Morgunblaðið - 31.03.1979, Side 40
Al'íiI,ÝSIN(>ASÍMINN ER:
22480
AIGLYSINGASIMINN ER:
22480
Jfiorflxmliln&ií)
LAUGARDAGUR 31. MARZ 1979
/
Frumvarp Olafs Jóhannessonar í endanlegri gerð:
Umsamdar áfangahækk-
anir afnumdar meðlögum
SAMKVÆMT samkomulaiíinu, sem varð í fjárhags- og viðskiptanefnd-
um Alþingis í fyrrinótt milli meirihlutaflokkanna í nefndinni, hafa
verið mótaðar breytingatillögur við frumvarp Ólafs Jóhannessonar
forsætisráðherra og verða þrjár veigamiklar breytingar á frumvarp-
inu. Sú veigamesta er. að frumvarpið gerir ráð fyrir því að marzlaun
verði grunnkaup og það skuli haldast óbreytt, þar til um annað hefur
verið samið. Tekur þetta af m.a. tvær umsamdar áfangahækkanir í
kjarasamningi Samhands íslenzkra bankamanna, tvær 3% hækkanir,
sem samanlagt gera 6,1%.
Þá segir og í breytingartillögun-
um, að þær samþykktir um há-
marksálagningu, hámarksverð og
aðra verðlagningu, sem í gildi eru,
þegar lögin komi til framkvæmda,
skulu gilda áfram. Síðan segir:
„Þegar samkeppni er nægjanleg
r
Kókaínmálið:
Gæzluvarð-
hald íslend-
inganna
framlengt
GÆZLUVARÐIIALD
Islendinganna íjögurra,
sem sitja í fangelsi í
Kaupmannahöfn vegna
kókaínmálsins, var
framlengt í gærmorgun
um 7 — 12 daga.
Gæzluvarðhald tveggja karl-
manna, sem játað hafa þátt
sinn í málinu, var framlengt
um 12 daga en varðhald þriðja
karlmannsins og konunnar var
framlengt um 7 daga.
Svend Thorsted deildarstjóri
i fíkniefnadeild lögreglunnar í
Kaupmannahöfn sagði í gær, að
enn væru nokkur óljós atriði í
rnálinu og hefði þótt nauðsyn-
legt að framlengja gæzluvarð-
haldið af þeim sökum.
Ungverjinn, sem situr inni og
tnun vera aðalmaðurinn í mál-
inu, hefur til þessa neitað öllum
sakargiftum og var gæzluvarð-
hald hans einnig framlengt í
gær.
getur verðlagsráð að fengnu sam-
þykki ríkisstjórnar vikið frá þess;
um reglum og meðal annars heim-
ilað að fella einstaka flokka vöru
og þjónustu undan verðlagsákvæð-
um. Hafi slík heimild verið veitt,
getur verðlagsstofnun engu að
síður skyldað hlutaðeigandi aðila
til að tilkynna stofnuninni
verðhækkanir. . .“
Þá er breytt frá fyrri útgáfu
laganna hámarki innstæðubind-
ingar, sem megi hæst nema 28% af
heildarinnstæðufé hjá hverri
stofnun. Þetta mark var áður 25%
í frumvarpinu.
Þótt gert sé ráð fyrir að grunn-
laun í marz skuii vera óbreytt þar
til um annað hefur verið ákveðið,
breyta ákvæði laganna í engu rétti
til að gerðir séu nýir kjarasamn-
ingar, jafnt um grunnlaun sem
verðlagsbætur á laun. Þá segir að
frádráttur frá verðbótavísitölu
hinn 1. júní 1979 vegna rýrnandi
viðskiptakjara skuli hæst nema
2% af verðbótavísitölu þann dag.
Það, sem umfram 2% frádrátt
kann að reynast, skal tilgreina,
þegar reiknuð verður verðbótavísi-
taia frá 1. september 1979. Þó skuli
frádráttur frá hækkun verðbóta
samkvæmt ákvæðum laganna ekki
breyta rétti til verðbóta hinn 1.
júní 1979 á laun, sem lægH eru en
210 þúsund krónur á mánuði fyrir
fulla dagvinnu. Hinn 1. september
skal breyting verðbóta á laun frá
1. júní vegna viðskiptakjaraáhrifa
vera hin sama fyrir þessi laun og
aðra launataxta. Hinn 1. desember
skal síðan gilda sama vísitala við
ákvörðun verðbóta á öll laun eins
og hún er ákveðin í frumvarpinu.
