Morgunblaðið - 02.11.1978, Blaðsíða 15
MORGt'NBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1978
15
Á KLEPPSVEGI 68 hér í borginni var fyrir nokkru efnt til
hlutaveltu til ágóða fyrir Sjálfshjörgu. iandssamband fatlaðra.
bessir krakkar stóðu fyrir henni og söfnuðu þeir 10.000 krónum.
— bau heita Bjarni Viðar Sigurðsson og Sædís Halidórsdóttir.
EFNT var til hlutaveltu til ágóða fyrir Styrktarfél. vangefinna
að Lynghaga 18. Rvík. — Stóðu fyrir því þessar télpur en þær
heita> Sesselja Ilausmann. systir hennar Kata María. bóra
Ilermannsdóttir og Ásta Kristjana Sveinsdóttir.
FYRIR nokkru efpdu þessir strákar til hlutaveltu til ágóða fyrir
Krabbameinsfél. íslands og var hún haldin í Kríuhólum 2. bar
söínuðust rúmlega 11.600 krónur. — Strákarnir heitai Óskar
Sveinsson og Engilbert Imsland.
bESSAR telpur. Elín Gunnarsdóttir og Lára Pétursdóttir. héldu
fyrir nokkru hlutaveltu til ágóða fyrir Styrktarfél. lamaðra of
fatlaðra. Söfnuðu þær 10.200 krónum til félagsins.
m
J
■
Hjálmar R; Bárðarson:
Reykköfunar-
tæki í skipum
í dagblöðum hefur nú nýverið
birst um það frétt, að Slysavarna-
félag Islands hafi fengið að gjöf
reykköfunartæki til kennslu og
notkunar, frá framleiðanda og um-
boðsmanni tækjanna. Slík gjöf er að
sjálfsögðu þökkuð af Slysavarna-
félagi Islands, en í fréttinni gætir
nokkurs ranghermis sem telja verð-
ur rétt að leiðrétta.
I fréttinni segir, að reykköfunar-
tæki frá þessum aðilum séu nú í
notkun um borð í öllum íslenzkum
togurum auk flutningaskipa, sam-
kvæmt reglugerð Sjávarútvegsráðu-
neytisins. Umboðsmanni ætti hins-
vegar að vera um það kunnugt, að
Siglingamálastofnun ríkisins hefur
haft með höndum viðurkenningu
þessara tækja, til notkunar í íslenzk-
um skipum, o'g að það er samgöngu-
ráðherra, sem sett hefur þá reglu-
gerð sem um ræðir, samkvæmt
tillögum siglingamálastjóra (áður
skipaskoðunarstjóra). Ekki er kunn-
ugt um að Sjávarútvegsráðuneytið
hafi sett neina reglugerð um þetta
efni.
Þá segir einnig frá því í
fréttinni, að það sé m.a. fyrir
ábendingar sjóslysanefndar, að
reykköfunartæki séu nú í íslenzkum
skipum. Sannleikurinn er hinsvegar
sá, að reykköfunartæki voru komin í
íslenzk skip, og samkvæmt reglu-
gerð, löngu áður en rannsóknarnefnd
sjóslysa tók til starfa.
Þá segir enn í fréttinni, að á
undanförnum árum hafi orðið alvar-
leg slys um borð í íslenzkum skipum
vegna eldsvoða og reyks og þá orðið
umtalsvert fjárhagstjón á dýrum og
flóknum búnaöi íslenzkra skipa af
þessum sökum. Þetta er því miður
satt og rétt, en síðan segir í fréttinni
að í mörgum tilfellum bendi líkur til
að hægt hefði verið að bjarga
mannslífum og verðmætum, ef slík
tæki hefðu verið fyrir hendi. Sjálf-
sagt er að nota reykköfunartæki í
skipum til að reyna að bjarga
mannslífum, og þegar aðstæður
leyfa til að re.vna að slökkva eld.
Miklu þæpnara verður að telja, eins
og virðist gefið til kynna í fréttinni,
að gera ráð fyrir að menn bjargi
verðmætum tækjum úr brennandi
skipi, með því að fara inn í reykfyllt
rými í skipum búnir reykköfunar-
tækjum og fjarlægja tækin.
Þessar athugasemdir rýra að
sjálfsögðu á engan hátt þann góða
hug, sem felst í gjöf þessara tækja til
Slysavarnafélags íslands, en fréttin
hefði verið jafn góð auglýsing fyrir
framleiðendur og umboðsmenn
tækjanna, þótt rétt hefði verið skýrt
frá staðreyndum málsins.
Iljálmar R. Bárðarson,
siglingamálastjóri.
Óvissa
framundan
í fjármálunum?
Oft skiptast á skin og skúrir ífjármálum
fólks. Tekjur og gjöld eru breytileg
frámánuðitilmánaðar.Kannski ererfið
afborgun framundan, en fjármunir af
skornum skammti. Útlitið virðist ekki of
bjart. Fyrirhyggja er lausnarorðið í
slíkum vanda.
Við bendum á IB-lán okkar.
Þau byggjast á reglubundnum sparn-
aði sem gefur rétt til lántöku. IB-lánin
gætu lyft mörgum yfir erfiðan hjalla, en
það krefst fyrirhyggju.
Leitið upplýsinga um IB-lán, fáið
bækling.
Banki þeirra sem hyggja að framtíðinni
Iðnaðarbankmn
Aðalbankiogútibú
Gs*BB)ánssonl