Morgunblaðið - 02.11.1978, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1978
28
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Coca Cola verksmiðjan
Árbæjarhverfi
Óskum eftir
að ráða
Verkafólk óskast
til að vinna viö standsetningu á nýjum
bílum.
Bifreiðar og landbúnaðarvélar,
Suðurlandsbraut 14.
menn til lagerstarfa. Vaktavinna. Mötuneyti
á staðnum.
Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 82299.
Útibústjórastarf
Starf verzlunarstjóra viö Útibú Kaupfélags
Þingeyinga í Mývatnssveit, er laust til
umsóknar.
Húsnæði er fyrir hendi.
Umsóknarfrestur er til 1. desember n.k.
Umsóknir sendist til kaupfélagsstjóra K.Þ.
F.h. Kaupfélags Þingeyinga
Finnur Kristjánsson.
Ljósmyndari
Við leitum að Ijósmyndara sem hefur eigin
Ijósmyndastofu fyrir mjög arðbært verkefni.
Svar sendist til Engdahls affairsförmedling,
Hagmarksg. 5, 41269 Göteborg, Sverige.
Forfallakennara
vantar aö Gagnfræöaskólanum í Mosfells-
sveit.
Upplýsingar veitir skólastjórinn, Gylfi
Pálsson, sími 66586.
Vélstjórar
Viljum ráöa nokkra vélstjóra meö full
réttindi á millilandaskip. Bæöi er um aö
ræöa starf til lengri og skemmri tíma.
Þeir sem hafa áhuga eru beönir um aö hafa
samband við Skipshafnadeild.
H.F. Eimskipafélag íslands.
Fulltrúastarf
Útflutningsstofnun í miöborginni óskar eftir
aö ráöa fulltrúa til starfa nú þegar.
Umsækjandi þarf aö hafa góöamenntun.rita
og tala vel ensku og a.m.k. eitt Noröur-
landamál auk íslenzku. Starfsreynsla æski-
leg. Góö launakjör. Handskrifaöar umsóknir
merktar: „Fulltrúastarf — 3851“ þurfa aö
berast Morgunblaöinu sem fyrst.
Götunarstarf
er laust til umsóknar. Starfsreynsla
nauösynleg.
H/F Eimskipafélag íslands
Heimasaumur
Tek aö mér saum á kjólum og fleiru.
Vönduö vinna. Upplýsingar í síma 50824.
Geymiö auglýsinguna.
IS Verkamenn
Seltjarnarnesbær óskar aö ráöa verkamenn
til starfa. Hugsanlega einnig á loftpressu.
Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 21180.
Afgreiðslustörf
Viljum ráöa starfskraft til afgreiöslustarfa.
Einhver málakunnátta nauösynleg. Tilboö
merkt: „Reglusöm — 8914“ sendist afgr.
Mbl. fyrir 7. þ.m.
Hárskerasveinn
eða hárskeranemi
(hárgreiðslunemi)
óskast á nýtízku rakarastofu í Reykjavík.
Skemmtileg vinnuaöstaöa.
Lysthafendur vinsamlegast sendiö nafn og
heimilisfang til skrifstofu Morgunblaösins
merkt: „framtíö — 8916“.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
'.SlfMORGUNBLAÐINU
AUGLYSINGA-
SÍMINN ER:
22480
Afmæliskveðja:
Sigurbjartur Vilhjálms-
son húsasmíðameistari
Síðari hluta árs 1930 réðst ég til
náms í húsasmíði hjá þeim húsa-
smíðameisturunum Árna Sigur-
jónss.vni og Þóroddi Hreinssyni,
sem á þeim tíma voru all umsvifa-
miklir byggingarverktakar í Hafn-
arfirði. Um þetta leyti var að ljúka
námi hjá þeim félögum, þeirra
fyrsti nemandi. Síðan er liðin nær
hálf öld og þessi -nemandi þeirra
Árna og Þórodds er sjötíu ára í
dag. Því munu þó fáir trúa, sem
ekki fylgjast sérlega með aldri
manna, að Sigurbjartur Vil-
hjálmsson húsasmíðameistari,
Skúlaskeiði 10, Hafnarfirði, sé að
árum svona gamall, því að útlit
hans og starfsorka benda ekki til
þess, en í bókum stendur, að hann
sé fæddur að Grænagarði i Leiru 2.
nóvember 1908. Fluttist hann til
Hafnarfjarðar 6 ára gamall, ásamt
með foreldrum sínum og eldri
s.vstkinum. Alls urðu þau systkin
11, ólust þau upp í Hafnarfirði, oft
við þröngan kost, eins og títt var á
þeim tíma hjá barnmörgum fjöl-
skyldum. Öll urðu þau systkin
dugnaðar- og mannkostafólk.
