Morgunblaðið - 31.03.1979, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. MARZ 1979
3
V erkf allsaðgerð-
irnar álitshnekk-
ur fyrir félagið
— segir blaðafulltrúi Flugleiða
EKKERT ílug verður á innan-
landsieiðum Flugleiða, né til
Norðurlandanna um helgina, en á
mánudag verður flug með eðlileg-
um hætti. Á þriðjudag verður
ekki flogið til Egilsstaða, Norð-
fjarðar, Óslóar eða Kaupmanna-
hafnar og á miðvikudag verður
ekki flogið til Vestfjarða eða
Hornafjarðar.
Sveinn Sæmundsson blaðafull-
trúi Flugleiða sagði í samtali við
Mbl., að mjög mikil vinna hefði
verið fyrir farskrárdeild félagsins
að sjá um að breyta áætlunum
farþega yfir helgina, margir sem
ætluðu til Norðurlanda í dag eða á
morgun hefðu flýtt för sinni um
einn dag eða frestað til mánudags
og aðrir hefðu notfært sér ferðirn-
ar til Luxemborgar.
— Þessar verkfallsaðgerðir eru
auðvitað mikill álitshnekkir fyrir
félagið ekki síður en fjárhagslegt
tap, sagði Sveinn, og það segir til
sín í fjölda farþega. Miðað við
sama tíma í fyrra hefur farþegum
í innanlandsflugi fækkað um
13,2% og 3,6% í Evrópufluginu.
Ástæðu þessarar fækkunar tel ég
fyrst og fremst vera tíðarfar, sem
hefur verið erfitt, og verkfallsað-
gerðir flugmanna, sem fæla fólk
frá ferðum og verður til þess að
það treystir ekki á þær.
Scotice slitinn en
kemst liklega í lag í dag
SÆSÍMASTRENGURINN Scotice
slitnaði klukkan 6.05 í gærmorg-
un, um það bil 70 til 80 mflur
vestur af Færeyjum, en það er
nákvæmlega sami staður og hann
slitnaði á svo oft fyrr í vetur að
því er Jón Kr. Valdimarsson hjá
Pósti og síma tjáði Morgunblað-
inu í gær. Sagði Jón að nær
öruggt væri að hann hefði slitnað
af völdum togaravörpu.
Jón sagði að vegna þess að
Icecan væri í lagi hefði verið
auðvelt að koma venjulegum línum
í gegnum Kanada og þannig til
Evrópu og gengi því þolanlega að
afgreiða símtöl og telex-línur
væru einnig í sambandi, bæði til
Bandaríkjanna og til London og
Kaupmannahafnar, en ekki hefði
verið farið í það að fá lánaðar
línur hjá Varnarliðinu, það væri
aldrei gert nema báðir strengirnir
slitnuðu samtímis. Auk Icecan
sagði Jón að samband væri um
eina radíólínu í gegnum Gufunes
til Lyngby í Danmörku.
Skipið Northern, sem er kapla-
viðgerðaskip Mikla norræna, og er
núna að vinna að viðgerðum á
streng milli Hjaltlands og
Færeyja, og var með streng um
borð þegar Scotice slitnaði, mun
halda til viðgerða á strengnum
þegar það lýkur sínu starfi við
Hjaltland, en vonast var til að það
gæti orðið síðdegis í gær. Viðgerð
á Scotice gæti því lokið í dag ef vel
gengur, og alla vega áður en álagið
byrjar á mánudagsmorgun á ný.
A þessu ári hefur Scotice
samtals verið slitinn í 13 daga, en
Icecan-strengurinn í samtals 28
daga.
Lone Pine-skákmótið:
Margeir og
fSLENZKU skákmeistararnir
þrír stóðu sig mjög vel í 5. umferð
alþjóða skákmótsins f Lone Pine.
Margeir Pétursson vann stór-
meistarann Pachman í aðeins 25
leikjum, Helgi ólafsson vann
Thibault í 37 leikjum og Guð-
mundur Sigurjónsson gerði jafn-
tefli við Bent Larsen f 35 leikjum.
Margeir hafði hvítt og fékk
strax hagstæða stöðu í skákinni
gegn Pachman og jók hann yfir-
burði sína smátt og smátt þar til
Tekkinn gafst upp. Margeir hefur
nú unnið þrjár skákir í röð eftir að
hafa tapað tveimur fyrstu skákun-
um og sagði hann í samtali við
Mbl. að tapskákirnar tvær hefðu
komið honum í stuð og væri þetta
ekki í fyrsta sinn sem slíkt gerðist.
Helgi vann Bandaríkjamanninn
einnig örugglega en Guðmundur
náði jöfnu gegn Larsen með góðri
taflmennsku. Larsen hafði hvítt og
náði hagstæðri stöðu í byrjuninni
en Guðmundur náði að jafna taflið
með uppskiptum og í hróksenda-
tafli komst Larsen ekkert áleiðis
gegn góðri taflmennsku Guðmund-
ar og jafntefli var samið.
