Morgunblaðið - 31.03.1979, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. MARZ 1979
39
Knattspyrnan
af staö á
sunnudag
KNATTSPYRNAN fer af
stað um næstu helgi. Næst-
komandi sunnudag fer fram
fyrsti leikurinn í Reykja-
víkurmótinu á Melavellin-
um og leika þá saman Vík-
ingur og Fylkir. Hefst leik-
urinn kl. 14.00. bar með íer
boltinn að rúlla, þrátt fyrir
að aðstæður séu enn vægast
sagt slæmar víðast hvað.
Síðan rekur hver leikurinn
annan og næstu leikir í
Reykjavíkurmótinu verða
sem hér segir:
Mánudaginn 2. apríl
kl.20.00: Ármann — KR.
Þriðjudaginn 3. apríl kl.
20.00: Valur — bróttur.
Fimmtudaginn 5. apríl kl.
20.00: Fram — Fylkir.
Laugardaginn 7. apríl kl.
14.00: KR — bróttur.
Mánudaginn 9. aprfl kl.
20.00: Ármann — Valur.
Litla
bikar-
keppnin
í dag fara íram tveir leikir í
litlu bikarkeppninni í knatt-
spyrnu. í Keflavík leika
hcimamenn við Hauka kl.
14.00 og á sama ti'ma leika í
Hafnarfirði Breiðablik og
FH.
Skólamót
HSÍ
SKÓLAMÓT HSÍ í hand-
knattleik hefst í íþrótta-
húsinu á Seltjarnarnesi kl.
14.00 og heldur áfram á
sunnudag kl. 13.30 í íþrótta-
húsinu í Hafnarfirði. Tólf
skólar taka þátt í keppninni.
Mótinu verður svo fram
haldið um aðra helgi.
Seltjarnarnes laugardag 31.
mars
Kl. 14.00 FL-FB B-riðill
kcirlci
Kl. 14.45 VSK-MH A-riðill
Kl. 15.30 LSK-lR A-riðili
k.cirl ti
Kl. 16.15 FL-FB B-riðiU
kvenna
Kl. 16.50 HVÍ-ÁR C-riðill
Kl. 17.35 FB-FA B-riðill
Kl. 18.10 VSK-LSK A-riðill
Kl. 18.55 MH-ÍR A-riðill
karla
19.40 FL-VÍ B-riðill karla
Innanhúss-
fótbolti á
Suöurnesjum
ÚM helgina fer fram innan-
hússknattspyrnumót (
íþróttahúsinu í Njarðvíkum
á vegum íþróttabandalags
Suðurnesja. Hefst mótið kl.
12.30 laugardaginn 31. marz
en þann dag spila 3 efstu
flokkarnir. Yngri flokkarn-
ir spila svo á sunnudag og
hefst keppnin á sama tíma.
Fjögur félög taka þátt í
mótinu en framkvæmd móts-
ins annast knattspyrnufél-
agið Víðir í Garði.
AR/bR
Valur rétt smaug
Valsmenn urðu að taka á
honum stóra sínum til þess
að vinna baráttuglaða
Frammara í Laugardals-
höllinni í gærkvöldi. Leik-
urinn var liður í 8-liða
úrslitum bikarkeppni HSÍ.
Valur vann með eins marks
mun og sigurmarkið skor-
aði Þorbjörn Jensson þeg-
ar aðeins um 20 sekúndur
voru til leiksloka, lokatöl-
ur 20—19. Valur haíði 2
mörk yfir í hálfleik,
12-10.
Þrátt fyrir þá spennu sem í
leikinn hljóp í lokin, leit ekki út
fyrir annað en frekar öruggan
sigur lengst af, því að þó að
Frammarar berðust eins og ljón,
héldu hinir þunglamalegu Valsar-
ar þeim lengst af 2—3 mörkum frá
sér. Hæst ber að geta í leiknum
þátts Ólafs Benediktssonar, sem
kom 9 sinnum inn á til að reyna
við víti. Varði hann fjögur þeirra,
en það fimmta fór í þverslána.
Bjarni Guðmundsson átti einnig
góðan leik og Jón Karlsson einnig,
en aðrir Vaisarar áttu frekar
slakan dag þrátt fyrir sigurinn.
Björn Eiríksson var langbestur
Frammara, harðskeyttur á lín-
unni, skoraði mörk og fiskaði víti,
sem félagar hans kepptust síðan
við að misnota.
