Morgunblaðið - 26.04.1979, Qupperneq 1
48 SIÐUR
93. tbl. 66. árg. FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Um Khashiba, Sinai, 25. aprfl.
AP. Reuter.
ENDIR var í dag bundinn á 31
árs íjandskap fsrael og Egypta er
háttsettir entbættismenn land-
anna innsigluðu gjörð friðarsátt-
mála ríkjanna með því að skipt-
ast á skjölum að viðstöddum
sendiherrum Bandaríkjanna í
fsrael og Egyptalandi í eftirlits-
stöðinni Um Khashiba í
Sínaieyðimörkinni.
Athöfn þessari hafði tvívegis
verið frestað og lá við að ekkert
yrði úr henni í dag, því að á
Líbanon kvartar
við Öryggisráðið
Tel Aviv, Tyrus, Sameinuðu þjóðunum, Kairó,
25. april. AP. Reuter.
REYKJARSTRÓKAR stigu upp af flóttamannabúðum Palestínu-
manna í suðurhluta Líbanons í dag eftir að ísraelskar orrustuþot-
ur, fallbyssuskip og stórskotalið höfðu gert árásir á stöðvar
Palestfnuskæruliða í Suður-Líbanon fjórða daginn í röð. Hermt er
að 10 manns hafi fallið, þ.á m. sex skæruliðar PLO, og a.m.k. 40 hafi
særst. Otvarpsstöð Falangista í Beirút skýrði frá því í dag að alls
hefðu 47 fallið og yfir 80 særst í árásum fsraelsmanna á stöðvar
PLO í S-Líbanon. Þrír ísraelsmenn særðust lítillega er skæruliðar
PLO og hermenn skiptust á skotum yfir landamæri ísraels.
ísraelskar orrustuþotur flugu
tvívegis lágflug yfir höfuðstöðvar
Yassers Arafats leiðtoga PLO í
Beirút í dag og yfir aðrar stöðvar
skæruliða víðsvegar í Líbanon.
Mikill ótti greip um sig er flugvél-
arnar birtust og víða gripið til
loftvarnarvopna.
Sendiherra Líbanons hjá Sam-
einuðu þjóðunum fór í kvöld fram
á það við Öryggisráðið að það
kallaði saman neyðarfund og léti
ástand mála í Líbanon síðustu
síðustu stundu urðu menn þess
áskynja að sáttmálarnir voru ekki
í einu og öllu samhljóða. Heimildir
hermdu að ágreiningur hefði
sprottið upp varðandi m.a. sjálfs-
forræði Palestínumanna, en
embættismennirnir vörðust allra
frétta. Eftir málaþóf og viðræður
við ráðamenn í Kairó og Jerúsalem
var ágreiningurinn útkljáður og
skipst á skjölum rúmum tveimur
klukkustundum síðar en ráðgert
hafði verið.
Fregnir hermdu m.a. að deilan
hefði snúist um skjal er fylgdi
sáttmálanum og fjallaði um
hvernig hagað skyldi samningar-
viðræðum um sjálfsforræði til
handa Palestínumönnum á
Vesturbakkanum og Gaza.
Egyptar hefðu bætt einu orði við
textann og breytingar hefðu orðið
að gera þar á. Ennfremur hermdu
heimildir að Egyptar hefðu viljað
láta skjal þetta tilheyra hinum
ppinbera friðarsáttmála, en
Israelar hefðu ekki fallist á það.
Athöfnin í dag markar tímamót
og miðast ýmis framkvæmdar-
atriði friðargjörðarinnar við hana.
Um 46 af hundraði aðspurðra lýstu
stuðningi við Callaghan í könnuninni
í dag, en hann hafði fylgi 45 af
hundraði aðspurðra í sams konar
könnun blaðsins fyrir viku. Fylgi
Thatchers hafði aftur á móti minnk-
að úr 37 af hundraði í 33 af hundraði.
Sjá nánar... „Verka-
mannaf jokkurinn saxar
á fylgi íhaldsflokksins“
bls. 22.
daga til sín taka. Sakaði sendi-
herrann ísraelsmenn um að
hindra lögmæt stjórnvöld í að ná
yfirráðum í S-Líbanon.