Gert er ráð fyrir að kveðið verði
nánar á um framkvæmd þessara
atriða með reglugerð, þar með
hvað skuli telja full laun fyrir
dagvinnu, og hvernig tryggja skuli
að ákvæðin valdi ekki óeðlilegri
röskun milli launataxta og segir að
í því skyni megi setja reglur um
það, hvernig fara skuli með verð-
bætur á laun, sem eru allt að 220
þúsund krónum á mánuði.
Þá segir að þegar rætt sé um
fuila dagvinnu skuli miða við
kauptaxta með óþrifa- og erfiðis-
álögum. Öil önnur álög hækka
laun og valda því að skerðingar-
ákvæðum frumvarpsins er ekki
frestað. Loks segir að elli- og
örorkulífeyrir skuli njóta sömu
meðferðar og laun undir markinu
210 þúsund krónur á mánuði og frá
sama tíma.
Málin rædd við höfnina.
Ljósm. Emilía.
Korchnoi
til íslands í
boði Mjölnis
„Ég ræddi við Viktor Korchnoi
í sfma í dag og sagði honum að
Skákfélagið Mjölnir vildi bjóða
honum til íslands á þessu ári.
Hann þáði boðið umsvifalaust og
sagði að septembermánuður
hentaði honum vel og stjórn
Mjölnis mun nú vinna kappsam-
lega að þessu máli,“ sagði Har-
aldur Blöndal formaður Skákfé-
lagsins Mjölnis í samtali við Mbl.
í gær.
„Kveikjan að þessu boði er
samtal Morgunblaðsins við
Korchnoi, sem birtist í blaðinu í
dag,“ sagði Haraldur. „Ég sagði
Korchnoi, að með þessu boði
vildum við gefa íslendingum kost
á að njóta snilli hans á skákborð-
inu og einnig lýsa yfir stuðningi
við hann og jafnframt andúð
okkar á því framferði sovézka
skáksambandsins að útiloka hann
frá þáttöku í sterkum skákmótum.
Frámferði sovézka skáksam-
bahdsins gagnvart Korchnoi er
auðvitað fyrir neðan allt velsæmi
og persónulega fyndist mér rétt,
að Skáksamband íslands tæki
aftur heimboð sitt til Karpovs
heimsmeistara meðan Rússar
halda uppi ofsóknum á hendur
einstökum skákmönnum," sagði
Haraldur Blöndal.
Bankarnir greiða 3% áfangahækkunina:
Bankamenn höfnuðu tílmælum
ráðherra um frestím hækkunar
BANKAR og sparisjóðir munu
greiða nú um mánaðamótin um-
samda 3% áfangahækkun, sem
kveðið er á um í kjarasamningi
að bankamenn skuli fá hinn 1.
apríl. Ákvörðun þessi var tekin í
gær eftir að bankamenn höfnuðu
tilmælum Svavars Gestssonar,
hankamálaráðherra, um að þeir
frestuðu áfangahækkuninni og
Rannsóknaráð:
Hafnað að veita 18 Rússum
leyfi til rannsókna í sumar
RANNSÓKNARÁÐ ríkisins hef-
ur neitað Sovétmönnum um rann-
sóknaleyfi hér á landi í sumar
fyrir mjög stóran hóp manna er
þeir vildu senda hingað, eða átján
manns, að því er Vilhjálmur
Lúðvíksson hjá Rannsóknaráði
tjáði Morgunblaðinu í gær. Sagði
Vilhjálmur að neitunin hefði
verið gerð á þeim forsendum, að
verkefni þeirra hefðu ekki verið
nægjanlega vel skilgreind og
þyrftu að endurskoðast og setjast
í samhengi og samræmi við það
sem verið væri að gera hér á
landi. Sagði Vilhjálmur að um-
sókn Sovétmanna hefði verið
hafnað óbreyttri, og þyrftu Sovét-
menn þvi' að endurskoða umsókn
sína áður en leyfi yrði veitt.