í. 5. umferðinni urðu þau
óvæntu úrslit að Liberzon vann
Kortsnoi. Er Liberzon efstur
ásamt Georghiu, Sosonko, Sahovic
og Lein með 4 vinninga en þeir
Guðmundur, Helgi og Margeir
hafa 3 vinninga.
Hér fer á eftir skák Margeirs og
Pachmans. Margeir hefur hvítt í
skákinni:
Helgi unnu
1. c4 - Rf6, 2. d4 - e6, 3. g3 -
Bb4+, 4. Rd2 - c5, 5. dxc5 -
Bxc5, 6. Bg2 — Rc6, 7. Rgf3 —
0-0, 8. 0-0 - d5. 9. a3 - a5, 10.
cxd5 — exd5, 11. Dc2 — Bb6, 12.
b3 - He8, 13. Dd3 - Bg4, 14.
Bb2 - Re4, 15. e3 - Hc8, 16.
Hacl - h6, 17. Hfel - Bf5?, 18.
Db5 - He7, 19. Rh4! - Bh7, 20.
Rxe4 — Bxe4, 21. Bxe4 — Hxe4,
22. Rf5 - d4, 23. exd4 - Rxd4,
24. Bxd4 — Bxd4, 25. Hxe4 og
svartur gaf.
I 4. umferð skákmótsins í Lone
Pine urðu úrslit m.a. þau, að
Margeir Pétursson vann Banda-
ríkjamanninn Youngworth, Guð-
mundur Sigurjónsson gerði jafn-
tefli við Bandaríkj'amanninn
Morris, en Helgi Ólafsson tapaði
fyrir júgóslavneska stórmeistar-
anum Gligoric.
Samningana
úr gildi
ÞEGAR Halldór Blöndal, sem
nú situr á Alþingi í fjarveru
Lárpsar Jónssonar, fékk í
hendur breytingartillögur
stjórnarflokkanna við frum-
varp forsætisráðherra um efna-
hagsmál o.fl. orti hann:
Komminn ráðin kunn en þá
kratinn annað vildi.
Að síðustu þeir sættust á
„samningan úr gildi".
ss?
y-t-
:':.v
m.
m.
í.v
-->•>;•
'• •'.-
tf/Js-
m
r.vyt'
••:••:
n
I
ú
I
|
★ Kl. 19.00. Húsiö opnaö. Svaladrykkir og lystauk-
ar á barnum. Létt tónlist. Afhending ókeypis
happdrættismiöa og upplýsingar um hinar
hagkvæmu Útsýnarferöir 1979.
★ Kl. 19.30. Veizlan hefst, stundvíslega. Ljúffeng
grísasteik og kjúklingar eins og hvern lystir.
Matarverö aðeins kr. 3.500.-.
Forsöngvari okkar vinsæli Sigurdór fararstjóri.
Tískusýning nýtt sýningarfólk frá Módel-
samtökunum sýnir tízkufatnaö undir stjórn
Unnar Arngrímsdóttur.
★ Skemmtiatriöi: Frábær gítarleikari — Örn
Arason, leikur spænska tónlist.
Myndasýning:
Ingólfur Guöbrandsson, forstjóri Útsýnar sýnir
litmyndir frá Spánarströndum og kynnir ódýrustu
feröamöguleika ársins — glæsilegt úrval sólar-
landaferöa meö stórþotu DC-8.
Fegurðarsamkeppni:
Feguröardísir úr hópi gesta valdar til þátttöku í
Ijósmyndafyrirsætustörf hjá Útsýn. Verölaun 10
utanlandsferðir.
Lokaforkeppni.
Bingó
Spilaö um 3 glæsilegar sólarlandaferöir meö
Útsýn.
Danssýning:
Dans til kl. 01.00
íi
u
>:t_
Nýkjörnir íslandsmeistarar í paradanskeppni í
diskódönsum, Sigríöur Guöjónsdóttir og Haukur
Clausen og dansflokkur frá Jazzballetskóla Báru
sýna diskódansa.
Ókeypis happdrætti:
Allir gestir frá ókeypis happdrættismiöa.
Dregiö veröur tvisvar. Kl. 20 og kl. 23.30.
Vinningar: Sólarlandaferöir með Útsýn.
Matargestir fá ókeypis sýnishorn af frönskum
ilmvötnum frá „Nina Ricci“ og „Gains Borough“.
Hin hressilega og bráðskemmtilega hljómsveit
Ragnars Bjarnasonar ásamt söngkonunni Þuríði
Sigurðardóttur leika fjölbreytta tónlist viö allra
hæfi.
Missið ekki af glæsilegri skemmtun og mögu-
leikum á ókeypís útsýnarferð
Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir, aðeins
rúllugjald en tryggið borð tímanlega hjá yfirþjóni
í síma 20221 frá kl. 15.00 á fimmtudag.