Mörk Fram: Gústaf 6 (3 víti),
Atli 4 (1 víti), Theodór, Björn og
Jens 2 hver, Erlendur og Birgir
eitt hvor, jú, Sigurbergur eitt líka.
Mörk Vals: Þorbjörn Guð-
mundsson 5 ( 2 víti), Bjarni 4, Jón
Karlsson, Þorbjörn Jensson og Jón
Pétur 3 hver, Stefán og Gísli 1
mark hvor. — gg.
• Jón Karlsson átti ágætan leik fyrir Val í gærkvöldi. hér er hann
stöðvaður á óþyrmilegan hátt íleiknum ígær. Ljósm.: EmiUa.
Þór vann ubk Þór vann
ÞÓR frá Akureyri sigraði UBK í 1.
deild kvenna 17—8 á Akureyri í
gærkvöldi. Staðan í hálfleik var
7—5. Með þessum sigri sínum hafa
Þór-stúlkurnar sennilega bjargað
sér frá falli í deildinni.
Mörk Þórs: Hanna Rúna 8,
Magnea 4, Anna Gréta 2, Harpa 1,
Guðrún 1.
Mörk UBK: Sigurborg 4, Hrefna
3, Þóra 1.
Þór frá Vestmannaeyjum
tryggði sér annað sætið í 2. deild
með naumum sigri yfir Ármanni í
gærkvöldi, 20—19, staðan í hálf-
leik var 12—7 fyrir Þór. Loka-
sekúndur leiksins voru æsispenn-
andi og Ásmundur Friðriksson
skoraði sigurmark Þórs úr víti
þegar 20 sekúndur voru til leiks-
loka.
„Nokkuð að
vinna KR?“
„EIGUM við nokkuð að vera að
vinna KR.“ sagði Sigurður Sig-
urðsson, aðalskytta bórs frá
Akureyri, þegar örfáar mínútur
voru til leiksloka. Kappinn mun
hafa verið að grínast, enda staðan
þá 27—13 fyrir KR og horfur á
bórssigri frekar daufar. Leikur-
inn endaði 28—15 fyrir KR, en
staðan í hálfleik var 14—7 fyrir
Vesturbæjarliðið.
bað er skemmst frá að segja, að
KR lék mjög góðan sóknar- og
varnarleik frá upphafi til enda og
þegar við það bættist, að bórsar-
ar virtust hafa sérlega takmark-
aðan áhuga á leiknum. KR náði
fljótlega yfirburðaforystu, mest
14 marka nokkru fyrir leikslok.
Bestu leikmenn KR voru mark-
vörðurinn Pétur Iljálmarsson,
sem varði aí snilld, og Sigurður
Páll í horninu. Flestir áttu þó
mjög góðan dag. Ekki nokkur
maður stóð upp úr meðalmennsk-
unni hjá bór.
Mörk bórs: Sigurður 4, Sig-
tryggur 4, Ragnar, Gunnar,
Valur og Guðmundur 2 hver.
Mörk KR: Björn Pétursson 10.
Haukur og Sigurður Páll 4 hvor,
borvarður 3, Símon, Kristinn 2
hver, Ólaíur og Ingi Steinn 1
hvor. —gg.
Stjarnan í
fallhættu
bRÓTTUR sigraði Stjörnuna 24 — 19 í íþróttahúsinu Ásgarði í
gærkvöldi. Stjarnan þarf því að leika aukaleik um fallið niður í 3.
deild en bróttarar sluppu fyrir horn. Framan af í leiknum í gær var
Stjarnan betra liðið en í síðari hálfleiknum dró smám saman af þeim
og þegar 15 mínútur votu eftir af leiknum náði Páll Ólafsson að jafna
leikinn 15—15 og kom Páll svo brótti yfir skömmu síðar með laglegu
marki.
Eftir þau juku bróttarar forskotið smátt og smátt og sigur þeirra
var sanngjarn því þeir léku mun betur í síðari hálfleiknum.
Hjá Stjörnunni var Eggert ísdal langbestur. leikmaður sem hefur
gott auga fyrir handknattleik og er skotfastur.
Hjá brótti voru Konráð Jónsson og Einar Sveinsson bestir.
Mörk bróttar: Páll 6, Konráð 6. Einar 3, Sveinlaugur 3, Gunnar 3,
Ilalldór 2.
Mörk Stjörnunnar: Eggert 9, Árni 3, Eyjólfur 2, Árni 2, Gunnlaugur
2, Magnús T. 2. — þr.
