Morgunblaðið - 31.03.1979, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. MARZ 1979
Áhrif efnahagsmálafrumvarpsins;
V erðbólgan verð-
ur 41% áþessu ári
HAGDEILD Vinnuveitendasam-
bands íslands helur reiknað út
verðbólguhraðann á þessu ári
miðað við þær tillögur, sem full-
trúar VSÍ gerðu í vísitölunefnd-
inni í janúar síðastliðnum og
verðbólguhraðann samkvæmt
þeim tillögum, sem eru í frum-
varpi Ólafs Jóhannessonar í
þeirri endanlegu gerð eins og það
er nú í. Samkvæmt tillögum VSÍ
hefði verðbólguhraðinn orðið um
30%, en samkvæmt tillögum í
frumvarpinu verður verðbólgu-
hraðinn tæplega 11% meiri eða
um 41%.
Framsóknarflokkurinn:
Ólafur lætur
af formennsku
ÓLAFUR Jóhannesson forsætis-
ráðherra og formaður Fram-
sóknarflokksins tilkynnti á mið-
stjórnarfundi flokksins í gær að
hann hefði að mjög yfirveguðu
ráði tekið þá ákvörðun að láta
af starfi sem formaður
flokksins og vcrður nýr for-
maður og ný stjórn kjörin í dag
á miðstjórnarfundi. Allar lfkur
benda til að Steingrímur
Hermannsson verði kjörinn
formaður. en þó hafa flciri verið
nefndir, eins og t.d. Halldór
Ásgrímsson og einnig hefur
verið rætt um Hauk Ingibergs-
son inn í stjórn flokksins. bá er
gert ráð fyrir að Tómas Árna-
son verði ritari, cn hann hefur
gegnt starfi gjaldkera. Á
fundinum gerði Ólafur grein
fyrir stöðu efnahagsmála og
ræddi stöðu Framsóknarflokks-
ins og flokksstarf.
Á fundinum í gær voru ræddar
ýmsar tillögur og í frjálsum
umræðum kom það almennt
fram í ræðum manna, að þeir
hörmuðu ákvörðun Ólafs um að
segja af sér, en ákvörðun hans
var skýlaus. Miðstjórnar-
fundinum lýkur á morgun, en í
kvöld halda framsóknarmenn
árshátíð sína.
Þessar upplýsingar komu fram í
ræðu Þorsteins Pálssonar,
framkvæmdastjóra Vinnuveit-
endasambands íslands, er hann
hélt í gær á aðalfundi Sambands
fiskvinnslustöðvanna. Forsendur
útreikninga Hagdeildar VSI eru
þær að viðskiptakjarakjör haldist
óbreytt miðað við meðaltalið 1978,
að engar frekari hækkanir verði á
olíu, en nú þegar er gert ráð fyrir
að meðaltalshækkunin 1. júní
verði 8,9%, 1. september 9,7% og 1.
desember 8,2%. Þetta þýðir að
mati VSÍ, að verðbólgan verði
komin í 41% í desembermánuði.
Ef hins vegar hefði verið farið
að tillögum VSÍ í vísitölunefnd,
sem í meginatriðum voru að greiða
vísitölu á 6 mánaða fresti, að
launahækkanir hefðu ekki áhrif á
vísitóluna til hækkunar á sama
hátt og gert er við launalið bónd-
ans og að óbeinir skattar færu út
úr vísitölunni, hefði vísitöluhækk-
un hinn 1. júní orðið 8% miðað við
sömu skerðingu viðskiptakjara,
engin hækkun orðin 1. september
og 10% hinn 1. desember. Þetta
dæmi þýðir að verðbólgan yrði
30%.
Ræða Þorsteins Pálssonar fjall-
aði um stöðuna á vinnumarkaðin-
Utanríkisráóherrafundur Noróurlanda:
Benedikt og Frydenlund
ræddu um Jan Mayen
Hans G. Andersen og Jens Evensen
komu til Kaupmannahafnar frá Genf
til aó taka þátt i viðræóunum
BENEDIKT Gröndal og Knut
Frydenlund utanríkisráðherra
Noregs, sem báðir sátu vorfund
utanríkisráðherra Norðurlanda
sem lauk í Kaupmannahöfn í gær,
áttu með sér sérstakan fund í
gær, þar sem þeir ræddu Jan
Mayen-málið, að því er utanríkis-
ráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær. Sagði Bene-
dikt að þennan fund hefðu einnig
setið þeir Hans G. Andersen
sendiherra. og Jens Evensen, og
komu þeir gagngert frá Genf í
Sviss til að sitja fundinn, en þar
stendur nú yfir hafréttarráð-
stefna Sameinuðu þjóðanna sem
kunnugt er.
