Morgunblaðið - 31.03.1979, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. MARZ 1979
19
Foreldrar og börn í Krógaseli voru áhyggjufull á svipinn eins og sést á meðfylgjandi myndum. Hvort
börnin gera sér grein fyrir vandamálinu er ekki gott að segja. en þau skynja oft kvíða foreidra sinna.
Foreldraheimilið Krógasel:
Stöðvun starfseminnar
framundan, ef ekki rætist
úr um útvegun húsnæðis
FORELDRAR og fóstrur dag-
heimilisins Krógasels í
Árbæjarhverfi boðuðu blaða-
menn á sinn fund fimmtudag-
inn 29. marz. Tilefnið var að
kynna starfsemi heimilisins og
gera grein fyrir vandamáli
þess vegna væntanlegs hús-
næðisleysis.
Heimilið er staðsett í ein-
býlishúsi í einkaeign og er það
hóf þar starfssemi sína var
samið um fimm ára leigutíma,
er rennur út í byrjun maímán-
aðar. Aðstandendur heimilisins
hafa mikið leitað eftir hentugu
húsnæði, en ekki haft árangur
sem erfiði. Þau tóku sérstak-
lega fram, að eigandi húsins
hefði verið þeim mjög hliðholl-
ur. en ekki væri möguleiki á
framlengingu leigusamnings-
ins vegna persónulegra
aðstæðna hans.
Krógasel er svol^allað for-
eldradagheimili, er tók til starfa
í maí 1974. Stofnendur voru
foreldrar, er átt höfðu við
vandamál að stríða við útvegun
dagvistunar fyrir börn sín.
Heimilið er sjálfseignarstofnun,
rekið á kostnað og að tilhlutan
foreldranna sjálfra, þó með
nokkrum fjárstuðningi frá
Reykjavíkurborg, en sá styrkur
er ekki auðfenginn, því eins og
einn faðirinn orðaði það: „Það er
eins og að kreista mjólk úr
steini að fá styrkinn útborgað-
an“.
Uppbygging og skipulag dag-
heimilisins byggist á virkri
þátttöku allra foreldra. Leitast
er við að hafa samstarf foreldra
og starfsfólks, sem er fimm
talsins, sem nánast. Á heimilinu
er pláss fyrir 20 börn í heils-
dagsvistun, en þar dvelja nú 19
börn, þar af 2 í hálfsdagsvistun.
Börnin eru á aldrinum 18 mán-
aða til 7 ára og var ekki annað
séð en að þeim líkaði vistin vel,
enda heimiHð skemmtilega inn-
réttað ög hafa foreldrarnir
sjálfir smíðað innréttingar og
flest leiktæki. Frá upphafi hafa
um 65 börn dvalið á dagheimil-
inu um lengri eða skemmri
tíma.
Öll vinna foreldra við heimilið
er sjálfboðavinna og leggja þau
sjálf fram fé til leikfangakaupa
og skiptast á um að taka að sér
tveggja daga vinnu við að leysa
fóstrurnar af milli kl. 5 og 7 á
daginn, ef þörf krefur. Með því
móti er sveiganleiki milli komu
og brottfarartíma barnanna
mun meiri. Dvalartími hvers
barns er þó aldrei lengri en 8
klst. á dag. Sögðu foreldrarnir,
að verulegar fjárhæðir spöruð-
ust með þessu móti.
Ef ekki tekst að útvega heim-
ilinu húsnæði í tíma mun það
hafa 1 för með sér mikla erfið-
leika fyrir börnin og foreldra
þeirra. Einnig munu starfs-
mennirnir fimm missa atvinnu
sína, en þeim hefur nú verið
sagt upp störfum vegna óviss-
unnar um framtíðina. For-
eldrarnir tóku fram í lokin að
hentugasta húsnæðið til þessa
reksturs væri einbýlishús með
góðum garði, og skipti ekki máli
hvort þar væri um að ræða
gamalt eða nýtt húsnæði. Þau
væru tilbúin að vinna sjálf við
endurbætur, ef á þyrfti að
halda. Staðsetning væri einnig
aukaatriði. í dag kæmu börnin
frá hinum ýmsu borgarhverfum,
og eins og þau orðuðu það sjálf:
„Börnin okkar fá ekki inni á
dagheimilum borgarinnar og
okkur finnst það vel þess virði
að keyra þau langar vegalengdir
og losna þess í stað við að leita
inn á „dagmömmusystemið",
sem við teljum algjöra neyðar-
ráðstöfun“.
Nokkrir leikendanna úr uppfærslu leikfélags Dalvíkur á Saumastof-
unni. Talið frá hægri: Svanhildur Árnadóttir, Kristjana Arngríms-
dóttir, Guðný Bjarnadóttir, Herborg Harðardóttir, Dagný Kjartans-
dóttir og Sigríður Hafstað.
Saumastofan á Dalvlk
Bil stolið
á Akureyri
LÖGREGLAN á Akureyri lýsir
eftir A-5989, sem er rauð Cortina,
árgerð 1970. Bílnum var stolið á
þriðjudagskvöld á stæðinu við
Hótel KEA.
Refarækt
á
ísafirði?
í Landbúnaðarrúðuneytinu hefur í
nokkurn tíma legið umsókn frá
aðilum á ísafirði um leyfi til að hefja
loðdýrarækt þar vestra. Umsóknin
hefur ekki verið afgreidd, en undan-
farið hefur áhugi vaxið mjög að nýju
fyrir loðdýrarækt og þá einkum á
refarækt. ísfirðingarnir munu ætla
sér, ef tilskilin leyfi fást, að vera
bæði með refi og minka í búi sínu.
