Morgunblaðið - 08.02.1979, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.02.1979, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1979 Ekkert Nord- urlandaflug í tvo daga EKKI verður flogið innaniands í dag til Vestfjarða og Hornafjarð- ar og frá og með kl. 19 í kvöld og þar til kl. 7 á laugardagsmorgun liggur millijandaflug á leiðum Flugfélags íslands niðri vegna verkfallsaðgerða flugmanna. Á morgun, fimmtudag. verður ekki flogið til Norðfjarðar, Egilsstaða né Vestmannaeyja og á föstudag ekki til Sauðárkróks, Akureyrar eða Húsavíkur og iiggur innanlandsflug si'ðan niðri frá föstudagskvöldi til mánu- dagsmorguns. Ekki ráðgerðu flugmenn að breyta þessari áætlun sinni. Nauðgunarkæra dregin til baka STÚLKAN, sem nýlega kærði til Rannsóknarlögreglu ríkisins napðgun, sem hún sagði að átt hafi sér stað í veitingastaðnum Klúbbm um, hefur dregið kæruna til baka. I fyrstu bar stúlkan því við að óþekkt- ur maður hefði dregið sig inn í kyndiklefa í kjallaranum og nauðgað sér. Síðan breytti hún framburði sínum og kvaðst hafa þekkt manninn. Hefðu athafnirnar í kyndi- klefanum farið fram með hennar vilja. Aðeins 50 tonn af fiski til Þórshafnar á árinu: Dagný landar ekki á Þórs- höfn eins og lofað var — segja heimamenn og hafa sent ráðunegtinu kvörtunarbréf Þórshöfn, 7. febrúar. FREMUR lítil atvinna hefur verið hér síðan um áramót. Tveir bátar eru á netum og einn á línu en bæði hafa gæftir verið stirðar og afli mjög lítill þegar gefið hefur. Lítill fiskur hcfur því borizt á land það sem af er árinu eða rúm 50 tonn það sem af er hjá þessum þremur bátum. Eins og kunnugt er af fréttum var 8. nóv. gerður samningur milli Togskips hf í Siglufirði og sjávarútvegsráðuneytisins. Með þeim samningi fær Dagný SI 70 þorskveiðileyfi, en það hafði hún misst vegna þess að Togskip hf keypti nýjan skuttogara, með því skilyrði að hún landi afla sínum á Þórshöfn á tímabilinu nóvember—marz næstu tvö árin. Útgerð Dagnýjar hefur staðið illa við þennan samning og ríkir hér mikil óánægja vegna þess. Dagný hefur á þessu þriggja mánaða tímabili aðeins landað hér tvisvar og í annað skiptið aðeins hluta af afla úr veiðiferð. Fjórum sinnum hefur hún landað afla sínum annars staðar, þar af einu sinni í Reykjavík. Ástæður fyrir þessum löndun- um annars staðar eru þær, að eitthvað hefur bilað þegar veiði- ferð er að ljúka og komið að því að sigla til Þórshafnar. Bilanir á skuttogara eru ekki óþekkt fyrirbæri hér eins og kunnugt er en þó fer ekki hjá því að ýmsar grunsemdir vakni í sambandi við þessar bilanir Dagnýjar. I samningi þeim, sem getið var um hér á undan, er kveðið svo á að hafi Dagný ekki tök á að landa á Þórshöfn, hafi Togskip hf heimild til þess að láta hitt skip sitt, Sigurey SI 71, landa hér í staðinn. Það skip hefur ekki sést hér. Stjórn Hraðfrystistöðvarinn- ar á Þórshöfn sendi nýlega kvörtun um þetta til sjávarút- vegsráðuneytisins en svörin voru þau að báðum skipunum var leyft að selja afla sinn í Englandi, og eru þau nú á leið þangað. Við höfum í sjálfu sér ekkert á móti því að Dagný hafi þorskveiðileyfi en sé það veitt á þeim forsendum að hún eigi að landa hér og því svo slegið upp að með því sé verið að bjarga atvinnumálum okkar, þarf það ekki að vera í gildi lengur, a.m.k. ekki ef þessi vinnubrögð verða notuð. —Ó.Þ. 1 4 f I i . '^»2 1 ■ !>> I % n 'WfrWS Jf ' ~~ r tem t m | Frá fundi hagsmunaaðila í sjávarútvegi með Kjartani Jóhannssyni sjávarútvegsráðherra í gærmorgun. JjL f Ræða um friðanir á þorskstofninum A NÆSTIJNNI hyggst sjávarút- vegsráðherra halda nokkra fundi með hagsmunaaðilum í sjávarút- vegi um mótun þorskveiði- stefnunnar. Fyrsti fundurinn var haidinn í ga‘r og var þar rætt vítt og breitt um skýrslu Ilafrann- sóknastofnunarinnar. en þar er lagt til að þorskafli fari ekki yfir 250 þúsund tonn á árinu. Sam- kvæmt upplýsingum, sem Mbl. hefur aflað sér. heíur enn engin afstaða verið tekin til þess hvort farið verði að ráðum fiski- fræðinga um 250 þúsund tonna hámarksveiði. en það magn er um Leiðrétt varð létt SLÆM villa kom fyrir í fyrirsögn á viðtali Mbl. við Vilhjálm Jónsson forstjóra Olíufélagsins hf á bak- síðunni í gær. Orðið leiðrétt varð að létt og gerði fyrirsögnina illskiljanlega. Rétta fyrirsögnin var þessi: „Olíusala stöðvast — ef verðlagning olíuvara verður ekki leiðrétt nú þegar.