Morgunblaðið - 31.03.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. MARZ 1979
13
Af æfingu á leikritinu Saumastofan. Auður Tryggvadóttir og Þórey
Jónatansdóttir í hlutverkum sfnum.
Leikklúbbur Laxdæla
sýnir Saumastofuna
Áströlsk listakona
sýnir í Vogunum
endur í miðbænum, svo hann
dæi ekki endanlega.
Vinur minn sem er leigubíl-
stjóri sagði eitt sinn í langri
diskúsjón: „Ég er sannfærður
um að ástæða þess hve margir
eru teknir ölvaðir við akstur í
borginni um helgar, er skipulag
skemmtanalífsins. Menn geta
átt á hættu að sitja fastir fyrir
utan einhvern skemmtistað í
meira en klukkutíma, eftir að
dansleiknum er lokið, bíðandi
eftir leigubíl, bláir af kulda eða
gegndrepa. Og hvað gerist,
menn álpast undir stýri, til að
forða sér frá lungnabólgu."
Að ganga í augun
á flugmönnum
Eitt af því sem vekur athygli í
skipulagi Reykjavíkur er ber-
angurinn (útivistarsvæðin).
Fyrir hverja eru öll þessi
„útivistarsvæði"? Stundum
finnst mér að borgin sé eitt
stórt útivistarsvæði. Þegar veðr-
ið er gott, flýta flestir sér út úr
bænum á vit guðsgrænnar nátt-
úru og útivistarsvæðin standa
auð. Þegar veðrið er vont, leita
menn skjóls innandyra og þau
standa auð. Fyrir bragðið er
borgin að verða eins og bletta-
skalli, þar sem fáein hús norpa í
þyrpingum, en á milli eru eyði-
leg leiksvæði fyrir norðanbálið.
Þegar arkitekt nokkur var
inntur eftir því, hver væri helzti
eiginleiki húsasamstæðu sem
hann hafði teiknað í úthverfi
Reykjavíkur, svaraði hann á þá
leið, að húsin litu út á loftmynd
eins og rós. Ég hef hingað til
haldið að megin tilgangur húsa
væri að hýsa fólk og láta því líða
vel, en ekki að ganga í augun á
flugmönnum.
Islenzkir arkitektar eru flest-
ir menntaðir erlendis og ég get
því miður ekki varist þeirri
tilfinningu að þeir skipuleggi og
teikni miðað við aðstæður í þeim
löndum sem þeir lærðu í, og hafi
ekki tekið eftir því, að þeir eru
fluttir í vindbeljandann og of-
anígjöfina hér heima, þar sem
rignir á ská, eins og ein sóma-
kona lýsti því.
Skipulagið virðist miða alfar-
ið við örfáar sólskinsstundir á
sumrin. Hvort sem maður er
staddur á mannlausum göngu-
bút í Austurstræti eða götu-
horni, getur maður reitt sig á að
ískaldir vindar blási frjálslega
úr öllum áttum og hvergi sé
hægt að finna skjól.
Frá þessu er þó hægt að finna
eina undantekningu. Það er til-
laga finnska arkitektsins Alvar
Aalto um skipulag háskóla-
hverfisins. Húsum Alto er ætlað
að skapa skjól á háskólalóðinni.
Eru íslenzkir arkitektar svo
gersneyddir skilningi á um-
hverfi sínu, að það þurfi útlend-
ing til að teikna frá íslenzkum
aðstæðum?
Er að rofa til?
Nýlega kom fram tillaga á
þingi um aukið frjálsræði í
rekstri vínveitingahúsa, og um
svipað leyti skutu hugmyndir í
sömu veru upp kollinum í borg-
arstjórn. Báðar þessar tillögur
eru virðingarverðar, en þær
grípa þó ekki á megin vandan-
um: verðlagningu á veitingum.
Mötuneytin njóta þeirrar sér-
stöðu að þar er matur og þjón-
usta víða niðurgreidd, og er því
engin von til að almennir veit-
ingastaðir verði samkeppnis-
hæfir við þau.
Grundvöllur heilbrigðs
skemmtanalífs eru vel reknir og
vandaðir matsölu og veitinga-
staðir sem almenningur getur
veitt sér að sækja, en eins og
ástandið er í þessum málum er
engin von um bót, nema létt
verði af veitingarekstrinum
þeim álögum og gjöldum sem
sprengja upp verðið. Þá fyrst
geta veitingahúsin veitt þjón-
ustu sem allir hafa efni á að
njóta.
LEIKKLÚBBUR Laxdæla, Búð-
ardal, frumsýnir Saumastofuna
eftir Kjartan Ragnarsson laug-
ardaginn 31. marz.
Leikstjóri er Jakob S. Jónsson.
Undirleik annast þau Ómar Ósk-
arsson og Hafdís Kristinsdóttir.
Með hlutverk fara: Auður
Tryggvadóttir (Gunna), Böðvar
Magnússon (Himmi), Elísabet
Magnúsdóttir (Magga), Guðrún
Konny Pálmadóttir (Asa), Inda
Sigrún Gunnarsdóttir (Lilla), Sig-
rún Ósk Thorlacíus (Didda),
Svanbjörn Stefánsson (Siggi), Þór-
ey Jónatansdóttir (Sigga), Þórir
Thorlacíus (Kalli).
Leikklúbbur Laxdæla var stofn-
aður 1971 og á þessum árum sem
liðin eru frá stofnun hans hafa
verið sett upp níu leikrit og er
SÍÐASTA sýning á spánska leik-
ritinu „Ef skynsemin blundar'"
verður í Þjóðleikhúsinu annað
kvöld.
