Morgunblaðið - 08.02.1979, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1979
17
Dansinn
í Hruna
Leiðrétting
á leikhúsfrétt
Ágúst Kvaran
í „Dansinn í
Hruna“.
U.M.F. Hrunamanna frum-
sýndi leikritið Dansinn i Hruna
eftir Indriða Einarsson að Flúð-
um 9. des. s.l. Ungmennafélagið
hefir starfað af þrótti í 70 ár og á
að baki merkan feril í íþrótta- og
æskulýðsmálum í sínu héraði. Þá
hefir leiklistin einnig skipað þar
háan sess, því leikið hefir verið
nær óslitið frá stofnun félagsins
árið 1908 og var þetta 70 ára
afmælissýning.
í Mbl. 20. des. s.l. ritar Sig.
Sigm. um sýningií þessa sem
mun hafa tekist vel og verið þeim
til sóma er þar að unnu, ekki sízt
leikstjóranum Jóni Sigurbjörns-
syni. í umsögn sinni um leikinn
ritar S.S. m.a. „... Dansinn í
Hruna hefur aðeins tvisvar ver-
ið settur á svið áður, þ.e. hjá
Leikfélagi Reykjavíkur í Iðnó
árin 1925 og 1942. Þetta er ekki
rétt.
Leikfélag Akureyrar frum-
sýndi Dansinn í Hruna þ. 16. jan.
1937. Leikstjóri var Ágúst Kvar-
an, leiktjöld málaði Vigfús Þ.
Jónsson, dansana æfði Hermann
Stefánsson, en Róbert Abraham
sá um forleik og undirleik. Leik-
sýning þessi vakti mikla athygli
hér á Akureyri og skal hér j?ripið
niður í tvo leikdóma. I vbl.
Islending þ. 22. jan. ritar „Civis"
svo m.a.
„Frumsýning L.A. á hinu stór-
brotna leikriti Indriða Einars-
sonar „Dansinn í Hruna" heppn-
aðist tvímælalaut prýðilega, og á
Leikfélagið heiður og hrós skilið
fyrir að hafa ráðist í að sýna
þetta tilkomumikla leikrit og þó
sérstaklega leikstjórinn fyrir það
þrekvirki er hann hefir leyst af
höndum. Leikritið, sem ósjálfrátt
minnir á „Faust", er ofið upp úr
rammíslenzkri þjóðtrú og
hindurvitnum... Ágúst Kvaran
leikur aðalhlutverkið Ógautan,
sem er skrattinn sjálfur í manns-
líki og er meðferð hans á hlut-
verkinu svo afburðagóð og svip-
brigðin svo meistaraleg, að
manni finnst stundum hvorki
vanta horn eða hófa.“ Um aðra
leikendur fór „Civis“ mjög lof-
samlegum orðum, þau Guðrúnu
Þorsteinsdóttur (Sólveigu),
Svövu Jónsdóttur (Unu), Elsu
Friðfinns (Fríði), Ingibjörgu
Jónsdóttur (Hlaðgerði), Gunnar
Magnússon og Sigvalda Sig-
valdason sem léku bræðurna í
Hruna, Stefán Jónsson
(biskupinn)... „Þá má ekki
gleyma að geta um Gottskálk
gamla á Berghyl, þennan gamla
forherta galdrakarl og illmenni,
sem selur skrattanum hiklaust
sálu sína... Björn Sigmundsson
leikur karlinn afburðavel. ..
Leiksýningin er merkilegur
viðburður í sögu leiklistarinnar í
höfuðstað Norðurlands...“
Hinn ágæti leikari og tón-
listarmaður Sveinn Bjarman rit-
aði í vbl. ísl. 12. febr.: „... en það
er umfram allt heildarsvipurinn
yfir sýningu þessari, sem ég tel
með þeim ágætum, að dæmalaust
sé hér, og sennilega dæmafátt
hér á landi. ... leiksýning þessi
eykur mjög hróður Ágústar
Kvaran, ekki einu sinni sem
leikara heldur og miklu fremur
sem leikstjóra og leiðbeinanda.
Leikur hans er ávalt snild, en
með leikstjórn tel ég honum hafa
bezt tekist nú...“
Ætíð skal hafa það sem sann-
ara reynist og mun S.S. hafa
verið alls ókunnugt um sýningu
þessa, enda hvorki blöð né frétta-
menn þá á hverju strái eins og
nú.
Með þökkum fyrir birtinguna.
Haraldur Sigurðsson.
Siguróur Hansson bílamálari:
Hvert stefnir
í rekstri bíla-
verkstæða?
1. Hvaða hagsmunum þjónar
stefna verðlagsyfirvalda í mál-
efnum er varða útsölutaxta
bílaverkstæða?
2) Er það í þágu ríkissjóðs eða
hins almenna bílaeiganda að
ekki er hægt að reka hér bíla-
verkstæði með viðunandi
hætti? Stefnan virðist vera sú
að loka eigi þeim verkstæðum
sem hafa skapað atvinnutæki-
færi í stærri einingum þar sem
nær engar líkur eru á að svikið
sé undan skatti, eða á svo
nefndur skúrabisniss að verða
hér allsráðandi þar sem bóka
má að ríkissjóður verður fyrir
verulegau tekjutapi.
