Morgunblaðið - 08.02.1979, Side 1

Morgunblaðið - 08.02.1979, Side 1
48 SÍÐUR 32. tbl. 66. árjj. FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. (vSímamynd AP) Ungur hjúkrunarnemi í 24 tíma verkfalli við St. Andrew’s spítala í London útskýrir afstöðu sína fyrir öldruðum hjólreiðamanni. Stöllur hennar og samstarfsfólk fylgjast með. 50 hjúkrunarkonur við þennan spítala lögðu niður vinnu í einn sólarhring til að lýsa yfir samstöðu með verkfalli félaga í samtökum opinberra starfsmanna. Sjá frétt um ástandið í Bretlandi á bls. 22 í Mbl. í dag. Yfirmaður íranshers: Hermenn hafí ekkí af- skipti af stjómmálum Belgíumenn fluttir brott frá Zaire? Teneran, 7. februar. AP, Reuter. YFIRMAÐUR íranska heraflans, Abbas Gharahaghi hershöfðingi, lýsti því yfir í dag. að herinn stæði óhikað við bakið á stjórn Bakhtiars. sem keisarinn skipaði áður en hann fór úr landi. og hvatti hershöfðinginn alla hermenn til að láta stjórnmálin í landinu afskiptalaus. Er talið að með þessum ummælum hafi Gharabaghi í raun lýst því yfir, að herinn hyggist ekki gera byltingu í landinu og að stjórnmálamönnum beri að finna iausn á vandanum í íran en ekki hernum. Stuðningsmenn trúarleiðtogans Ruhollah Khomeinis voru í dag sagðir hafa tekið við stjórn nokk- urra borga í Iran og að auki hermdu fréttir, að margir starfs- menn ráðuneyta og stjórnarstofn- ana hefðu gengið Khomeini á hönd. Mehdi Bazargan, sem Khomeini hefur skipað til að vera forsætisráðherra í stjórn sinni, sagði í dag, að hann myndi leggja fram starfsáætlun stjórnar sinnar og ráðherralista á föstudag. Muammér Gaddafi leiðtogi Líbýu sendi Khomeini í dag skila- boð, þar sem stuðningi er lýst við aðgerðir trúarleiðtogans, og þær sagðar vera öðrum múhameðs- trúarmönnum til fyrirmyndar. Er þetta fyrsta opinbera orðsending- in, sem berst til Khomeinis frá þjóðarleiðtoga í múhameðstrúar- landi, og er það haft til marks um það, að hin róttækari Arabalönd muni fylkja sér til stuðnings hinu nýja lýðveldi Íslams, sem Khomeini hyggst stofna í íran. Búizt er við að íhaldssamari múhameðstrúarríki eins og Marokkó, en Iranskeisari dvelst nú þar í landi, muni annaðhvort styðja við bakið á stjórn Bakhtiars eða bíða átekta þar til séð verður hvor verður yfirsterkari, Bakhtiar eða Khomeini. Bakhtiar sagði í dag, að hann hirti ekki um ríkisstjórnir sem aðeins fyrirfyndust í hugarheimi nokkurra manna, en ef slíkar stjórnir færðu sig upp á skaftið myndi hann óhikað grípa til viðeigandi aðgerða. Stuðningsmenn Bakhtiars komu saman í dag, 8000 talsins, á íþróttavelli í Teheran til að stofna formlegan stjórnmálaflokk til stuðnings forsætisráðherranum. þjálfa eiga hermenn Zairestjórnar í samræmi við samning ríkjanna um hernaðarmál. Fréttaskýrendur í Brussel telja þó, að hermenn þessir séu sendir til Zaire nú, til þess að hægt verði að grípa til þeirra við að koma belgískum borgurum úr landi gerist þess þörf. Allt var með kyrrum kjörum í Kinshasa á yfirborðinu í dag og að sögn Mobutus forseta er ástandið í landinu með eðlilegum hætti og ekkert frábrugðið því sem verið hefur lengi. Vetrar- hörkur í Banda- ríkjunum Brtissel, Kinshasa, 7. febrúar. AP. Reuter. HAFT var eftir Henri Simonet utanríkisráðherra Belgíu í dag, að stjórnmálaástandið í Zaire væri nú mjög hættulegt og að ástandið í höfuðborginni, Kinshasa, væri þannig að Evrópu- búum, sem þar dveljast, gæti verið bráð hætta búin. Mikill lyfja- og matvælaskortur er í borginni, en á hinn bóginn búa flestir Evrópumennirnir þar og lítill hópur innfæddra í vellyst- ingum og er talið að fólk úr fátækrahverfunum kunni að láta til skarar skríða gegn þeim linni matvælaskortinum ekki. Belgísk stjórnvöld hafa ákveðið að senda 250 fallhlífarhermennn til Zaire, en samkvæmt opinberum tilkynningum í báðum löndunum er hér um að ræða menn sem Sovézk f lotadeild á Tonkin-f lóa