Morgunblaðið - 31.03.1979, Síða 1
40 SÍÐUR OG LESBÓK
76. tbl. 66. árg.
LAUGARDAGUR 31. MARZ 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Alvarlegt tjón
í kjamaverinu
í Pennsylvaníu
Sjúkrabílar koma til brezka þinghússins eftir sprengingu í
bflageymslu neðanjarðar er varð þingmanninum Airey Neave að
bana. írskir skæruliðar segjast hafa komið sprengjunni fyrir í
bflnum og Neave var látinn þegar hann kom á sjúkrahús.
Harrisburg. Pennsylvaníu. AP. Reuter.
BROTTFLUTNINGUR þungaðra kvenna og barna sem hafa
ekki náð skólaskyldualdri hófst í dag frá svæði sem er í innan
við átta kílómetra fjarlægð frá kjarnorkuverinu nálægt
Harrisburg í Pennsylvaníu eftir nýja geislavirkni frá verinu
sem ekki tókst að ráða við.
BRETLAND:
Richard Thornburgh ríkisstjóri
fyrirskipaði brottflutninginn í út-
varpi og sjónvarpi og gaf jafn-
framt skipun um að 23 skólum sem
eru á þessu svæði yrði lokað. A því
eru fimm bæir og íbúarnir eru um
20.000.
Skömmu síðar fyrirskipáði
Carter forseti í Washington að
yfirvöldum í Pennsylvaníu yrðu
látnar þyrlur og fjarskiptabúnað-
ur í té. Forsetinn skipaði embætt-
ismönnum að sýna frekar of mikla
gætni en of litla í mati á því hvort
fyrirskipa skyldi brottflutning allt
að einnar milljónar manna á svæði
því sem geislunin nær til.
Jody Powell, talsmaður forset-
ans, sagði að það væri á valdi
Thornburgh ríkisstjóra að ákveða
hvort kalla skyldi út varaherlið.
Ríkisstjórinn skipaði flugfélögum
að hætta öllu áætlunarflugi til
Harrisburg þangað til í kvöld.
Powell sagði að yfirmaður
kjarnorkumála hefði farið til
kjarnorkuversins til þess að meta
hve alvarlegur geislavirknilekinn
væri. Hann neitaði því að forset-
inn hefði ekki tekið málið nógu
alvarlega og kvað hann hafa fylgzt
náið með því frá upphafi.
(Sjá „Mikill ótti
í Harrisburg” á bls: 22)
Jemenríki
sameinuð
Kuwait, 30. marz. Reuter.
FORSETAR Norður- og
Suður-Jemen samþykktu í dag
sameiningu landanna að loknum
þriggja daga viðræðum í Kuwait
samkvæmt opinberri tilkynningu.
Seinna sögðu embættismenn að
margt benti til þess að alvarlegt
tjón hefði orðið. Þeir sögðu að
nokkurt kjarnorkueldsneyti kynni
að hafa bráðnað í kjarnorkuverinu
og þannig valdið hita og þrýstingi
sem yrði til þess að geislavirk
gasefni yrðu lengur en ella að
dreifast út í loftið. Þetta er mesta
óhapp sem getur orðið í kjarn-
orkuveri, en á það er lögð áherzla
að þetta sé enn ekki sannað.
London. 30. marz. Reuter. AP.
TALSMAÐUR brezka íhaldsflokksins í málefnum Norður-frlands, Airey Neave, var myrtur með bflsprengju við
brezka þinghúsið í dag og skæruliðar úr írska lýðveldishernum sögðust bera ábyrgðina.
Sprengjan sprakk þegar Neave var að aka bfl sfnum út úr neðanjarðarbflageymslu. Provisional-armur frska
lýðveldishersins (IRA) sem hefur strengt þess heit að trufla kosningabaráttuna í Bretlandi sendi dagblaði í
Dyflinni yfirlýsingu þar sem hann si
Neave, sem var stríðshetja í síðari
heimsstyrjöldinni, var svarinn
fjandmaður baráttu IRA fyrir brott-
flutningi Breta frá Norður-írlandi
og hefur lengi verið talinn eitt af
skotmörkum hryðjuverkamanna.
Lögregluvörður var strax settur um
aðra kunna stjórnmálamenn um leið
og kosningabaráttan í Bretlandi er
að hefjast. IRA hafði að vísu ekki
gefið formlega yfirlýsingu um að
hafa borið ábyrgð á verknaðinum í
kvöld og írsk blöð fengu símhring-
ingar frá ýmsum aðilum sem kváð-
ust bera ábyrgðina, meðal annars frá
írska frelsishernum, fámennum hópi
hryðjuvérkamanna.
Neave var fyrsti liðsforinginn sem
ðist hafa skipulagt aðgerðina.
flúði úr hinu rammgerða fangelsi
Þjóðverja í kastalanum Coiditz.
Hann samdi margar bækur um
flóttatilraunir og njósnir sem fengu
mikla útbreiðslu.