Vilhjálmur sagði að rannsóknir
þær, sem hér væri um að ræða, væru
allvíðtækar jarðeðlisfræðilegar
rannsóknir á ýmsum stöðum á
landinu og einnig rannsóknir á
plöntuleifum víðs vegar um landið
sem væru mjög áhugaverðar og yrðu
þær væntanlega unnar undir for-
ystu mjög hæfs manns ef af yrði, en
búningur málsins hefði ekki verið á
því stigi eða með þeim hætti að
aðgengilegt hefði þótt. Því hefði
verið farið fram á endurskoðun
umsóknarinnar.
Vilhjálmur sagði að umsóknin
hefði verið um 18 manns, og ef af
yrði yrðu þetta einu rannsóknir
Sovétmanna hér á landi í sumar, en
rannsóknum þeirra og mælingum á
miðhálendinu væri nú lokið. Sagði
hann tilgang þessara rannsókna
Sovétmanna vera vísindalegs eðlis,
þeir væru að skoða hluti sem þeir
hefðu mikinn áhuga á og hefðu
talsvert almennt vísindalegt gildi.
Sagði hann menn hafa orðið margs
vísari af þessum rannsóknum, en þó
misjafnlega eins og verða vildi.
Sumum hefði líkað þetta mjög vel en
öðrum fundist þetta vera vinna sem
ekki væri af þeim gæðum sem menn
teldu að hér ættu við, og oft væri
verið að endurtaka það sem áður
hefði verið gert. En megintilgangur
þessara rannsókna af þeirra hálfu
sagði Vilhjálmur hafa verið að
skýra betur uppruna jarðskorpunn-
ar og breytingar á henni sem stöð-
ugt eru í gangi. Einkum hefði það
verið landrekskenningin sem þeir
hefðu verið að skoða og sannreyna
fyrir sig, en á hana hefðu þeir verið
mjög lítið trúaðir sjálfir og hafa
haft ákveðna kenningu í því efni.
tækju upp viðræður við samn-
inganefnd bankanna. Banka-
menn höfnuðu tilmælum ráð-
herra með 11 atkvæðum gegn 6 í
stjórn Sambands fslenzkra
hankamanna.
í gær var haldinn fundur í
stjórn SÍB og sátu hann einnig
formenn félags bankamanna eftir
hádegið. Þar höfnuðu bankamenn
áðurnefndri málaleitan ráðherra
og því kom í raun aldrei til, að
samninganefnd bankanna þyrfti
að taka málið fyrir, þar sem
samningsákvæði um 3% áfanga-
hækkun voru skýr.
Bréf Svavars Getssonar var
stílað til formanns samninga-
nefndar bankanna. í bréfinu fer
ráðherra fram á það við formann
samninganefndarinnar, að un-nið
yrði að lausn þessa vandamáls
með því að bankarnir hæfu við-
ræður við SIB um opnunartíma
bankanna, niðurröðun .starfsheita
í launaflokka, gildistíma samn-
ingsins og um aðrar félagslegar
umbætur í samningamálum
bankamanna. Skilyrði bankanna
fyrir þessum viðræðum áttu að
vera, að bankamenn féllu frá 3%
áfangahækkun, sem um er getið í
samningum, en þær eru tvær, 1.
apríl og 1. júní, og er gildistími
samningsins til 1. október.
Eins og áður segir, höfnuðu
bankamenn þessum tilmælum og
kom því aldrei til kasta bankanna
í málinu. Greiða bankarnir því þá
3% áfangahækkun, sem samning-
ar kveða á um, svo og sparisjóðir.
Flugmenn undirbúa
harðari aðgerðir
VIÐ VERÐUM með félags-
fund hjá okkur á morgun og
verða þar m.a. ræddar nýjar
aðgerðir af okkar hálfu og mér
þykir líklegt, að þær verði ekki
linari, sagði Björn Guðmundsson
formaður Félags ísl. atvinnuflug-
manna í samtali við Mbl. í gær. —
Sáttanefndin hefur ekki haft
neina fundi og það hefur ekki
verið talað við okkur frekar en
við værum hundar, sagði Björn
ennfremur.
Sjá: Verkfallsaðgerðir
álitshnekkur ... bls. 3.