Morgunblaðið - 31.03.1979, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. MARZ 1979
framkvæmd en auðséð er nú að
vilji fyrir því hjá stjórnvöldum er
algjörlega enginn. En hvers
vegna?
Er örsökin kannski sú að Rússar
vilja fá hér aðstöðu fyrir flota sinn
og þá ef til vill fáanlegir til að
selja okkur ódýrari olíu í staðinn.
Eigum við að trúa því, að núver-
andi ríkisstjórn hleypi rússneskri.
oHuinnrás inn í landið?
í Morgunblaðinu 24. mars ritar
einn íslenskur olíuforstjóri mikinn
langhund um olíuverslun og verð.
Greinin er efalaust skrifuð til að
sætta þjóðina við hækkandi olíu-
verð og líka gefin von um olíu-
verðslækkun. Nú, tveimur dögum
síðar en greinin birtist, hlusta ég á
tilkynningu frá olíuríkjum um að
olía snarhækki um næstu mánaða-
mót.
Það er engu líkara en að alger
samstaða sé milli erlendra og
innlendra olíukónga og núverandi
ríkisstjórnar um að svæfa þjóðina
og sætta hana við hinar miklu
hækkanir olíuverðs sem eru aug-
ljóslega framundan.
Olía er nú keypt fyrir um 20—30
milljarða og gæti orðið 60 eða
jafnvel 100 innan tíðar. Ýmsir
furðufuglar eru oft að tala um hátt
rafmagnsverð en telja allt í lagi
með að kasta tugum milljarða
fyrir erlenda olíu sem er auk þess
atgóðri leið, ásamt annarri meng-
un, með að gjöreyða lífríki jarðar,
jafnvel fullvíst talið að allt"'tíf
verði útdautt eftir 40 ár ef ekki
verður snúið við á þessari dauða-
göngu.
En okkar miklu mengunarlausu
auðæfi skulu bara liggja þar sem
þau hafa kúrt frá upphafi eða
streymt ónotuð til hafs. Olíufurst-
ar og stjórnardrottnar ættu nú að
fara að gera sér grein fyrir því að
olíuöld er brátt öll, rétt eins og
bronsöld eða steinöld.
Ingjaldur Tómasson.
• Enginn hefur
tíma til að
njóta heimilis
Kæri Velvakandi.
Mig langar til að vekja athygli
á eftirfarandi greinum sem ég er
þakklát fyrir að birtust í Mbl.
Föstudaginn 16. mars skrifaði
Brynhildur K. Andersen „Gisti-
húsið heimili". Ég sem móðir og
húsmóðir, er henni svo sannarlega
sammála og þakklát fyrir hennar
orð. Það er til skammar í okkar
velferðarþjóðfélagi að börnunum
er ekki ætlað heimilið nema sem
gististaður yfir nóttina. Til hvers
kappkostar fólk að byggja stórar
íbúðir og fylla þær af húsgögnum.
Svo má enginn vera að því að vera
heima og njóta heimilisins.
Þá vil ég benda á grein eftir
Gísla Jónsson menntaskóla-
kennara en hún var í blaðinu 3.
mars og nefndist „Bara húsmóðir"
og grein sænska prófessorsins í
Mbl. 4. mars en þar segir hann
m.a.: „Hin heimavinnandi húsmóð-
ir er gulls ígildi."
Mér er spurn, verður næg at-
vinna’ fyrir allt skólafólkið, þegar
það lýkur námi, ef allar húsmæður
eiga að vinna utan heimilis og öll
börnin að vera á barnaheimilum.
Það væri fróðlegt að fá svar við
því.
E.S.S.
Þessir hringdu . . .
• „Enn eru til
alvarlegir
listamenn“
Lerkur og Brúskur hringdu og
vildu lýsa óánægju sinni með
myndlistarþáttinn í Vöku s.l.
miðvikudag.
„Við viljum láta vita af því að
enn eru til alvarlegir listamenn.
