Morgunblaðið - 26.04.1979, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 26.04.1979, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1979 37 Við skólaslit Stjómmálaskóla Sjálfstæðisflokksins „Osjaldan gerðust nem- endur hugsjónamóðir,, Stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins, sá áttundi í röðinni frá endurreisn skólans 1973, var slitið laugardaginn 24. marz s.l. Skólinn var í fyrsta skipti kvöld- og helgarskóli og stóð samtals í 13 daga. Nemendaf jöldi hefur aldrei verið meiri, alls sótti skólann 31 að staðaldri. Blaðamaður Mbl. ræddi stuttlega við nokkra nemendur rétt fyrir skólaslitin og spurði þá, hvers vegna þeir sæktu skólann og hvernig þeim hefði líkað vistin. Fara svör þeirra hér á eftir: „Kynnst mörgu skemmtilegu fólkiu „Ástæðan fyrir því að ég sótti skólann var sú, að ég hitti skólastjórann, Svein H. Skúla- son, á Búnaðarþingi í vetur og hann sagði mér af skólanum og ágæti hans til þess að verða færari til að tjá mig fyrir almenningi og á fundum. Eg er mjög ánægður með árangurinn, þó tel ég skólann hafa verið of stuttan. Gripið hefur verið á mörgum áhuga- verðum verkefnum, sem ég hefi ekki hugsað út í fyrr. Einnig hefi ég kynnst hér mörgu skemmtilegu fólki, bæði kennur- um og nemendum. Vonast ég til þess, að þessi kunningsskapur verði til þess að okkur takist að leggja okkar af mörkum til að byggja upp sterkt og gott félags- starf í flokknum." „Fannst tímabært að treysta íslendinginn í sjálfri méru „Þegar ég ákvað að taka þátt í Stjórnmálaskólanum þá hugsaði ég, að á þessu námskeiði hlyti að vera samankominn mikill þjóð- hagslegur fróðleikur og viðhöfð skipuleg vinnubrögð. Það hlyti að spara tíma að gerast þátttak- andi. Mér fannst tímabært að treysta böndin við íslendinginn í sjálfri mér og styrkja mínar eigin „rætur" á þessum rótlausu tímum. Svo verð ég að játa, að ég hef alið með mér þá ósk- hyggju að gera ræðustólinn og umhverfi hans mér eilítið undir- gefnara. Ég er ekki vonsvikin með framkvæmdina. Hver dagur hefur verið öðrum ólíkur og örvandi verkefni til úrlausnar á dagskrá með valinkunnum leið- beinendum. Ósjaldan gerðust nemendur hugsjónamóðir í þessu örvandi umhverfi og varð þá oft að grípa til rökvísinnar' hið bráðasta. Þetta hafa verið strangir og skemmtilegir skóladagar og þot- ið hjá sem „hvítur stormsveip- ur“. Ég hef eignast eftirminni- lega reynslu með frábærum bekkjarsystkinum og nú kveð ég þau með trega að sinni, en hef von um að hitta þau aftur á öðrum vettvangi. Öllum aðstandendum Stjórn- málaskólans og starfsmönnum vil ég þakka þá vinsemd og athygli, er þeir veittu okkur nemendum svo ríkulega. Af stakri alúð leysir þetta fólk af hendi ákaflega óeigingjarnt starf. Að verða vitni að slíku er svo annar skóli út af fyrir sig.“ „Skóiann sækja menn á öllum aldriu „Mig langaði til að kynnast hinu daglega lífi og gangi þjóð- mála. Eg tel mig hafa fengið innsýn inn í stjórnmálaskoðanir og hvernig skipting þeirra er. Kom ég hingað gagngert til að kynnast skoðunum annarra og tel mig hafa haft mjög gott af því. Leiðbeinendur hafa verið sér- staklega góðir, hver á sínu sviði. Skólann sækja menn á öllum aldri, allt frá 16 ára og upp úr og sýnir það, að allir aldurshópar hafa áhuga." Arngrímur sagði í lokin: „Eft- ir að hafa kynnst stjórnmála- störfum lítillega vil ég taka fram, að ég hef sannfærst enn betur um nauðsyn á lækkun kosningaaldurs. 