Morgunblaðið - 31.03.1979, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. MARZ 1979
31
E]E]E]E1G]B]GIE]E]E]E]E]E]E]G]G]B)E]E1E]E]E]E]E]E]G]G]E]B]S]E]Q|
Q1
Ð1
B1
E1
Eöl Snyrtilegur klæönaöur.
IÖ1 Opiö 9—2 í kvöld.
E1
G]E]E]E]B]E]G]E]g]E]E]G]E]E]E]E]E]E]E]E]E]E]B)G]E]E]E]E]E]G]g]E]
Sýjtíui
Galdrakarlar
og diskótek
ISlsIá IsiIalalalalalS
H Bingó
[G] laugardag jg
Aðalvinningur in
fri vöruúttekt fyrir h=
13 kr. 40.000,- 13
G]E]E]E]E]E]E]E]E]Ej
Byggingarsjód skortir
hálf an þrið ja milljarð
Eignarréttur
á jarðhita og
virkjunarrétti
Ólafur Jóhannesson, forsætisráö-
herra, svaraði nýlega fyrirspurn frá
Braga Sigurjónssyni (A) um
framanskráð efni. Frumvarp, sem til
þess skipuð nefnd hefur samið um
eignarrétt á jarðhita (með það fyrir
augum að hann verði þjóðareign),
hefur skilað frumvarpsdrögum, sem
nú eru í skoðun hjá ríkisstjórn.
Könnun á hugsanlegri þjóðareign
virkjunarréttinda (í fallvötnum) er
skemmra á veg komin en á rekspöl
þó.
• Þrengt að Bygging-
arsjóði ríkisins
Magnús H. Magnússon, félags-
málaráðherra, svaraði fyrir
skemmstu fyrirspurn frá Þorvaldi
Garðari Kristjánssyni (S) varðandi
fjármagn Byggingarsjóðs 1979. Kom
fram í svari ráðherra að ráð-
stöfunarfé til lánveitinga 1979 væri
rétt rúmir 12 milljarðar króna en
lánsfjárþörf, skv. áætlun, 14'/2 millj-
aröur króna. Alls er áætlað að lána
þurfi til 5150 íbúða, þar af 2284
íbúða, sem bygging hefst á 1979
sagði ráðherra lán í hlutfalli af
byggingarkostnaði fara mjög eftir
stærð íbúðar og íburði, sveiflaðist
frá 10—15% í dýrum einbýlishúsum
upp í 40—50% í litlum fjölbýlishúsa-
íbúðum.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
benti á, að skv. upplýsingum ráð-
herra skorti allt að 2'A milljarði
króna til mæta lánsfjárþörf hjá
Byggingarsjóði. Ráðstöfunarfé hans
hefði hvergi nærri vaxið í hlutfalli
við byggingarkostnað. Ef halda ætti
sama hlutfalli í lánum pr. íbúð, eins
og fullyrt væri, hlyti fækkun lána að
koma til, þ.e. samdráttur í íbúða-
byggingum, ofan á sýnilegan sam-
drátt í byggingu annarra mann-
virkja, vegna margvíslegra sam-
dráttaraðgerða stjórnvalda í lóðaút-
hlutun, nýbyggingargjalds o.fl.
• Mál, sem hlaut
alÞjóðarstuðning
Fá mál hafa hlotið jafn almennan
stuðning, hvorki innan þings né
utan, og þingsályktun sú, sem
Alþingi samþykkti nýlega um lífríki
Breiðafjarðar, sem Friðjón Þórðar-
Son (S) flutti og mælti fyrir og Mbl.
hefur ítarlega skýrt frá.
Allsherjarnefnd Sþ. bárust ein-
dregin meðmæli með samþ. þál. um
lífríki Breiðafjarðar frá eftirtöldum
aðilum, sem fengu tiil. til umsagnar:
• 1. Sýslum. A- og V-Barðastr.
(Jóh. Árnason sýslum.).
• 2. Æðarræktarfélag Islands (Ól.
E. Ólafsson).
• 3. Náttúrufræðistofnun Islands
(Ævar Petersen).
• 4. Vestfirsk náttúruverndarsam-
tök (Lára G. Oddsdóttir).
• 5. Náttúruverndarráð (Árni
Reynisson).
• 6. Búnaðarsamband Dalamanna
(Jón Hólm Stefánsson).
