Morgunblaðið - 31.03.1979, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. MARZ 1979
5
Þýskurkór
á Akureyri
BLANDAÐUR kór, Der Nieder-
sachschÍNche Singkreis, frá Hann-
over í Þýzkalandi syngur á
vegum Tónlistarfélags Akureyr-
ar í Akureyrarkirkju sunnudag-
inn 1. aprfl, og hefjast tónleikarn-
ir kl. 20.30.
Tónlistarfélagið á Akureyri
hefur ekki áður gengist fyrir
slíkum tónleikum en á efnis-
skránni í Akureyrarkirkju eru
verk frá „gullaldarskeiði"
evrópskra madrigala, einnig verk
eftir Brahms, Hindemith, Distler,
Kodaly, og slóvakísk þjóðlög í
úrvinnslu Béla Bartók.
Stjórnandi kórsins, Willy
Tráder, er einn af stofnendum
samtaka evrópskra æskukóra, og
hefur kór hans verið leiðandi á
kóramótum samtakanna Evrópa
Cantat.
Kórinn hefur ferðast til flestra
landa í Evrópu, einnig til Banda-
ríkjanna og Afríku. Hann hefur
hlotið verðlaun í kórakeppni á
Irlandi, Italíu og í Ungverjalandi.
Auk fjölmargra hljómplatna hefur
hann sungið í föstum útvrpsdag-
skrám Norður-þýzka útvarpsins.
Verkefnaskrá kórsins spannar yfir
tónlist frá 16. öld og til okkar tíma,
auk þjóðlaga frá ýmsum löndum.
Willy Tráder hefur haldið kór-
námskeið víða um lönd, og eitt
slíkt fer fram í Menntaskólanum
við Hamrahlíð á meðan kórinn
dvelur þar. Einnig syngur kórinn á
tvennum tónleikum á vegum Tón-
listarfélagsins í Reykjavík, fyrri
tónleikarnir verða í sal Mennta-
skólans við Hamrahlíð mánudag-
inn 2. apríl en þeir síðari í Há-
teigskirkju miðvikudaginn 4. apríl.
A Akureyri fer -forsala fram í
Bókabúðinni Huld og við inngang-
inn.
Gírskiptisveif stöl-
ið frá sendli Mbl.
BÍRÆFINN þjófnaður var fram-
inn við vöruafgreiðslu Flugfélags
íslands á Reykjavíkurflugvelli
um hálfsexleytið í gær. Sendill
Mbl. var þar á ferð á skellinöðru
sinni, sem af gerðinni Suzuki 50.
Skrapp hann í 5—10 mínútur inn
á afgreiðsluna og skildi hjólið
eftir fyrir utan á meðan en þegar
hann kom aftur út hafði einhver
fingralangur stolið girskiptisveif
af hjóiinu. Þessi sveif er mjög
mikilvæg því án hennar er ekki
hægt að skipta um gír. Ef einhver
hefur séð til kauða eða getur bent
á það hvar sveifin er nú niður-
komin er hann vinsamlega beðinn
að hringja til Morgunblaðsins í
síma 10100.
Ásgeir Bjarnþórsson við nokkur verka sinna.
Asgeir Bjarnþórsson
opnar málverkasýningu
ÁSGEIR Bjarnþórsson opnar
málverkasýningu sunnudaginn
1. aprfl kl. 14.00 að Kjarvals-
stöðum. Stendur sýningin í
hálfan mánuð og er opin frá kl.
14 — 22 um helgar, 16 — 22
virka daga, lokað er á mánu-
dögum.
Á sýningunni eru 149 verk,
sem listamaðurinn hefur unnið
frá árinu 1917 fram til dagsins í
dag. Flestar eru myndirnar
portret, en þó eru nokkrar
landslagsmyndir. Þær eru lang-
flestar í einkaeign, þó eru
nokkrar til sölu á sýningunni.
Geir Hallgrímsson Jónas Bjarnason
ísland til aldamóta
Ráðstefna um mótun íslenzks þjóðfélags
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN efnir til
ráðstefnu um framtíðarsýn og langtíma-
markmið fyrir mótun íslenzks þjóðfélags
undir heitinu „ísland til aldamóta“ í
Valhöll, Háaleitisbraut 1 í dag kl. 9.30 og
hefst hún með ávarpi Geirs Hallgríms-
sonar, formanns Sjálfstæðisflokksins.
Jónas Bjarnason, formaður starfshóps,
kynnir drög að markmiðum, en síðan
greinir Gunnar G. Schram frá leiðbein-
ingum fyrir starfshópa. Síðan taka
starfshópar til starfa til kl. 14.30, er
niðurstöður verða kynntar, en síðan
verða almennar umræður.
Ráðstefnuslit verða kl. 18.30.
K jar valsstaðir:
Heimskringluteikningar á sýn-
ingu frá 31. marz—17. apríl nk.
Á ÞESSU ári eru liðin 800 ár frá
fæðingu Snorra Sturlusonar,
hann fæddist 1 Hvammi í Dölum
árið 1179. Þess verður minnst
með ýmsum hætti, m.a. er ráðgerð
sýning í Bogasal Þjóðminjasafns
íslands í sumar á handritum og
útgáfum rita Snorra. Norðmenn
gefa út viðhafnarútgáfu Heims-
kringlu og efna til sýningar á
frummyndum þeim sem skreyttu
útgáfu ritsins 1899, og hafa síðan
skreytt margar aðrar útgáfur,
m.a. fyrstu fslenzku heildarútgáf-
una, sem Helgafell gaf út 1944.
Myndirnar gerðu: Halfdan Ege-
dius, Christian Krogh, Gerhard
Munthe, Eilif Peterssen og Erik
Werenskjold.
Þessar myndir, 67 að tölu, eru í
eigu Nationalgalleriet í Ósló. Nor-
ræna listabandalagið hefur tekið að
sér að skipuleggja sýningar á þeim á
öllum Norðurlöndunum, og verður
hún fyrst sett upp á Kjarvalsstöðum
og stendur sýningin yfir frá 31. marz
til 17. apríl n.k.
Félag íslenzkra myndlistarmanna
hefur veg og vanda af uppsetningu
sýningarinnar hér á landi, og annast
það myndhöggvararnir Hallsteinn
Sigurðsson og Helgi Gíslason.
Sýningin verður á eystri gangi Kjar-
valsstaða og er öllum heimill ókeypis
aðgangur.
Á sama tíma efnir Ásgeir Bjarn-
þórsson listmálari til yfirlitssýning-
ar á verkum sínum í vestursal
Kjarvalsstaða. Hann opnar sýning-
una sunnudaginn 1. apríl á áttræðis-
afmæli sínu.
I Kjarvalssal er sýning á verkum
eftir Jóhannes S. Kjarval í eigu
Reykjavíkurborgar.
Þessar sýningar verða á Kjarvals-
stöðum fram yfir páska. Þá verða
þær allar teknar niður til þess að
rýma fyrir „Listahátíð barna“, sem
verður í öllu húsinu dagana 28. apríl
til 7. maí.
SOKKABUXUR
SEM PASSA
HNJÁM.
Frábær teygjan lætur
L’EGGS passa bæði að
fratnan og aftan.
Hvorki hrukkur í
hnjám.