Morgunblaðið - 31.03.1979, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. MARZ 1979
Vísindalegar
rannsóknir
Þær Þjóðir sem lengst
eru komnar í Þróun fram-
leióslu og verðmæta-
sköpunar og bezt eru
settar efnahagslega hafa
um langan aldur variö
mun hærri hluta pjóðar-
tekna en við til vísinda-
legra rannsókna, sem
tengdar eru atvinnu-
greinum peirra. Þær hafa
litið á Þá fjárfestingu,
sem fer í menntun
vísindamanna og
vísindalegar rannsóknir,
sem arögæfa ráöstöfun
fjármuna, enda hefur
reynslan sýnt, aö Þeir
fjármunir hafa skilað sér
margföldum í sívaxandi
hagkvæmni framleiðsl-
unnar eða Þjónustunnar í
Þjóðarbúskapnum. Fáar
Þjóöir, sem búa við sam-
bærilegar aöstæöur og
viö, verja lægra hlutfalli
Þjóðartekna til slíkrar
starfsemi.
Víðast hvar fara Þessar
vísindalegu rannsóknir
fram á vegum fyrirtækja
eða atvinnugreina, sem
sjá sér hag í pví, að Þróa
starfsemi sína til sífellt
meiri fullkomnunar. Hér á
landi eiga fyrirtæki og
atvinnugreinar erfiðara
um vik. Því veldur eink-
um tvennt: 1) Smærri
fyrirtækjaeiningar og 2)
Skattpfning, sem byggist
á Þeirri allt of útbreiddu
skoðun, að eiginfjár-
myndun í atvinnurekstri
(gróði) sé af hinu illa, og
að atvinnurekstur megi
helzt ekki skila tekjum
umfram beinan rekstrar-
kostnað nema sem svari
skatttíund til ríkis og
sveitarfélaga. Nauðsyn
eiginfjármyndunar, m.a.
til að standa undir rann-
sóknum, tæknivæðingu,
vexti fyrirtækis eða til að
mæta skakkaföllum, er í
engu viöurkennd. Jafnvel
vaxandí atvinnupörf
stækkandi pjóðar, sem
Þó er sú hliðin á Því
margumrædda atvinnu-
öryggi, sem snýr að okk-
ur á allra næstu misser-
um, hverfur í myrkur rót-
gróins Þjóðarmisskiln-
ings á nauösyn eiginfjár-
myndunar í atvinnu-
rekstri.
Af Þessum sökum hef-
ur rannsóknar- og vís-
indastarf hér á landi verið
nær einvörðungu á veg-
um ríkis og ríkisstofnana.
Og Þar hefur síður en svo
verið undir Það mulið.
Þessa hefur íslenzkur at-
vinnurekstur, íslenzk
tæknipróun og íslenzk
almannakjör goldið.
Sérstaöa,
sem ekki
veröur fram
hjá gengiö
Þjóð, sem byggir fram-
leíðslu sína, útflutning og
afkomu í jafn ríkum mæli
á fiskveiöum og fisk-
vinnslu, hlýtur að eiga
mikið komið undir fiski-
fræðilegum rannsóknum
og niðurstöðum vísinda-
manna sinna. Sú stað-
reynd, að byggja verður
stjórnvaldsákvarðanir á
efnahagslegum niður-
stööum í bland við fiski-
fræðilegar, breytir Þar
engu um, hvorki um
ágæti fiskifræöinga okk-
ar né nauðsyn rannsókna
Þeirra. Þjóö, sem um ár-
Þúsundir var bændaÞjóð
og byggir enn í dag til-
veru sína á að vera sjálfri
sér nóg um búvöru, auk
Þess sem búskapur er
veigamikill hráefnisgjafi
iðnaðar og atvinnulegur
bakhjarl fjölmargra
sjávarplássa, á mikið
undir fræðilegum athug-
unum bústofns og
gróðurmoldar. Þjóð, sem
hlýtur að byggja framtíð
sína í vaxandi mæli á
nýtingu jarðvarma, virkj-
un fallvatna (innlendum
orkugjöfum) og jafnvel
nýtingu jaröefna, á ekki
lítið undir jarðfræðileg-
um vísindamönnum
komið. Og ekki skekkir
Það gildismatið, að við
búum í landi jarðhrær-
inga og eldgosa, sem
öryggis vegna kallar á
rannsóknarstörf.