• 7. Búnaðarfélag Islands (Halldór
Pálsson).
• 8. Búnaðarsamband Snæfellinga
(Leifur Kr. Jóhannesson).
• 9. Búnaðarsar.iband Vestfjarða
(Guðm. Ingi Kristjánsson).
• 10. Náttúruverndarsamtök Vest-
urlands (Magnús Óskarsson).
• Islenzkar búvörur
til Þróunarlanda?
Friðjón Þórðarson (S) mælti
nýverið fyrir tillögu sem hann flytur
ásamt þremur öðrum sjálfstæðis-
þingmönnum um könnun á því, hvort
unnt sé að auka stuðning Islands við
þróunarlönd þann veg, að íslenzka
ríkið kaupi búvörur af framleiðend-
um, svo sem mjólkurduft, og sendi
þangað sem þörfin er brýnust fyrir
matvæli. I framsögu hans var m.a.
vitnað til aðildar Islands að ýmsum
stofnunum S.Þ., skyldna er þeirri
aðild fylgja, umframframleiðslu
matvæla sums staðar en næringar-
skorts fólks á öðrum stöðum og
ábendinga sr. Gunnars Gíslasonar í
Mbl. um þetta efni, sem orðið hafi
kveikjan að þessari tillögugerð.
• Opinber gjöld
af íÞróttavörum
Ellert B. Schram (S) mælti nýlega
fyrir tillögu til þingsályktunar, sem
hann flytur ásamt mönnum úr öllum
þingflokkum, þess efnis, að skorað er
á ríkisstjórnina að:
A) gera breytingar á tollskrá,
þar sem tollar á íþróttavörum eru
samræmdir og lækkaðir.
B) fella niður vörugjöld af
íþróttavörum.
Samkvæmt lauslegri athugun, sem
ESch. greindi frá í framsögu sinni
námu aðflutningsgjöld af íþróttavör-
um á síðasta ári kr. 96.863.500.- Eru
þá ekki meðtalin gjöld af íþrótta-
skóm og íþróttafatnaði, sem erfitt
var að sundurgreina frá öðrum
vörum.
• Framkvæmdasjóð-
ur öryrkja
Mjög miklar umræður urðu um
frv. Jóhönnu Sigurðardóttur (A) af
áfengi. Allir þingmenn tóku undir
nauðsyn þess að veita þá fyrir-
greiðslu, er í frv. felst, en margir
mæltu gegn tekjuöflunarleiðinni,
mörkuðum tekjustofni, enda gengi
hann gegn þeirri stefnu í ríkisfjár-
málum, er kunngerð væri í efnahags-
frumvarpi forsætisráðherra (að
fækka mörkuðum tekjustofnum og
auka ráðstöfunarvald alþingis á
ríkisfjármunum við fjárlagagerð).
Þannig sagði Einar Ágústsson (F)
að sér þætti leitt að þurfa að mæla
gegn svo góðu og svo glæsilegum
flutningsmanni. Stefán Valgeirsson
(F) sagði að hann væri ekki andvígur
frv. en hann væri stuðningsmaður
ríkisstjórnar, og vildi ekki fastbinda
afstöðu sína fyrr, en stjórnin hefði
fjallað um, hvort tekjuöflunarleið
frv. samræmdist stefnu hennar í
ríkisfjármálum. Ymsir þingmenn
stjórnarandstöðu mæltu og gegn
tekjuöflunarleiðinni, en aðrir með,
eins og Gunnar Thoroddsen (S), sem
sagði reynsluna sýna, að vissara
væri að treysta á markaða tekju-
stofna en róa á óvissu við fjárlaga-
gerð, þegar um væri að ræða ýmsa
nauðsynlega, félagslega fyrir-
greiðslu.
Leikhúskjallarinn
Hljómsveitin Thalía,
söngkona Anna
Vilhjálms.
Opiö til kl. 1.
Leikhúsgestir, byrjið leik-
húsferðina hjá okkur.
Kvöldveröur frá kl. 18.
Borðapantanir í síma 19636.
Spariklæðnaður.
Opiö í kvöld kl. 10—2.
Gestir kvöldsins eru nýkrýndir íslandsmeistar-
ar í Diskódansi þau Sigrídur Gudjónsen og
Haukur Clausen.
Allt þaó nýjasta í diskótónlistinni í heiminum nú
leikið í diskótekinu.