Benedikt Gröndal sagði að þess-
ar viðræður hefðu verið algjörar
könnunarviðræður, en þó hefði
verið farið allýtarlega yfir málið
frá ýmsum hliðum og farið yfir
það almennt. Kvað utanríkisráð-
herra ekki tímabært að skýra frá
efnisatriðum þessara viðræðna
enn sem komið væri, þetta væru
fyrstu umræður um málið, enda
hefði hann ekki viljað ræða það
hingað til, en mikill þrýstingur
væri nú kominn á málið í Noregi,
og því hefði ekki verið rétt að
fresta þessum viðræðum lengur.
Kvaðst utanríkisráðherra ekki
vilja segja annað en hann hefði
staðið fast á rétti íslendinga í
málinu og kynnt afstöðu okkar til
réttinda á svæðinu við Jan Mayen.
Utanríkisráðherrafundinn sagði
Benedikt hafa fjallað almennt um
helstu heimsmál, og væri gerð
grein fyrir því í fréttatilkynningu
frá fundinum, en einnig hefði verið
samþykkt sérstök ályktun þar sem
var lýst miklum áhuga á að haf-
réttarráðstefnunni yrði lokið sem
fyrst.
Fundinum lauk sem fyrr segir
síðdegis i gær, og kvaðst ráðherr-
ann ekki reikna með öðrum form-
legum fundi þeirra Frydenlunds,
og ekki væri ákveðið um framhald
málsins, nema hvað þeir Hans G.
Andersen og Jens Evensen myndu
ræða málið áfram er þeir kæmu til
Genfar, enda væru þeir fremstu
menn sinna þjóða á þessu sviði.
Hér er Karl matsveinn á Nausti með lifandi humar sem hann
hefur tekið upp úr búri í matsalnum, en þar geta gestir valið sér
humar til steikingar.
Ljósm.: Kristján.
Lifandi humar á
matseðli Nausts
VEITINGAHÚSIÐ Naust hefur
tekið upp þá nýbreytni að bjóða
gestum sínum að velja sér
lifandi humar, er síðan verður
matreiddur fyrir þá er óska. Er
humarinn fluttur hingað til
lands frá Kanada. og er hafður
f sérstökum búrum þar sem
gestir geta séð og valið sér
málsverðinn ef þeir óska.
Ib Wessmann matsveinn í
Nausti sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að humarinn kæmi
hingað til lands frá Nova Scotia
í Kanada, og væri fluttur inn af
Islenskum matvælum. Þessi
humar sagði Ib að væri talsvert
miklu stærri en íslenski humar-
inn, og hann væri frábrugðinn
okkar humri að því leyti, að
hann væri grófari og bragð-
sterkari. Sagði hann að stærð
humarsins væri miðuð við að
einn humar væri nægileg máltíð
fyrir einn mann.
Humarinn er matreiddur á
þann hátt, að eftir að gestirnir
hafa valið sér humar í matinn,
þá er honum siátrað þannig að
honum er dýft í sjóðandi vatn.
Sagði Ib þetta vera fljótlegan
dauðdaga, því hann dræpist á
sekúndubroti. Síðan er hann
soðinn í þrjár til fjórar mínútur.
Þá er hann tekinn upp úr og
klofinn og þurrkaður, sett er í
hann kryddsmjör, hann „gratin-
eraður" í ofni og síðan borinn
fram.
Ib Wessmann sagði að humar-
inn væri fluttur hingað í rökum
umbúðum, hann þyldi vel þann-
ig við í raka um tíma, en síðan
væri hann geymdur í geymslum
hjá Nausti og fluttur upp í búr
þannig að fólk getur valið sér
sinn eigin humar.