Sjónarvottur sagði að brak úr
bílnum hefði dreifzt langar leiðir og
ótal skjöl lægju á víð og dreif.
Gluggarúður titruðu í 200 metra
fjarlægð. Stutt hlé var gert á þing-
fundi.
Neave hefði líklega orðið Irlands-
ráðherra næstu ríkisstjórnar Ihalds-
flokksins. En mörgum Irum fannst
nóg um hörku hans í garð hryðju-
verkamanna. Hann vildi að henging-
ar yrðu aftur teknar upp til að refsa
liðsmönnum IRA og taldi að það
væri ómerkilegt áróðursbragð að
skæruliðar sem sitja í fangelsi væru
meðhöndlaðir sem pólitískir fangar.
Neave er kunnasti leiðtogi sem
hefur verið ráðinn af dögum í
London síðan IRA myrti Sir Henry
Wilson marskálk 1921. Síðasti þing-
maðurinn sem hefur verið myrtur
við brezka þinghúsið var Spencer
Perceval 1812.
Neave var einn nánasti aðstoðar-
maður frú Thatcher og skipulagði
valdatöku hennar í íhaldsflokknum
1975. Hún sagði að tilræðið við hann
mundi í engu breyta kosningabar-
áttu hennar og að dauði hans væri
harmleikur.
Airey Neave þingmaður, sem beið
bana í sprengingunni.
Skæruliðar IRA játa
á sig þinghúsmorðið
Her Amins í upplausn
Nairohi, 30. marz. Reuter — AP.
IDI AMIN íorseti Uganda tilkynnti í dag að her hans væri
að heíja gagnsókn, en diplómatar í Kampala sögðu að her
hans virtist haía leystst upp og að borgin gæti fallið innan
nokkurra klukkustunda.
Kampalabúar sem hringt var
í sögðu að þeir hefðu séð fall-
hlífahermenn stökkva til jarðar
úr flugvélum yfir borginni, en
fréttin fékkst ekki staðfest
Tanzaníumenn héldu uppi stór-
kotaárásum á borgina og nokkr-
ir biðu bana í 50 metra fjarlægð
frá franska sendiráðinu þar sem
einn af bústöðum Amins forseta
eyðilagðist.
Einu hermennirnir sem sáust
á ferli í borginni voru Líbýu-
menn sem mönnuðu fallbyssur
og svöruðu skothríð hermanna
Tanzaníu og landflótta Uganda-
manna. Þeir komu líka fyrir
tálmunum til varnar gegn skrið-
drekum á mikilvægustu
umferðarstöðvum og kross-
götum.
Landsflótta Ugandamenn til-
kynntu að líbýsk sprengjuflug-
vél af gerðinni Tupolev 22 hefði
flogið yfir Viktoríuvatn og gert
árás á flugstöðvarbæinn
Mwanza í Tanzaníu. Flugvélin
kom frá Nakasongola, 110 km
norður af Kampala, og útlagar
segja að hún hafi gert mis-
heppnaða tilraun til að eyði-
leggja mikilvæga eldsneytis-
geyma.
Flóttamenn sem koma til
Kenya segja frá mikilli
skelfingu sem ríki í Kampala
þar sem fólk flýi sprengi-
árásirnar á borgina og vopnaðir
liðhlaupar úr hernum taki
bifreiðar traustataki. Öllum 400
starfsmönnum SÞ og fjöl-
skyldum þeirra hefur verið
skipað að fara frá Uganda og
starfslið nokkurra erlendra
sendiráða hefur verið flutt
burtu.
Uganda-útvarpið hóf að flytja
hergöngutónlist síðdegis og áður
hafði talsmaður stjórnarinnar
skorað á fólk í utvarpinu að
missa ekki kjarkinn. Hann sagði
að stjórnin réði við ástandið og
fólk gæti sinnt störfum sínum
án þess að þurfa að óttast.
Viðræðurnar voru boðaðar vegna
harðra bardaga sem blossuðu upp í
síðasta mánuði milli herliðs hægri-
stjórnarinnar í Norður-Jemen og
vinstrisinnaðrar ríkisstjórnar
Suður-Jemens sem Rússar styðja.
Sameiningin er ekki tímasett en
eftir hana verður landið kallað
Alþýðulýðveldið Jemen samkvæmt
samkomulaginu þar sem einnig eru
tímasettar ýmsar ráðstafanir sem
verða gerðar í sambandi við
sameininguna og höfuðborgin
verður Sanaa, sem nú er höfuðborg
Norður-Jemens.
Ein stjórnarskrá verður fyrir
landið allt og hún verður borin
undir þjóðaratkvæði. Ríkisráð og
bráðabirgðastjórn munu fara með
völdin í landinu þar til kosningar
fara fram.
Samkomulag um sameiningu var
einnig undirritað í Kaíró 1972 eftir
svipaða landamærabardaga, en þvx
var aldrei hrundið í framkvæmd.