Morgunblaðið - 08.02.1979, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 08.02.1979, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1979 41 fclk í fréttum + HVERN myndi hafa órað fyrir því fyrir svo sem 10 árum, að sá hinn sami ætti eftir að heyra dösum saman stöðugan frétta- flutning af ferðum eins af ráða- mönnum Rauða Kína um hið dæmigcrða frjálshyggjuland, Bandaríkin, og heyra um leið hverju sinni meira og minna harðar kínverskar ásakanir á hendur Sovétríkjunum og ráða- mönnum í Kremí. — En nóg um það. — Þessi mynd er tekin er varaforsætisráðherra Kína, Teng Hsiao-ping, kom til flugvallarins í Washington. — Hann stendur í dyrum flugvélar sinnar, klapp- andi lof í lófa — sem virðist alfarið kínverskur siður er láta skal í ljós virðingu, vináttu eða gleði — eða allt í senn. + ÞESSI mynd er hvergi nærri nógu skýr til þess að í einum hvelli verði fullyrt, að hér sé ekki á ferðinni á skíðum sjálfur heimsmeistarinn Stenmark hinn sænski. — Þessi náungi og faðir barnanna tveggja sem með honum eru á myndinni er Huss- ein Jórdaníukonungur með prins- essurnar, dætur sínar, í skíðabæ einum í austurrísku Ölpunum. Prinsessurnar heita Sumaja (til v.) og Rahma. + FORVERI MANNSINS. í Bandaríkjunum hefur hópur vísinda- manna unnið að því að rannsaka forvera mannsins — bæta þar enn einum þætti í þróunarsögu hans. Þeir telja sig hafa fundið enn eitt þrepið „afar apr apr-manninn“. A myndinni er einn þessara vísindamanna með höfuðkúpu, sem þeir hafa gert af þessum forvera okkar. Vísindamaðurinn dr. Donald Johanson og félagar hans telja „afar apr apr-manninn“ hafa verið uppi fyrir fjórum milljónum ára. Hann hafi gengið uppréttur sem ég og þú, en höfuðkúpan og andlit hafa verið nánast hið sama og apans — eins og það er og hefur verið. Verður Hess sleppt? + FYRIR skömmu var sagt frá því í þýzku vikublaði, að Helmut Schmidt væri farinn að vinna að því að fá lausan hinn aldurhnigna striðsglæpamann Rudolf Hess, sem einn situr eftir í Spandaufangelsi. — Sagði þetta vikubiað „Bunte Illustrierte* að kanslarinn hefði hug á því að fá hann leystan úr haldi gegn því að V-Þjóðverjar sleppi topp-njósnaranum Giinther Guillaume — manninum sem varð til þess að Willy Brandt varð að leggja niður kanslaraembættið. — En þetta mál, að fá Hess á þennan hátt leystan úr Spandaufangelsi, er undir því komið að Sovétstjórnin gefi samþykki sitt til þess. Og myndin er tekin af Iless í sakborningastúkunni í NUrnberg, við stríðsglæparéttarhöldin þar. Að baki hans með gleraugu er Ribbentrop sem var utanríkisráðherra Ilitlerstjórn- arinnar. Vióarþiljur L oftplötur Nýjar sendingar komnar. PALL ÞORGEIRSSON & CO Ármúla 27 — Símar 34000 og 86100. » rússnesk kjötsósa« Kynningahornið í AIA’. biiðinni mun að jafnaði standa fyrir kynningum á nýjungum í framleiðslu Mjólkursamsölunnar með leiðbeiningum um notkun og notagildi mjólkurafurðanna til daglegrar neyslu. Sannarlega tímabcer neytendaþjónusta. MSbúðin í Mjólkursamsöluhúsínu við Laugaveg 16i sem kostar AÐEINS 175 kr. lítrinn og fœst ískalt og freyðandi í afgreiðslu okkar í Þverholti. HF. ÖLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON Þverholti 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.