Mikill fjöldi á
skíðamoti
Reykjavíkur
REYKJAVÍKURMÓT á skíðum í alpagreinum fer fram í Kóngsgili í
Bláfjöllum dagana 31. mars — 1. aprfl og helgina 7.-8. apríl á vegum
skíðaráðs Reykjayíkur. bátttakendur eru 238 talsins frá skíðadeildum
Ármanns, Fram, ÍR, KR og Víkings auk nokkurra gesta. Keppt verður
í öllum aldursflokkum. Mótið hefst á laugardag með stórsvigi í
flokkum stúlkna 13—15 ára. drengja 13 — 14 ára og stúlkna og
drengja 11 — 12 ára. Á sunnudag verður svo keppt í svigi í flokkum
stúlkna og drengja 11 — 12 ára og 15 — 16 ára. Um aðra helgi heldur
mótið áfram og laugardaginn 7. aprfl verður keppt í svigi í flokkum
kvenna og karla, stúlkna 13—15 ára og drengja 13—14 ára.
Sunnudaginn 8. aprfl er síðasti mótsdagurinn en þá verður keppt í
stórsvigi í flokkum kvenna og karla, drengja 15 — 16 ára og 10 ára og
yngri. Afhending verðlauna fer fram að lokinni keppni hvern
mótsdag. bað er skíðadeild Ármanns sem sér um framkvæmd mótsins.
Stórleikir
í blakinu
TVEIR stórleikir eru á dag-
skrá 1. deildarinnar ( blaki
um helgina. en hvorugur í
Reykjavík. Á Laugarvatni
leika Laugdælir og ÍS og fer
sá leikur fram á laugardag-
inn klukkan 14.00. Á sunnu-
daginn eigast síðan við
UMSE og bróttur á Akur-
eyri. Hefst viðureign þeirra
klukkan 12.30.
Staðan í 1. deild blaksins
er geysilega jöfn og spenn-
andi. Laugdælir eru efstir
eins og er, með 24 stig, en
bæði IS og bróttur hafa
hlotið 22 stig. Öll hafa liðin
leikið 15 leiki.
Hand-
boltinn:
Barist
á toppi
og botni
HELGIN er frekar róleg á
handboltasviðinu að þessu
sinni. Tveir leikir fara fram
í 1. deild karla og eru báðir
stórmikilvægir. HK og
Fylkir mætast og skera úr-
slitin í þeim leik úr um það
hvort liðið eða bæði falla í 2.
deild.
bá mætast Víkingur og
FH í Firðinum á sunnudag-
inn klukkan 19.00.
Leikir helgarinnar eru:
Laugardagur:
Laugardalshöll: 1. deild
karla. Fylkir-HK kl. 15.30
Laugardalshöll: 2. deild
kvenna. Fylkir—UMFN kl.
16.45
Akureyri: 3. deild karla.
Dalvik—UMFN kl. 15.30
Varmá: 3. deild karla.
UBK-ÍA kl. 14.00.
Sunnudagur:
Laugardalshöll: 1. deild
karla. Víkingur—FH kl.
19.00
Laugardalshöll: 1. deild
kvenna. Víkingur—FH kl.
20.15
Laugardalshöll: 2. deild
karla. Leiknir—Ármann kl.
21.15
Margt um
sölur
MIKIÐ hefur verið um kaup
og sölur á breskum knatt-
spyrnumönnum að undan-
förnu, sumar mjög athyglis-
verðar, t.d. að Everton
skipti í gær á sléttu á Micky
Walsh og Peter Easstoe frá
QPR. bó að Everton hafi á
sínum tíma borgað 350.000
sterlingspund fyrir Walsh,
var ekkert greitt á milli.
bá hefur Southampton
selt tvo af leikmönnum þeim
er léku með liðinu til úrslita
um deildarbikarinn gegn
Nottingham Forest fyrir
skömmu. Terry Curran var
selddur til Sheffield
Wednesday fyrir 100.000
pund og Tony Sealy fór til
Crystal Palace fyrir 50.000
pund.
Bristol City hefur loks
gengið frá ' öllum
smáatriðum varðandi kaup
sín á þeim Geert Maijer frá
Ajax og Perrti Jantunen frá
sænsku smáliði.
bá má Ioks geta þcss, að
Everton hefur keypt Brian
Kidd frá Man. City fyrir
150.000 pund, en City hefur í
staðinn keypt Barry Silk-
man frá Plymouth fyrir
65.000 sterlingspund.