Það er staðreynd, að ýmsir
hæfileikar manna eru meðfæddir,
en verða ekki eingöngu lærðir í
skólum, þótt góðir séu og nauðsyn-
legir. Meðal þeirra starfa, sem
krefjast meðfæddra hæfileika, en
allt of fáir hafa hlotið, er verk-
stjórn og skipulagning verka. Það
er álit þeirra, sem kynnst hafa
störfum Sigurbjarts Vilhjálms-
sonar, að hann sé einn þeirra, sem
hlotið hafa í ríkum mæli þessa
meðfæddu hæfileika, enda er hann
talinn í hópi fremstu verkstjóra.
Fljótlega eftir að Sigurbjartur
lauk námi, fór hann að starfa, sem
verkstjóri og kennari iðnnema.
Lengst af starfstíma hans var
venja, að verkstjórar í byggingar-
iðnaði ynnu með starfsmönnum
sínum, en svo létt var Sigurbjarti
verkstjórnin, að hann gat auk
hennar skilað fullri vinnu sjálfur,
enda ávallt mjög eftirsóttur til
hvers konar smíða, því að saman
fór dugnaður og vandvirkni og
sérlega góð skapgerð. Verkstjórn
Sigurbjarts var ekki framkvæmd
með eftirrekstri eða hörðum fyrir-
mælum, heldur með lipurð við
starfsmenn sína. Hann hefur
ávallt haft lag á að vekja áhuga
þeirra á starfinu með góðlátu og
léttu, en örvandi tali um verkefn-
in, sem orkað hefur þannig á
starfsmenn hans, að þeir hafa
ávallt verið reiðubúnir, að fylgja
honum eftir. Gamlir nemendur,
sem æðimargir hafa unnið undir
stjórn Sigurbjarts, minnast þess
oft, hversu gott hafi verið, að
vinna undir stjórn hans og telja
ómetanlegt hvað mikið þeir hafi af
honum lært, sem hafi orðið þeim
gagnlegur leiðarvísir, þegar þeir
sjálfir hafa þurft að stjórna
verkum og standa á eigin fótum.
Sigurbjartur hefur ávallt verið
seni kallað er félagslega sinnaður;
hann hefur verið stofnandi og
starfað í ýmsum félögum. Hann
var um skeið formaður í Trésmíða-
félagi Hafnarfjarðar og oft full-
trúi á iðnþingum.
Hann var lengi í skemmtinefnd
Iðnaðarmannafélagsins í Hafnar-
firði og þótti þar sem annars
staðar sæti hans vel skipað. Hann
var einn af stofnendum Skipa-
smíðastöðvarinnar Drafnar h.f. og
Byggingarfélagsins Þórs h.f. Hann
hefur lengi verið í stjórn þeirra
félaga og starfsmaður frá stofnun
þeirra og lengst af verkstjóri.
Eg sern þessar fáu línur rita, tel
það mér mikið happ, að hafa á
unglingsárum mínum kynnst Sig-
urbjarti, en eins og áður segir lágu
leiðir okkar saman er ég hóf nám í
húsasmíði. Allt frá þeim tíma, eða
í 48 ár, höfum við verið vinnufé-
lagar og vinir, betri samstarfs-
mann get ég ekki hugsað mér,
allan þennan tíma hefur ekki fallið
skuggi á samstarf okkar. Tel ég að
þar hafi fyrst og fremst ráðið
hæfileiki Sigurbjartar til að sam-
hæfa skoðanir sínar þeim, sem
hann hefur starfað með, að
ógleymdri hans góðu skapgerð,
sem ekkert fær raskað.
Sigurbjartur Vilhajlmsson hef-
ur verið hamingjumaður í fjöl-
skyldulífi sínu. Hann kvæntist
ungur, sinni ágætu konu, Þuríði
Magnúsdóttur frá Dysjum. Þau
eiga tvær myndarlegar dætur, sem
báðar eru giftar og búa í Hafnar-
firði.
Þau Sigurbjartur og Þuríður
byggðu í upphafi hjónabands síns
íbúðarhús á einum fegursta stað í
bænum, ofan við Hellisgerði. Á
þeim tíma var hús þeirra með
stærri íbúðarhúsum í Hafnarfirði.
Síðan bættu þau við húsið all-
myndarlega og hafa þau hjónin
búið sér þar glæsilegt heimili.
Á tímamótadegi í lífi þessara
ágætu hjóna munu margir hugsa
hlýtt til þeirra, ekki síst hinir
mörgu starfsfélagar Sigurbjarts,
fyrr og siðar, sem minnast margra
ánægjustunda við störf og
skemmtun, enda er hann allra
manna glaðastur á góðri stund.
Við hjónin minnumst margra
ánægjustunda á heimili þeirra
hjóna og margra skemmtilegra
ferða, á sjó og landi, sem við
höfum farið saman.
Við þökkum þeim langa og góða
viðkynningu og vinsemd og færum
þeim okkar bestu óskir um farsæla
framtíð.
Vigfús Sigurðsson.