Verkið fjallar um málarann
Goya sem Róbert Arnfinnsson
leikur. Sýning Þjóðleikhússins á
leikritinu þykir nýstárleg vegna
ýmissa hluta, m.a. er notaður í
sýningunni fjöldi litskyggna af
Saumastofan því tíunda leikritið
sem frumsýnt er á vegum þess,
auk þess sem leikklúbburinn hefur
staðið fyrir bókmenntakynningum
á verkum þekktra íslenskra rithöf-
unda.
Af þessum níu verkum sem
Leikklúbburinn hefur sýnt eru
fimm þeirra þýdd og verður
Saumastofan því fimmta íslenska
verkið sem tekið er til flutnings
hjá Leikklúbbi Laxdæla, Búðardal.
Fyrirhugaðar eru leikferðir til
nágrannabyggða, auk þess sem
Saumastofan verður sýnd á Jörfa-
gleði Dalamanna föstud. 20. apríl
n.k.
Félagar í Leikklúbbnum hafa
unnið mikið starf við uppsetningu
á leikritinu svo sem endranær.
Núverandi formaður er Sigur-
jóna Valdimarsdóttir, Búðardal.
málverkum meistarans er Sveinn
Einarsson stýrir þeim þætti
sýningarinnar.
Leikmyndin er eftir Baltasar en
Örnólfur Arnason þýddi leikritið
úr frummálinu. Auk Róberts eru í
stórum hlutverkum þau Krist-
björg Kjeld, Heigi Skúlason, Rúrik
Haraldsson, Helga Bachmann,
Gunnar Eyjólfsson og Arnar
Jónsson.
ÁSTRALSKA listakonan Patricia
Hand heldur sölusýningu á
verkum sínum í Glaðheimum,
Vogum, dagana 31. marz til 8.
apríl. Patricia Hand er ástralskur
ríkisborgari en búsett i Vogum og
auk þess að mála í frístundum er
hún annar eigandi og kennari í
FYRIRTÆKIÐ Samvinnu-
ferðir-Landsýn gengst um þessar
mundir fyrir írlandsdögum í sam-
ráði við írska ferðamálaráðið. Er
komin hingað til lands írska þjóð-
lagahljómsveitin De Danann og
skemmtir hún á skemmtikvöldum
í Þórskaffi dagana 30. mars til 1.
apríl. Þar verður stigin dans, boðið
Ásaskólanum í Keflavík, sem
þegar er orðinn þekktur á Suður-
nesjum, en þar er m.a. kennd
enska. Þetta er þriðja sýning
Patriciu Hand, þá fyrstu hélt hún
á Mokka og aðra í Glaðheimum
fyrir 2 árum og þar seldust nær öll
verkin upp. (Fréttatilk.)
er uppá írska málsverði og gefst
gestum færi á að taka með sér
uppskriftir líki þeim bragðið.
Sunnudaginn 1. apríl kemur De
Danann einnig fram á skemmtun
Samvinnuferða-Landsýnar í
Háskólabíói þar sem spilað verður
bingó.
írska þjóðlagahljómsveitin De Danann leikur
Samvinnuferða-Landsýnar í Þórskaffi næstu daga.
írlandsdögum
Ljósm. Emilía.
Höfum kaupendur að eftirtöldum veröbréfum:
VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI
RÍKISSJÓÐS:
1. apríl 1979 Kaupgengi Innlausnarverð Seðlabankans m.v. 1 árs Yfir-
pr. kr. 100.-: tímabil fró: gengi
1968 1. flokkur 3.132.40 25/1 '79 2.855.21 9,7%
1968 2. flokkur 2.945.16 25/2 '79 2.700.42 -9,1%
1969 1. flokkur 2.189.66 20/2 ‘79 2.006.26 9,1%'
1970 1. flokkur 2.010.49 15/9 '78 1.509.83 33,2%
1970 2. flokkur 1.454.18 5/2 '79 1.331.38 9,2%
1971 1. flokkur 1.363.27 15/9 ‘78 1.032.28 32,1%
1972 1. flokkur 1.188.25 25/1 ‘79 1.087.25 9,3%
1972 2. flokkur 1.016.95 15/9 ‘78 770.03 32.1%
1973 1. flokkur A 770.94 15/9 '78 586.70 31,4%
1973 2. flokkur 709.95 25/1 ‘79 650.72 9,1%
1974 1. flokkur 492.91
1975 1. flokkur 401.61
1975 2. flokkur 306.98
1976 1. flokkur 291.84
1976 2. flokkur 237.03
1977 1. flokkur 220.13
1977 2. flokkur 184.41
1978 1. flokkur 150.27
1978 2. flokkur 118.61
VEÐSKULDABRÉF:* Kaupgengi pr. kr. 100.-
1 ár Nafnvextir: 26% 77—79
2 ár Nafnvextir: 26% 68—70
3 ár Nafnvextir: 26% 62—64
*) Miðað er viö auðseljanlega fasteign.
Höfum seljendur að eftirtöldum veröbréfum:
HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF
RÍKISSJÓÐS:
B — 1973 635,41 (10% afföll)
C — 1973 553,71 (10% afföll)
D — 1974 480,50 (10% afföll)
E — 1974 340,00 (10% afföll)
F — 1974 340,00 (10% afföll)
G — 1975 236,82 (10% afföll)
Nýtt útboð verðtryggðra spariskírteina
ríkissjóðs:
1979 1. flokkur 100.00 + dagvextir.
PléRPErrinCRRPÉU)G ÍAMIDf HP.
VERÐBRÉFAM ARKAÐUR
LÆKJARGÖTU 12 R. (Iðnaðarbankahúsinu).
Sími 2 05 80.
Opið alla virka daga frá kl. 9.30—16
Síðasta sýning á
„Ef skynsemin blundar”
Samvinnuferðir-Landsýn
með írlandsdaga í Þórskaffi