Morgunblaðið - 31.03.1979, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. MARZ 1979
Þaö þykir vart tíðindum sæta þó
ný tamningastöð taki til starfa nú,
enda hafa sjaldan eða aldrei jafn-
margir aðilar auglýst að þeir taki
hross í tamningu eins og í vetur.
Starfsemi einnar af þessum tamn-
ingastöðvum hefur þó vakið
nokkra athygli enda eru þar ekki
einasta tamin hross, heldur er
ætlunin að halda þar margvísleg
námskeið og einnig eru þar til sölu
hross. Er þetta margvísleg nám-
skeið og einnig eru þar til sölu
hross. Er þetta hestamiðstöðin
Dalur í Mosfellssveit en forsvars-
menn hennar hafa hug á því að
brydda upp á ýmsum nýjungum.
20 hross á biðlista
Hestamiðstöðin Dalur er starf-
rækt í hesthúsi, sem stendur rétt
við Dalland í Mosfellssveit, eða
nánar tiltekið skammt frá vegin-
um að Hafravatni, þegar ekið er af
Suðurlandsvegi hjá Geithálsi. I
hesthúsinu er aðstaða fyrir 25
hross en ætlunin að auka nokkuð
við það rými innan tíðar. Við
húsið er tamningagerði og þar
skammt frá er 200 metra hring-
völlur. Þeir, sem standa að hesta-
miðstöðinni Dal eru Jóhann Frið-
riksson, Eyjólfur Isólfsson og
Gunnar Dungal. Starfa þeir Eyj-
ólfur og Trausti Þór Guðmunds-
son sem tamningamenn í Dal en
einnig temur með þeim Guðbjörg
Sveinsdóttir, kona Eyjólfs, hluta
úr degi.
Þátturinn heimsótti stöðina í
Dal nýverið og ræddi við tamn-
ingamennina þar. Aðspurðir um
Hestar
Umsjóiit Tryggvi
Gunnarsson
tildrög þess, að þessi starfsemi var
hafin, sagði Eyjólfur, að þeir
Jóhann og Gunnar hefðu oft rætt
þá hugmynd að koma upp aðstöðu
sem þessari þar sem væri hægt að
veita hestamönnum ýmsa þjón-
ustu t.d. varðandi tamningu
hrossa og námskeiðshaldi. Þegar
sá möguleiki hefði opnast að nýta
það húsnæði, sem þeir hefðu nú
innréttað sem hesthús, fyrir starf-
semi sem þessa, hefði tækifærið
verið gripið og ljóst væri af
undirtektum að þessi starfsemi
hefði verið vel þegin af hesta-
mönnum.
Hestamiðstöðin Dalur tók til
starfa í haust og þegar hafa 50
hross verið „útskrifuð" ef svo má
að orði komast en ýmist hafa
þetta verið hross, sem þurft hafa
við tamningu eða þjálfun. Sögðust
Eyjólfur og Trausti ekki taka
hross í skemmri tíma en einn
mánuð og helzt þyrfti hrossið að
vera eitthvað tamið er það kæmi.
Væri hrossið hins vegar ótamið
væri lágmarkstiminn 2 mánuðir.
A
EIOFAXI
MÁNAÐARBLAD
UMHESTA OG
HESTAMENNSKU
FRÉTTIR OG
FRÁSAGNIR ÍMÁLI
OGMYNDUM
ÁSKRIFT ÍSÍMA 85111
Séð eftir fóðurganginum í hesthúsi Dals en alls er þar aðstaða fyrir 25 hross.
hann geti betur ákveðið sig og við
leiðbeint honum um, hvernig best
er að umgangast viðkomandi
hross," sagði Eyjólfur.
Talið barst að verðlagi á hross-
um nú og sögðu þeir Trausti og
Eyjólfur að erfitt væri að segja
ákveðið til um það. Töldu þeir að
þó mætti gera ráð fyrir að gang-
verð á þægilegum reiðhesti væri á
bilinu 350 til 500 þúsund en
gæðingar færu á 500 þúsund og
þar yfir.
Námsekeið fyrir litla hópa
um sérgreind viðgfangsefni
Ætlunin er að á vegum hesta-
miðstöðvarinnar Dals verði haldin
margvísleg námskeið í hesta-
mennsku og er ráðgert að þau
fyrstu hefjist upp úr páskum.
Hestamiðstöðin Dalur
í Mosfellssveit heimsótt
Eyjólfur og Trausti leggja upp í útreiðartúr en í baksýn má sjá hesthús stöðvarinnar,
Ágæt aðstaða er sem fyrr sagði í
Dal en þar er bæði tamningagerði
og hringvöllur. I öðrum enda
hesthússins hefur verið innréttuð
upphituð kaffistofa sem jafnframt
er ætlunin að verði kennslustofa
meðan á námskeiðunum stendur.
Þá er ætlunin að þátttakendur í
námskeiðunum hafi hross sín í
hesthúsinu í Dal meðan á nám-
skeiðinu stendur en yfirleitt eiga
þau að standa í vikutíma og er
þátttakendafjöldinn að hámarki
bundinn við 10 manns.