Að lokum sagði Ib að tilgang-
urinn með þessari nýbreytni
væri að bjóða gestum eitthvað
nýtt, en þetta væri mjög þekkt
erlendis. Síðar sagði hann koma
til greina að vera með krabba og
fleira þess háttar með þessu
fyrirkomulagi, en það færi eftir
því hvernig þessari nýbreytni
yrði tekið.
Kröf ur FFSI gíf urlegar
/
— segir Jón H. Magnússon ráðningastjóri EI
FARMANNA- og fiskimanna-
samhand íslands afhenti vinnu-
veitendum í fyrradag kröfugerð
sína, en sambandið er að hefja
Dróst með bílnum áður en
hann hrapaði 230 metra
fram af Olafsfjarðarmúla
Dalvík og ólaisfirði 30. marz.
STEYPUBIFREIð sem var á leið-
inni frá Dalvik til Ólafsfjarðar
rann út af veginum í ólafsfjarð-
armúla laust eftir hádegi 1 dag og
gjöreyðilagðist. Slys urðu ekki á
mönnum. en bílstjórinn dróst
stuttan spöl með bifreiðinni áður
en hún fór fram af brúninni.
Nánari tildrög voru þau, að
skammt innan við Ófærugjá varð
bílstjórinn að stöðva bifreiðina
vegna þess að hlekkur í keðju hafði
slitnað. í samtali við Morgunblað-
ið í gærkvöldi sagði bílstjórinn,
Hreiðar Leósson á Dalvík, að hann
hefði stoppað þar sem honum
sýndist vera besti staðurinn, síðan
hefði hann byrjað að gera við
keðjuna. Þá hafi heyrst smellur og
bíllinn runnið af stað, um það bil
eina biflengd og síðan út af
brúninni. Sagist Hreiðar hafa
dregist stuttan spöl með bílnum ,
þar sem úlpa sem hann var í
festist í bílnum, en það hefði þó
ekki verið alvarlegt og hann hefði
ekki einu sinni haft tíma til að
verða hræddur. En bíllinn fór
fram af brúninni, steyptist niður
urðir og kletta um 230 metra fall
og staðnæmdist ekki fyrr en í
flæðarmálinu þar sem hann liggur
nu,' gjörónýtur. Skipverjar á báti
frá Ölafsfirði, sem þarna sigldi um
síðdegis í gær, sögðu að bifreiðin
væri mölbrotin og gjörónyt.
Bifreiðin var frá Steypustöðinni
á Dalvík, og var á leið með um 5
rúmmetra af steypu til Ólafsfjarð-
ar er óhappið varð.
— Fréttaritarar.
nýja samningsgerð. Kröíurnar,
sem afhentar voru eru gerðar
fyrir 5 félög innan FFSÍ, Skip-
stjórafélag íslands, Stýrimanna-
félag íslands, Vélstjórafélag ís-
lands, Félag íslenzkra loft-
skeytamanna og Félag bryta.
í kröfunum er farið fram á
grundvallarbreytingu í uppbygg-
ingu launataxta og er t.d. launa-
töxtum stýrimanna og vélstjóra í
kröfunum fækkað úr 6 í 2. Að öðru
leyti fékk Morgunblaðið þær upp-
lýsingar í gær að kröfurnar væru
mjög flóknar og væri því erfitt að
gera sér nákvæma grein fyrir því,
hve háar þær væru. Jón H. Magn-
ússon, ráðningarstjóri Eimskipa-
félags Islands sagði í gær í samtali
við Morgunblaðið að ljóst væri, að
kröfur þessar væru „gífurlegar",
en hann kvað þær samt ekki verða
reiknaðar fullkomlega út fyrr en í
næstu viku.
Olíustyrkurinn 270
millj. á ársfjórðungi
OLÍUSTYRKUR hefur
verið hækkaður í fimm-
þúsund krónur á árs-
fjórðungi fyrir hvern ein-
stakling, þar sem olía er
notuð til
íbúðarhúsakyndingar.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk í gær í við-
skiptaráðuneytinu þýðir þessi
hækkun, að samtals mun ríkið
verða að greiða milli 260 til 270
milljónir króna í olíustyrk fyrir
yfirstandandi tímabil, en ekki
hefur enn verið ákveðið hve hár
styrkurinn verður síðar á árinu.