannig að ég veit hreint ekki. hvernig á þessu stendur í fjárlagafrumvarpinu." sagði Svavar Gestsson viðskiptaráð- herra í samtali við Mbl. í gær. en í fjárlagafrumvarpinu er þess get- ið að hluti launahækkana við- skiptaráðuneytisins á næsta ári sé vegna hálfrar stöðu aðstoðar- manns ráðherra. „Eg hef hins vegar óskað eftir því, að starfsliði ráðuneytisins verði fjölgað vegna sérstakra verkefna og má vera að fjárveiting til hálfs aðstoðarmanns sé ein- hvers konar svar við þeirri ósk,“ sagði Svavar. I fjárlagafrumvarpinu segir, að aðrar launahækkanir viðskipta- ráðuneytisins en laun aðstoðar- m^nnsins séu eðlilegar taxta- hækkanir launa. Leiðrétting Kosningar ólögmætar í Geithellnahreppi og kosió skal að nýju: Ráðuneytið samþykkir ekki afsögn kjörstjómar KOS.NING til hreppsnefndar í Geithellnahreppi í S-Múlasýslu og kjiir eins fulltrúa til sýslu- nefndar hafa verið dæmd ólög- mæt. Verða kosningarnar þvi að fara fram á ný. en sá höggul) fylgir skammrifi að kjörstjórnin í hreppnum hefur sagt af sér og neitar að standa að nýjum kosningum. í sím- skeyti félagsmálaráðuneytisins til sýslumannsembættisins á Eskifirði í gær kemur aftur á méiti fram. að það sé horgara- leg skylda. sem ckki verði undan vikizt. að taka sæti í kjörstjórn. ef sú er niðurstaða kosninga til þeirra. Geithellnahreppur er syðsti hreppur í S-Múlasýslu og nokkru eftir kosningarnar í sumar voru bæði hreppsnefnd- arkosning og kjör sýslufulltrúa kærð. Sýslunefnd úrskurðaði kosriingu sýslufulltrúa ógilda og eftir að kæru vegna hrepps- nefndarkosninganna hafði verið áfrýjað til félagsmálaráðuneytis var hún einnig úrskurðuð ógild þar 5. september síðastliðinn. I kærunni vegna hreppsnefnd- arkosninganna voru nefnd þrjú kæruatriði. Meðal annars var kært vegna þess, að pakki með kjörseðlum hefði verið rifinn upp áður en kjörstjórnarmenn komu til kjörfundar og í kær- unni er farið fram á að kannað verði hverjir hafi verið þar að verki. Með skírskotan til kosn- ingalaga mun félagsmálaráðu- neytið hafa kveðið upp úrskurð um að pakkinn með kjörseðlun- um hafi verið opnaður fyrr og við aðrar aðstæður en lög leyfi. Kosningar verða því þegar af þeirri ástæðu að fara fram í hreppnum að nýju. Kjörstjórn Geithellnahrepps sagði af sér vegna þessa máls, en að sögn Ragnars Hall, sýslufulltrúa á Eskifirði, barst sýslumannsembættinu skeyti í gær frá félagsmálaráðuneytinu þar sem m.a. segir, að knýja skuli gömlu kjörstjórnina til að auglýsa kosninguna með lögleg- um fyrirvara og láta hana fara fram að nýju. Ragnar sagði, að í skeyti ráðuneytisins kæmi fram, að kjörstjórnin hefði verið kosin til að efna til löglegra kosninga og því verki hefði hún ekki lokið. — Með öðrum orðum, ekki er fallist á að kjörstjórnin geti sagt af sér og að það sé borgaraleg skylda að taka kosn- ingu í kjörstjórn, sagði Ragnar Hall. í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær um afturköllun á uppsögn kjara- samninga hjá félögum ASÍ var það ranghermt, að Haukur Már Har- aldsson blaðafulltrúi var sagður skrifstofustjóri, en því starfi gegnir Kristín Mántylá. Þá kom það einnig fram, að 5 aðildarfélög af 230 hafa tilkynnt um afturköllun á uppsögn samn- inga, en vitað er um mun fleiri félög sem hafa samþ.ykkt slíkt en hafa ekki tilkynnt ASÍ um ákvörð- un sína, en samkvæmt upplýsing- um talsmanns ASÍ er það ekki regla að félög tilkynni skrifstofu ASÍ formlega um ákvarðanir á borð við afturköllun uppsagnar kjarasamninga. A batavegi MAÐUR á sjötugsaldri varð fyrir bifreið á Miklubraut gegnt húsinu númer 50 á þriðjudagsmorguninn. Hann hlaut höfuðáverka og fót- brot. Var hann lagður inn á gjörgæzludeild Borgarspítalans en var fluttur þaðan í gærdag, enda talinn á batavegi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.