„Við ætlum okkur að leggja
áherzlu á að hafa litla hópa á
hverju námskeiði og greina á milli
þess, hvort um vana hestamenn er
að ræða eða ekki. Viðfangsefnin á
námskeiðunum verða líka nokkuð
sérgreind og þannig mætti hugsa
sér að setja upp námskeið sérstak-
lega fyrir þá, sem vilja þjálfa sig í
íþróttakeppnisgreinunum, hlýðni-
Algengast hefði verið að hrossinn
væru hjá þeim í einn og hálfan
mánuð til tvo en lengst hefðu þau
verið í þrjá. Tamning og fóðrun
kostar á mánuði hjá Dal 55.000
krónur á hest. „Eftirspurnin eftir
plássum hér hefur verið það mikil
að við höfum alltaf verið með
hross á biðlista. Mest hafa verið
30 hross á biðlista hjá okkur en nú
er búið að panta fyrir 20 hross,
sem við höfum ekki getað tekið
enn,“ sagði Eyjólfur.
„Aðallega að hækka
hann að framan“
„Við höfum líka lagt á það
áherzlu að eigendur þeirra hrossa
Eyjólfur fer í fyrsta sinn á bak
ótömdum fola.
sem við höfum í tamningu, komi
hingað áður en við skilum hross-
inu og þá förum við í útreiðartúr
með eigandann og bendum honum
á ýmislegt, sem hafa þarf í huga í
samskiptum við hrossið", segir
Eyjólfur „en því miður hefur það
oft viljað brenna við að menn hafa
tekið við hrossum úr tamningu og
einungis vegna þess að þeim hefur
kannski ekki verið bent á eitthvað,
sem sérstaklega þarf að huga að
varðandi notkun á hrossinu, fer
allt í handaskol og allir verða
óánægðir með árangurinn. Vitan-
lega verður enginn hestur algóður
eftir að hafa verið í tamningu og
það er oft ekki síður ástæða til að
gefa eigandanum einhverjar leið-
beiningar um hvernig hann eigi að
bera sig að við hestinn.
Stundum kemur það fyrir að
menn setja hross í tamningu, sem
tamningamaðurinn finnur strax,
að hann getur kannski ekkert
bætt né tamið, einungis vegna
þess að reiðhestshæfileikar hross-
ins eru það takmarkaðir. Við
höfum tekið þann kostinn í tilvik-
um, sem þessum að láta eigend-
urna vita strax, þannig að þeir
geti tekið um það ákvörðun sjálfir,
hvort þeir kjósa að kosta upp á
tamningu á hrossinu, sem fyrir-
fram kemur til með að bera næsta
lítinn árangur."
Trausti bendir á að oft óski
menn eftir að koma tömdum
hrossum í þjálfun í stuttan tíma.
„Við fáum stundum beiðnir um að
lagfæra gangsetninguna eða aðal-
lega að hækka hann að framan,
þannig að verkbeiðnirnar minna
kannski einna helst á bifreiða-
verkstæði. En vitanlega getur
tamningamaðurinn aldrei bætt úr
öllum þeim göllum, sem á einum
hesti kunna að vera, þó að margt
megi laga með réttri þjálfun,"
segir Trausti.
Kaupa og selja hross
Þeir í Dal hafa einnig gert
nokkuð af því að kaupa hross,
temja þau og selja. Sögðu Eyjólfur
og Trausti að þeir hefðu þó haft
lítinn tíma til að sinna þessum
þætti vegna anna við tamningarn-
ar en þeir hefðu þó nýverið keypt
nokkur hross norður í Skagafirði.
Væru þetta allt hross, sem þegar
hefði verið byrjað að temja og
yrðu sum þeirra því boðin til sölu
innan tíðar.
„Því miður hefur sala á hrossum
yfirleitt gengið út á það að selj-
andi lýsir hrossinu, sem úrvals-
grip og sjálfsagt væri hér lítið um
annað en topphesta, ef allar þess-
ar lýsingar hefðu við rök að
styðjast. Við höfum því lagt
áherzlu á að lýsa hrossunum, sem
við seljum eins og þau eru og gefa
kaupendunum kost á að fara með
okkur í útreiðartúr, þannig að
þjálfun, hindrunarhlaupi eða
þjálfan gangskiptinga. Kennsla á
námskeiðunum verður bæði bók-
leg og verkleg en ég er þeirrar
skoðunar að það sé lágmark að 1/3
sé bóklegt. Með því móti er hægt
að kynna þátttakendunum fyrir-
fram hvað felst í hinum einstöku
æfingum og fá þá til að skilja
betur að hvaða marki er stefnt,"
sagði Eyjólfur.
„Menn eru alltaf að
huga að einhverju“
Degi var nú tekið að halla og
tamningamennirnir tóku að búa
sig undir að taka eitthvað af
folunum á ný út. Þegar rölt var
eftir fóðurganginum barst talið að
væntanlegu Evrópumóti íslenskra
hesta í Hollandi næsta sumar en
báðir hafa þeir Eyjólfur og
Trausti keppt á Evrópumóti. Við
spurðum, hvort þeir væru farnir
að huga að þjálfum einhverra
hesta, sem þeir ætluðu að keppa á
um réttinn til að fara á mótið í
sumar. Báðir urðu þeir hljóðir og
Trausti vék sér inn í eina stíuna
en það eina, sem hafðist upp úr
Eyjolfi var. „Menn eru alltaf að
huga að einhverju." Við kvöddum
og þökkuðum fyrir ánægjulega
dagstund. _ j.g.
Það er ekki nóg að ríða aðeins út á hrossunum heldur verður að
leggja rækt við að hirða þau. Hér kembir Trausti einn folann áður
en lagt er af stað.