Morgunblaðið - 31.03.1979, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. MARZ 1979
11% forskot
íhaldsflokks
London, 30. marz. AP.
ÞRJÁR skoðanakannanir sem
birtar voru í Bretlandi í dag
benda tii þess, að Ihaldsflokk-
urinn sigri með miklum yfir-
burðum í kosningunum 3. maí
næstkomandi, en þann dag
ganga brezkir kjósendur að
kjörborðinu í ellefta sinn frá
lokum seinni heimsstyrjaldar.
Að jafnaði gera skoðana-
kannanirnar ráð fyrir því, að
íhaldsflokkurinn hafi um 11 af
hundraði fram yfir Verka-
mannaflokkinn. Búist er við að
þetta forskot minnki þegar nær
dregur kosningum.
Kveikti
stráksi í
hótelunum
Boston. 30. marz, AP.
ÁTJÁN ára piltur hefur verið
sakaður um að hafa kveikt í
Sheraton- og Copley Plaza-hót-
elunum í Boston á fimmtudags-
morgun. í brunanum særðust
13 manns alvarlega og tæpir
2,000 gestir og starfsfólk hótel-
anna urðu að flýja út úr
húsunum.
Pilturinn, sem heitir Julio
Rodrigues, hefur starfað á báð-
um hótelunum, en verið rekinn
frá störfum.
Sterling kaupir
Júmbó
Seattle, Washinsrton, 30. marz. AP.
DANSKA flugfélagið Sterling
tilkynnti í dag, að félagið hefði
gengið frá kaupum tveggja
Boeing-727 þotna af bandarísku
Boeing-flugvélaverksmiðjun-
um. Kaupverð vélanna nemur
um 25 milljónum dollara, eða
um átta milljörðum íslenzkra
króna. Þegar nýju vélarnar
tvær bætast í flota félagsins
hefur Sterling yfir að ráða sjö
Júmbó-þotum.
Stungið upp
á Carter
Ósló, 30 marz. AP.
JAKOB Sverdrup, forstöðu-
maður Nóbels-stofnunarinnar í
Ósló, staðfesti í dag að fullgild
uppástunga hefði borist um að
Jimmy Carter Bandaríkjafor-
seta yrðu veitt friðarverðlaun
Nóbels fyrir árið 1979.
Stungið var upp á rúmlega 50
mönnum og mun Nóbelsnefnd
norska stórþingsins velja úr
þeim hópi seinna á árinu eða þá
þann sem hnossið hljóta.
Hafa Rússar
fundið Atlantis
Lissabon, 30. marz. AP.
SOVÉZKIR vísindamenn sem
skýrt hafa frá íundi borgarleifa á
botni Atlantshafsins telja sig
örugga um að þeir hafi fundið hið
týnda land Atlantis, að því er
haft er eftir portúgölskum em-
bættismanni í dag.
Embættismaðurinn sagði að
Rússar hefðu tekið ljósmyndir af
borgarleifum á svæði um 320—480
kílómetra undan ströndum Portú-
gals, og léki enginn vafi á því, að
þeir hefðu fundið eitthvað mark-
vert. Vísindamennirnir hefðu
heimsótt stofnun hans fyrir
skömmu og þá látið í ljós mikla
hrifningu með fund sinn, og að um
Atlantis væri að ræða.
Verið er að rannsaka ljósmyndir
vísindamannanna í Moskvu og
verða þær birtar opinberlega að
lokinni rannsókn. Vísindamenn-
irnir hafa varist allra frétta af
aðstæðum á fundarstað.
Lítil eining hefur að undanförnu verið með leiðtogum Araba-
þjóða. Einn þeirra, sem þar hefur mikið komið við sögu, er Yasser
Arafat, leiðtogi Palestínuskæruliða. Myndin var tekin á fundi í
æfingabúðum PLO þar sem Arafat stappaði stálinu í nýliða
skæruliðahreyfingarinnar.
Fækkað í her
Bandaríkjaima
Washingrton, 30. marz, Reuter.
VARNARMÁLARÁÐUNEYTI Bandaríkjanna tilkynnti
í dag að fækkað yrði um 15,300 stöður í herafla
Bandaríkjanna svo að spara mætti 264 millj. dollara í
útgjöldum.
Þessar sparnaðarráð-
stafanir munu koma að ein-
hverju leyti niður á 157
herstöðvum í landinu. Þar á
meðal verður þjálfunarstöð
hersins í Fort Dix í New
Jersey lokað.
Sú ákvörðun
hefur hlotið misjafna dóma
og munu. þingmenn New
Jersey reyna að fá þeirri
ákvörðun hrundið.
