Morgunblaðið - 08.02.1979, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 08.02.1979, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1979 7 Kommar sýna klærnar í ASÍ Menn Þóttust sjá pað fyrir, að Alþýðusamband íslands mengaðist illi- lega, ef kommúnisti yrði forseti Þess, Hinn stutti ferill Snorra Jónssonar í Þeirri trúnaðarstöðu hef- ur sannað Það ápreifan- lega að sá ótti var ekki ástæðulaus. Síðasta dæmi Þessa er kosning fulltrúa ASÍ I stjórn Atvinnuleysistrygginga- sjóös. Komið höfðu boð fré AlÞýðubandalaginu um að fella Hermann Guðmundsson, sem lengi hefur setið í stjórn sjóðs- ins við góðan oröstír, en velja Guðjón Jónsson < hans stað. Þetta upphlaup strand- aði é Því, aö Einar Ögmundsson, sem sæti é í stjórn ASÍ, vildi ekki hvika fré stuðningi sínum við Hermann, svo að hann hélt sæti sínu í stjórn Atvinnuleysis- tryggingasjóðsins. Á hinn bóginn tókst Snorra Jónssyni að koma fram hefndum é flokks- bróöur sínum, Einari, með Því að fé Guöjón Jónsson kosinn vara- mann Hermanns í hans stað. Þessi vinnubrögð eru ekkert einsdæmi hjé kommúnistum. Þeir hika ekki við að ýta gömlum baréttufélögum sínum út í kuldann, ef Þeir makka ekki rétt og fara eftir sannfæringu sinni í stað Þess að taka við línunni að ofan. Harölínu- maöurinn og ráöherrann Oénægjan og upp- lausnin hjé stuðnings- mönnum ríkisstjórnar- innar fer eins og faraldur um landið. Harðlínu- maðurinn Loftur Guttormsson, lektor við Kennarahéskólann og bróðir iðnaðarréðherra, er einn Þeirra, sem er haldinn Þessari umgangspest og getur ekki lengur oröa bundizt. Nýlega lét hann hafa eftir sér í Þjóðviljanum, að Kennarahéskólanum „væri í raun gert ókleift að rækja hlutverk sitt sómasamlega, hvað Þé heldur aö fylgja fram Þeim breytingum é innri starfshéttum, sem hafnar hefðu veríð é sl. éri. Það væri t.d. hastarlegt og talandi tékn um élit ríkis- valdsins é Þörfum héskóla af Þessu tagi — með um 400 nemendur innanborðs — að hann skyldi skv. nýsettum fjér- lögum sviptur öðrum af tveimur bókavörðum sín- um. Þessi ékvörðun, sem staðfestist í verki um sl. mánaðamót, hefði lamað starfsemi skólans og vakið furðu og réttléta reiði jafnt kennara sem nemenda. Kennarar hefðu samÞykkt é fundi sínum harðorð mótmæli, sem voru boðsend menntamélaréðherra með kröfu um tafarlausa úrlausn Þessa méls.“ ’ Kennarar og nemendur Kennaraháskólans eru ekki Þeir einu, sem orðið hafa fyrir vonbrigðum með ríkisstjórn skatt- heimtunnar. Vitaskuld er Það eðlilegt, að jafnvel harðlínumenn komi Því ekki heim og saman, að fjérframlög, sem nytsam- lega er varið skuli nær alls staðar skorin við nögl, samtímis Því sem skattheimtan fer fram úr Því sem éður hefur Þekkzt. Vonbrigði Lofts Guttormssonar eru sér. Þess vegna varð honum núna fótaskortur é lín- unni. En hann jafnar sig fljótlega og nær jafn- væginu aftur. Þé mun línudansinn verða magnaðri en nokkru sinni fyrr til Þess að víxlsporið litla gleymist sem fyrst. Augun beinast til Ragnhildar Þaö er margt, sem amar Þjóöviljamenn Þessa dagana Þeir fé t.d. engan botn í Það, hvers vegna í ósköpunum lektor eins og Loftur Guttormsson er að agnú- ast út í menntaméia- réðherra, Þótt hann hafi staðið sig illa. Þegar veröld fléa sýnir sig“ flýja sumir é néðir drauma- heimsins og svo fer Þjóð- viljamönnum. Þannig Þykir Þeim gaman aö ímynda sér, að pað sé Ragnhildur Helgadóttir en ekki Ragnar Arnalds, sem fer með menntamél Þjóðarinnar: „En hitt verður að ételja aö lektorar Kennara- héskólans til hægri og vinstri skuli innræta verðandi kennurum Þé skoöun, að í hvert skipti sem sést til sólar skuli peir reka blessuð börnin út í mótmælagöngur og herném réðuneyta. Þaö gæti komið Ragnhildi í koll pegar hún verður tekin við menntaméla- réðuneytinu innan tíðar.