3) Er það pyngju bíleiganda vegna
eða öryggis sem honum er
stefnt óbeint inn á þessi skúra-
verkstæði þar sem vinnan er
unnin við mjög svo vafasöm
skilyrði oftast af einhverjum
fúskurum?
4) Hvaða tilgangi þjónar það að
leifa sölu á bílum til Péturs og
Páls samanber hvað trygging-
arfélögin gera við bíla sem
orðið hafa oft á tíðum fyrir
stórkostlegu tjóni, þessum
hræjum, er hverjum sem er
selt, ég fyllyrði það að ekki er
það til að auka umferðaröryggi
þegar þessum beyglum er hrófl-
að saman hingað og þangað
oftast í skúrum. Hvernig kann-
ar bifreiðaeftirlitið þetta, hvað
með öryggisútbúnað t.d. hjóla-
búnað, stýrisbúnað svo eitthvað
sé nefnt?
5) Er það í þágu bíleigandans að
álagningu er haldið svo niðri að
verkstæðum er fyrirmunað að
fjárfesta í skipulagi og tækni
sem eykur afköst, tæknibúnaði
sem eykur öryggi og afköst í
framkvæmd sem og bíleigand-
ans í umferðinni? Er það í þágu
bíleigandans að hann verður
fyrir mun meiri bílamissi en
hann þyrfti ef þessi mál væru í
viðunandi horfi? Tæknin er til
en það er ekki hægt að fjárfesta
í henni nema í litlum mæli.
fi) Ég tel að málefni þessi séú
orðin slíkur frumskógur að
taka verður öll þessi mál til
gagnlegrar skoðunar svo að
þoka megi þeim í það horf að
engum verði til skaða, ekki
bíleigendum, ekki verkstæðis-
eigendum né ríkissjóði. Ég
myndi leggja til að verð-
lagsnefnd myndi viðurkenna í
raun álagningarþörf vel rekins
verkstæðis, en ég vil taka fram
að, hún er mismunandi t.d.
bílamlun þarf mun meira hús-
pláss heldur en t.d. viðgerðar-
verkstæði. Og löggilda ætti öll
verkstæði að fullnægðum skil-
yrðum samkvæmt reglugerð og
gera ætti kröfur um einhverja
rekstrarþekkingu.
Skrifað að gefnu tilefni þar sem
hagsmunasamtök bílgreinarinnar
virðast gjörsamlega hafa misst
málið.
Með fyrirfram þökk um birt-
ingu.
Sigurður Hannesson
bflamálari.
M2 MS MS
3EIN sw
MS p
AUGLÝSINGA- TEIKNISTOFA
MYNDAMOTA Ad<ilstraiti 6 simi 25810
Rafveitu Siglu-
fjarðar verði
greiddur rétt-
mætur hluti
verðjöfnunar-
gjalds
MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi ályktun
bæjarstjórnar Siglufjarðar um
verðjöfnunargjald á rafmagni:
„Bæjarstjórn Siglufjarðar
samþykkir að krefjast þess að
sanngjarn og réttmætur hluti
verðjöfnunargjalds verði
greiddur Rafveitu Siglufjarðar.
Kröfur sínar byggir bæjar-
stjórn á því, að Rafveita Siglu-
fjarðar hefur nýlokið við
viðbótarvirkjun Neðri-Skeiðs-
foss, og því þungar greiðslu-
byrðar vegna afborgunar og
vaxta gengistryggðra lána og
vísitölubundins láns fyrstu
árin.
Verði ekki fallist á þessa
kröfu bæjarstjórnar, sér bæjar-
stjórn Siglufjarðar engar fram-
bærilegar forsendur til að
krefja Rafveitu Siglufjarðar
um verðjöfnunargjald með til-
liti til fjárhagsstöðu Rafveit-
unnar. Samþykkt að fela raf-
veitustjóra og rafveitunefnd að
vinna að framgangi þessarar
samþykktar við stjórnvöld."
sparíö
107.000
vegna hagstæöra samninga getum viö boöiö
takmarkaö magn á kr. 269.000- en rétt verö fyrii
lækkun átti aö vera kr. 376.000.-
Electrolux heimilistæki fást á þessum útsölustööum:
Akranes: Þóröur Hjálmsson,
Borgarnes: Kf. Borgfiröinga,
Patreksfj.: Baldvin Kristjánsson,
ísafjöröur: Straumur hf.,
Bolungarvík: Jón Fr. Einarsson,
Blönduós: Kf. Húnvetninga,
Sauöárkrókur: Hegri sf.,
Siglufjöröur: Gestur Fanndal,
Ólafsfjöröur: Raftækjavinnustofan sf.,
Akurevri: K.E.A..
Húsavík: Grímur & Árni,
Vopnafjöröur: Kf. Vopnfiröinga,
Egilsstaöir: K.H.B.,
Seyöisfjöröur: Stálbúöin,
Eskifjöröur: Pöntunarf. Eskfiröinga,
Neskaupsstaöur: Kr. Lundberg,
Höfn: K.A.S.K.,
Þykkvibær: Fr. Friöriksson,
Vestmanneyjar: Kjarni sf.,
Keflavík: Stapafell hf..
Vörumarkaðurinn hf.
Ármúla 1 A, sími 86117
Electrolux
kæliskápur
Hvítur kælískápur RP1180 335 lítr. með 24 lítr.
frystihólfi. H: 1550 mm. B: 595 mm. D: 595 mm.