Sparnaðaraðgerðir hers-
ins eru liður í þeirri við-
leitni Jimmy Carters for-
seta að draga úr opinberum
útgjöldum.
r * * #
Irska pundið
óháð
því brezka
Dyflinni, 30. marz. Reuter—AP.
IRAR rufu í dag samband það sem
verið hefur á skráningu gjaldmið-
ils þeirra og Breta. Ekki voru
margar mínútur liðnar frá því að
tilkynnt var um þessa ákvörðun
þar til írska pundið lækkaði í verði
gagnvart brezka pundinu og
Bandaríkjadollar.
Veður
víöa
um heim
Akureyri 4 skýjað
Amsterdam 7 rigning
AÞena 19 heiðskírt
Barcelona 13 léttskýjað
Berlín 6 rigning
Brussel 8 rigning
Chicago 12 rigning
Frankfurt 8 rigning
Genf 5 skýjað
Helsinkí 4 heiðskírt
Jerúsalem 23 skýjað
Jóhannesarb. 22 léttskýjað
Kauppiannahöfn 4 skýjað
Lissabon 14 skýjað
London 7 skýjað
Los Angeles 16 rigning
Madríd 11 léttskýjað
Malaga 15 léttskýjað
Mallorca 12 skýjað
Miami 25 rigning
Moskva 4 skýjaö
New York 16 rigning
Ósló 5 skýjað
París 6 rigning
íranskeisari
kominn til
Bahama-eyja
Nassau, Rahama ,'\ jum.
30. marz. AP—Reuter.
ÍRANSKEISARI kom ásamt fjöl-
skyldu sinni til Bahama frá Mar-
okkó í dag, en heimildir í
Marokkó hermdu að keisarinn
hygðist setjast að á Bahama-eyj-
um.
Mikil öryggisgæsla var viðhöfð
þegar vél keisarans lenti og var
fólki haldið fjarri flugvellinum.
Aðeins starfsmenn útlendingaeft-
irlitsins, öryggisverðir og örfáir
blaðamenn voru viðstaddir.
Keisarinn talaði ekki við frétta-
menn. Biðu hans þrjár þyrlur og
var keisaranum flogið á afskekkt-
an stað í einni þeirra, en öðrum úr
fjölskyldunni og fylgdarliði í hin-
um tveimur.
50 fórust í
veðurofsa
Suva, Fiji, 30. marz. Reuter.
ÓTTAST er að yfir 50 manns hafi
farist í veðurofsa sem gekk yfir
Fiji-eyjar í vikunni, að því er
tilkynnt var af opinberri hálfu í
dag. Meðal hinna látnu var 21
kona og börn sem höfðust við í
* kirkju sem hrundi í veðurofsanum.
Þetta gerðist
1971 — Liðsforinginn William
Calley dæmdur í ævilangt fangelsi
fyrir morðin í My Lai.
1970 — Níu stúdentar ræna jap-
anskri farþegaflugvél sem lendir í
Seoul á leið til Norður-Kóreu.
t061964 — Uppreisn hefst gegn
stjórn Joao Goularts forseta í
Brazilíu.
1955 — Kínverski kommúnista-
flokkurinn byrjar hreinsanir.
1953 — Dag Hammarskjöld kos-
inn framkvæmdastjóri SÞ.
1948 — Bandaríkjaþing samþykk-
ir Marshall-aðstoðina.
1942 — Japanir ógna austur-
strönd Indlands með sigrum í
Burma.
1936 — Bretar og Frakkar heita
Pólverjum stuðningi með árás.
1917 — Bandaríkjamenn taka við
stjórn Jómfrúreyja af Dönum.
1913 — Tyrkir samþykkja tillögur
stórveldanna um frið við Búlgara.
1905 — Heimsókn Vilhjálms II
keisara veldur fyrri Marokkódeil-
unni.
1889 — Eiffel-turninn í París
opnaður.
1885 — Stjórn Jules Ferry fellur
vegna ósigra Frakka fyrir Kín-
verjum í Hanoi.
1854 — Bandaríski flotaforinginn
Perry semur við Japani um opnun
hafna.
1814 — Uppgjöf Parísar fyrir
Bandamönnum.
1683 — Pólverjar gera bandalag
við keisararíkið gegn Tyrkjum.
1496 — Alexander páfi VI stofnar
Heilaga bandalagið.
1492 — Gyðingar fá þriggja mán-
aða frest til að fara frá Spáni.
Afmæli: René Descartes, franskur
heimspekingur (1596 —1650) —
Franz Josef Haydn, austurrískt
tónskáld (1732—1809) — Nikolai
Gogol, rússneskur rithöfundur
(1809—1852) — R.W. von Bunsen,
þýzkur efnafræðingur
(1811-1899).