“ „Innan tíðar“ skrifar ritstjóri Þjóðviljans, — „mæddur í raunum sín- um“. Ekki getur honum Þótt Þetta skemmtilegur draumur — líkastur martröð — sem brýzt upp úr djúpi sálarinnar. Nema Þetta sé „ósjélf- réð skrift", sem lýsir inn í framtíðina og lætur gott é vita. 100 ár liðin frá fæðingu Benedikts Björnssonar skólastjóra á Húsavík Húsavík, 7. jan. í TILEFNI þess að í dag, 8. febrúar, eru liðin 100 ár frá fæðingu Benedikts heitins Björnssonar skólastjóra á Húsavík minnist Gagn- fræðaskólinn hans á ýmsan hátt. Nafn Benedikts mun lengi verða tengt fræðslu- og skólamálum Húsavíkur. Árið 1906 fluttist Benedikt til Húsavíkur og stofnaði þá unglingaskóla, sem ávallt var við nafn hans kenndur og starfaði þar þar til Gagnfræðaskóli Húsa- víkur var stofnaður. Benedikt var sérstakur sögu- og íslenzkukennari og íslenzkunemendur hans þóttu bera af í móðurmáls- kunnáttu þá þeir komu í æðri skóla. Hann var eftir- sóttur fyrirlesari og ræðu- maður og fékkst við smá- sagnagerð og orti ljóð. Smásögurnar voru gefnar út undir dulnefninu „Björn austræni“. Einnig samdi hann kennslubækur í mál- fræði og þjóðfélagsfræði. Auk skólastjórnar tók Benedikt mikinn þátt í félagsmálum og sat í hreppsnefnd Húsavíkur í aldarfjórðung og var odd- viti Húsavíkur í 16 ár. í húslóðarmálum Húsavíkur mótaði Benedikt þá heilla- ríku stefnu að allar lóðir hreppsins voru leigðar með erfðafestu en ekki seldar svo að lóðabrask hefur aldrei átt sér stað á Húsa- vík. Meðal annarra hátíða- halda í tilefni afmælisins sýnir Gagnfræðaskólinn hið rammíslenzka leikrit Nýjársnóttina eftir Indriða Einarsson. Benedikt andaðist 27. júlí 1941. Eftir lát hans stofn- uðu nokkrir nemendur hans sjóð til minningar um hann og ber sjóðurinn nafn hans. Árlega er veitt úr þessum sjóði til að verðlauna þá nemendur við Gagnfræðaskóla Húsa- víkur, sem skara framúr í meðferð móðurmálsins og þekkingu í sögu, eftirlætis- kennslugreinum Benedikts. Börn og tengdabörn Benedikts hafa í dag fært sjóðnum veglega gjöf í í dag, 8. febrúar eru hundrað ár Iiðin frá fæðingu Benedikts Björnssonar rithöfundar, og skólastjóra á Húsavík. Þessa merka manns verður minnzt af Kristjáni Karlssyni í Les- bók Morgunhlaðsins innan skamms. minningu um foreldra sína, Benedikt og Margréti Ásmundsdóttur, og þrjú börn þeirra, sem létust um aldur fram. 8. febrúar hefur lengi verið sérstakur minningardagur í hugum Húsvíkinga og verður von- andi sem lengst. — Fréttaritari. ÞÚ AUGLÝSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUGLÝSIR í MORGUNBLAÐINU Völundar- innihurðir eru spónlagöar huröir meö eik, gullálmi, furu, oregonpine, frönskum álmi, hnotu, teak, wenge, silkivið o.fl. viöartegundum, eöa óspónlagöar tilbúnar undir málningu. 75 ára reynsla tryggir gæöin. Mjög hagstætt verö. Timburverzlunin Vólundur hf. KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244 Stjórnunarfélag íslands Ék. Tollskjöl og verðútreikningar Dagana 14., 15. og 16. febrúar n.k. gengst Stjórn- unarfélag íslands fyrir námskeiöi um tollskjöl og verðútreikninga. Námskeiðið veröur haldið að Hótel Esju og stendur yfir kl. 15—19 dag hvern. Námskeiöið er einkum ætlaö þeim sem stunda innflutning í smáum stíl og iönrekendum, sem ekki hafa mikinn innflutning. Þá er námskeiöiö kjöriö fyrir þá sem hyggjast starfa viö tollskýrslu- gerö og veröútreikninga. Fariö veröur í helstu skjöl og eyðublöð viö tollafgreiöslu, lög og reglugerðir þar aö lútandi, grundvallaratriöi tollflokkunar, veröútreikning og raunhæf verk- efni. Leiðbeinandi er Karl Garðarsson viðskiptafræðing- ur. Þátttaka tilkynnist til skrifstofu Stjórnunarfélagsins aö Skipholti 37, sími 82930. 1 öllum lengdum Þakjárnið fæst í öllum lengdum upp að 10 metrum. Einnig í „standard" lengdum frá 6-13 fet. Höfum einnig fyrirliggjandi: KJÖLJÁRN ÞAKPAPPA RENNUBÖND ÞAKSAUM BJB. fyrir þá sem byggja BYGGINGAVÖRUR HE Suðurlandsbraut 4. Sími 33331. (H. Ben-húsið).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.