Morgunblaðið - 28.11.1978, Side 33

Morgunblaðið - 28.11.1978, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 4978 41 fclk í fréttum + NIXON fyrrum Bandaríkja- forseti kemur nú æ oftar fram í fréttum. — Og nú er hann kominn til Evrópu. Hann er sagður hafa hug á því er hann kemur til Bretlands, að eiga þess kost að hitta brezka frammámenn. — Þar í landi, herma blaðafregnir, eru yfir völdin að velta því fyrir sér hvernig eigi að standa að málum. Blöð segja að Verka- mannastjórnin sé ekki sérlega hress. — Þess hefur og verið getið, að vafasamt sé að James Challaghan forsætisráðherra muni leggja hart að sér auk daglegra anna, við að gefa sér tíma til að ná fundum Nixons. Þessi seinasta mynd af Nixon er tekin suður í Missisippi á pólitískum útifundi. Hann hrópar til fundarmanna, sem höfðu hyllt hann mjög innilega. J.R.R. Tolkien. Hobbit Almenna bókafélagið Austurstrœti 18, — sími 19707. Skemmuvegi 36, Kópavogi — sími 73055. Fáar nútímabækur hafa hlotið jafn almenna aðdáun^ og vinsældir í Evrópu og skáldsagan Hobbit eftir enska prófessorinn J.R.R. Tolkien; á það jafnt viö um foreldra, kennara og ritdómara, en umfram allt börn og unglinga. Söguhetjan Bilbo Baggason er oröin ódauðleg persóna ævintýraheimsins meö sínum viöfelldnu tilhneigingum og mannlegu viðhorfum. Hobbit er saga um ævintýri sem dvergarnir steypa sér út í. Þarna kemur fyrir dvergagull og dreki sem liggur á því eins og í forníslenzkum goðsögum. Bilbo Baggason er félagi dverganna í þessum háskalegu tiltektum þeirra og eru þær honum þó þvert um geð. Hann er í eðli sínu makráöur og værukær hobbi, sem langar alls ekki til að drýgja neinar dáðir, og hann verður jafnvel undrandi þegar hann kemst að því hversu ráöagóður hann er og slyngur. Hér eiga sér staö hatrammir bardag- ar við durtálfa í Dimmufjöllum, stríö viö risaköngulær í Svartaskógi, gátukeppni við Snák og rökræður viö drekann. Og einnig koma fyrir viðfelldnari þættir, samfylgd góðra félaga, ágætar máltíöir, hlátrar og söngvar, töfrandi aödráttarafl ósnortins lands fyrri alda. Hobbit fjallar um ævintýri. En sagan fjallar einnig um vináttu og lífsgleði, sigur góöra afla yfir illum öflum og umfram allt sigur vits og réttlætis yfir blindum þjösnahætti og ofbeldi. Lærið vélritun Ný námskeið byrja fimmtudaginn 30. nóvember. Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar, engin heimavinna. Innritun og upplýsingar í síma 41311 eftir kl. 13. Vélritimarskólinn Suðurlandsbraut 20 Qompton Parkimon Enskir rafmótorar einfasa 0.33—3 HÖ þrífasa 0.5—25 HÖ VÖNDUÐ VARA HAGSTÆTT VERÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.