Morgunblaðið - 31.03.1979, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. MARZ 1979
11
tæki sig ekki, steinþagði Sjöfn
Sigurbjörnsdóttir. Sáum við okkur
þá þann kost einan að gera bókun
um fundarstjórn hennar, sem þeg-
ar hefur verið birt hér í blaðinu.
Það er rétt að við höfðum þá
bókun tilbúna fyrir fundinn, því
þekkjandi óbilgirni Sjafnar Sigur-
björnsdóttur áttum við ekki vona á
að hægt yrði að leysa þetta mál
innan ráðsins.
Menn kunna að spyrja, hvort
skortur á starfhæfum meirihluta í
Æskulýðsráði Reykjavíkur komi
niður á starfi ráðsins. Formaður
þess fullyrðir að svo sé ekki. Sé
hins vegar starf ráðsins skoðað
með þau starfsmarkmið í huga
sem við gátum um í upphafi, þá
teljum við að niðurstaðan sé sú, að
starfsemi Æskulýðsráðs sé rekin
nær nákvæmlega sama hátt og var
meðan íhaldið stjórnaði. Helstu
breytingar eru jafnvel til hins
verra, sbr. Útideild og Tónabæ, þó
ákvarðanir um að leggja þá starfs-
þætti niður komi að vísu ekki frá
Æskulýðsráði. En allt hitt er
hvorki betra né verra en áður.
Þessa stjórn í anda íhaldsins
kallar Sjöfn Sigurbjörnsdóttir að
hennar i Mbl. að „eins og víðar þar
sem samstarfi vinstri flokkanna er
stefnt í voða“, þá séu „þær stall-
systur Guðrún Helgadóttir og
Adda Bára Sigfúsdóttir ... á bak
við“ þessa bókun okkar, þá skal
það skýrt tekið fram að þær
stallsystur eiga engan þátt i henni.
Það er hins vegar merkilegt að
lesa það hér enn einu sinni, að
hvarvetna þar sem störf Sjafnar
Sigurbjörnsdóttur sæta gagnrýni,
telur hún óðara að þar sé á
ferðinni samsæri þessara stall-
systra hennar. Það má af framan-
sögðu vera öllum ljóst, að það sem
hér er til umræðu er ekki samsæri
eins eða neins, heldur rökstudd
gagnrýni á tiltekna starfshætti
Sjafnar Sigurbjörnsdóttur.
Eins og fram hefur komið hér á
undan höfum við frá upphafi
leitast við að leysa ágreining og
árekstra við Sjöfn Sigurbjörns-
dóttur innan ramma meirihluta-
samstarfsins. í þess stað hefur
hún nú kosið að birta í Mbl.
tilhæfulaus ósannindi og ómakleg-
ar dylgjur um okkur og tvo
borgarfulltrúa Alþýðubandalags-
ins.
Margrét S. Björnsdóttir og Kristján Valdimarsson.
láta „málefnin ráða við ákvarð-
anatöku í Æskulýðsráði Reykja-
víkur". Við teljum að íbúar
borgarinnar hafi átt von á öðru s.l.
vor.
Menn kunna einnig að spyrja,
hvernig standi á því að nafni
Sjafnar Sigurbjörnsdóttur tengj-
ast einu umtalsverðu deilur meiri-
hlutaflokkanna, sbr. Kjarvalsstaði
og sorphirðumálið. Annars staðar
virðist ganga vel að ná málefna-
legri samstöðu. Eins og fram
kemur hér á undan verður að telja,
að a.m.k. í Æskulýðsráði Reykja-
víkur sé skýringanna fremur að
leita í persónu Sjafnar Sigur-
björnsdóttur, en í málefnalegum
ágreiningi.
Varðandi þær fullyrðingar
Samt sem áður lítum við enn á
það sem skyldu okkar að vinna að
þeim mörgu og brýnu verkefnum,
sem enn eru óleyst á sviði æsku-
lýðsmála í borginni, í samræmi við
það samkomulag, sem meirihluta-
flokkarnir gerðu á s.l. sumri. Við
höfum ekki ennþá gefið upp alla
von um, að það megi takast, þrátt
fyrir yfirlýsingu Sjafnar Sigur-
björnsdóttur um það, að hún hafi
„engar áhyggjur af svokölluðu
meirihlutasamstarfi í Æskulýðs-
ráði Reykjavíkur".