“ 80 þúsund tonnum minna en veiddist á síðasta ári. Ýmsum þykir ekki fram- kvæmanlegt þjóðhagslega að minnka aflann í einu stökki niður í 250 þúsund tonn og réttara sé að Óli Óskars RE 175 vœntanlegur til kmdsins i dag GAMLI síðutogarinn Þormóður goði er væntanlegur til landsins í dag, en skipið hefur nú fengið nafnið Óli Óskars og einkennis- stafina RE 175. Þormóður goði var upphaflega smíðaður í V-Þýzkalandi 1958, en síðustu mánuði hefur skipið verið í yfirbyggingu í Finnlandi og margvíslegar breytingar verið gerðar á skipinu. Eigandi skips- ins er Ólafur Óskarsson útgerð- armaður í Reykjavík. Skipið er 785 brúttólestir að stærð og heldur væntanlega fljótlega á loðnuveiðar. Reyndar átti skip- ið að koma fyrir áramót úr breytingunni, en ýmislegt hefur orðið til að tefja komu skipsins. byggja hrygningarstofninn hægara upp og fara einhvern milliveg í friðunum. Morgunblaðið hefur heyrt töluna 280 þúsund tonn nefnda sem hámarksveiði í ár, en á þingi Fiskifélagsins síðastliðið haust var rætt um það hámark fyrir 1979. Á fundinum í gær lýstu menn viðhorfum sínum til friðunaraðgerða og rætt var um á hvern hátt heppilegast væri að standa að friðunum. • • Okumaður gefi sig fram MIÐVIKUDAGINN 31. janúar klukkan 14.15 varð smávægilegur árekstur á Hafnarfjarðarvegi í Engidal. Þá lenti ljósblá station- bifreið í árekstri við gulan Volvo, G-10744. Báðar bifreiðarnar stopp- uðu og þegar bílstjórarnir sáu engar skemmdir á bílunum við fyrstu athugun skildu leiðir þeirra. Síðar komu í ljós smáskemmdir á Volvo-bílnum og er ökumaður ljós- bláa bílsins beðinn að gefa sig fram við Rannsóknarlögregluna í Hafnarfirði. Loðnunót kostar það sama og ein sundlaug Akranesi, 7. febrúar. TOGARARNIR Krossvík AK 300 og Ilaraldur Böðvarsson AK 12 komu af veiðum í gær og fyrra- dag með 140 lesta afla hvort skip. Bæði skipin voru með biandaðan fisk og er þorskurinn vænni en áður. Línubátarnir hafa fengið frá 4 til 6 lestum í veiðiferð að undan- förnu. Nótaskipið Árni Sigurður kom hingað í dag af Austfjarða- miðum til þess að skipta um nót. Hann var með um 150 lestir af loðnu og er það fyrsta loðnan, sem berst hingað á yfirstandandi ver- tíð. Þess má geta, að nú kostar loðnunót 50—60 milljónir eftir stærð, eða álíka mikið og ein sundlaug. — Júlíus. 4 íslendingar í boði Framvarðasveitanna í Austur-Berlín FJÓRIR íslendingar fóru í síðustu viku á ráðstefnu Heims- friðarráðsins í Austur-Berlín, en ráðinu er stjórnað af kpmmúnistasamtökum og hafa Rússar algjöra forystu þar. Isléndingarnir, sem fóru í boði Ileimsfriðarráðsins, eru Árni Bergmann ritstjóri Þjóðvilj- ans. dr. Ingimar Jónsson íor- maður íslenzku friðardeildar- innar, Guðsteinn Þengilsson læknir og Sveinn Jóhannsson. Heimsfriðarráðinu, eða Fram- varðasveitinni eins og það heit- ir, er stjórnað og kostað af samtökum kommúnista og er það ein helzta og þekktasta framvarðasveit þeirra. Hcfur það mikið verið notað til þess að vinna fólk með aðrar stjórn- málaskoðanir á band þcirra mála sem ráðið lcggur áherzlu á. í samtali við Morgunblaðið í gær sagði dr. Ingimar, að þetta hefði verið mikil ráðstefna með um 500 fulltrúum frá 92 löndum. Hann kvað austur-þýzku friðar- nefndina hafa staðið fyrir mót- inu og aðalmálin hefðu verið afvopnun og slökun. „En það var reyndar farið út í alla sálma,“ sagði Ingimar, „og m.a. var lýst yfir stuðningi við þróunina í Iran, Kampucheu, Víetnam, Suður-Afríku og Nicaragua. Einnig var fjallað um frið og réttlæti í Austurlöndum nær og lýst yfir almennri ánægju með þróun mála þar.“ Dr. Ingimar sagði, að ekki hefði verið fjallað sérstaklega um ísland á ráðstefnunni, en þar hefði verið góð stemmning, enda ráðstefnan mjög glæsileg og vel að henni staðið. Aðspurður um kostnað við að sækja slíka ráðstefnu sagði dr. Ingimar að Heimsfriðarráðið hefði kostað ferð Islendinganna að mestu og félli það undir það að hjálpa þeim sem væru minni máttar. Tillaga um nýja ráðuneytisdeÚd MEÐAL tillagna ráðherra- nefndarinnar til Ólafs Jóhannes- sonar forsætisráðherra, sem hann er nú að vinna úr frumvarp um ráðstafanir í efnahagsmálum, er tillaga um að sett verði á stofn ný deild innan félagsmálaráðuneyt- isins, verkalýðsmáladeild. Deild þessi á að verða tengiliður ráðuneytisins við launþega og verkalýðshreyfinguna og annast öll viðskipti við hana. Upphaf þessarar tillögu má rekja til Alþýðuflokksmanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.