LEIKFÉLAG Dalvíkur frumsýndi
Saumastofuna eftir Kjartan
Ragnarsson í gær, föstudaginn 30.
mars í Ungmennafélagshúsinu á
Dalvík. Leikstjóri er Guðrún
Alfreðsdóttir en leikendur eru:
Dagný Kjartansdóttir, Guðný
Bjarnadóttir, Herborg Harðar-
dóttir, Kristjana Arngrímsdóttir,
Sigríður Hafstað, Svanhildur
Árnadóttir, Helgi Þorsteinsson,
Kristján Hjartarson og Rúnar
Lund.
Næstu sýningar verða sunnu-
daginn 1. apríl kl. 16 og þriðjudag-
inn 3. apríl kl. 21.
Gunnar Thoroddsen fjallar
um 30. marz árið 1949
„30. marz 1949 og þrjátíu ár í
Atlantshafsbandalaginu“ er heiti
ræðu sem dr. Gunnar Thoroddsen
flytur í dag á hádegisverðarfundi
Varðbergs í Kristalssal Hótels'
Loftleiða.
I ræðu sinni mun dr. Gunnar
segja frá atburðunum 30. marz
fyrir þrjátíu árum, reka
aðdragandann að stofnaðild ís-
lands að NATO og þátttöku ís-
lendinga í bandalaginu síðan, en
Gunnar er eini alþingismaðurinn
sem studdi þátttöku íslands að
Atlantshafsbandalaginu 1949, og
enn á sæti á Alþingi.
Dr. Gunnar Thoroddsen
Ferðaskrifstofan
Víðsýn stofnuð
Stofnuð hefur verið í Reykjavík
ferðaskrifstofan Víðsýn, en sam-
gönguráðuneytið hefur veitt sr.
Frank M. Halldórssyni leyfi til
reksturs ferðaskrifstofu. — Meg-
intilgangurinn með stofnun þess-
arar skrifstofu cr a skipuleggja
ferðir á helga staði og söguslóðir.
sagði sr. Frank í samtali við Mbl.
og hafa þegar verið ákveðnar 3
ferðir í vor til reynslu og langar
okkur að vita hver sé áhugi meðal
landsmanna á fræðsluferðum sem
þessum, en ekki eingöngu sólar-
landaferðum.
Sr. Frank sagði að fleiri ferðir
væru á undirbúningsstigi, hefði
þegar verið spurt eftir Evrópu-
ferðum, t.d. til Þýzkalands þar sem
væri hægt að sjá frægar helgi-
t
I
Batnandi
skíðafæri
í nágrenni
Reykjavíkur
SKÍÐAFÆRÐ í skíðalöndum
kringum Reykjavík verður
gott um helgina samkvæmt
upplýsingum sem Mbl. aflaði
sér í gær. í Skálafclli hefur
ástandið hantað mjög, þar
snjóaði í fyrrinótt og hefur því
færið batnað mjög. Þar verða
2 lyftur í gangi um helgina
auk einnar fyrir börn. Sömu-
leiðis er ástandið í Bláfjöllum
betra en verið hefur síðustu
daga þar sem bætt hefur við
snjóinn og verða allar lyftur í
gangi þar í dag og á morgun
svo framarlega sem veður
skiptir ekki skyndilega um.
Akvegir að skíðalöndunum
eru greiðfærir.
leikjasýningar í Oberammergau,
svo og til Skotlands og Irlands, en
reynsla þessara fyrstu ferða yrði
að skera úr um framhaldið. Sr.
Frank er prestur í Nesprestakalli
og kvaðst hann hafa fengið til liðs
við sig reynda starfskrafta til
starfa á skrifstofunni sem er til
húsa við Vesturgötu 19, en starf
þetta kæmi á engan hátt niður á
preststarfinu.
Sr. Frank M. Halldórsson kvað
það sér mikið áhugamál að sem
flestir kynntust söguslóðum
Biblíunnar og því hefðu veriö
undirbúnar 2 ferðir til Israels.
Verður hin fyrri páskaferð til
ísraels hinn 10,—24. apríl með
viðkomu í London á heimleið og
hin síðari um hvítasunnuna, einn-
ig hálfsmánaðarferð. Verður fyrst
dvalist í Jerúsalem í þessum ferð-
um, síðan í Galileu og Tel-Aviv. Þá
hefur verið ákveðin ferð til Grikk-
lands og Egyptalands í síðustu
viku júnímánaðar þar sem m.a.
verður dvalist í Aþenu og Kaíró.
Borgarrád:
Tíir
39%
hækkun
hitaveitu
Á FUNDI borgarráðs í gær
var samþykkt að óska eftir
leyfi til hækkunar á gjald-
skrá Hitaveitu Reykjavíkur
um 39%.
Verði hækkunarbeiðnin
samþykkt kemur hún til
framkvæmda frá og með 1.
maí næstkomandi.
INNLENT
Málverkasýn-
ing t>órunnar
Eiríksdóttur
MALVERKASÝNINGU Þórunnar
Eiríksdóttur í FIM-salnum
Laugarnesvegi 112 lýkur á morgun
31. mars.
Á sýningunni sem opnaði
laugardaginn 24. mars s.l. eru 23
oliumálverk flest máluð á síðast-
liðnum tveimur árum. Sýningin
verður opin í dag og á morgun frá
14-22.