18 ára fólk hef- ur jafnan þroska og hinir eldri og ef það kynnir sér málin þá stendur það áreiðanlega jafn- fætis þeim. Ég vil sérstaklega hvetja allt áhugasamt ungt fólk til að sækja þennan skóla. Ég þakka samstarfið." „Hélt alltaf að ég væri ekki pólitísku „Ég hélt alltaf að ég væri ekki pólitísk, en nú sé ég að það var ekki rétt hjá mér. Ég fór í skólann eingöngu til að fá æf- ingu í að tjá mig, ég var orðin þreytt á að vera alltaf kveðin í kútinn. Mér finnst að ég hafi lært heilmikið og skólaveran hefur byggt mig upp á pólitíska svið- inu. Einnig hefur verið gaman að kynnast flokksstarfinu innan frá. Ég hef hingað til aðeins verið áhorfandi. Það hefur verið skemmtilegt að starfa í þessum nemenda- hópi. Hér ríkir ekkert kynslóða- bil, þrátt fyrir mikinn aldurs- mun. Ég vil að lokum hvetja alla, sem eitthvað hugsa um stjórnmál, að missa ekki af næsta tækifæri." „Ástæða fyrir lýðræðis- sinna að standa samanu „Ég hef oft áður ætlað mér að taka þátt í Stjórnmálaskólan- um, en aldrei haft aðstöðu til þess vegna vinnu minnar. Þar sem skólinn er nú í fyrsta sinn kvöld- og helgarskóli var ég ekki lengi að taka ákvörðun. Ég hef mikinn áhuga á stjórnmálum og einnig hafði ég hug á að fá æfingu í að koma fram opinber- lega. Mér hefur líkað mjög vel. Kennsluefnið var gagnlegt og uppbyggilegt. Einnig tel ég mig hafa haft mjög gott af æfingun- um og fræðslunni um ræðu- mennsku." Sigurbjartur sagði að lokum: „Kosningarnar s.l. sumar ýttu við manni að hugsa fyrir því, að það er ástæða fyrir lýðræðis- sinna að standa saman. Við skulum ekki bíða eftir að við missum ákvörðunarvaldið úr höndum okkar. Ég vil því hvetja allt frjálshyggjufólk til að sækja skólann." „Auðveldar mér starfið innan flokksinsu Ég fór í skólann af einskærum áhuga á landsmálapólitík, og gerði mér vonir um að geta bætt við þekkingu mína. Mér hefur líkað afar vel skólavistin. Öll erindi hafa verið innihaldsrík og er erfitt að gera upp á milli þeirra. Þó má ég til með að nefna sérstaklega erindi Sigurðar Líndal um sögu og stefnu íslenzkra stjórnmála- flokka, sökum þess hversu skemmtilega hann segir frá. Ég hefi starfað nokkuð innan flokksins, er í stjórn Hverfafé- lags Árbæjar- Seláss og félagi í Hvöt. Ég vil sérstaklega undir- strika, hversu mikla hjálp ég tel skólasetuna vera til að auðvelda mér starfið innan flokksins. Einnig er þetta mikil hvetning til áframhaldandi og meira starfs. Ég vil að lokum þakka samveruna og hvetja sjálfstæð- isfólk til að sækja skólann." „Skólinn uppfyllti vonir mínar og óskiru „Mig langaði fyrst og fremst til að fræðast um sögu og stefnu Sjálfstæðisflokksins og annarra flokka. Einnig vildi ég öðlast reynslu og þjálfun í almennum félagsstörfum, svo og ræðu- mennsku. Skólinn uppfyllti að fullu þær vonir sem ég gerði mér um hann og ég vil hvetja alla, sem mögu- lega geta, til þess að sækja skólann í framtíðinni." F.P. Krlstmann Guömundsson Elnn a» víðlesnustu hötundum landsins. Nokkrar af bókum hans hafa veriö þýddar aö minnsta kosti á 36 tungumát. Skáldverk Kristmanns Guömundssonar Brúöarkyrtillinn Morgunn lífsins Arfur kynslóöanna Ármann og Vildís Ströndin blá Fjalliö helga Góugróöur Nátttrölliö glottir Gyöjan og nautiö Þokan rauöa Safn smásagna Almenna Bókafélagiö, Austuratmti 18, Skammuvsgur 36, simi 18707 s(mi 73066

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.