Undirbúningur ad Diskókeppni Suðurnesja.
HAFNARGÖTU 33, KEFLAVÍK
Tillaga sjálfstæðismanna:
15 ára heildaráætlun
um varanlega vegagerð
Á ÞINGSÍÐU Mbl. sl.
fimmtudag, þar sem birt var
framsaga Sverris Hermanns-
sonar (S) með tillögu þing-
manna Sjálfstæðisfl. um lands-
áætlun varanlegrar vega-
gerðar, þ.e. að fella að nýrri
vegaáætlun sérstaka 15 ára
ætiun um lagningu hringvegar
og vega til alira þéttbýlisstaða
í landinu með bundnu slitlagi.
féll niður nokkur hluti til-
lögunnar. Hún er því birt hér í
heild.
Framkvæmdum skal
hagað þannig:
1.1979-1984
a) Þjórsá — Vík í Mýrdal. b)
Kjalarnes — Akureyri —
Húsavík. c) Egilsstaðir —
Eskifjörður — Fáskúðsfjörður.
d) Höfn í Hornafirði —
Flugvöllur. e) ísafjörður —
Bolungarvík og ísafjörður —
Súðavík. f) Tenging við Akranes,
Hvammstanga Sauðárkrók,
Dalvík, Þorlákshöfn, Eyrar-
bakka, Stokkseyri. g) Ólafsvík
— Hellissandur.
2.1984-1989:
a) Borgarnes — Stykkis-
hólmur — Búðardalur að
Þorskafjarðarheiði. b)
Patreksfjörður —
Tálknafjörður — Bíldudalur. c)
ísafjörður — Flateyri —
Þingeyri. d) Blönduós —
Skagaströnd. e) Sauðárkrókur
— Siglufjörður. f) Aðaldalur —
Reynihlíð. g) Egilsstaðir —
Jökulsá á Dal. h) Fáskrúðs-
fjörður — Höfn í Hornafirði. i)
Biskupstungnavegur að
Laugavatni. j) Skeiðavegur að
Þjórsárdalsvegi.
1989-1994
Lokið hringvegi og allir þétt-
býlisstaðir tengdir og auk þess
byggðir upp fjölförnustu dreif-
býlisvegir eftir því áfem fjár-
magn hrekkur til.
Framkvæmdir verði fjár-
magnaðar þannig: 1. Með happ-
drættisláni 2.000 millj. kr. á ári.
2. Með framlagi Byggðasjóðs
1.000 millj. kr. á ári. 3. Með
umframtekjum af sérsköttum
umferðarinnar frá og með
næstu áramótum, þó eigi lægri
fjárhæð en 2.000 millj. kr. á ári.
Allar framangreindar fjár-
hæðir haldi raungildi sínu ár frá
ári.
Sérstaklega verði athugað að
stytta framkvæmdatímabil úr
15 árum í 10 ef þess er kostur.
Tekin verði erlend lán til
framkvæmdanna þegar og ef
þess er þörf í samræmi við
lánsfjáráætlun hverju sinni, og
einnig til eftirtalinna verkefna:
1. Garður og brú yfir Botnsvog.
2. Lúkning Borgarfjarðarbrúar.
3. Göng í gegnum Breiðadals-
heiði.
4. Vegasvalir á hættustöðvum
Óshlíðar og Ólafsfjarðarmúla.
5. Garður og brýr yfir Leirur í
Eyjafirði.
6. Reykjanesbraut (Reykjavík —
Kópavogur — Garðabær —
Hafnarfjörður).
7. Brú á Ölfusárós.
Með fjármagni á vegáætlun
hverju sinni skal leggja sérstaka
áherslu á byggingu vega upp úr
snjó, og enn fremur hið fyrsta
byggingu eftirtalinna snjó-
þungra og lélegra vegakafla,
þótt síðar á framkvæmdatíma-
bili yrðu lagðir bundnu slitlagi:
a) Stykkishólmur — Grundar-
fjörður — Ólafsvík.
b) Djúpvegur og tenging
Inn-Djúps við A.-Barð.
c) Vesturlandsvegur (efri hluti
Norðurárdals).
d) Holtavörðuheiði.
f) Víkurskarð.
g) Melrakkaslétta.
h) Hvalnesskriður.
I>ingfréttir í stuttu máli
E]E]E]E]E]E]E]