Andlát: Franz I Frakkakonungur
1547 — John Donne, skáld, 1631 —
John Constable, listmálari, 1837 —
John Calhoun, stjórnmálaleiðtogi,
1850 — Charlotte Bronté, skáld-
kona, 1855 — J.P. Morgan, fjár-
málamaður, 1913.
Innlent: Björn Jónsson skipaður
ráðherra 1909 — Eldsumbrota
vart í Vatnajökli 1934 — Gull
finnst við rætur Öskjuhlíðar 1905
— d. Þorvarður Þórarinsson 1296
— f. Bjarni Þorsteinsson konfer-
enzráð 1781 — Páll Melsteð amt-
maður 1791 — Helgi Pjeturss 1872
— d. Indriði Einarsson 1939 —
Lýðveldisflokkur stofnaður 1953
— f. Jón Múli 1921 — Gjaldþroti
lokar borgarfógeta inni 1967.
Orð dagsins: Áð sigra sjálfan sig
er mesti sigurinn — Platon, grísk-
ur heimspekingur (um 427—347 f.
Kr.)
Ótti ríkir í Harrisburg”
ÞAÐ ÓHAPP vildi til í kjarn-
orkuveri á eyju í ánni Susque-
hanna í Ilarrisburg í Pennsyi-
vania-fylki í Bandaríkjunum í
vikunni, að kælikerfi versins
bilaði og tæki í kjarnakljúfi
ofhitnuðu, en við það lagði geisla-
virkar gufur frá verinu og kæli-
vatn varð geislavirkt. í Harris-
burg er verksmiðja Sambands
íslenzkra samvinnufélaga, Ice-
land Seafood Corporation, (ISC),
og í viðtali við Morgunblaðið
hafði Guðjón B. Ólafsson fram-
kvæmdastjóri ISC eftirfarandi
um aðstæður f bænum að segja,
en á svæði þar hefur neyðar-
ástandi verið lýst:
„Þetta slys og afleiðingar þess
er mikið hitamál, ekki aðeins í
Harrisburg, heldur einnig víðar.
Mikil beiskja ríkir meðal almenn-
ings út í forsvarsmenn kjarnorku-
versins, því þeir hafa yfirleitt
segir Guðjón
B. Ólafsson
frkvstj.
þar í borg
verið tregir til að skýra frá gangi
mála á slysstað og legið á upplýs-
ingum. Þeir skýrðu t.d. ekki frá
því fyrr en í dag, að þeir hefðu
hleypt geislavirku kælivatni út í
ána í gær og að geislavirkum
gastegundum hefði verið hleypt út
í andrúmsloftið í nótt. Þá varð
slysið um miðja nótt, en þeir
gerðu ekki viðvart fyrr en að 3—4
klukkustundum liðnum.
Fólk er einkum biturt þar sem
það sem það sér ekki og á erfitt
með að gera sér grein fyrir hætt-
unni og það geta liðið mörg ár
áður en afleiðingar geislunar
koma fram.
Fyrir nokkrum klukkustundum
var fólk á svæði í átta kílómetra
radíus frá verinu beðið um að vera
tilbúið til að yfirgefa hús sín, og
fólk í allt að 16 kílómetra fjarlægð
beðið um að vera á varðbergi.
Verksmiðja okkar er í 20 kíló-
metra fjarlægð frá kjarnorkuver-
inu og höfum við ekki enn orðið að
grípa til þess ráðs að senda fólk
heim. Slysið hefur þó haft veruleg
áhrif á starfsfólk okkar og er það
mjög óttaslegið yfir öllu saman.
Forsvarsmenn kjarnorkuversins
áætla að komist verði fyrir lekann
og bilunina á næstu sólarhringum.
Á eynni eru um milljón lítrar af
mjög geislavirku kælivatni sem
flytja þarf milli tanka, en við það
verk þarf að hleypa út geislavirku
gasi og kann því enn að eiga eftir
að draga til tíðinda hér.
Það er til að auka á alla ringul-
reiðina meðal íbúa í Harrisburg
að sérfræðingar sem flykkst hafa
hingað greinir á um til hvaða
aðgerða skuli gripið og hversu
alvarlegt ástandið er.“
I fréttastofufregnum í dag seg-
ir, að geislunin innan kjarnorku-
versins sé hundrað sinnum meiri
en venjulega. Urgangsefnin sem
safnast hafa saman innan kjarna-
kljúfsbyggingarinnar hafa valdið
sérfræðingum erfiðleikum og er
enn óljóst hvernig þeim verður
eytt. Yfirvöld segja að geislun sé
nú eingöngu á eynni þar sem
kjarnorkuverið er staðsett, en
sérfræðingar, einkum efasemda-
menn, hafa dregið þær fullyrðing-
ar í efa.