Kristján Valdimarsson
Margrét S. Björnsdóttir
fulltrúar Alþýðu-
bandalagsins í Æsku-
lýðsráði Reykjavikur.
Helios blásarakvintettinn.
keppni blásara, sem fer fram í
Colmar í Frakklandi.
Auk tónleikanna í Bú-
staðakirkju mun kvintettinn koma
fram á Akranesi, Egilsstöðum,
Neskaupstað og í Keflavík.
Anna Bjarnadóttir skrifar frá Sviþjóð:
Frjálslyndi
flokkurinn
hefur mestanl
blaðakost
Þingkosningar verða
haldnar í Svíþjóð eftir tæpt
hálft ár. eða hinn 16. septem-
ber n.k., og flokkarnir eru að
komast í kosningaham.
Mikilvægast fyrir þá er að
koma skoðunum sínum og
stefnumálum á framfæri og
að nota sér fjölmiðla til hins
ýtrasta. Stjórnarandstöðu-
flokkarnir fjórir. Jafnaðar-
mannaflokkurinn, Mið-
flokkurinn, íhaldsflokkurinn
og Vinstri flokkurinn,
kommúnistar. kvarta þagar
yfir því, að minnihlutastjórn
Frjálslynda flokksins sé allt
of mikið í fréttum. Frjáls-
lyndi flokkurinn telur hins
vegar eðlilegt, að frumvörp
ríkisstjórnarinnar veki
athygli og frá þeim sé sagt í
fréttum.
í grein, sem birtist nýlega í
Dagens Nyheter, kemur fram,
að það er ekki endilega bara
stjórnarseta Frjálslynda
flokksins, sem ræður frétta-
flóði um hann, heldur einnig
sú staðreynd, að mun fleiri
dagblöð fylgja Frjálslynda
flokknum að málum en nokkr-
um hinna flokkanna. Upplag
borgaralegu dagblaðanna er
samanlagt um 3 milljónir, en
þar af styðja um 30 blöð, sem
koma út í 1,7 milljónum
eintaka, minnsta borgara-
flokkinn, þ.e. Frjálslynda
flokkinn. Upplag blaða
jafnaðarmarina er tæp 1
milljón og kommúnista 17.500
eintök.
í Stokkhólmi eru fjögur
dagblöð gefin út. Morgun-
blöðin eru Dagens
Nyheter.sem kallar sig óháð,
en hallast helzt á sveif með
Frjálslynda flokknum, og
Svenska Dagbladet, sem er
helzta málgagn íhaldsflokks-
ins. Upplag DN er um 420 000
eintök, en Svenska
Dagblaðsins tæp 180 000.
Eftirmiðdagsblöðin eru tvö.
Expressen er stærsta blað á
Norðurlöndum og gefið út í
480 000 eintökum. Það vill ekki
kalla sig blað Frjálslynda
flokksins heldur frjálslynt
blað með litlu F. Alþýðusam-
bandið er eigandi
Aftonbladets, sem kemur út í
435 000 eintökum, og styður að
sjálfsögðu iafnaðarmanna-
flokkinn Málgagn Vinstri
flokksins, kommúnistanna, Ny
Dag, kemur aðeins út tvisvar í
viku í 17 500 eintökum, en
ráðagerðir eru uppi um að
fjölga útgáfudögum þess.
Mikill fjöldi dagblaða
kemur út úti á landsbyggðinni.
Helzta málgagn Jafnaðar-
mannaflokksins, Arbetet, er
gefið út í Malmö í um 110 000
eintökum. Upplag málgagna
Miðflokksins, sem fékk
■ •
im
Kriitlanstadsbladrt
^ GOTEBORGS HiSOELS
OCR SJOFARTSTIDNIRG
I Jönköpings-Posten
VárnamoTidningen :
Smalands Tuinmi.'.nn
fjórðung atkvæða í síðustu
kosningum, er aðeins 4% af
heildarupplagi sænskra dag-
blaða. Þó eru nokkur blöð, sem
styðja flokkinn, sterk í sínu
héraði eins og
Östersundsposten og
Norrtelje Tidningen.