Fjölmörg dæmi önnur
mætti til tína. En fyrst og
síðast Þarf að efla rann-
sóknir og tæknivæðingu í
atvinnugreinum okkar,
sem skapa verðmætin, er
kjör okkar og allir aðrir
Þættir Þjóðiífsins grund-
vallast á. Erfitt er aö meta
til fjár rannsóknir og vís-
indastörf í heilbrigðis-
kerfínu. Hækkun meöal-
aldurs, sem hér hefur
tekið stökk upp á við á
liðnum áratugum, og
færri veikindadagar frá
vinnu, hafa aö vísu verö-
mætagildi í atvinnulífinu.
En fyrirbyggjandi
aðgerðir á vettvangi
heilsugæzlu, sem og
lækníngastörf, er auka á
velferð og lífshamingju
einstaklinganna, verða
naumast mæld á mæli-
stikur prósentumanna og
krónuteljara.
Tími er til kominn að
Þjóðin fari að hyggja aö
Þýöingu rannsóknar-
starfs og fræöimennsku í
Þjóðarbúskapnum. Vís-
indamenn eiga ekki að
vera hafnir yfir gagnrýni,
en hins vegar Þarf aö
rétta hlut Þeirra eins og
allt er í pottinn búiö í
Þjóðfélaginu í dag.
ÞARFTU AÐ KAUPA?
ÆTLARÐU AÐ SELJA?
TJ
M ALGLYSIR l’M ALLT LAND ÞEGAR
Þl' Al'GLYSIR Í MORGLNBLAÐINL
ALLEGRO
ER EITTHVAÐ MEIRA
í vetrarhörkum á vondum vegum, jafnast ekkert á við gódan bíl
með framhjóladrifi. Austin Allegro er framhjóladrifinn og vandaður.
Þú þarft ekki að leita lengur.
Rafhituð afturrúða
Armpúði f aftursæti
Bakkljós
Stokkur á milli sæta m/klukku
Vfnylklæðning á þaki
Höfuðpúöar
Litað gler
Vindlakveikjari
Rafdrifin rúðusprauta
Hliöarspeglar
2ja hraða rúðuþurrka
Hlíföarlistaráhliöum
Hlífðarlistará sílsum
Framhjóladrif / Aflhemlar
Sjálfstæð vökvafjöðrun á öllum hjólum
EINNIG TIL í
STATION
■—ctaí beos'°
,—spaía, b
aksWtskePPn ® oovrrv
tör
P. STEFANSSON HF.
SÍOUMÚLA 33 — SÍMI 83104 • 83105
Styrktar- og minningasjóður
Samtaka gegn astma og ofnæmi, veitir í ár styrki í
samræmi viö tilgang sjóösins, sem er:
a. aö vinna aö aukinni þekkingu á astma- og
ofnæmissjúkdómum.
b. aö styrkja lækna og aðra, sem leita sér þekkingar á
ofangreindum sjúkdómum og kunnáttu í meðferð
þeirra, meö framhaldsnámi eöa rannsóknum á þessu
sviöi.
Umsóknir um styrki ásamt gögnum, skulu hafa borist
til sjóöstjórnar í'þósthólf 936 Reykjavík fyrir 16. maí
1979.
Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu samtak-
anna í síma 22153. Sjóöstjórnin
SSiS.
Finlux
LITSJÓNVARPSTÆKI
20“ .. kr. 415.000.-
^ 22“ kr. 476.000.-
jjjjjjSSgjj 26“ kr. 525.000.-
SJÓNVARPSBÚDIN
BORGARTÚNI 18 REYKJAVIK SlMI 27099