Morgunblaðið - 08.02.1979, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 08.02.1979, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1979 Flcstir hinna þolgóðu HK-pilta. Þad er ekki á þeim að sjá að annað eins þrekvirki og þeir hafa nýlokið sé aðeins fáar mínútur að haki þegar myndin var tekin. HK-strákarnir settu nýtt met 3. FLOKKUR HK, 16 og 17 ára piltar, settu um helgina nýtt Islandsmet í maraþonhand- bolta. Fór leikur A og B liðanna fram í Kársnesskóla og vann A-liðið B-liðið 600 — 529! Markhæsti leikmað- urinn í A-liðinu og raunar markhæsti leikmaður vallar- ins var Ómar Rafnsson sem skoraði 201 mark. Geri aðrir betur. HK-strákarnir léku handknattleik í 21 klukku- stund samfleytt. Aðeins var hvílt í 5 mínútur á klukku- stund hverri og þömbuðu piltarnir þá Tropikana eins og þeir ættu lífið að leysa. Engum varð meint af lotunni, þeir fengu ekki einu sinni blöðrur á fæturna. Var það mál manna, að þeir hefðu getað leikið mun lengur eí þeir hefðu ekki verið búnir að slá metið. Aheitaseðlar voru seldir fyrir keppnina og meðan á henni stóð og lætur nærri að HK hafi grætt 1,2 milljónir króna. Þetta er líklega yngsti hópurinn sem setur maraþonmet til þessa. Hingað til hafa meistaraflokk- ar félaganna staðið í þessu. ■ F I i Merk tillaga á Alþingi I Sfrumvarpinu kemur fram að enn eru fjölmargar íþróttavörur í Firmakeppni i handknattleik FIRMAKEPPNI UBK í handknattleik fer fram í fþróttahúsinu að Asgarði sunnudaginn 18. febrúar. Þátttöku ber að tilkynna Böðvari Benjamínssyni í síma 44461, eða Helgu Jóhannsdóttur í sama síma. Góð aðstaða er fyrir áhorfendur í fþróttahúsinu við Asgarð, og því geta stuðningsmenn fylgt liðum sfnum. Leikið verður á milli 3 og 9 á sunnudögum. Hreinn ekki á EM IIREINN Ilalldórsson kúluvarp- ari mun ekki taka þátt f Evrópu- meistaramótinu í frjálsum íþrótt- um innanhúss sem fram fer dag- ana 24.-25. febrúar næstkom- andi í Vínarborg í Austurríki. „Ég hef ákveðið að fara ekki til keppninnar þar sem ég tel að þangað hafi ég ekkert að sækja.“ — Flest alla ef ekki alla bestu kúluvarpara Evrópu mun vanta á mót þetta. Breski kúluvarparinn Capes verður á keppnisvcrðalagi í Bandarikjunum, Udo Baeyer verður sennilega ekki með, o.fl. mætti telja, sagði Hreinn í viðtali við Mbl. í gær. — bað sem skiptir mestu máli fyrir mig er að ná góðum árangri, það væri ekki skemmtilegt að ná sér í Evrópu- meistaratitil eða sæti á verð- launapallinum með slökum árangri. — Nú, ég æfi núa eingöngu með sumarið í huga og er í lítilli sem engri kastæfingu. Ég lyfti aðallega en hef kastað tvisvar til þrisvar í viku og það er ekki nægilegt. Það vantar meiri tilfinningu fyrir köstunum og meira öryggi í þau. Færi ég út að keppa, gæti ég allt eins gert öll köst mín ógild. — I sumar eru mörg stórmót framundan og að þeim stefni ég með allar æfingar í huga. Frjáls- íþróttasambandið fór þess á leit við mig að ég færi utan á EM, en ég gaf strax ákveðið nei, sagði Hreinn að lokum. Þrátt fyrir að Hreinn segist ekki vera í góðri kastæfingu gerði hann sér lítið fyrir og kastaði kúlunni 20,08 metra á kastmóti KR nú um síðustu helgi og er það besti árangur Hreins með leðurkúlu. Á sama móti setti Guðrún Ingólfs- dóttir nýtt íslenskt kvennamet í kúluvarpi innanhúss, kastaði 13,47 metra sem er rúmum hálfum öðrum metra betra en hún átti best. — br. S ' Éi' Ljósm. Mbl. — þr. 0 Hreinn Halldórsson gefur aðdáanda eiginhandarundirskrift á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum utanhúss sem fram fór í Prag síðastliðið sumar. Nú hefur Hreinn ákveðið að vera ekki með á innanhússmótinu síðar íþessum mánuði þrátt fyrir að Ijóst er, að þar ætti hann mjög góða möguleika á verðlaunasæti. Hoddle