Skánska Dagbladet. sem er
talið flokksblað Miðflokksins,
kemur aðeins út í 30 000
eintökum.
Fulltrúar flokkanna eru
misánægðir með fréttaflutn-
ing dagblaðanna. Olof Palme,
formaður Jafnaðarmanna-
flokksins, telur nauðsyn út-
gáfu morgunblaðs í Stokk-
hólmi, sem fylgi stefnu
jafnaðarmanna, verða æ
augljósari. Hann fullyrðir að
meiri hluti lesenda Dagens
Nyheter séu jafnaðarmenn, en
síðan flokkurinn hætti
stjórnarsetu 1976, fái þeir ekki
rétta mynd af stefnumálum
flokksins. Nú koma helzt fram
viðbrögð flokksins við frum-
vörpum ríkisstjórnarinnar.
Olof Palme telur ríkisstjórn-
ina leikna í að vekja athygli á
frumvörpum sínum. Fyrst
lekur fréttum í morgunblöðin,
eða sjónvarpið, kallar síðan
blaðamenn á sinn fund og
svarar spurningum, en leggur
að lokum frumvarpið fram,
svo að stjórnarandstaðan geti
einnig kynnt sér um hvað
frumvarpið fjallar.
Karin Söder, varaformaður
Miðflokksins, er sammála
Palme um, að frumvörp frjáls-
lyndra veki of mikla athygli.
Hún segir forystu Miðflokks-
ins ekki eins klóka og forystu
Frjálslynda flokksins í sam-
skiptum við fréttamenn, en
kannski þess vegna lendir hún
ekki oft í vandræðum og
heldur trausti kjósenda. Söder
telur stefnumál flokksins
mikilvægari en sterk flokks-
málgögn. I byrjun þessa ára-
tugar var mikil gróska í
flokknum og hann sífellt í
fréttum. Mesta athygli vakti
barátta flokksins gegn kjarn-
orku. Söder segir, að það sé
sök fréttamanna, að sumir
telja Miðflokkinn aðeins hafa
það eitt á stefnuskrá sinni að
stöðva kjarnorkuna.
Ritari íhaldsflokksins, Lars
Tobinsson, er ánægður með að
flokkurinn reyni að gefa yfir-
lýsingar sínar, þegar þær geta
vakið mesta athygli, og forðist
laugardaga, af því að mörg
blöð koma ekki út á sunnu-
dögum. Formaður Frjálslynda
flokksins, Ola Ullsten for-
sætisráðherra, segir forystu
flokksins starfa með fjölmiðl-
um. Þess sé krafizt, að fjöl-
miðlar upplýsi lesendur sína
og þess vegna verði stjórn-
málamenn að upplýsa fjöl-
miðlana.
TRANAS TIDNING ^
/„í^ NYAIÆNSTIDNLNGEN .
(NJT) NYA LIDKOPINGS-m ''NGEN \
.ftíiSKARABORGS UNS TIDHING É
Sk..a Tidning V».««r9Ött.od. Aonon.bl.e
SKOVDE "
IVYHETER
“tBOHI 1
Göteborgs-Posten c.
HALLANDSPOSTEH
SYDSVENSKA DAGBLADBT
INAl.lPO.TtM
nrp.tTi
KVAUS/w0|"^mT
vanster"
ALINGSAS TIDNING
Norraya^erbotten,, -
\ Qslevb oWent. -'íamveiv £■
jjmsbllthvlfa Bllehanda^’
SUNDSVALLS TIDNING
Falu-K"r'ren
0 Gcfle Dagblad g
UUSNAN
VESTMANLANDS LÍNS TIDNING
Arlnxiai Ulll
N<*rikos
AHchanda
I mgémmrm mémtmr »>—«--11,.
Bergslagsposten 10*30*0
MOTAUSE3
l,tf
0
3Curiren
I nom.O> It RII U.MX N III PkHIHl
Katrlneholms-Kurlren
elfsbobgs lAns tidníng
§ muBimuiimiri
Den liberala presskören har flest stammor J
— hár de som backar upp Ola Ullsten.