Morgunblaðið - 28.11.1978, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 28.11.1978, Qupperneq 38
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1978 Yfirlitsmynd frá Jonestown í Guyana, þar sem rúmlega 900 manns frömdu sjálfsmorð myndinni má sjá nokkra tugi lika ligttja scm hráviði á svæðinu. sfðustu viku með því að bergja á eiturmiði. Á Símamynd AP Jones ætlaði að flytja söfnuðinn tíl Rússlands Georgetown, Guyana, 27. nóvember. AP — Reuter. LIK þeirra, sem frömdu sjálfs- morð í hænum Jonestown í Guyana. eru nú komin til Bandan'kjanna. en komið hefur í ljós að þeir, sem létu lífið í Jonestown eftir að hafa innbyrt eiturefni. eru alls um 910. eða rúmlcga 500 fleiri en í fyrstu var talið. I skógunum umhverfis Jones- town fundust 32 íbúar á lífi, en þeim hafði tekist að flýja til skógarins um þær mundir sem þorpsbúar innbyrtu eitrið. Til viðbótar voru 46 íbúar Jones- town staddir í Georgetown, svo að flestir þorpsbúa hafa farist, þar sem íbúatalan var um 1.000. Haft er eftir eftirlifandi þorpsbúum, að flestir hinna látnu hafi drukkið Cyan- íð-blöndðna af frjálsum og fúsum vilja, en margir hafi þó verið neyddir til að innbyrða eitrið. Ennfremur skýrði einn með- limur í sértrúarflokki Jim Jones frá því að Jones hefði haft í hyggju að flytja söfnuð sinn til Rússlands. Sagði maðurinn, Tim Carter, að Jones hefði oft rætt um að flytja söfnuðinn til annars lands. Fyrir þremur mánuðum ræddi Jones mikið um Sovétríkin í þessu sambandi og néfndi þau „hið fyrirheitna land.“ Carter sagði, að tvívegis a.m.k. hefðu sovéskir sendiráðs- menn heimsótt Jonestown. Aðr- ir þeir sem komust undan skýrðu frá því um helgina, að Jones hefði oft haldið langa fyrirlestra um „dyggðir" kommúnismans. Jimmie Jones leiðtogi sértrúar- flokksins í Guyana á fundi með fréttamönnum. Kvikmynda- tökumaður bandarísku sjón- varpsstöðvarinnar NBC, scm er að taka myndir af Jones, féll fyrir kúlum sértrúarmanna Jones skömmu eftir að þessi mynd var tekin. Símamynd AP Lfk hinna látnu sértrúarmanna flutt til Bandarfkjanna. Á myndinni má sjá kistu merkta Jimmie Jones presti, leiðtoga sértrúarsafnaðarins. Símamynd AP. Bandarfskir hermenn búa lfk sértrúarmannanna f flokki Jimmie Jones undir flutning frá Guyana til Bandarfkjanna. Símamynd AP Dollarinn styrkist verulega London, 27. nóv. AP. Reutcr. STAÐA dollars styrktist verulega á gjaldeyrismörkuðum víða um heim í morgun í kjölfar tilkynn- ingar nokkurra stærstu viðskipta- banka Bandarfkjanna fyrir helgi þar sem scgir að vextir muni hækka um VA%. Staða dollarans í dag er sú sterkasta frá því að Carter Banda- ríkjaforseti tilkynnti um aðgerðir honum til styrktar 1. nóvember s.l. Sérstaklega styrktist dollarinn gagnvart japanska jeninu og var hver dollar seldur á 197 jen í morgun sem er um 20 jenum hærra en fyrir mánuði síðan. Á sama tíma og dollar styrkist lækkar verð á gulli víðast hvar og var gullúnsan seld á aðeins 198 dollara við opnun markaða í morg- un en komst hæst í tæplega 250 dollara fyrir rúmum mánuði síðan. Bandaríkin: 483 fórust í umferðinni New York, 27. nóvember AP ALLS létu 483 manns lífið í umferðarslysum í Bandarfkjun- um um helgina, en um sömu helgi í fyrra létu 490 manns lífið. Almennur frídagur var í Banda- ríkjunum á fimmtudag, og helgin því „löng“, en hinir 483 fórust á tímabilinu frá því klukkan 6 á miðvikudagskvöld þar til á mið- nætti á sunnudagskvöld. Almannavarnanefnd Banda- ríkjanna hafði spáð því að 470—570 manns færust í um- ferðarslysum í landinu um helgina. Mannskæðir bardagar í Rhódesíu Salisbury, 27. nóvember. AP STRÍÐIÐ í Rhódesíu hefur kostað a.m.k. 51 mann lffið á sfðustu þremur dögum segir í frétt fá Rhódesíuher. Þar segir ennfremur að 25 hinna látnu hafi vcrið þjóðernissinnaðir skæruliðar. Hin fórnarlömbin voru allt svartir íbúar landsins nema einn hvítur bóndi sem var skotinn til bana í morgun á búgarði sínum. Frá því að stríðið í Rhódesíu hófst fyrir um sex árum hafa um 10.500 manns látið lífið og þar af í kringum 3900 óbreyttir borgarar. Mikil átök hafa verið undanfarna daga milli stúdenta og lögreglu, en stúdentarnir hafa efnt til mótmæla- aðgerða vegna frestunar almennra kosninga fram í apríl á næsta ári. Enginn hefur þó fallið í þessum átökum. Myndin er af tveimur fyrrv.erandi skæruliðum úr fylkingu Mugabes leiðtoga þjóðernissinnaðra Rhódesfumanna ásamt milligöngu- manni stjórnarinnar í Salisbury. Skæruliðarnir hafa veitt liðsinni tilraunum stjórnarinnar til að koma á vopnahléi f Rhódesfu. Símamynd AP. Fangelsisstjóri var myrtur á N-Irlandi Belfast, 27. nóv. AP ALBERT Miles, aðstoðarfangelsis- stjóri Maze-fangelsisins í SuðurBel- fast. var skotinn til bana á heimili sínu í gær af tveimur vopnuðum mönnum sem komust undan, að þvf er segir í frétt frá lögreglunni í Belfast. Lögreglan fullyrðir að morðið sé í tengslum við mótmæli sem staðið hafa í tvö ár vegna meintra slæmra aðstæðna í Maze-fangelsinu, og írski lýðveldisherinn beri ábyrgð á morð- inu. Tveir grímuklæddir menn bönk- uðu upp á hjá Miles um miðjan dag á sunnudag og skutu á hann sam- stundis og flýðu síðan í bíl á braut. Með morðinu á Miles er tala þeirra sem látið hafa lífið í róstunum á írlandi síðan 1969 komin upp í 1872. Mikil ólga hefur verið í Maze-fang- elsinu eins og áður sagði og hafa t.d. um 300 félagar í írska lýðveldishern- um neitað að vera í sérstökum fangafötum og hungurverkföll eru tíð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.