skoraði ENSKA landsliðið skipað leik- mönnum 21 árs og yngri sigraði jafnaldra sína frá Wales í fyrra- kvöld. Fór leikurinn fram í úr- hcllisdembu á leikvelli 3. deildar liðs Swansea og var leikvöllurinn líkari fcni en knattspyrnuvelli. Eina mark leiksins skoraði Tott- enham-leikmaðurinn Glenn Hoddle. Voru allir þeirri stundu fegnastir þegar dómarinn flaut- aði til leiksloka. Flytja tillögu um lækkun tolla og afnáms vörugjalda á íþróttavörum MJÖG merkileg tillaga til þings- ályktunar liggur nú fyrir alþingi um lækkun og niðurfellingu opin- berra gjalda á íþróttavörum. Flutningsmenn tillögunnar eru úr öllum stjórnmálaflokkum og eru þeir Ellcrt B. Schram, Einar Ágústsson, Árni Gunnarsson og Lúðvík Jósepsson. bings- ályktunartillagan felur í sér að gera breytingar á tollskrá, þar sem tollar á íþróttavörum eru samræmdir og lækkaðir og fellt niður vörugjald á íþróttavörum. í greinargerðinni sem fylgir eru 50% tolli. Auk þess er mikið ósamræmi á milli einstakra toll- flokka á tollum af hliðstæðum vörum. Þannig má nefna að skiðaskór eru í 25% tolli, en skíði og skíðastafir í 50% tolli. Slíkt ósamræmi þarf að leiðrétta. Hugmynd flutningsmanna er sú að allar fþróttavörur, sem tollur er greiddur af, beri sama toll, 10—12%. Þá þurfi skófatn- aður, sem notaður er við innan- hússíþróttir að fá sérstök toll- númer f stað þess að flokkast undir þau almennu tollnúmer þar sem er almennur skófatnaður. Samkvæmt lauslegri könnun sem gerð hefur verið á aðflutningsgjöldum af íþrótta- vörum á árinu 1977 námu þau samtals 116.409.800 kr. og á árinu 1978 til 1. sept. námu þessi gjöld samtals 96.863.500 kr. Eru þá ekki meðtalin gjöld af íþrótta- skóm og íþróttafatnaði sem ekki hefur verið mögulegt að sundur- greina frá öðrum skóm og almennum fatnaði. Ljóst er að um allverulega upp- hæð er að ræða sem þó skiptir ekki sköpum fyrir ríkissjóð. Nokkuð öruggt má teljast að þar sem tollar verða alfarið felldir niður myndi innflutningur stórlega aukast. Þess vegna er ólíklegt að tap ríkisins verði nokkuð, þegar upp er staðið. Víst er að breyting í þessa átt yrði íþróttafélögum að miklu gagni, þar sem þau verða flest að kaupa allan íþróttabúnað fyrir keppnisfólk sitt. Tollar og aðflutnings- gjöld úr hófi fram Til skamms tíma hafa tollar og aðflutningsgjöld af íþróttavörum verið úr hófi fram. Þessar vörur hafa verið skoðaðar sem lúxusvör- ur og hafa verið tollaðar eftir því. Það gefur auga leið að það er fráleitt að ríkissjóður líti á inn- flutning slíkra vara sem fjár- öflunarleið, um leið og stjórnvöld eiga að sjálfsögðu að stuðla að og styrkja hvers konar líkamsrækt í landinu. Æskulýður landsins er einn stærsti notendahópur íþróttavara og því stærsti toílgreiðsluhópur- inn, þetta eru oft efnaminnstu þegnarnir og hafa því minnsta getu til að greiða slík gjöld. Þá kemur þetta þungt niður á barna- fjölskyldum sem hafa litlu úr að spila en reyna þó að afla ýmiss konar íþróttatækja fyrir börn sín af litlum efnum. Iþróttir eru ekki einkamál keppnismanna, heldur eftirlæti allra landsmanna með einum eða öðrum hætti. Iþróttir njóta almennra vinsælda hér á landi jafnt ungra sem gamalla. Innan vébanda ÍSÍ eru skráðir nær 70 þúsund félagar, sem eru fyrst og fremst fólk sem stundar keppnis- íþróttir á vegum einstakra íþrótta- félaga, en þessum hópi til viðbótar stundar gífurlegur fjöldi almenningsíþróttir sér til heilsu- bótar og skemmtunar. Sundáhugi íslendinga hefur lengi verið rómaður og viðurkenndur, og sókn fólks í skíðaíþróttina hefur vaxið stórlega með bættri aðstöðu. Þá hafa margar fleiri greinar íþrótta eflst mjög á seinni árum og ber að fagna því. — þr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.