Var mörgum stuðningsmönnum Bakhtiars heitt í hamsi og hróp- uðu sumir þeirra „Lengi lifi keisarinn“. Ráðgerðar eru' miklar fjölda- göngur stuðningsmanna Khomeinis á morgun, fimmtudag, en Bakhtiar hefur gefið hernum fyrirmæli um að láta göngumenn óáreitta, nema tii óeirða komi. írönsk kona heldur á loft peningaseðli þar sem skipt hefur verið á mynd keisarans og trúarleiðtogans Ayatollah Khomeini. Seðillinn er ekki lögmætur gjaldmiðill, en töluvert upplag af honum kom í umferð mcðal stuðningsmanna Khomeinis um hclgina. Teng sakar Banda- ríkjamenn um linkind Tokyo, 7. febrúar — AP-Reuter KÍNVERSKI aðstoðarfor- saetisráðherrann Teng Hsiao-Ping hvatti Banda- ríkjamenn í dag til þess að draga burt herafla sinn í Suður-Kóreu, en jafnframt hvatti hann Bandaríkja- menn til að koma í veg fyrir útþenslustefnu Sovét- manna annars staðar t heiminum. Teng er nú í Japan á leið sinni frá Bandaríkjunum, en þar var hann í níu daga i opinberri heim- sókn. Teng átti í dag viðræður við ýmsa japanska áhrifamenn, þ.á m. Ohira forsætisráðherra og Tanaka og Fukuda, sem báðir eru fyrrver- andi forsætisráðherrar. í viðtölum við þessa menn sagði Teng m.a., að öryggi Suður-Kóreu og Taiwans stafaði engin hætta af því, þótt bandarískt herlið yrði á burt frá Suður-Kóreu. Teng sagði að Bandaríkjamenn hefðu sýnt óákveðni í þeim vanda, sem upp væri kominn í íran, en þar væru Sovétmenn þegar búnir að hreiðra um sig til að koma illu til leiðar. Á sama hátt bæri Bandaríkjamönnum að taka á sig rögg og hemja afskipti Kúbu- manna af málefnum Afríkulanda. „Eg gat ekki verið of opinskár sem opinber gestur í Bandaríkjunum," er Teng sagður hafa sagt við Fukuda, „en Bandaríkjamenn hafa leyft Sovétmönnum að stilla upp of mörgum peðum á skákborði heimsins." WashinKton, Tokyo, 7. febrúar. AP. LÍTIL sovézk flotadeild er nú á siglingu á Tonkin-flóa skammt undan ströndum Ví- etnams og telja heimildir í bandarísku leyniþjónust- unni, að Sovétmenn hyggist með þessu sýna bandamönn- um sínum í Víetnam nokk- urn stuðningsvott. í flota- deildinni er m.a. ein íreigáta og nokkur lítt vopnuð birgða- og aðstoðarskip. Skipin hafa verið á þessum slóðum í u.þ.b. tvær vikur og er ekki talið ólíklegt að þau leiti brátt til hafnar í Danang, en þar var áður ein stærsta herstöð Bandaríkja- manna í Suður-Víetnam. Ekki er talið líklegt að Kínverj- ar líti á nærveru flotadeildarinnar sem mikla ógnun, en kínversk skip flytja nú birgðir til Rauðu khmer- anna í Kambódíu um siglingaleiðir á Suður-Kínahafi, og ólíklegt þyk- ir að Víetnamar eða Sovétmenn hyggist reyna að hefta þá flutn- inga. Stórar herdeildir úr her Víet- nams eru nú í Kambódíu og m.a. af þeim sökum er ólíklegt að Víet- namar áreiti Kínverja að fyrra bragði, en Víetnamar hafa þó fjölgað lítils háttár í liði sínu við kínversku landamærin. Kínverjar eru taldir hafa um eitt hundrað þúsund hermenn v:ð landamærin, að því er heimildir í bandarísku leyniþjónustunni telja. Nokkur átök hafa orðið á landa- mærunum undanfarið og útvarpið í Hanoi skýrði frá því í dag að sex víetnamskir hermenn hefðu beðið bana, þegar kínverskt herlið rudd- ist í skyndíárás yfir landamærin í gær. Teng Hsiao-Ping aðst.oðarfor- sætisráðherra Kina sagði í dag í Tokyo að Kinverjar kynnu að grípa til aðgerða gegn Víetnam vegna afskipta Víetnama af mál- efnum Kambódíu. New Yurk. 7. febrúar. Reuter. AP. VERSTA veður vetrarins til þessa gekk yfir austurströnd liandaríkjanna í dag og kvöld. Mikill snjór féll í New York, Washington og öðrum borgum á þessu sva»ði og olli hann miklum samgöngutruflunum. Skólar hættu störfum fyrr en vanalega og búðum var lokað um miðjan dag. National-flugvöllur við Washington lokaðist vegna snjó- komu og öngþveiti var á ýmsum hraðbrautum við höfuðborgina og í nærliggjandi fylkjum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.