Ezer Weizman utanríkisráð-
herra Israels sagði í kvöld að
ekkert væri hæft í vangaveltum
um að ísraelsmenn væru reiðu-
búnir til viðræðna við PLO um
málefni Palestínumanna. Sá orð-
rómur komst á kreik eftir að
Weizman hvatti samtök Palestín-
umanna í dag til að „hætta að
skjóta, en byrja að tala“.
Evensen og íslenzku fulltrúarnir í Genf:
í margbreytilegum stellingum nutu menn sólar-
innar í sundlauginni í Laugardal í Reykjavík í
gær, en sundlaugargestir urðu hins vegar að
hverfa frá Vesturbæjarlaug um tíma í gær vegna
vatnsskorts er stafaði af bilunum. Lítil von mun
vera um sól í dag samkvæmt spá veðurfræðinga í
gærkvöldi.
Ljósm. Rax.
w
Fjandskapur ísraela
og Egypta úr sögunni
*
Arás á bæ
í Thailandi
Aranyaprathet, Thailandi, Bankok.
25. aprfl. AP. Reuter.
VÍETNAMSKAR hersveitir í
Kambódíu skutu í dag sprengjum
að thailenzku landamæraborg-
inni Aranyaprathet. að því er
virðist í þeim tilgangi til að
hrella tugþúsundir Kambódíu-
manna sem hröktust inn í
Thailand vegna aðgerða
Víetnama og stjórnarhersins í
Kambódíu að undanförnu.
Yfirvöld í Aranyaprathet skýrðu
frá því að sprengjur heföu fallið
nærri þeim stað þar sem 50.000
Kambódíumenn höfðust við.
Seinna um daginn hermdu fregnir
að Kambódíumennirnir, sem eru
hliðhollir Pol Pot, hefðu á ný snúið
til fyrri heimkynna.
Útvarp herja Pol Pots skýrði frá
því í dag að yfir 350 víetnamskir
hermenn og einn kúbanskur hefðu
verið felldir í bardögum á svæði
norðaustur af Phnom Penh í lok
marz og byrjun apríl.
Fylgi Thatcher
minnkar með
hverjum degi
London, 25. nprfl — AP
SKOÐANAKÖNNUN sem birtist í
Daily Express í dag bendir til þess
að persónulegt fylgi Margrétar
Thatcher leiðtoga íhaldsflokksins
minnki með hverjum degi sem nær
drcgur þingkosningum í Bretlandi,
en fylgi James Gallaghans aukist.
Ræddu samninga vegna
útfærslu við Jan Mayen
Ósló, 25. aprfl. Fri Jan Grik Laure, fréttaritara Mbl.
JENS EVENSEN formaður norsku sendinefndarinnar á hafréttarráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna átti í dag óformlegar viðræður við fulltrúa
íslands á ráðstefnunni og var á fundinum m.a. rætt um undirbúning að
samningaviðræðum Norðmanna og íslendinga varðandi fyrirhugaöa
útfærslu efnahagslögsögunnar við Jan Mayen í 200 mflur.
Norðmanna í málinu og ljóst er að
vart verður nokkuð aðhafst á ný
fyrr en Evensen og Andersen hafa
átt viðræður við ríkisstjórnir sín-
ar.
Hans G. Andersen
Hvorki Evensen né Hans G.
Andersen formaður islenzku
sendinefndarinnar vildi tjá sig um
málefni Jan Mayen við frétta-
mann norska blaðsins Aftenpost-
en að loknum fundinum í dag.
Vildu þeir ekkert láta eftir sér
hafa um ágreining Islendinga og
Evensen
Það er alkunna að sterkar radd-
ir eru um það á íslandi að Norð-
menn hafi engan rétt til að færa
út efnahagslögsögu Jan Mayen.
íslenzka ríkisstjórnin hefur þó að
því er bezt er vitað ekki tekið
afstöðu til útfærslunnar. Það er
von norskra stjórnvalda að ekki
komi til stjórnmáladeilna við ís-
lendinga vegna útfærslunnar.