Hver gæti ekki gert slíkt og sýnt
var í þættinum?"
• Góð þjónusta
„Þakklátur dýraeigandi"
hringdi vegna greinar sem birtist í
Velvakanda um slæma dýralækn-
isþjónustu.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Peiursson
Á svæðamótinu i Amsterdarn í
desember kom þessi staða upp í
skák Spánverjanna Kivasar og
Bellons, sem hafði svart og átti
leik:
22.. . Hxí3+! 23. Kxf3 (Eini leikur-
inn, því að 23. Rxf3 hefði að
sjálfsögðu verið svarað með
23.. . Re4 mát.) Be4+, 24. Kg4 —
f5+, 25. gxf6 (framhjáhlaup)
Rxf6+, 26. Hxf6 - Dxg2+, 27.1)g3
- Dxe2+, 28. Hf3 - Rf5, 29. DÍ2
— Bxf3+, 30. Dxf3 — Rxe3+ og
svartur vann auðveldlega.
„Mig langar til að benda dýra-
eigendum á að við eigum yndislega
dýrahjúkrunarkonu við dýra-
spítalann. Hún er alltaf reiðubúin
til starfa hvenær sem á þarf að
halda. Það hafa bæði ég og aðrir
reynt. Hafi hún bestu þakkir fyrir
góða og dygga þjónustu.“
HÖGNI HREKKVÍSI
'Hdcv'r
37
Vilboö óskast ^~'
í nokkrar fólksbifreiöar og pick-up bifreiö, er veröa
■sýndar aö Grensásvegi 9, þriöjudaginn 3. apríl kl.
12—3. Ennfremur í nokkrar ógangfærar bifreiðar (er veröa
sýndar).Tilboöin veröa opnuö í bifreiöasal aö
Grensásvegi 9 kl. 5. Sala varnarliöseigna
8$
Mosfellssveit og nágrenni
Ný verzlun
Verzlunin Fell,
opnar í Þverholti, í dag laugardag. Seljum
fatnaö, sumarvörur og handavinnu.
Gjöriö svo vel og reyniö viöskiptin.
Verzlunin Fell,
Mosfellssveit.
Tilkynning til
viðskiptamanna
banka
og sparisjóða
Hinn 2. apríl n.k. breytist opnunartími innlánsstofnana
á þann veg, aö afgreiðslustaðir munu eftirleiöis opna
kl. 9.15, sem áöur hafa opnað kl. 9.30.
Jafnframt veröur lokunartíma afgreiöslustaöa, er
lokaö hafa kl. 18.30 eöa 19.00 breytt á þann veg, aö
þeir munu loka kl. 18.00.
Landsbanki íslands
Útvegsbanki íslands
Búnaöarbanki íslands
Verzlunarbanki islands h.f.
Iðnaðarbanki íslands h.f.
Samvinnubanki íslands h.f.
Alþýðubankinn h.f.
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis
Sparisjóöur Kópavogs,
Sparisjóður Hafnarfjarðar
Sparisjóöurinn Pundiö
Sparisjóðurinn í Keflavík
Sparisjóður Vélstjóra
VIÐTALSTIMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálfstæöis-
flokksins verða til viötals í Valhöll, Háaleitisbraut 1
á laugardögum frá kl. 14.00—16.00.
Er þar tekiö á móti hvers konar fyrirspurnum og
ábendingum og er öllum borgarbúum boöiö aö
notfæra sér viötalstíma þessa.
Laugardaginn 31. mars verða til viðtals Magnús
L. Sveinsson borgarfulltrúi og Sveinn Björnsson
varaborgarfulltrúi.
Magnús er í atvinnumálanefnd, framkvæmdaráöi,
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, Sjúkrasam-
lagsstjórn, Umhverfismálaráöi Reykjavíkur og
stjórn Verkamannabústaöa og Sveinn er í íþrótta-
ráöi.